Alþýðublaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 1
Föstudagur 31. maí 1985 101. tbl. 66. árg. Skoðanakönnun Hagvangs:_ Alþýðuflokkurinn heldur sínu striki Þrumuhátíð í kvöld: Nýjung sem höfðar til margra Stórhátíð og hundraðasti fundur Alþýðuflokksins í fundaröðinni „Hverjir eiga ísland?” verður í Laugardalshöllinni í kvöld og Ijóst að þar mun engum leiðast og útlit fyrir fjölmenni. „Mér líst mjög vel á þessa hátíð og er viss um að undirtektirnar verði mjög góðar og hef heyrt á fólki að það ætli að fjölmenna í Laugardalshöllina” sagði Jóhanna Sigurðardóttir er Alþýðublaðið ræddi við hana í gær. Sagðist hún hafa orðið vör við mikinn áhuga á hátíðinni, enda væri um nýjung að ræða sem hér væri bryddað upp á. „Mér sýnist að það sem þarna er boðið upp á hljóti að höfða til mjög margra. Um leið er það ljóst, að Al- Jóhanna Sigurðardóttir þýðuflokkurinn er í stórsókn um þessar mundir og í þeirri sókn ætlar fólk ekki að láta sitt eftir liggja” sagði Jóhanna. Á þrumuhátíóinni verður séð til þess að gestum leiðist svo sannar- lega ekki, því auk ávarps Jóns Bald- vins Hannibalssonar, formanns Al- þýðuflokksins og Jóhönnu Sigurð- ardóttur, varaformanns flokksins, munu koma fram margir af þekkt- ustu skemmtikröftum landsins, Aðgöngumiðar að hátíðinni verða seldir við innganginn og er verðlaginu mjög stillt í hóf, því miðinn mun aðeins kosta 200 krón- ur. Ihaldið í úlfakreppu: einangraður! Albert —fcer Steininú stólinn sinn? Hitinn innan Sjálfstæðisflokks- ins nálgast nú suðumark eftir að Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra hefur einangrað sig frá ráð- herrum og formanni flokksins. Hnúturnar ganga nú þarna á milli, sérstaklega milli formannsins og fjármálaráðherrans. Málgögn Sjálfstæðisflokksins eru ekkert að fela þennan ágreining og eru yfirlýsingarnar ansi skraut- legar og bera vott um djúpstæðan stefnulegan og persónulegan ágreining. „Það flytur einhver ann- ar málið ef fjármálaráðherra gerir það ekki” segir Þorsteinn í Morg- unblaðinu, en á yfirboðinu snýst ágreiningurinn um ráðstafanir í húsnæðismálum, þar sem þing- flokkar stjórnarflokkanna hafa gegn vilja Alberts samþykkt sér- stakan eignaskattsauka, skyldu- sparnað á hátekjur og hækkun söluskattsprósentu. Albert hefur aðeins eitt atkvæði í þinginu ítrekar formaðurinn og þingflokksfor- maðurinn hellir salti í sár fjár- málaráðherra. Viðbrögð fjármálaráðherrans eru svo með eindæmum. Lúsarleg- an eignarskattsauka á stóreignir kallar hann eignaupptöku og segir formanninn bregðast stefnu flokks- ins. Væntanlega er það þá að bregð- ast stefnu flokksins að reyna með einhverjum hætti að koma til móts við það fjölmenni sem býr við neyð- arástand í húsnæðismálum! Greinilegt er á yfirlýsingum þess- ara kumpána að ekki er um ein- angrað mál að ræða, heldur að nú telji Albert mælinn vera orðinn fullan eftir ótal árekstra. Uppgjör er í nánd. Kannski fær Þorsteinn Pálsson stólinn sinn brátt þrátt fyrir allt! Alþýðuflokkurinn heldur sínu striki meðal kjósenda eftir því sem fram kemur í skoðanakönnun sem Morgunblaðið hefur keypt af Hag- vangi hf, og framkvæmd var fyrr í þessum mánuði. Um þriðjungur aðspurðra í 1000 manna úrtaki fyr- irtækisins gáfu ekki upp