Alþýðublaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 31. maí 1985 rRITSTJÓRNARGREIN' Bylting til hægri á Tíma TIðindi þau er berast úr herbúðum framsókn- armanna varðandi framtíöarskipan mála á mál- gagni flokksins, sem nefnt hefurveriö undan- farið ár, NT, en bar nafniö Tíminn fram að því, eru fullrar athygli verð. Það þarf ekki aö rekja gang mála varðandi blaðarekstur framsóknar- manna sföustu 12 mánuðina, en eins og kunn- ugt er lét ritstjóri NT, Magnús Ólafsson af störf- um fyrir skömmu vegna ágreinings við stjórn blaðsins. Deilur ritstjóra og rekstraraðila voru stjórnunarlegs eðlis, en jafnframt stjórnmála- legs. NT hefur nefnilega á slðustu tveimur misserum leyft sér það aó gagnrýna ýmis verk núverandi rfkisstjórnar og blaðið jafnframt leyft sér að viöra ýmis félagsleg viðhorf til þjóðmála; viðhorf sem samrýmast illa þeirri hægri stefnu sem einkennir störf foringja flokksins I núverandi ríkisstjórn. Margir félagshyggjumenn I Framsóknar- flokknum hafa litið svo til, að skrif NT væru ein- astatýran I því miðaldamyrkri sem til staðarer I þingflokki og ráðherraliði flokksins. Réttilega hefurverið bent á, að í núverandi stjórnarsam- starfi hefur flokkurinn komist jafnlangt frá uppruna sínum og hugsjónum og hugsanlegt er. Samvinnuhugsjónin og hin félagslega sam- hjálp hefur ekki flækst fyrir foringjum Fram- sóknar hin síðustu misseri. Frá þvi er langur vegur. Hins vegar hafa margir haldið því fram, að Framsóknarflokkurinn dragi einfaldlega dám af samstarfsflokki eða -flokkum í ríkisstjórn I það og það skiptiö. Nú sé Sjálfstæðisflokkur- inn samstarfsaðili I ríkisstjórn og þá sveigist framsóknarmaddaman samkvæmt náttúrulög- málinu, „opin i báða enda” sjálfkrafa til hægri, i átt til frjálshyggju og óhefts frelsis til ofsa- gróða. Þetta verði þó ekki viövarandi ástand — fiokkurinn eigi eftir að kúvenda á nýjan leik. Víkur þá sögunni að Timamálinu. Eftir þvi sem næst verður komist er það ætlan fram- sóknarforingjanna að geirnegla hægri halla flokksins til frambúðar með því að stilla upp annáluðum hægri mönnum á ritstjórastóla. Ber þar fyrstan að nefna Indriöa G. Þorsteins- son primus mótor í ísfilmfyrirtækinu marg- fræga, fjölmiðlamafíu hægri aflanna í þjóðfé- laginu. Indriöi hefureinatt verið á þeim vængn- um í Framsóknarflokknum þarsem afturhaldið er upphafið og dásamað. Samvinna og jöfnuö- ur eru stefnumið sem ekki þvælast fyrir þess- um „ultra” hægri hóp í Framsóknarflokknum; hópnum hans Indriða. Svipaða sögu er unnt að segja af Magnúsi Bjarnfreðssyni, sem einnig hefur verið tilnefndur til ritstjórastóls á Tíman- um. Hann hefur verið stuðningsmaður þess að flokkurinn staðsetji sig til frambúðar á hægri kanti íslenskra stjórnmála. Þriðji maðurinn í ritstjórakompaníinu áTímanum, Helgi Péturs- son, hefur verið tiltölulega afskiptalaus um stjórnmál, enda á stefnuskránni að hann haldi um fréttastjórn, en þeir hinir tveir fyrrnefndu stýri hinum pólitisku skrifum blaðsins. Ef af þessum fyrirætlunum verður, sem allt bendir til, þá er ekki um neitt að efast lengur; Framsóknarflokkurinn ætlar sérvist i handar- krika Sjálfstæðisfiokksins til frambúðar. —GÁS. Málfreyjuþing Húsmæðraorlof á Hyanneyri Sveinssonar fer fram í dag í dag kl. 13.30 fer fram útför Kristjáns