Alþýðublaðið - 02.04.1985, Page 2

Alþýðublaðið - 02.04.1985, Page 2
2 Þriðjudagur 2. apríl 1985 'RITSTJÓRNARGREIN' Ráðherrar Sambandsins Jón Helgason, kirkjumálaráðherra, ætlar sér að afhenda sambandsfyrirtækinu íslandslax hf., vatnstökurétt úr landi Staðar við Grindavík átombóluverði. Ekki I fyrsta sinn sem ráöherr- ar Framsóknar gerast vagnhestar SÍS. Karl Steinar Guðnason vakti athygli á þessu hneyksli I síðustu viku. Hann krafði ráðherra svara. Þau voru öll í skötullki og ekki ráðherra samboðin — ekki einu sinni ráðherra SÍS. Ábyrgð ráðherra Sjálfstæðisflokksins er mikil. Þeir eru nú samábyrgir kirkjumálaráð- herra í þessu máli. Eftir umræðuna á Alþingi virðast þeirhafagert sérgrein fyrirþví, aðþetta erstóralvarlegt mál. Framsóknarfyrirtæki eraf- hentur hluti af vatnsforðabúri Suðurnesja fyrir slikk. Það dylst engum að þetta er fordæmi. Aðrir munu koma og biðja um sömu fyrir- greiðslu. En vatnið á Suðurnesjum er takmark- að. Og þaðerekki ávaldi kirkjumálaráðherraað breyta því. Sér kapítuli I þessu máli er hvernig unnið var að samningsgerðinni. Mánuðum saman stend- ur íslandslax í samningum við Hitaveitu Suður- nesja. Þegar samningar eru komnir á lokastig er máliö saltað. Fáum vikum síðar eru sam- bandsmenn komnir með samning Jóns Helga- sonar ( hendurnar. Fróðlegt væri að vita hvern- ig þeir samningar gengu fyrir sig. Á venjulegu máli heita þessi vinnubrögð undirferli og svik. Grindvfkingar hafa brugðist ókvæða við áheilindum af þessu tagi. Þeir neita að stað- festa framsóknarsamninginn. Samningurinn erauk þess hnefahögg f andlit sveitarstjórnar- manna á Suðurnesjum. Varað hefur verið við aukinni ásókn f vatnsforða Suðurnesja. Betra Það hefur vart fariö framhjá neinum að undan- farið hefur Framsóknarflokkurinn vart getað haldið vatni af ótta við kosningar. En um leið ríkir innan flokksins megn óánægja með frammistöðu ríkisstjórnar þeirrar sem flokkur- inn leiðir og framsóknarmenn horfa upp á fylg- ið reitast af flokknum. Kannanir benda til þess að flokkurinn sé að hruni kominn. Óvinsældir rfkisstjórnarinnar bitna hart á flokknum og ekki spilar þar Iftið inn í harkaleg frammistaða ráðherra flokksins f húsnæðismálum. Gagnvart megnri óánægju flokksmanna hef- ur forysta Framsóknarflokksins kosið að láta undan þeirri viðleitni sinni að sitja sem fastast f stjórn, hvað sem það kostar. Ástæðan er öll- um Ijós. Framsóknarflokkurinn er stjórnmála- deild SÍS og það gengur betur að hygla því fyrir- tæki innan stjórnar en utan. Gjöf Jóns Helga- sonar kirkjumálaráðherra til sambandsfyrir- tækisins Islandslax er bara nýjasta dæmið af mýmörgum um hin beinu tengsl þarna á milli. m I leiðara Nútímans — málgagns Framsóknar- flokksíns — nú um helgina, veittist blaðið aó formanni Alþýðuflokksins og kallaði hann lýðskrumara. Þetta eru viðbrögð þessara manna við þvf að nú er Alþýöuflokkurinn í stór- sókn á sama tfma og fylgið hrynur af Fram- sóknarflokknum. Formaður Alþýðuflokksins hefur ferðast um iand allt og haldið harðpóli- tískafundi og talað tæpitungulaust. Hann hef- er þar kapp með forsjá, ef fylgja skal ráðum vísindamanna. Regla kirkjumálaráðherra, að hver landeigandi taki það vatn sem hann telur sig þurfa, er forkastanleg. Ekki er hér verið að amast við nýsköpun í at- vinnullfi Suðurnesja. Þar er mikil þörf á átaki. Engin þörf er hins vegar á bolabrögðum vagn- hesta Framsóknar og SÍS. Kirkjumálaráðherra ber að umgangast Suðurnesjamenn sem skyni gæddar verur. Honum ber að virða lögmæt yfir- völd. Hér verður að hafa vit fyrir kirkjumálaráð- herra. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa brugðist. Grindvlkingar geta stöðvað þennan óheillasamning. Það getur Aiþingi Ifka. Þ. H.— Þeirra ær og kýr ur haldið fjölda vinnustaðafunda og Alþýðu- flokkurinn hefur f auknum mæli fært starf sitt út á land. Kjósendur um land allt hafa hlýtt á boðskap jafnaðarstefnunnar og gert málflutn- inginn að sfnum. En leiðarhöfundur NT kýs að kalla þetta fólk „lýð“ og formann Alþýðuflokks- ins lýðskrumara. Þeir framsóknarmenn eru enda öllu öðru vanir. Þeir kjósa að vinna á bak við tjöldin og viðhafa hrossakaup, sitja sem fastast f stjórn og hygla SÍS. Það eru þeirra ær og kýr. Að tala milliliðalaust til kjósenda á opn- um pólitiskum fundum þekkist ekki í þeirra herbúðum. Þeir kalla það lýðskrum að láta sér detta það f hug að hitta kjósendur að máli. FÞG.