Alþýðublaðið - 31.05.1985, Qupperneq 4
alþýðu-
■ ■jRuTum
Föstudagur 31. mal 1985
Útgefandi: Blað h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.i Guðmundur Árni Stefánsson.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Simi:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Siðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
í lausasölu 20 kr.
Evrópuríkin verða að
draga úr spennunni
milli austurs og vesturs, segir Willy Brandt
Willy Brandt, fyrrverandi kansl-
ari V-Þýskalands, var um síðustu
helgi staddur í Kaupmannahöfn. Á
fundi sem hann hélt sagðist hann
vera mjög áhyggjufullur vegna
stjörnustríðsáætlunar Reagans
Bandaríkjaforseta.
Á fundinum sagði Willy Brandt
að engar horfur virtust á að vígbún-
aðarkapphlaupið hætti í bráðina.
— Ég hef miklar áhyggjur af
samkomulaginu milli risaveldanna.
Ég geri mér fullkomna grein fyrir
skoðun sovésku samninganefndar-
innar og einnig fyrir skoðunum
bandarísku samninganefndarinn-
ar, en ég get ekki séð hvernig þessir
tveir aðilar geti náð samkomulagi,
sagði Brandt á fundinum.
Sovétmenn bíða
Brandt taldi vafamál að af fundi
æðstu manna ríkjanna tveggja yrði
í ár. Taldi hann mikla hættu á að
Sovétmenn ætluðu að bíða með
slíkan fund þar til forsetakosningar
hafa farið aftur fram í Bandaríkj-
unum.
— Slíkt væri mjög bagalegt, því
það þýddi að mikilvægustu samn-
ingsviðræðurnar yrðu að bíða til
1989. Og þegar ég heyri sagt að það
sé allt í lagi að bíða, þar sem við
höfum haft frið í 40 ár, verð ég þvi
miður að svara því til að tíminn
vinnur ekki lengur með okkur,
heldur gegn okkur. Nú þegar eru
50.000 kjarnaoddar í heiminum og
þeim fjölgar með hverjum degin-
um, sem líður, sagði Brandt.
Kjarnorkuvopnin byggja á tækni
manna og sú tækni getur brugðist,
einsog t.d. hefur gerst í tölvukerfi
bandaríska hersins. Þegar slíkt ger-
ist með kjarnaflaugar, sem þurfa að
fljúga milli heimsálfa getur hin
mannlega hönd gripið inn í en gerist
þetta á styttri vegalengdum einsog
Pershing II, sem staðsettar eru í V-
Þýskalandi og SS-22, sem staðsettar
eru í A-Þýskalandi, eru flugskeytin
Kaup
mátturinn
Meðfylgjandi línurit er fengið úr
Fréttabréfi ASÍ og sýnir áœtlaðan
kaupmátt 1984—1985, annars veg-
ar miðað við óbreytta kauptaxta og
hins vegar miðað við að gengið yrði
að tilboði Vinnuveitendasam-
bandsins nú.(punktalínan).
Hagdeild ASI reiknar nokkuð
lœgri kaupmátt en VSÍ vegna þess
að ASÍ reiknar út frá meðalkaup-
hœkkunen VSI af kauphœkkunum
í lægri flokkunum, sem og er frávik
í verðlagsforsendum. Þannig reikn-
ar ASI með því að á fjórða árs-
fjórðungi 1985 verði kaupmáttur-
inn að óbreyttu 92 stig (miðað við
100 stig á 3. ársfjórðungi 1983) en
97.9 stig samkvœmt tilboði VSÍ.
Kaupmátturinn á öllu þessu ári yrði
að óbreyttu 95.3 stig en 98.5 sam-
kvœmt tilboði VSI eða aðeins 3.2
stigum hærri.
Ársmeðaltal kaupmáttarins á
síðasta ári reyndist 99.8 stig eða rétt
undir kaupmœttinum á þriðja árs-
fjórðungi 1983, en gjarnan er mið-
að við hann, þó þá hafi mikið kaup-
máttarhrap orðið að veruleika eftir
fyrstu mánuði ríkisstjórnarinnar.
bara um átta mínútur að skotmarki
sínu.
Stjörnustríðið
Willy Brandt hefur mestar
áhyggjur af því hversu ófullkomin
tæknin er í vígbúnaðarkerfunum.
Þetta á ekki síst við stjörnustríðs-
áætlun Bandaríkjanna. Hann var-
aði við því að sú áætlun myndi
draga úr hættunni á kjarnorku-
stríði, þvert á móti taldi hann hana
hafa þveröfug áhrif.
