Alþýðublaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. janúar 1985 3 Stúdentar frá Flensborg Föstudaginn 21. desember sl. voru brautskráðir frá Flensborgar- skóla 34 stúdentar og 2 nemendur með almennt verslunarpróf. Stúdentarnir skiptast þannig á brautir, að 8 luku prófi af mála- braut, 8 af viðskiptabraut, 5 af eðl- isfræðibraut, 2 af náttúrufræði- braut og 1 af fjölmiðlabraut. Við brautskráningarathöfnina, sem fór fram í skólanum, söng kór Flensborgarskóla undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg jólalög og stúdentalög. Skólameistari Kristján Bersi Ólafsson flutti ræðu og afhenti prófskírteini. Auk þess tóku til máls við athöfnina fulltrúi nýst. , Brynhildur Alfreðsdótlir, og fulltrúi skólakórsins, Halla Katrín Arnardóttir, sem færði stjórnandanum Hrafnhildi Blomst- erberg blómvönd frá kórfélögun- um. Ýmsir nemendur hlutu viður- kenningu fyrir góðan námsárangur í heild eða í einstökum námsgrein- um, þar af þrír sem luku prófi með ágætiseinkunn: Ása Einarsdóttir sem lauk stúdentsprófi af félags- fræðibraut, Vigdís Jónsdóttir sem lauk stúdentsprófi af uppeldis- braut, og Guðrún M. Guðjónsdótt- ir sem lauk almennu verslunar- prófi. Framkvcemdanefnd um launamál kvenna: Tenglahópur um samstöðu kvenna Frá því að Framkvæmdanefnd um launamál kvenna var stofnuð í októbermánuði 1983 hcfur ncfndin unnið að margvíslegum verkefnum til að vekja athygli á stöðunni í launamálum kvenna og knýja á um að fá leiðréttan þann launamismun sem ríkir á vinnumarkaðinum milli kynjanna fyrir sömu og sambæri- leg störf. Á nýafstöðnu ASÍ-þingi boðaði Framkvæmdanefndin til hádegis- verðarfundar með konum sem sæti áttu á þinginu. Var sá fundur mjög fjölmennur og mættu 170 konur víðs vegar að af landinu. Markmiðið með þeim fundi var að ræða um störf Framkvæmda- nefndar, svo og að fjalla um þau mál sem til umræðu voru á ASI-þingi og sérstaklega snertu launa- og hagsmunamál kvenna. Á fundinum kom fram mikil sam- staða um að auka áhrif kvenna í verkalýðshreyfingunni. Á fundinum kynnti Fram- kvæmdanefndin konum á ASÍ-þingi þá hugmynd að komið yrði upp tenglahópum sem Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins ákvað á fundi í dag nýtt fiskverð, er gilda skal frá 21. nóvem- ber 1984 til 31. ágúst 1985 með heimild til uppsagnar frá 1. júní 1985. Ákvörðunin felur í sér 20% meðalhækkun frá því verði, er gilti til 20. nóvember sl. Einstakar fisk- tegundir hækka sem hér segir: Verð á þorski, steinbít, keilu og kola hækkar um 20%, verð á karfa um 18%, verð á ýsu og skötusel um 46%, verð á öðrurn fisktegundum hækkar um 15%, nema verð á ufsa, sem breytist ekki. Þá var ákveðið með samkomu- lagi í yfirnefndinni og með sam- þykki sjávarútvegsráðuneytisins að greiða á verðtímabilinu verðupp- bætur úr verðjöfnunardeild Afla- tryggingasjóðs sem hér segir: 25% á ufsaverð að undanskildum mars og störfuðu með sama sniði og Franr- kvæmdanefndin víðs vegar um landið. Markmiðið með stofnun tengla- hópa er: — Að styrkja samstöðu kvenna til að ná fram launajafn- rétti. — Að koma á markvissu sam- ræmdu upplýsinga- streymi um stöðuna í launamálum milli allra tenglahópa Fram- kvæmdanefndar svo og til kvenna á vinnustöð- um. — Að miðla hugmyndum um leiðir til að ná fram launajafnrétti kynjanna. — Að a.m.k. annað hvert ár hittist allir tenglahópar og Framkvæmdanefndin og beri saman