ákveðna afstöðu, en meðal þeirra sem af- stöðu gáfu var fylgi Alþýðuflokks- ins 21.3%, sem er um það bil hið sama og meðaltalið i síðustu 6 skoðanakönnunum á þessu ári. í könnun Hagvangs var fylgi flokka meðal þeirra sem afstöðu tóku sem hér segir (fylgi í könnun Hagvangs í febrúar innan sviga): Alþýðuflokkurinn 21.3% (20.5), Framsóknarflokkurinn 11.9% (9.9), Bandalag jafnaðarmanna 5.4% (6.0), Sjálfstæðisflokkurinn 41.2% (40.4), Alþýðubandalag 12.2% (10.8), Kvennalistinn 7.4% (11.2) og Flokkur mannsins/aðrir 0.6% (1.2). Oftast hafa kannanir Hagvangs verið nokkuð á skjön við niður- stöður kannana blaðanna, en að þessu sinni eru niðurstöðurnar mjög svipaðar og hjá Helgarpósti í apríl. Síðustu mánuði hefur fylgi Alþýðuflokksins yfirleitt verið 21—23%, Framsóknarflokkurinn hefur sigið úr 16—17% í 11—12%, Bandalag jafnaðarmanna hefur haft 5—6%, Sjálfstæðisflokkurinn farið úr 34—35% í 41—42 í kjölfar landsfundar, Alþýðubandalagið sigið úr 14—15% í 12—13%, og fylgi Kvennalistans hefur verið sveiflukennt 5-—8%. Meðaltalið í 7 síðustu skoðana- könnunum á þessu ári er sem hér segir: A: 21.5%, B: 13.6%, C: 5.5%, D: 37.7%, G: 13.2%, V: 7.8% og FM: 0.7%. Félagsmálaráðuneytið: Skákar borgarstjóra! Davíð Oddsson borgarstjóri nær vart upp í nef sitt fyrir reiði um þessar mundir. Það er hvorki meira né minna en búið að ógilda ákvörð- un sem hann hefur tekið. Félags- málaráðuneytið hefur fellt úr gildi samþykkt bygginganefndar og borgarstjórnar um leyfi til byggingu fjölbýlishúss við Stangarholt. Talsverðar umræður urðu fyrr á árinu vegna samþykktar borgar- stjórnaríhaldsins um leyfi til bygg- ingar á 32ja íbúða fjölbýlishúsi við Stangarholt — I breyttri mynd frá því sem íbúar í nágrenninu höfðu sætt sig við, enda nýtingarhlutfall orðið tvöfalt meira en aðalskipulag leyfir. Fóru íbúarnir á sínum tíma fram á frestun málsins og flutti Sig- urður E. Guðmundsson tillögu þess efnis í borgarstjórn, en hún náði ekki fram að ganga. íbúarnir kærðu ákvörðun meirihluta bygg- inganefndar og borgarstjórnar og í framhaldi af því hefur félagsmála- ráðuneytið fellt samþykktina úr gildi. Davíð bregst að vonum ókvæða við og beinir spjótum sínum að ráðuneytinu, enda búið að fella úr gildi sérstakan vinargreiða hans við aðstandendur þess byggingarfélags sem verkefnið hefur með höndum. Spurt um tannlækna kostnað Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fyrir heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra og viðskiptaráðherra og óskar skriflegra svara við fyrir- spurnum um kostnað við tann- lækningar og um gjaldskrárhækk- anir tannlækna. Fyrirspurnirnar til Matthíasar Bjarnasonar heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra hljóða svo: 1. Hver var kostnaður Trygginga- stofnunar ríkisins og sjúkrasam- Iaga vegna tannlækninga á tíma- bilinu 1. janúar 1982 til 1. maí 1985 borinn saman við annan lækniskostnað á sama tíma? Óskað er eftir að kostnaður og Framh. á bls. 2 Fríðindaþjóðfélagið og aðskilnaðarstefnan grafa ískyggilega um sig. Fólk fer óneitanlega að hugsa sitt, þegar það sér hvernig misréttið þrífst í kring- um það; sumir geta haft það mjög gott meðan aðrir lepja dauðann úr skel þó að þeir leggi nótt við dag”. Og Karitas segir