Tíminn - 07.06.1967, Page 12
Sex flutningaskip seld úr landi
KJ-Reykjavík, þriðjudag-
Á síðasta ári og það sem af
er þessu ári hafa alls sex vöru-
flutningaskip verið seld úr
landi, samtals 18.537 brúttórúm
Iestir.
Skipin sem hér um ræðir eru
Katla 1.831 iestir, sem seld var
til Grikklands, Skjaldtbreið 366
lestir, seld til Englands, Hekla
1.456 lestir seld til Grikklands,
Hamrafell 11.488 lestir selt til
Indlands, Drangajökull 1.909
lestir lil Norður-Kóreu og Lang
jökull 1.987 iestir einnig seld
ur til N.-Kóreu.
Katla war í eigu Eimskipafé-
lags Reykjavíkur, Skjaldibreið
og Ilerðubreið í ei,gu Skipaút-
gerðar ríkisins, Hamrafell í
eigu Olíufélagsins h. f. og Sam
bands ísl. samvinnufélaga, og
Jöklarnir tveir í eigu Jökla h. f.
Þá voru á s. 1. ári seldir úr
landi fímm togarar. Fylkir og
Jón forsieti voru seldir til Eng-
liands, en Pétur Halldórsson, Ak
urey og Bjanni Ólafsson voru
seldir til Noregs.
J
AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA HÓFST í GÆR:
EKKIHÆGT AÐ GREIÐA ARÐ!
FB-Akureyri, þriðjudag.
Aðalfundur KEA fyrir 81. starfs
ár hófst í Samkomuliúsinu á Akur
eyri í morgun kl. 10, eftir að full
trúar höfðu snætt saman morgun-
verð á Hótel KEA. Rétt til fundar
setu hafa 199 menn frá 24 félags-
deildum, en félagatala var um síð-
ustu áramót 5634, eða 119 fleiri
en árið á undan. Heillrlarvörusala
KEA nam 925 milljónum árið 1966
eða um 80 milljónum meira cn ár
ið á undan.
Brynjólfur Sveinsson, fonnaður
félagsstjórnar, setti aðalfundinn og'
bauð fulltrúa og aðra gesti vel-
komna. Fékk hann þá Arnstein
Stefánsson, Dunhaga, og Harald
Hannesson, Víðigerði, sér til að-
stoðar til þess að fara yfir kjör-
bréf, en að því loknu voru kosnir
fundarstjórar, þeir Stefán Reykja-
lín, Akureyri, og Gunnar Kristjáns
son, Dagverðareyri. Að svo búnu
tók Stefán Reykjalín við fundar-
stjórn og næsta mál á dagskrá var
kosning fundarritara, og voru kosn
ir þeir Arnsteinn Stefánsson og
Haraldur Hannesson. Ennfremur
var kosið í nefnd til þess að undir
búa kjör fulltrúa á aðalfund SÍS
og var formaðru nefndarinnar kos
inn Gunnlaugur P. Kristinsson.
í tilefni af 80 ára afmæli KEA,
sem var á síðasta ári, samþykkti
Starfsmannafélag KEA að færa fé
laginu að gjöf fundarhamar, hinn
fegursta grip, og afhenti Gunnlaug
ur P. Kristinsson, núverandi for-
maður Starfsmannafélagsins, ham
arinn formanni félagsins, Bryn-
jólfi Sveinssyni, sem þakkaði gjöf
ina.
Hver er að gera veður út
af bessum 320 sjúkrarúm
um sem vantar upp á
['jaó sem Jáhann lofaði?
Formaður flutti síðan skýrslu
stjórnar. Sagði hann að fjárfest
ing á árinu 1966 hefði verið meiri
en nokkru sinni fyrr, og hefði hún
þrengt kost féliagsins. Nú yrði
staðar að nema um sinn, og gæta
ítrustu varfærni á næstunni. Öll
fjárfesting á árinu nam 47.3 millj
ónum. Þar af fóru 25.4 milljónir
til húseigna, 13.6 í vélar og tæki,
5.8 milljónir í skrifstofuáböld og
vélar og 2.4 milljónir til bifreiða.