— Hugmyndin um að bægja
burt kjarnorkuóttanum er úr lausu
lofti gripin. Fjöldi vísindamanna
hefur sannfært mig um að varnar-
kerfi í geimnum geti ekki orðið að
veruleika fyrr en í fyrsta lagi eftir
tíu til fimmtán ár. Auk þess mun
slíkt varnarkerfi aldrei vera full-
komlega öruggt. Talað er um 95%
öryggi. Hvor aðili hefur um 10.000
kjarnaodda. 5% þeirra ættu þvi að
sleppa í gegn. Það eru 500 kjarn-
orkusprengjur.
Viðræður eina vonin
Brandt hefur því litla trú á
stjörnustríðsáætluninni. Það eina
sem getur orðið til þess að draga úr
spennunni eru viðræður stórveld-
anna, að hans mati.
— Það væri til mikillar blessunar
ef stórveldin hættu vígbúnaðar-
kapphlaupinu nú þegar með fryst-
ingu kjarnorkuvopnanna. Hættu
öllum frekari tilraunum með ný
vopn og frystu núverandi kjarn-
orkuvopnabúr sín, sagði hann. En
því miður er ekkert útlit fyrir að svo
geti orðið. Samkomulagið milli
austurs og vesturs versnar stöðugt.
Það er ekki síst þriðji heimurinn
sem líður fyrir það.
Undanfarin ár hefur það færst
mjög í aukana að deilur stórveld-
anna hafa verið fluttar út til þriðja
heimsins. Slíkt leggur miklar skyld-
ur á herðar Evrópu.
Skyldur Evrópu
Eftir því sem deilur austurs og
vesturs halda áfram mun þriðji
heimurinn fara fram á að ríki Evr-
JAHFEBUARAPRUA/jÚNJÓLÁGÚSEPOKTNÍVDeSJANFlBUARAPRUAÍJÚNJÚLÁCÚSEPOKTNÖ/DeS
1984 1985
ópu reyni að beita áhrifum sínum til
að sætta þessa aðila.
Og samkvæmt skoðun Willy
Brandts, þá geta Evrópuríkin og
eiga að beita áhrifum sínum til að
draga úr spennunni. Það er enn
brýnna nú en nokkru sinni fyrr,
enda er árið 1985 fyrsta árið sem út-
gjöld til vígbúnaðar í heiminum
fara yfir 1.000 milljarði dollara.
En hvernig geta þau gert það?
— Veikleiki vestrænna, sérstak-
lega bandarískra stjórnmála-
manna, er að þeir skilja ekki þróun-
ina í Austur-Evrópu. í lok heims-
styrjaldarinnar var heiminum skipt
milli austurs og vesturs, sú skipting
stenst ekki lengur. Austurblokkin
er alls ekki ein heild, hvorki sögu-
leg, menningarleg, né stjórnmála-
leg. Því verða ríki V-Evrópu að taka
upp viðræður við löndin í austri,
þ.e.a.s. önnur en Sovétríkin, og
stefna að evrópíseringu þessara
landa sem liggja á milli Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna. Slíkt sam-
starf gæti síðan haft jákvæð áhrif á
stórveldin.
Með þessu yrði starfið innan
hernaðarbandalaganna í austri og
vestri ekki rofið, því Brandt er
þeirrar skoðunar að þau verði að
vera fyrir hendi til að halda jafn-
vægi í heiminum. Hann er sann-
færður um nauðsyn þess að V-
Þýskaland eigi að vera áfram í
NATO, en hinsvegar segist hann
ekki geta stutt þá stefnu NATO að
fjölga stöðugt gereyðingarvopnum
á þýskri grund.
MOLAR
Albert ver aðalinn
Nú er ýmislegt að gerjast í hús-
næðismálunum og ljóst að vand-
ræði ríkisstjórnarinnar eru orðin
það mikil að hún er meira að segja
farin að hlusta á stjórnarandstöð-
una — svona einu sinni. Jú, meðal
þeirra hugmynda sem rætt hefur
verið um í ríkisstjórninni er sér-
stakur stóreignaskattsauki og
skyldusparnaður á hátekjur — en
þetta eru hugmyndir sem Alþýðu-
flokkurinn hefur haldið stíft
fram, að breiðu bökin sem mok-
uðu inn „stríðsgróðanum“ á verð-
bólguárunum taki á sig sérstakar
byrðar til að aðstoða unga fólkið
í dag.