Sveinssonar, augnlæknis, heiðursborgara Reykjavíkur, frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Útförin er gerð á vegum Reykjavíkurborgar og mun séra Þórir Stephenssen jarðsyngja. Kristján Sveinsson fæddist að Rípi í Hegranesi 8. febrúar 1900. Hann var því 85 ára að aldri þegar hann lést. Hann var sonur hjón- anna Ingibjargar Jónasdóttur og séra Sveins Guðmundssonar. Krist- ján lauk stúdentsprófi árið 1922 og kandidatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Islands 1927. Hann stund- aði framhaldsnám í augnlækning- um í Danmörku og Þýskalandi. Árið 1932 opnaði Kristján Sveinsson augnlæknisstofu í Póst- hússtræti 17 og rak hana til dauða- dags. Hann var einnig dósent við læknadeild Háskólans um 20 ára skeið. Árið 1975 var Kristján gerður að heiðursborgara Reykjavíkur og er hann annar af tveim Reykvíking- um, sem hafa orðið þess heiðurs að- njótandi. Eiginkona Kristjáns Sveinssonar, María Þorleifsdóttir, lést árið 1965. Þau áttu tvö börn, Kristján og Guð- borgu. Málfreyjur á íslandi halda sitt fyrsta landsþing dagana 7.-9. júní nk. að Hótel Loftleiðum, Reykja- vík, og hefst það kl. 20.30 með opn- unarhátíð. Jafnframt munu mál- freyjur stofna landssamband ís- lenskra málfreyja. Alls eru starf- andi 18 deildir innan samtakanna hér á landi, auk þess er ein deild starfandi meðal íslenskra kvenna í Luxemborg. Núna eru 12 ár síðan fyrsta deild- in var stofnuð hér á Iandi, sem starfaði á Keflavíkurflugvelli meðal bandarískra og íslenskra kvenna, og er sú deild enn þann dag í dag enskumælandi, þótt svo að flestir félagar séu íslenskir. í lok kvennaársins 1975 var fyrsta íslenska deildin stofnuð í Keflavík. Eftir það óx og dafnaði starfsemin og hver deildináf annarri var stofn- uð. Þetta sýnir hvað þessi þjálfun er mikilvæg fyrir konur og þjóðfélag- ið, að konur skuli geta tjáð sig ann- ars staðar en heima í eldhúsi. Alls eru 450 málfreyjur starfandi hér á landi, og eru deildirnar víða um land. Loksins sjá málfreyjur hylla und- ir stofnun landssambands, en það verður formlega stofnað á lands- þinginu, en starfstími þess hefst 1. ágúst 1985. Þingið mun kjósa sína fyrstu landsstjórn hér á landi og samþykkja félagslög og gildandi reglur fyrir félagsskapinn. Markmið og stefna félagsins eru: — þjálfa hæfileika til forystu, Birta fyrir blind börn Dregið hefur verið í happdrættinu, bifreiðin kom á miða nr. 1063. Kiwanisklúbburinn Esja þakkar öllum sem lögðu málinu lið. Ekki liggur enn fyrir hvað hagnaðurinn var mikill en fréttatilkynning um það verður birt strax og það liggur fyrir. — auka hæfni sem áheyrandi og flytjandi, — þjálfa skipulagshæfileika, — öðlast þroska með því að byggja upp sjálfstraust, — ná meiri viðurkenningu sem einstaklingur í starfi og sam- félagi, — vera þátttakandi í alþjóðleg- um félagsskap sem starfar á fræðilegum grundvelli án gróðasjónarmiða. Heiðursgestur fyrsta landssam- bandsins varður fulltrúi frá al- heimsstjórninni Mary Semenauer, þingskapaleiðari stjórnarinnar, en hún er frá Bandaríkjunum. Það er mikill heiður fyrir íslenskar mál- freyjur að fá slíkan gest í heimsókn. Samtök málfreyja eru til um all- an heim nema í Áustantjaldslönd- unum. Þau eru í Ameríku, Evrópu, Suður-Afríku, Grikklandi, Ástralíu og Nýja Sjálandi. Spurt 1 samanburður sé sýndur