Tíminn - 07.06.1967, Qupperneq 2

Tíminn - 07.06.1967, Qupperneq 2
2 TÍMINtl MIÐAmOJDAGUR 7. Jfiní 1967. i Ályktanir 14. uppeldismála- þings Sam'bands ísl. barnakennara og Landssambands framhalds- skólakennara haldið í Melaskólan- uœ dagana 3.-4. júní 1967. 1 Fjórtánda uppeldismálaþing S. Í.B. og L.S.F.K. skorar á stj'órn- ir samtakanna að beita sér fyrir eftirfarandi við yifirstjórn mennta miála: 1 Stóraukin verði fræðsla um gildi íslenzks þjóðernis og þörf- ina á traustri varðstöðu um ísl. menningarverðmæti í breyttum heimi. 2. Aukin rækt verði lögð við fræðslu um órofa teng'Sl ísi. þjóð- ernisverðm'æta við hinn norræna menningarlheim. Iíaldið verði upp teknum hætti að kenna norræna tungu fyrsta erlendra mála í skyldunámsskólum landsins. 3. Romið verði í veg fyrir, að Inokkur erlend þjóðtunga eða þjóðmenning nái óeðlilega mik'l- uim áhrifum og ítökum hér á 'landi. 4. íslenzku, norrænu og öðr-u evrópsku fræðslu- og skem'mtiefni verði meira teflt fram til mót- vægis gegn ensk- amerísku efni í sjónvurpi þjóðarinnar. Sama gild ir um suma iþætti útvarpsiiis (Ihljóðvarpsins), til að mynda létt l'ög dansl'ög. Stjómir samtakanna vinni að því, að menntamálaráðherra skipi nefnd til að skipuileggja aukna fræðslu um þjóðernismál og kynn ingu þjóðernislegra verðmæta í skyldunáimss'kólum landsins. Nefndin verði að meiri hluta skipuð kennurum. Enn fremur skipi s'tjórninnar nú þegar sam- eiginlega nefnd, sem vinni mark- visst að framivindu þessara mála, kynni þiau meðal kennara og búi þau undir næstu ful'ltrúaþing. Framhald á bls. 11. Átta daga bið á sam- tölum við Jerúsalem IGÞ-Reykjavík, þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum frá Guðna Þórðarsyni, forstjóra ferðaskrifstofunnar Sunnu, heldur íslenzki ferðamannahóp urinn til í Hótel Victoria í Jerúsalem. Hótel þetta er f jög- urra ára gömul bygging úr steini og rammbyggilegt mjög. Þúsundir ferðamanna eru nú í Jerúsalem frá ýmsum þjóð- um. Er ferðafóDdnu haldið innan dyra, en flugvellimir eru lokaðir enn fyrir umferð ferðamanna. Tíminn athugaði í dag hvort hægt væri að ná símasambandi við ferðafólkið, en blaðinu var tilkynnt, að átta daga bið væri á samtölum til Jerúsalem. Guðni Þórðarson sagði að strax og kyrrðist myndi íslenzki hópurinn verða fjuttur í bílum til Libanon, oig taka flugvél í Beirut. Tuittugu og þrír íslendingar eru í hópn- um, fólk á ölluim aldri, og er ekki ástæða til að ótbast tnn það innan ramm'byggfl’egra steinveggja hótelsins. Alveg er talið útilokað að gerðar verði loftárásir á Jerúsalem, sem er helg borg í augum játenda þriggja trúarbragða. Verður stór hluti útvegs- manna gjaldþrota í haust EJjBeykjayí'k, þriðjudag. Útvegsmannafélögin í Reykja- vík og Hafnarfirði héldu fund fyrir nokkur, og var aðalmál þessa fundar skýrsla nefndar, sem kosin var af sömu félögum á fundi í janúar s.I., en hlutverk hennar var það helzt að leita eftir við ráðherra og aðra, sem mál heyrðu undir, að fá í framkvæmd þær ráðstafanir, sem bátaútvegsnefnd- in lagði til að gerðar yrðu til lagfæringar á rekstrargrund »elli bátaflotans, en ekki hafði enn ból- að á, og einnig að fá aflétt inn- flutningshöftunum á veiðarfærum sem þá höfðu nýlega verið aug- lýst. f tilkynningu um fundinn segir, að „ríkisstjórnin treystist ekki til áð framkvæma eitt ein- asta atriði af tillögum bátaútvegs- nefndaf og þótti fundarmönnum allfurðulegt, svo ekki sé meira sagt.