ennfremur: „Það sem ég veit að fólki blöskrar mest þessa stundina er að horfa upp á þau fríðindi og hlunnindi sem ýmsir njóta við þessar aðstæður. Það gengur fram af mörgum. Fríð- indaþjóðfélagið er ekki fyrir verka- fólk”. Stefnu ríkisstjórnarinnar og at- vinnurekenda má helst líkja við að- skilnaðarstefnu stjórnvalda Suður- Afríku, verkafólk á íslandi er kom- ið í hlutverk blökkufólksins þar, réttindasnautt og kúgað til örbirgð- ar. Enn á ný hefur alþýða þessa lands verið slegin í andlitið með blautri tusku. Nú hefur það verið upplýst að nokkrir af óskadrengj- um þjóðarinnar fá tvöföld verka- mannalaun fyrir að ferðast og rabba við útlendinga um stóriðju hér á landi — I hjáverkum. Framsóknarmaðurinn Guð- mundur G. Þórarinsson, sjálfstæð- ismaðurinn Gunnar G. Schram og erkibiskup Seðlabankans Jóhannes Nordal fá á bilinu 37—43 þúsund krónur á mánuði fyrir aukastörf sín í samninganefnd um stóriðju, aðal- lega vegna rabbs við Alusuisse- furstana. Aðrir starfsmenn og ráð- gjafar hafa ýmist meira eða minna upp úr krafsinu, menn eins og Ragnar Aðalsteinsson og Eiríkur Tómasson fengu um milljón hver á síðasta ári. Og þetta er bara fyrir afmarkaða bitlinga. Þessir menn eru í fullu starfi á öðrum vettvöngum og þiggja •auðvitað engin lúsarlaun fyrir þau störf, auk ýmiss konar sporslna, t.d. bifreiðafríðindi og ekki sakar að geta skroppið í góða laxveiðitúra á kostnað rikisins, þ.e. skattborgaranna. Er nema von að alþýða manna gapi í forundran, með tómar budd- ur sínar í höndunum? Meðan kaup- máttur launa verkafólks hrynur á degi hverjum og þúsundir manna glíma við nauðungaruppboðs- drauginn hræðilega fitnar Stiga- hlíðarþjóðin eins og púkinn á fjós- bitanum. Meðan þorri aldraðra býr við neyðarástand í húsnæðis- og vistunarmálum og stóraukinn læknis- og lyfjakostnað byggja rík- ustu synir og dætur þjóðarinnar sér ellihallir I Kringlunni I Reykjavík. Meðan velferðarkerfi launafólks mætir niðurskurðarhnífi ríkis- stjórnarinnar þá blómstrar velferð- arkerfi fyrirtækjanna, bönkum og stórfyrirtækjum er stórlega ívilnað og hátekju- og stóreignamönnum boðið upp á hriplegt skattakerfi. Þú finnur alþýðu þessa lands púl- andi fram á kvöld, á skrifstofum fógeta og sýslumanna, hjá ráð- gjafaþjónustu Húsnæðismála- stjórnar, í biðsölum bankastjór- anna, félagsmálastofnananna, biðjandi um frest hjá rafmagns- og hitaveitunum, Pósti & Síma, gjald- heimtunni og um fyrirframgreiðslu hjá vinnuveitandanum. Stigahlíð- arþjóðin er hins vegar að fara í langt sumarfrí á reikning fyrir- tækjanna eða skattborgaranna. Tekur með sér kassa af svissnesku konfekti sem verkafólk er heilan dag að vinna fyrir! Þegar fréttir af misréttinu í þjóð- félaginu dynja yfir alþýðu landsins dag eftir dag er varla nema von að menn setji hljóða. Og að hugurinn fyllist blöndu af reiði, vonbrigðum og uppgjöf. í nýju hefti af Vinn- unni, tímariti ASÍ er rætt við Kari- tas Pálsdóttur, fiskverkunarkonu hjá íshúsfélagi ísafjarðar og við gefum henni orðið: „Það fer ekki framhjá neinum, að staða kjaramála er stóralvarlegt mál I dag. En hitt er ekki síður al- varlegt, að sálrænu áhrifin af mis- réttinu í þjóðfélaginu eru farin að

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.