Tíminn - 21.06.1967, Síða 2
*■ + * l'i' .
TÍMINN
MIÐVIKUDA1GUR 21. júní 1967
/ 12 DAGA BÆNDAFOR
TIL NORÐURLANDANNA
FB-Reyikjaivík.
Þessa dagana er áttatíu manna
hópur frá Búnaðarfélagi íslands
á ferðinni um Noreg og Dan-
mörku. Hópurinn lagði af stað á
í siðustu viku með Loftleiða-
vél frá Keflavíkurflugvelli og
flaug þaðan til Stavangurs í Nor-
egi. Fararstjórar eru Agnar
Guðnason ráðunautur og Kristín
Gísladóttir.
Fyrstu þrjár næturnar dvaldist
hópurinn í Trygglheim, en á dag-
inn var ekið um í nágrenninu,
skoðaðar landbúnaðarvélaverk-
smiðjur, tilraunastöð norska rfk-
isins og setin boð ýmissa búnað-
arfélaga og sambanda á þessum
slóðium. Á föstud. óik hópurinn svo
til Kristjánssands, en næsti dagur
var frjáls dagur fyrir þáttfakend
urna. Á sunnudaginn var siglt
frá Noregi til Hisfhals á Norður
Jótlandi. Ferðalangarnir koma m.
a. til Álaborgar, Viborgar og r-
ósa, skoða bændaskóla fyrirmynd-
arbúgarða og kynna sér stanfsemi
Heiðafélagsins danska. Frá Jót-
landi verður haldið í átt til Kaup-
mannahafnar, með viðkomu m.
a. í Odense og Tostrup en í Tost-
rup verður skoðuð fræræktar og
tilraunastiöð ein mikil.
í Kaupmannahöfn dveljast þátt
lakendurnir í fjóra daga, og þar
gefst þeim kostur á að fara á
stærstu landbúnaðarsýningu Dana
Bellahoj-sýniniguna. Einnig geta
þeir sem vilja farið eina dagstund
yfir til Svíþjóðar og ekið í nokkra
tíma um Skán, og komið við á
búgörðum þar. Síðasti heili dag-
urinn í Kaupmannahöfn verður
notaður til þess að fara í Dýra-
garðinn og heimsækja Tívoli, en
25. júní verður lagt af stað heim
aftur, og komið hingað klukkan
tíu um kvöldið.
Þeir, sem taka þátt í þessari
miklu bændaför, eru alls staðar
Framhald á bls. 15.
IVHakil adsókn að íslandskvöldi
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
f vor var Suirtseyjarkvikmynd
0 ivaldOT Knudsens frum-
sýnd í Sviiþjóð í bænum Arvika.
Var myndin sýnd á sérstöku
Ísiandskvöldi sem haldið var
þar á vegum Fræðslusambands
ins (Förelasningsförening) í
Ámotfors. íslandskvöldið var
haldið í stærsta kvikmyndahúsi
bæjarins og var svo fjölsótt að
áheyreindur komust ekki allir
fyrir í sjálfum kvikmyndasialn
um og urðu margir að hlusta á
það sem fram fór í minni sal
sem er í húsinu.
Blaðið Arvika Nyheter sagði
að ekkert fræðslukvöld sam-
bandsins hafi verið jafn fjöl-
sótt og ísiandskvöldið, enda
hafi mjög verið til þess vand-
að. Hafi til dæmis verið komið
fyrir sýningu með munum frá
íslandi. Voru þar sýndir hraun
molar, steinateguíidir, frímerki,
mynt, blöð og tímarit, íslenzkir
búningar og fleira. Um þessa
sýningu sáu þeir fil. mag.
Bengt Runestam og Harry Ny-
kvist.
Aðalfyrirlesari var Börje
Larsson sem sagði frá sögu ís-
lands í stórum dráttum og
skýrði síðan landkynningarkvik
mynd sem sýndi atvinnulíf og
lifnaðarhætti á íslandi í dag.
Þá var Surtseyjarkvikmynd
sýnd og vakti hún óskipita hrifn
ingu áhorfenda eins og annars
staðar sem hún hefur verið
sýnd.
Að íslandskvöldinu loknu
þakkaði Einar Jansson, þeim
sem fyrir þvi stóðu fyrir hönd
áheyrenda.
Myndln er tekln kl. 9 að morgni s. I. þriðjudag (13. júní), er rúmlega 80
með leiguflugvél Loftleiða h. f.
manna hopur fra Bunaðarfelagi Islands lagði upp í Kaupmannahafnarför
Önnur vill ná sér í ís-
lending, en hin koma
hingað í brúðkaupsferð
GÞE-Reykjavík, þriðjudag.
Þrjú vestur-íslenzk systkini,
Inga, Signý og Þór Fridrikson
á aldrinum 12—19 ára litu sem
snöggvast inn á ritstjóm Tím
J ans í dag, en þau ásamt fjöl-
í mörgum Vestur-fslendmgum
) eru i kynnisferð um landið
þessa dagana.