“ Blaðið hafði samband við Guðna Sigiurðsson, útvegsmann og skipstjóra, en bann var einn þeirra, sem saeti átti í viðræðu- nefndinni við ríkisstjórnina, og rabbaði við hann úm árangur við- ræ^nanna og ástandið í dag. — Hverjar vorn helztu tillögur bátaútvegsnefndar, Guðni? — B'átaútvegsnefnd var sett á laggirhar í ársbyrjun 1966, og lagði fyrst O'g fremst til 10% verð- hækkun á fiskinuim. í öðru lagi stóraukin rekstrarlán til fiskiflot! ans, í þriðja lagi að vanskilaskuld- ’ ir við stofnl'ánadeild og fiskveiði- ■ sjóð, sem nú er komið ■ undir • eitt, yrðu gerð að föstum lánuni', i t. d. tiil 5 ára. í fjórða lagi, að; allar tryggingar væru færðar und j ir eitt, svo nokkur helztu atriðin í séu nefnd. — í tilkynningu fundarins seg-1 ir, að ríkisstjórnin hafi ekki treyst sér til að framkvæma eiíí einasta atriði þessara tillagna? — Já, segja má um afstöðu rík- isstjórnarinnar, að af þessu hef- ur ekkert verið framkivœmt. Nema ef telja skyldi þá fiskryerðs uppbót, sem feom í 'vetur, en þar var um að ræða aðeins 5% yfir vertíðina og þó það séu 11% á sumarfiskinn, þá kemur þar á móti, að smáfiskurinn lækkar núna um 15% frá því sem hann var í fyrra — þanniig, að hér er engan veginn um framkvæmd á tillögum bátaútvegsnefndar að ræða. — Heldur þú, að ríkisvaldið geri ein'hverjar ráðstafanir í ná- inni fraimt'íð? — Um það skal ég ekkert full- yrða, þótt ég sé svartsýnn á að syo verði. — í tilkynningu um fund þann, sem áður hefur verið nefndur, segir: „Fundurinn feomst að þeirri niðurstöðu að svo slæmt sem ástandið var í ársbyrjun 1966, hefði það þó enn versnað til mikilla muna“. Hvað viltu segja um þetta atriði? — Aðstaðan h-efur versnað að því ieyti, að vinnulaun hafa alit- af þokaist upp á við mun meira en fiskverðið hefur hækkað. All- ur óbeinn kostnaður hefur líka hækkað. — Og svo frekar slök vertíð í ár? — Já, það er rétt, en ég veit þó ekki hvort þetta er slakari ver- tíð beldur en við megum búast við inn á milli. Það er ekki alltaf hægt að búast við toppvertíð. Svona vertíðir koma alltaf inn á milli, og' fyrir atvinnuvegi eins og þennar. er alls ekki óeðlilegt, að við séum undir það búnir að taka við svona vertíð. Það, sem gerir svona vertíð tilfinnanlega erfiða, er að ekkert var upp á að hilaupa, aliir voru í hönk áður en vertíðin byrjaði og áttu að bjarga sér á henni. Og þá geta allir skil- ið hvernig fer, þegar hún kemur öfug út. — Er mögulegt að segja til um tap bátanna á þessari vertíð? — Það er ekki svo gott að reikna það út. En þó má sjá það á því, að samkvæmt kostn- aðamtreikningi LÍÚ, sem við lögðum fram til grundvallar í vet ur fyrir fiskverðsútreiknin'ginn er áætlaður vertíðiarafli rúm 600 tonn. Sá afli er áætlaður að „dekka“ sex mánaða rekstur, og tapið á þeim rekstri var sam- kvæmt þessu 460 þúsund á bát. Þá er hægt að ímynda sér hvert tapið er, þegar meðalaflinn er í mörigum verstöðvum ef til vffll að- eins helmingur þess, sem áæt’að var. — í til'kynningu frá fundinum, sem minnzt var á áðan, segir, að í viðræðum við bankamála- ráðherra hafi komið í Ijós að út- gerðalán til fiskiflotans hafi hækk að um 19% á sama tíma sem út- lán til annarra atvinnuvega hafi bækkað um 50%. Og jafnframt segir að ráðherra hafi ekki getað gefið nefndinni loforð um. að þetta yrði lagfært, hversu brýn sem þörfin væri. Hivað vfflitu segja u m þe tta? — Þessar tölur fengum við upp i vetur, þegár neifndin fór á fund bankamálaráðherra. Við héldum því