fyrir hvert ár um sig. 2. Hverjar voru heildargreiðslur hvers sjúkrasamlags um sig vegna tannlækningakostnaðar á árinu 1984 og til hve margra tann- lækna gengu þessar greiðslur í hverju tilviki? Fyrirspurnin til Matthíasar Á. Mathiesen viðskiptaráðherra hljóð- ar svo: Hversu mikið hafa gjaldskrár Tannlæknafélags íslands hækkað frá I. janúar 1982 til 1. maí 1985? Óskað er eftir að fram komi heildarhækkun á tímabilinu, hve- nær gjaldskrárbreytingarnar urðu, hverjar þær voru hveriu sinni, að hve miklu leyti hver hækkun stafaði af launahækkun tannlækna og að hve miklu leyti af auknum rekstrar- kostnaði og enn fremur saman- burður á gjaldskrárhækkunum og verðþróun og almennum launa- Þegar bílar mætast er ekki nóg að annar víki vel út á vegarbrún og hægi ferð. Sá sem á móti kemur veröur aö gera slíkt hið sama en notfæra sér ekki til- litssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km. I sumar mun Orlofsnefnd hús- mæðra í Reykjavík starfrækja or- lofsheimili í glæsilegu húsnæði bændaskólans að Hvanneyri í Borgarfirði. Dvalið verður eina viku í senn í sex hópum frá 22. júní nk. Hægt er að velja um eins eða tveggja manna herbergi, með sér- snyrtingu, einnig er á staðnum ágæt baðaðstaða, sólskýli og heitur pott- ur. Boðið verður upp á leikfimi, skoð- unarferð um Hvanneyrarstað, eins dags ferð um Borgarfjörð með við- Alþýðublaðinu bárust eftirfar- andi vísur og formáli að þeim frá Haraldi G. Júlíussyni frá Stokks- eyri. Nú fara sumarfuglarnir að láta heyra í sér. Áður fyrr lögðu menn mikla athygli í það úr hvaða átt heyrðist fyrst í hrossagauknum. Hér eru nokkrar vísur sem maður á níræðisaldri kunni um hrossa- gaukinn, og trúi ég því að fáir kunni þær: í nónstað þegar gaukurinn gólar giftast þeir sem einsamir róla. Þeir giftu missa sinn maka og mæðu fyrir gleðina taka. í austrinu lætur hann til sín heyra einskis þarftu að biðja þess fleira hjá þér skal vera unaður og yndi og ánægja við tröllkonu vindi. komu í Borgarnesi og á kvöldin verða kvöldvökur. Viðurgjörningur allur er til fyrir- myndar, Ijúffengur matur og einkar lipurt starfsfólk. Bókasafn er á staðnum og guðsþjónusta verður í Hvanneyrarkirkju hvern sunnudag. Frá og með mánudeginum 3. júní verður tekið á móti umsóknum á skrifstofu orlofsnefndar að Traðar- kotssundi 6, sem opin verður mánu- daga til föstudaga milli kl. 15.00 og 18.00. Sími 12617. Orlofsnefnd hef- ur látið prenta kynningarbækling til dreifingar og er hann afgreiddur á skrifstofunni. í vestrinu vesælsmanns gaukur þá mun uppskrúfast hörmunga- baukur hellast yfir höfuð á þegni svo húðvökni í sorganna regni. í suðrinu söngfuglinn leikur í sælunni verður hann keikur fullur og feitur, út ganga í fjarlægð við hallærið stranga. í skýjunum skellir hans hlátur skaltu vera glaður og kátur. Auðurinn í greipar þér gengur og gleður sig hinn fátæki drengur. í hánorðri hengir hann niður hausinn, klærnar, vængi og fiður orgar svo af ofboði mesta ekki mun þig spekina bresta. ||| Útboð Tilboð óskast f rafmótor fyrir dælustöð Hitaveitu Reykjavfkur við Grafarvog. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verðaopnuð ásamastað þriðjudaginn 18. júní nk. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Gauksspá

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.