Alþýðublaðið - 02.04.1985, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 2. apríl 1985 65. tbl. 66. árg.
Könnun NT
AÍþýðuflokkur
með 22,5%
Kjördæmisráðsfundur A Iþýðuflokksins á Austurlandi:
Jafnaðarmenn
sameinast
Grétar Jónsson, efsti
maður á lista BJ á
Austurlandi
í síðustu kosningum geng-
ur til liðs við
Alþýðuflokkinn
Velheppnuð árshátíð
Fyrsti þingflokksfundur
Alþýðuflokksins utan
Reykjavíkur
Grétar Jónsson, Stöðvarfirði,
sem var efsti maður á lista Banda-
lags jaf naðarmanna á Austurlandi í
síðustu kosningum, hefur gengiö til
liðs við Alþýðuflokkinn. Þessi at-
burður gerðist á kjördæmisráðs-
fundi Alþýðuflokksins á Austur-
landi um síðustu helgi. Konráð
Pálmason, Eskifirði, nýkjörinn for-
maður kjördæmisráðs, sagði í við-
tali við Alþýðublaðið, að alþýðu-
flokksfólk á Austurlandi, liti á
þetta sem fyrsta skrefið í áttina að
sameiningu Bandalags jafnaðar-
, manna og Alþýðuflokksins í kjör-
dæminu.
Sagði Konráð að það hefði kom-
ið fram í máli Grétars, að hann vildi
ekki bíða eftir að formleg ákvörðun
um sameiningu Bandalags jafnað-
armanna við aðra jafnaðarmenn
undir merki Alþýðuflokksins yrði
tekin, heldur vildi hann stíga skref-
ið sjálfur til fulls.
A fundinum kom fram að óeðli-
legt sé að jafnaðarmenn séu sundr-
aðir i tvo flokka og að rétt sé að
sameinast undir merki Alþýðu-
flokksins. Sagði Konráð að í kjölfar
þeirrar miklu fylgisaukningar, sem
flokkurinn hefur fengið í kjördæm-
inu sem og annarsstaðar á landinu,
þá ætlar kjördæmisráð Austur-
lands að vinna að því að fylkja jafn-
aðarmönnum saman. Sagði hann
að á komandi vikum og mánuðum
yrði unnið ötullega að samruna
Bandalags jafnaðarmanna á Aust-
urlandi undir merki Alþýðuflokks-
ins.
Á kjördæmisráðsfundinum var
sú nýbreytni tekin upp að hafa kjör-
dæmisráð skipað fólki af einum
stað, í þetta skiptið Eskifirði, því
mjög erfitt hefur reynst að ná kjör-
dæmisráði saman vegna mikilla
vegalengda og slæmrar færðar oft
og tíðum. Þeir sem skipa kjördæm-
isráð nú eru þau Konráð Pálmason
formaður, Katrín Guðmundsdóttir
og Steinn Jónsson meðstjórnendur.
Varamaður er Stefán Öskarsson.
Einsog fyrr segir eru þau öll búsett
á Eskifirði og þeir sem hafa áhuga
á að taka þátt í starfi og uppgangi
Alþýðuflokksins á Austfjörðum
eru hvattir til að hafa samband við
Konráð Pálmason, hótelhaldara í
Valhöll á Eskifirði, sími 6360.
Ýmislegt annað var á döfinni á
Eskifirði um síðustu helgi. Þar var
haldinn fyrsti þingflokksfundur
Alþýðuflokksins utan Reykjavíkur.
Var hann opinn öllu alþýðuflokks-
fólki og að sögn Konráðs var hann
vel sóttur. Gerðu þingmennirnir
grein fyrir þingmálum Alþýðu-
flokksins og svöruðu fyrirspurn-
um.
Á Iaugardagskvöldið var svo
haldin fyrsta árshátíð Alþýðu-
flokksfélaganna á Austurlandi og
sóttu um 150 manns hátiðina. Sagði
Konráð að hátíðin hefði verið stór-
glæsileg og í alla staði mjög vel
heppnuð. Vegna ófærðar komust
Framh. á bls. 2
Sterk staða Alþýðuflokksins
meðal kjósenda var enn einu sinni
staðfest er Nútíminn birti í gær nið-
urstööur skoðanakönnunar sem
framkvæmd var í síðustu viku. í
könnuninni fékk flokkurinn 22,5°7o
meðal þeirra sem afstöðu tóku, en
samtals tæplega 35% aðspurðra
tóku ekki afstöðu í könnuninni.