fram, að við hefðum orðið afskiptir um rekstrarlán. Hann vildi ekki viðurfeenna þetta, og sýndi okkur skýrslu, þar sean kom fram að lánaaukningin til sjávar- útvegs í heild hefði verið tilsvar- andi við aðra atvinnuvegi. Við þrætitum ekki fyrir það út af fyrir sdg, en töldum aftur á móti að l'án til fiskiskipanna sjálfra hefðu Framhald á bls. 11. Framsóknarkonur í Hafnarfirði Garða- og Bessastaðahreppi Fundur verður haldinn í Félagsheimilinu Goðatúni í Garðahreppi, fimmtudaginn 8. júní kl. 8.30 sd. Gestir okkar verða Jón Skaftason, al- þingismaður, og Björn Sveinbjörnsson, hrl. llætuni vel og tökuip með okkur nýja félaga. — Stjórnin. YFIRLÝSINGAH Blaðinu bárust eftirfarandi yfir lýsingar í gær frá Starfsmanna- félagi Reykjavíkurborgar, Póst- málafélagi- Tslands og Félagi ísl. símamanna. „í 4. tbl. „Alþýðuibandail!agsins“, sem út kom í dag er birt opið bróf til launafólk«“ þar sem skorað er á alla launþega að .s-tanda saman af einhug og hollustu og gera hlut Aiþýðuibandaliagsins sem mestan“. Undir bréf þetta skrif- j ar m.a. Lára Gunnarsdóttir Unri-; ir nafni hennar stendur ,Starfs- j mannafélag Rv.borgar". Stjórn Starfsmanna'félags j Reytkjavíkurborgar, en félagið er: ópólitísk hagsmunasamtök borg- arstarfsmanna, harmar einróma, að nafn félagsins hefur verið dreg ið ínn í kosningabaráttuna með þessum hætti, og tekur fram að það er gert í óþökk stjórnarinn- ar, enda án hennar vitundar. Reykjavík 5. júní 1967. F.h. stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Á stjórnarfundi hjtá Póstmanna félagi íslands er haldin var í dag, 6. júní, var' m.a. eftirfarandi á lyktun samþykkt í sambandi við yfirlýsingu i Aiþýðubandalags- blaðinu. „Stjórn Póstmannafélags fs- lands vill taka eftirfarandi iiam. í sambandi við yfirlýsingu í á- kveðnu kosningablaði m.a. undir- ritaðri af tveim póstmönnum með undirskrift _ vélritaðri „Póst- mannaféliag íslands" að þessi yfir lýsing er á engan hátt viðkom- andi PFÍ.“ „Vegna undirskriftar þriggja fé lagsmanna Félags ísl. símamanaa í Aliþyðubandalagsblaðinu, 4. tbl. Framhald á bls. 11. Stáíu hundr uðum eggja EJ-Reykjavfk, mánudag. Um helgina var rænt mörgum hundruðnm æðar- eggja úr Merkureyjnm -á Breiðafirði, en þær eru fyr- ir vestan Stykkishólm. Hér er um að ræða 5—6 eyjar, og eggin öll hálfunguð. Það munu hafa verið veiði- menn af Snæfellsnesi sem frömdu þennan níðingslega þjófnað, og er málið í rann sókn hjá sýslumanninum í Stykkishólmi. Kvenfélag Borgarness 40 ára í dag JE-Borgarnesi, þriðjudag. Kvenfélag Borgarness var stofn að 7. júní 1927. Stofnendur voru 14 og fyrstu stjórn félagsins skip- uðu þær Oddný Vigfúsdóttir, formaður, Ragnhildur J. Björns- dóttir ritari, Guðrún Jónsdóttir, gjaldkeri. Lengst hafa starfað « stjórn félagsins, Ragnliildur J. Björnsdóttir, Ingveldur Teitsdótt- ir og Ólöf Sigvaldadóttir. Félag- ið hefur ávallt haft menningar og líknarmál á stefnuskrá sinni svo og ræktunarstörf, og ber Skalla- Framhald á bls. 11 ÚR RÆÐU Á FRAMBOÐSFUNDI Á SAOÐÁRKRÓKS 4, JÓNÍ1967 Hér á iandi enn má vrkja og skrifa. Á okkar iandi dásemd er að lifa. Því landið ágætf er. Og ungdómurinn orku hlaðinn. Útveginn, landbúnaðinn og iðnaðínn efia ber. Það er einmitt stóra og stærsta málið: Að hlynna að því sem íslenzkt er og eykur gæfu þér og mér, því valt er að treysta á útlendinga og álið. Skúli Guðmundsson. i^«ig—iimwwwwiwi——mrnmmm*

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.