Hæsti fjárfestingarliðurinn er
Kjötiðnaðarmiðstöðin, en í hana
hafia farið 14.7 milljónir fyrir ára
mótin 1965-66, en árið 1966 voru
lagðar samtals 19.6 milljónir í stöð
ina, eða 70% af heildarfjárfestingu
félagsins. Fjárfestingin í hinni
nýju Mjólkurstöð nam um 11
milljónum, en aðrar framkvæmdir
kostuðu minna. Brynjólfur sagði,
að síðasta ár hefði verið íéliaginu
erfifct í skauti, og nú gerðist það
í annað sinn í þau 20 ár, sem
hann hefði verið formaður félags
ins, að ekki yrði hægt að greiða
félagsmönnum arð. Kaupfélags-
stjórnin hefur gert allt, sem í
henniar valdi stendur, til þess að
árangurinn af starfi félagsins veröi
sem beztur, „en nú er dimmt fyrir
stafni, brúnir framtíðarinnar tor-
ráðnar", sagði Brynjólfur.
Þá tók Jakob Frúnannsson, fram
kvæmdastjóri KEA, til máls, og
sagði að þetta væri í 29. sinn, sem
haun flyfcti skýrslu og reikninga á
aðalf. KEA. Sagði hann, að það
væri sér vonbrigði, að ekki værl
nú hægt að leggja fram reikninga,
sem sýndu hagnað. Síðasta ár hefði
slegið öll met í verðbólgu og vax
andi rekstrorkostnaði, og atvinna
hefði farið minnkandi og afurða
verð lækkiandi. Jakob sagði, að fjár
hagur félagsins hefði versnað, sér
staklega vegna þess hve rekstur
frystihúsanna hefði versnað mikið
á árinu 1966, og vegna mikils auk
ins kosfcnaðar í heild. Sé nú eftir
á ágóðareikningi félagsins ekki
nema um 800 þúsund krónur, og
þar af verði borgaður út arður af
úfctekt félagsmarma í Stjörnuapó-
teki milli 200—300 þúsund krónur,
ef samþykktar yrðu tillögur stjórn
arinar þar uin, en afgangurinn fær
ist til næsta árs. Afskriftir hafa
verið færðar upp um 11 milljónir,
og varasjóðsgjaldið hækkað um
2—3 milljónir. Innlánsdeild fé-
lagsins jókst um 7 milljónir króna
og stofnsjóður hefur hækkað um
10 milljónir vegna innborgana og
vaxta.
Framhald á bls. 11.
Sumarfagnaður á Suðurnesjum
Jón Skaftason, Valtýr Guöjónsson, Björn Sveinbjörnsson, Keflavíkurkvartettinn, f. v. Haukur Þórðarson, Sveinn Pálsson, Ólafur R.
Guðmundsson og Jón Kristinsson og Ómar Ragnarsson.
Suniarfagnaður Framsóknar-
manna á Suðurnesjum verður í
Slapa föstudaginn 9. júní og
hefst kl. 21- Dagskrá: 1. Óniar
Kagnarsson flytur gamanvísur,
syngur.
2. Ávörp flytja: Jón Skaftason,
alþingismaður, Valtýr Guðjóns-
son, bankastjóri og Björn Svcin
björnsson, hrl.
Illjómar og Ásar leika fyrir
dansi lil kl. 2 e. m.
Miðar fást á eftirtöiWum stöð
um á Súðurnesjum: Keflavík:
Kosningaskrifstofu IMistans,
sími 1116. Sandgerði: Magnús
Marteinsson. Gerðahreppur:
Njáll Bcnediktsson. Njarðvík-
ur: Bjarni Ilalldórsson. Hafnir:
Eggert Ólafsson, Grindavik:
Bókabúð Halldórs Ingvarssonar.
Vatnsleysuströnd: Sigurjón Sig
urðsson, Traðarkoti.
Áróðursvagn Ihaldsins — Kosningabombur springa
^ÞETTH ERÞfi
G1ÍSMSIHU5T LÍKH
i
i
Dreqið verður í happdrættinu á laugardaginn kemur.
MJÖG ÁRÍÐANDI AÐ ALLIR GERI FULL SKIL NÚ
ÞEGAR. Afgreiðsla Happdrættisins er að Hrinabraut 30,
sími 12942, einnig tekur afgreiðsla Tímans í Bankastræti 7
við greiðslum fyrir miða.
Happdrættisnefndin.