— Stofnmælingar á botnfiski Nýlega er lokið rannsóknaleið- angri Hafrannsóknarstofnunarinn- ar umhverfis landið, en leiðangur- inn fór fram á fimm togurum, sem leigðir voru til verkefnisins. Leiðangurinn stóð yfir frá 8. til 25. mars og var togað á 596 stöðum allt umhverfis landið. Meginmarkmið þessa verkefnis er að rannsaka ástand þorskstofns- ins, en miklum gögnum er safnað jafnframt um flesta botnlæga nytjastofna. Alls voru lengdarmældir um það bil 300 þúsund fiskar, sem skiptast á 25 botnlægar tegundir. Mest var mælt af þorski, um 100 þúsund fiskar og karfa um 50 þúsund fisk- ar, en minna af öðrum tegundum. AIls var safnað um það bil 11 þúsund kvörnum til aldursgreining- ar á þorski, ýsu, ufsa, löngu, blá- Rannsóknatogari Rannsóknasvæói Þorskur Annar HU 1 NV— og NA-mið 49.3 Drangey SK 1 NA— og A-mið 20,6 Hoffell SU 80 SA— og Austfj. mið 14,7 Páll Pálsson Breiðafj. og 38,0 ÍS 102 Vestfjarðamið Vestmannaey SV—mið 7,1 VE 54 löngu, keilu, steinbít, gulllaxi, grá- lúðu og skarkola. Fæðusýnum var safnað úr um það bil 1500 þorskum. Heildarafli allra rannsóknatog- aranna var 340 tonn, og skiptist þannig á helstu tegundir og ein- staka rannsóknatogara: Karfi Ýsa Aðrar teg. Allar teg. 4,6 1,9 3,2 59,0 6,6 1,6 3,2 32,0 14,5 17,7 4,6 51,5 53,0 10,7 16,3 118,0 51,6 12,8 8,1 79,6 Samtals 129,7 130,3 44,7 35,4 340,1 (38,1%) (38,3%) (13.1%) (10,4%) (100,0%) Sáttmálasjóður Umsóknir um styrki úrSáttmálasjóöi Háskóla íslands, stllaðar til háskólaráðs, skulu hafa borist skrifstofu rektors fyrir 1. mal 1985. Tilgangi sjóðsins er lýst 12. gr. skipulagsskrár frá 29. júnl 1919, sem birt er I Arbók Há- skóla íslands 1918—19, bls. 52. Umsóknareyðublöð og nánari úthlutunarreglur, samþykktar af háskólaráði, liggja frammi i skrifstofu Háskóla íslands hjá ritara rektors. Rektor Háskóla íslands. Auglýsing um styrki til leiklistarstarfsemi í fjárlögunum fyrir árið 1985 er 1,4 millj. kr. fjárveiting, sem ætluð er til styrktar leikstarfsemi atvinnuleik- hópa, er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu I fjárlögum. Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af fjár- veitingu þessari. Umsóknareyðublöð fást I ráöuneyt- inu. Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 10. maí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 27. mars 1985. Aflabrögð voru þannig mjög misjöfn eftir hafsvæðum og aflinn mestur á miðum suðvestan- og vest- anlands og var karfi stærstur hluti aflans þar. Á miðum norðanlands og austan var afli tregur en uppi- staða aflans þar var þorskur. Lauslega áætlað er þetta svipað- ur þorskafli á sóknareiningu og í fyrri Ieiðöngrum stofnunarinnar af þessu tagi. Ekki er þó unnt að álykta um stærð fiskstofnanna fyrr en mat á árgansstyrk liggur fyrir. Úrvinnsla gagna stendur nú yfir og munu frumniðurstöður væntan- lega liggja fyrir um miðjan apríl. Jafnaðarmenn 1 færri en ætluðu sér á árshátíðina. T. d. ætluðu 30—40 manns að koma frá Seyðisfirði en komust ekki vegna ófærðar. Að lokum sagði Konráð að mikill hugur væri í alþýðuflokksfólki á Austfjörðum um þessar mundir og sagðist hann vonast til að það heillaspor sem Grétar Jónsson hefði stigið ætti eftir að verða öðr- um fordæmi til eftirbreytni, því ef jafnaðarmenn á Austurlandi sam- eina krafta sína er engin spurning um að þingmaður er í höfn. Einbýlishúsalóðir Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar lóðir I Setbergi. Um erað ræða alltaö þrjátíu lóðireinkum fyrir einbýlis- hús. Lóöirnar verða byggingarhæfar á sumrinu 1985. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræð- ings, Strandgötu 6, þar með talið um gatnagerðargjöld, upptökugjöld, byggingarskilmálao. fl. Umsóknum skal skilaáþartil gerðum eyðublöðum sem þar fást eigi slð- ar en 15. aprll nk. Bæjarverkfræðingur. Staða fulltrúa Fjárlaga- og hagsýslustofnun óskar að ráða fulltrúa til starfavið hagsýsluverkefni. Æskilegt erað viðkomandi hafi hlotið háskólamenntun á sviði viðskipta eða stjórnsýslu. Hér er um að ræða lifandi og fjölbreytt starf sem býðuruppámikil mannleg samskipti og sjálf- stæð vinnubrögð. Umsóknir sendist til fjármálaráðuneytisins, fjárlaga- og hagsýslustofnunar, Arnarhvoli, 101 Reykjavfk, fyrir 16. aprll nk. Fjármálaráðuneytið, fjárlaga- og hagsýslustofnun, 29. mars 1985. FÉLAGSSTARF ALPÝÐUFLOKKSINS Skrifstofa Alþýðuflokksins Hverfisgötu 8—10 er opin dag- lega frá kl. 1—5. Sími 29244.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.