Þau búa í bænum ' Abbots-
ford í British Colombila', faðir
þeinra Edvard Friðríksson (son
ur Friðriks Þorvaldssonar frkv.
stjóra Akraiborgar) er alíslenzk
ur en móðir þeirra bandiarísk.
Þau hjónin bjuggu í nokkur ár
60 ár frá kosningu fyrstu
hreppsnefndar Patreksfjaröar
Framha-3
Patreksfirði, 15. júní.
í dag er sextíu ára afmæli Pat-
reksfjarðarihrepps, sem sjálfstæðs
sveitarfólags, en þann 15. júní
1907 var kosin fyrsta hrejpsnefnd
til að fara með málefni hreppsins,
sfcipuð fimm mönnum.
Undanfarið hafði verið vaxandi
byggð á Vatneyri og Geirseyri við
Patreksfjörð, þótti þá rétt að gera
kauptúnið, sem þá var að mynd-
Vesrur-isienzku systkinin þrjú. F. v. Signý, Þór og Barbara Inga.
(Timamynd Isak)
ast ,að sérstöku sveitarfélagi, en
fram að þeim tíma tilheyrði byggð
in Rauðasandshreppi. Voru þá um
420 íbúar í hinu nýja sveitarfé-
algi.
í tilefni þessara tímamóta hélt
hreppsnefnd Patrekshrepps sér-
stakan hátíðafund kl. 17 í dag
í nýjum fundarsal í skrifstofu-
húsnæði hreppsins við Aðalstræti
63 á Patreksfirði og fór jafnframt
fram vígsla á fundarsalnum.
Ásmundur B. Ólsen, oddviti
hreppsins, flutti vígsluræðu og
lýsti því yfir, að salurinn væri
tekinn í notkun. Við það tæki-
færi afhenti hann hreppnum að
gjöf frá sér o? konu sinni. frú
HristJbjörgu Óisen, stækkaðar
myndir af beim mönnum, sem
gengt hafla starfi oddvita í hreppn
um á þeim sextíu árum, sem liðin
eru frá stofnun hans, en þeir eru
alls átta.
Fyrsti oddviti hreppsins var
Jón M. Snæbjörnsson, símstöðvar
stjóri, sem nú er láí.itin fyrir all
mörgum árum. Myndirnar voru
hengdar upp í fundarsalnum. Gjöf
inni veitti móttöku Svavar Jó-
hannsson, varaoddviti hreppsins og
þakkaði hann fyrir hönd hrepps-
nefndar og byggðarlagsins. Enn-
fremur þakkaði hann oddvitanum
fyrir margra ára óeigingjarnt
starf í þágu hreppsfólagsins, en
hann hefur setið í hreppsnefnd
Framhald á bls. 14.
UNGIR MYNDLIST-
ARMENN SÝNA í
LAUGARDALSHÖLL
Ungir myndlistarmenn ‘67 nefn-
ist sýning sem opnuð var 17. júní
í Lauigardalshöllinni. Um 60 verk
eru sýnd þarnia og eru öll gerð
af lisibamönnum undir 30 ára aldri.
Það er Félag íslenzkra myndlistar
maaina sem gengst fyrir sýning-
unni og er hugmyndin að halda
slíkar sýningar annlað hvert ár.
Enginn þeirra sem þátt taka í
sýnimgunni er félagsbundinn í
FÍM og helmingur þátttakenda,
sem eru alls 12 að tölu, hefur ekki
sýnt verk sín áður, og eru m.argir
þeirra enn við myndlistarnám
erlendis. Fjórir þátttakendlannia
sýndu á danska Bienn'alnum í
fyrra, en þar voru sýnd verk ungra
iistamanna frá Norðurlöndum, og
fékk einn íslendinganna, Einar
Hákonarson, verðlaun.
Unga myndlistarfólkið sem sýnir
í Laugardalshöllinni eru: Einar
Hákonarson, Haukur Þór Sturlu-
son, Eysteinn Jónsson, Hreinn
Friðfinnsson, Þórður Benediktsson,
Kristján Guðmundsson, Jens Krist
leifsson, Gunnsteinn Gíslason,
Róska (Ragnhildur Óskarsdóttir)
Margrét Jóelsdóttir, Sigurjón
Jóhannsson og Alfreð Flóki. Verð
ur sýningin opin til 27. þ. m. í
sýningarskrá segir svo: Félag ís-
lenzkra myndlistarmanna gengst
fyrir sýningunni Ungir myndlistar
menn ‘67. Hugmyndin er ekki ný
meðal félagsmínnna, og hliðstæðar
Framhald á bls. 15.
Eitt listaverkanna á sýningunni.
(Tímamynd ísak)