Fylgi Alþýðuflokksins.nú var lít-
ið eitt minna en í könnun NT í
febrúar, en munurinn er vel innan
við skekkjumörk. Fylgi flokksins
var nú hins vegar nokkuð meira en
í könnun Hagvangs frá því í febrú-
ar, sem þá taldist 20,5%.
Af einhverjum ástæðum kemst
NT að þeirri niðurstöðu að Fram-
sóknarflokkurinn hafi aukið fylgi
Ævar úr AB
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Alþýðublaðsins mun Ævar
Kjartansson, varadagskrárstjóri út-
varpsins, hafa sagt sig úr Alþýðu-
bandalaginu nýverið.
Ævar hefur nú um nokkurt skeið
verið framarlega í röðum alþýðu-
bandalagsmanna, en hefur nú kos-
ið að fara sömu leið og Björn Arn-
órsson, hagfræðingur BSRB, og
segja skilið við flokkinn. Alþýðu-
blaðið reyndi í gær að ná taii af
Ævari, en án árangurs.
Vöruskiptajöfnuðurinn í
febrúar í ár, var óhagstæður um 723
milljónir króna, en var hagstæður
um 82 milljónir á sama tíma í fyrra,
sé reiknaö á gengi þessa árs. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Hagstofu íslands.
Ástæðan fyrir óhagstæðri niður-
stöðu vöruskiptanna er einkum lítil
aukning á útflutningi sjávarafurða
og mikill innflutningur á rekstrar-
vörum til álversins og olíuvörum.
Fyrir fyrstu tvo mánuði ársins
voru vöruskiptin óhagstæð um 490
sitt úr 15% í 18% milli kannanna
sinna, en í könnun Hagvangs taldist
Framh. á bls. 3
Fundaherferðin:_______
Ypsilon
í kvöld
Fundaherferðinni „Hverjir eiga
ísland?“ verður fram haldið í
kvöld, þriðjudag, er Jón Baldvin
Hannibalsson og Kjartan Jóhanns-
son mæta í Ypsiloni í Kópavogi,
halda framsöguræður og svara fyr-
irspurnum.
Ypsilon-fundurinn hefst kl.
20.30. Næstkomandi fimmtudags-
kvöld kl. 20.30 hefst síðan fundur í
sömu fundaherferð á Pöbbnum,
Hverfisgötu, en þar flytur formað-
ur Alþýðuflokksins framsögu og
svarar fyrirspurnum.
Þess má geta að eftir páskahátíð-
ina mun Jón Baldvin Hannibalsson
halda til Vestfjarða og halda funda-
herferðinni áfram þar, en Vestfirð-
irnir eru einmitt eina kjördæmið
sem enn hefur ekki verið farið í í
þessari fundaherferð.
milljónir miðað við 401 milljón á
sama tíma í fyrra. Þetta gerist þrátt
fyrir að útflutningur hafi aukist um
31% miðað við á sama tíma í fyrra.
Útflutningur á sjávarafurðum hef-
ur aukist um 36% og á kísiljárni um
67%. Aftur á móti er útflutningur á
áli 6% minni en í fyrra.
Innflutningurinn hefur líka auk-
ist og er hann 27% meiri fyrir fyrstu
tvo mánuði ársins í ár, en á sama
tíma í fyrra. Innflutningur á olíu-
vörum er 70% meiri en í fyrra og
annar almennur innflutningur 23%
meiri en í fyrra.
Frá Eskifirði
Vöruskiptajöfnuðurinn
Óhagstæður um 723
millj. í febrúar
Ahugamenn um úrbætur í húsnœðismálum:
Afleiðingar vaxtaránsins
rétt klofið slík kaup miðað við íbúð séu vextir 5%, þá verður
2,5% vexti. Hinsvegar á hann hann hafa minnst 28 þúsund kr. í
enga möguleika á því að kaupa mánaðarlaun.
Mánaðarlaun 2,5% vextir 5% vextir
20 þús. Lítil einstaklíb. Ekkert
40 þús. 4 herbergi Lítil 3 herb.