bækur um ráð og leiðir til að knýja á um launajafnrétti. Þessi hugmynd er nú til athugun- ar hjá konum innan heildarsamtaka ASI og er niðurstöðu að vænta í febrúarmánuði n.k. apríl, 16% á karfaverð, 16% á verð á grálúðu og lúðu, sem veidd er á línu frá 1. júní til 31. ágúst og 6% á annað botnfiskverð, þó ekki á ýsu- verð. Verðuppbót þessi greiðist að- eins á afla, sem landað er til vinnslu hér á landi. Aðrir verðskilmálar breytast ekki. Verðið var ákveðið með atkvæð- um fulltrúa fiskkaupenda og odda- manns gegn atkvæðum fiskselj- enda. í yfirnefndinni áttu sæti: Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, sem var oddamaður nefndarinnar, Eyjólfur ísfeld Ey- jólfsson og Friðrik Pálsson fulltrú- ar kaupenda og Kristján Ragnars- son og Óskar Vigfússon fulltrúar seljenda. Framkvæmdanefndin telur mikilvægt að stöðugt sé í gangi um- ræða í þjóðfélaginu um stöðuna í launamálum kvenna. Fram- kvæmdanefndin hefur nú látið út- búa merki fyrir nefndina og hafa verið útbúin gjafakort og drykkjar- krúsir með þessu merki nefndar- innar. Tilgangurinn auk fjáröflunar er að vekja umræður í þjóðfélaginu ekki síst á vinnustöðum um launa- kjör kvenna. Gjafakortin og drykkjarkrúsirn- ar fást hjá Verkakvennafélaginu Framsókn og Thorvaldsens basar, Austurstræti 4. Innan skamms er gert ráð fyrir því að tilbúin verði launakönnun sem Framkvæmdanefndin hefur staðið að þar sem fram koma mjög fjölþættar upplýsingar um stöðuna í launamálum kvenna. Hugmyndin er að gefa niðurstöðurnar út í sér- stöku riti á vegum Framkvæmdar- nefndarinnar. í undirbúningi er einnig á fyrri hluta iþessa árs að boða til sam- eiginlegs fundar með konum i sam- inganefndum stéttarfélaganna þar sem rætt verður um stöðuna í launamálum kvenna og hvernig konur í stéttarfélögum geta sam- eiginlega knúið á um að uppræta þann launanrismun sem rikir milli kynjanna. Lyf sem hafa áhrif á athyglisgáfu og viðbragðsflýti eru merkt með RAUÐUM VIÐVÖRUNAR- ÞRÍHYRNINGI ísr" Nýtt fiskverð Eimskip í Rotterdam Fýrsta janúar næstkomandi opn- ar Eimskip eigin umboðsskrifstofu i Hollandi. Skrifstofan heyrir undir meginlandsdeild félagsins. Verður megin verkefni hennar að styrkja enn frekar þá þjónustu Einskips á meginlandinu, sem fyrir er með sér- stakri áherslu á markaðsfærslu. Forstöðumaður skrifstofunnar hef- ur verið ráðinn Guðmundur Hall- dórsson en hann hefur starfað á vegum Eimskips í Rotterdam und- anfarin tvö ár. Sú ákvörðun að opna eigin skrif- stofu í Rotterdam er tilkonrin vegna þess að Rotterdam er lykilhöfn í flutningakeðju Einskips. Um höfn- ina í Rotterdam, sem mikilvægasta miðstöð alþjóðlegra flutninga í Evrópu, eru skipula&ðir flutningar á vegum Eimskips inn á meginland Evrópu og frá meginlandi Evrópu til íslands; þar fer fram umskipun i Ameríkuskip félagsins og þaðan eru skipulagðir framhaldsflutning- ar til ýmissa landa. Á skrifstofunni í Rotterdam munu starfa níu manns, þar af tveir íslendingar og sex starfsmenn sem áður unnu hjá Meyer & Co. fyrrum umboðsaðila Eimskips í Hollandi. Auk Guðmundar hefur Hulda Hákonardóttir, sem starfað hefur í meginlandsdeild félagsins, verið ráðin á skrifstofuna. Við viljum lifa „Við viljunr lifa“ er yfirskriftin á skemmtun fyrir alla í Laugardals- höll sunnudaginn 6. janúar 1985 kl. 16.00—18.00. Skemmtun þessi er til styrktar sveltandi fólki í Eþíópíu og hafa helstu skemmtikraftar landsins tek- ið saman höndunr við íþrótta- og æskulýðsráð Reykjavíkur. Markmiðið er að safna andvirði eins flugvélarfarms af matvælum. Hitann og þungann af skemmtun þessari bera eftirtaldir listamenn: Stuðmenn, Mezzoforte, HLH- flokkurinn, Ríó tríóið. Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson. Hlutur Reykjavíkurborgar er þessi: íþróttaráð leggur til húsnæði, Æskulýðsráð leggur til alla vinnu fyrir og á þessari skemmtun. Allir þeir aðilar sem standa að þessari skemmtun gefa vinnu sína. Sem sagt: Helstu listamenn þjóð- arinnar gera átak til styrktar svelt- andi börnum í Eþíópíu á Alþjóða- ári æskunnar. Eimskip heldur uppi vikulegum áætlunum til Rotterdam með ekju- skipunum Álafossi og Eyrarfossi en þau sigla einnig til lmmingham og Felixstowe í Englandi, Hamborgar í Þýskalandi og Antwerpen í Belgíu. Ennfremur annast Eimskip stór- flutninga fyrir ÍSAL, ÍSJÁ og fleiri til og frá Rotterdam. Síðan í júní á þessu ári hefur Eimskip haldið uppi beinum siglingum á tíu daga fresti frá Rotterdam með gámaskipunum Bakkafossi, Laxfossi og City of Perth til New York og Portsmouth í Bandaríkjunum. Láta mun nærri að viðkomur skipa félagsins í Rott- erdam á þessu ári verði um 140 eða ein á rúmlega tveggja og hálfs sól- arhrings fresti og er það því sem næst 40% aukning frá því á síðasta ári. Sovéskar kvikmyndir Nú i ársbyrjun hefjast að nýju reglubundnar sýningar félagsins MIR, Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna, á sovéskum kvikmyndum. Kvikmyndasýning- arnar hafa legið niðri um nokkurra mánaða skeið vegna flutninga fé- lagsins í nýtt húsnæði að Vatnsstíg 10 og lagfæringa og endurbóta á því. Þó að enn vanti mikið á að sýn- ingaraðstaðan við Vatnsstíg sé góð, er ætlunin að sýna þar kvikmyndir á hverjum sunnudegi kl. 16 frain eftir vetri. Fyrstu vikurnar verða sýndar ýmsar frétta- og fræðslu- myndir um margvíslegt efni og eru fluttar skýringar á íslensku (sarndar og talaðar af Sergei Halipov dósent við háskólann i Leningrad) með mörgurn þeirra. Aðrar myndir eru með skýringum á ensku eða norð- urlandamálum. Síðar í vetur mun MÍR sýna flokk kvikmynda, sent tengdar eru með einurn eða öðrum hætti at- burðum er gerðust í síðustu heints- styrjöld, en i maímánuði verður þess minnst að rétt 40 ár eru liðin frá því sigur vannst á herjum nas- ista í Evrópu. Eins og áður er aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR að Vatnsstíg lOókeypis'ogöllum heim- ill. Fyrsta sýningin verður sunnu- daginn 6. janúar kl. 16. ST. JÓSEFSSPÍTALI Landakoti Hjúkrunarfræðingar; — BARNADEILD — GJÖRGÆSLUDEILD, sérfræðinám í gjör- gæsluhjúkrun æskilpgt. — HANDLÆKNINGADEILDIR, l-B, ll-B. — LYFLÆKNINGADEILDIR, l-A, ll-A — SKURÐDEILD Fastar næturvaktir koma til greina á hinum ýmsu deildum spítalans. Sjúkraliðar: — BARNADEILD — HANDLÆKNINGADEILDIR, l-B, ll-B — LYFLÆKNINGADEILDIR, l-A, ll-A Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600 frá kl. 11:00—12:00 og 13:00—14:00 alla virka daga. Röntgenhjúkrunarfræðingur — Röntgentæknir óskast sem fyrst við röntgendeild. Upplýsingar veitirdeiIdarstjóri kl. 11:00—12:00 og 13:00—14:00 alla virka daga. Starfsmenn við ræstingastörf, upplýsingar veitir ræstingastjóri kl. 11:00—12:00 og 13:00—14:00 alla virka daga. Reykjavík, 27.12. 1984 Skrifstofa hjúkrunarforstjóra

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.