60 þús. Góð sérhæð 5 herb. (120 m2)
80 þús. Einbýli gott Raðhús (lítið)
Er gerlegt fyrir venjulegan laun-
þega á íslandi að eignast eigið
húsnæði? Þessari spurningu velta
Samtök áhugamanna um úrbæt-
ur í húsnæðismálum fyrir sér í at-
hyglisverðri greinargerð, sem þeir
hafa sent frá sér. Greinargerð
þessi byggir á útreikningum sem
Stefán Ingólfsson hjá Fasteigna-
mati ríkisins hefur gert. í útreikn-
ingum hans eru mismunandi laun
og mismunandi vaxtastig borin
saman og þannig fundin út sú
íbúðarstærð, sem viðkomandi
gæti mögulega ráðið við miðað
við ákveðið hlutfall af launum,
sem varið væri til íbúðarkaup-
anna.
Gengið er út frá því að fólk með
meðaltekjur geti lagt 25—30%
launa sinna til húsnæðiskaupa.
Ef reiknað er með því að ein-
staklingur hafi 250 þúsund kr. í
árstekjur og geti lagt 20% af tekj-
unum í húsnæðiskaup, sem er 50
þúsund á ári, gæti hann keypt sér
íbúð á 1 milljón króna miðað við
að fá allt lánað til tuttugu ára og
vextir séu 0%. Séu vextir hinsveg-
ar 2,5% gæti hann keypt sér íbúð
á 667 þúsund krónur. Séu vextirn-
ir 5% á hann möguleika á að
kaupa íbúð á 500 þúsund.
Hafi einstaklingurinn hálfa
milljón í árstekjur og leggi 25% af
laununum í húsnæðiskaup, sem
er 125 þúsund á ári, getur hann
keypt íbúð á 2,5 milljónir króna
miðað við 0% vexti af 20 ára láni.
Séu vextirnir 2,5% ræður hann
við að kaupa íbúð á 1.667 þúsund
kr. Séu vextirnir 5% ræður hann
við íbúð sem kostar 1.250 þúsund.
Eigi fólk 20% af kaupverði íbúð-
arinnar áður en farið er af stað lít-
ur dæmið þannig út að sá sem er
með 20 þúsund í mánaðarlaun
getur keypt íbúð á 834 þúsund kr.
miðað við 2,5% vexti. Séu vext-
irnir 5% ræður hann við íbúð á
625 þúsund kr„ sem ekki er til.
Hafi einstaklingurinn 40 þús-
und kr. í laun á mánuði og á 20%
af kaupverði fyrir, ræður hann við
íbúð sem kostar rúmar tvær millj-
ónir séu vextir 2,5%. Miðað við
5% vexti ræður hann við íbúð upp
á 1,5 milljónir.
Miðað við 60 þúsund kr. mán-
aðarlaun má kaupa íbúð á rúmar
3 milljónir miðað við 2,5% vexti.
Séu vextirnir 5% ræður viðkom-
andi bara við íbúð sem kostar 2,35
milljónir. Sá sem hefur 80 þúsund
í mánaðarlaun ræður við að
kaupa einbýlishús sem kostar 5
milljónir miðað við 2,5% vexti.
Séu vextirnir 5% verður hann að
lækka standardinn niður i raðhús
upp á 3,7 milljónir.
Lágmarksverð einstaklings-
íbúða er á bilinu 800 þúsund til 1
milljón kr. Sá sem hefur 20 þús-
und kr. I mánaðarlaun getur því
Hafi einstaklingur tekið 500
þúsund kr. í lán til 20 ára, þarf
hann að borga 192.800 í vexti
fyrstu 10 árin séu þeir 5% en
96.400 séu vextir 2,5%. Mismun-
urinn á fyrri hluta afborgunar-
tímans er því 96.400 kr.
Hafi kaupandi tekið 1 milljón í
lán til 20 ára þarf hann að hafa
375 þúsund kr. í árstekjur miðað
við að vextir séu 2,5%. Séu vext-
irnir hinsvegar 5% þarf hann að
hafa 450 þúsund í árslaun. Til að
standa undir þessari vaxtahækk-
un þarf 20% kauphækkun.
Séu vextir lækkaðir í 2,5% strax
á næsta ári og laun hækkuð um
40% og verði jafn há og þau voru
1981, hefur lántakandi þegar beð-
ið skaða sem nemur 13,3% af
upphaflegum áætlunum.
Séu launin leiðrétt með sama
hraða og þau voru skert frá 1983
til dagsins í dag og vextir færðir
niður í 2,5% hefur lántakandinn
beðið 17,8% skaða.