Framsóknarmenn hafa áður
Iýst sig reiðubúna til slíkra að-
ferða, en sjálfstæðismenn hafa
ávallt verið á móti öllum slíkum
íþyngingum á vini sína úr hástétt-
inni. Nú ber svo til að aðeins hefur
frést af mótstöðu eins ráðherra úr
sjálfstæðisliðinu — og það er
auðvitað háklerkur aðalsins Al-
bert Cuómundsson fjármálaráð-
herra.
Hvers vegna skyldi hann vera á
móti því að Stigahlíðarþjóðin taki
á sig auknar byrðar? Er svo að
þessari stétt þrengt? Hefur hún
orðið illa úti í baráttu ríkisstjórn-
arinnar við verðbólguna? Hefur
hún þurft að glíma við tekju-
skerðingu og lánskjarapíning-
una?
Nei, þarna er Albert að taka
upp hanskann fyrir vini sína úr
viðskiptalífinu, jafnvel þótt um
lúsarlegan skattauka sé að ræða
sem vart mundi snerta buddu
þeirra (eða peningaskápa) að ráði.
Svo þykist hann vera að gæta
hagsmuna ríkissjóðs!
•
Gjörningar
Ársskýrsla Framkvæmdastofn-
unar ríkisins 1984 er komin út og
að venju sneisafull af fróðlegum
upplýsingum.
Almenn lán og styrkir Byggða-
sjóðs námu 202,6 milljónum
króna, sérstök lán til hafnargerð-
ar 10 milljónir, til vegagerðar 16
milljónir, vegna bættra hollustu-
hátta og aðbúnaðar á vinnustöð-
um 14 milljónir, til aukningar á
verkefnum skipasmíðastöðva og
endurbóta skipa 92,5 milljónir
auk styrks til Framleiðsluráðs
landbúnaðarins vegna útflutn-
ingsbóta 1980 alls 5 milljónir kr.
Alls fóru því úr Byggðasjóði 340,2
milljónir króna.
Heildarútlán Framkvæmda-
sjóðs námu hins vegar rúmum
tveimur milljöróum króna og er
þá meðtalin lánveiting til Byggða-
sjóðs upp á 247 milljónir kr.
Þegar litið er á áðurnefnd al-
menn lán og styrki Byggðasjóðs
upp á 202,6 milljónir króna kem-
ur í ljós að rúmlega 10% upphæð-
arinnareða 20,7 milljónir kr. voru
vegna greiðslu vanskila við sjóð-
inn, þar af rúmlega 4 milljónir
króna til Þormóðs ramma á Siglu-
firði og 13 milljónir króna til Bú-
landstinds á Djúpavogi.
í skýrslu formanns stjórnar
Framkvæmdastofnunarinnar
kemur fram óánægja með þær
umræður sem átt hafa sér stað um
stofnunina í þjóðfélaginu, sem að
hans mati „virðist á stundum
gjörningum líkust“.
Fjárfestingarsjóðirnir
Svokallaðir fjárfestingarsjóðir
eru 18 talsins eftir því sem fram
kemur í ársskýrslu Framkvæmda-
stofnunar ríkisins fyrir 1984. Það
árið runnu úr þessum sjóðum alls
rúmlega 11.3 milljarðar króna.
Sumir sjóðir eru nokkuð magr-
ir samkvæmt yfirliti um ráðstöf-
un á fjármagni þeirra, t.d. ráð-
stafaði Iðnrekstrarsjóður aðeins
10 milljónum króna, Landflutn-
ingasjóður 17 milljónum og Veð-
deild Alþýðubankans 24 milljón-
um. Hlutfallsleg skipting ráðstaf-
aðs fjármagns hjá stærstu sjóð-
unum er hins vegar sem hér segir:
1. Framkvæmdasjóður 36%.
2. Fiskveiðisjóður 19%.
3. Byggingasjóður ríkisins 16.7%.
4. Byggðasjóður 5.5%.
5. Iðnlánasjóður 4.5%.
6. Byggingarsjóður verkamanna
4.5%.
7. Stofnlánadeild landbúnaðarins
4.2%.
Þessir sjóðir ráðstafa því saman
yfir 90% fjármagns hinna 18
sjóða. Ef sjóðnum er hins vegar
skipað saman eftir atvinnugrein-
um kemur þetta í Ijós: Hlutfall
Stofnlánadeildar landbúnaðar-
ins, veðdeildar Búnaðarbankans
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins
og Stofnlánadeildar samvinnufé-
laga er samtals 6.4%. Iðnlána-
sjóður, Iðnrekstrarsjóður og Iðn-
þróunarsjóður samtals með 7%.
Byggingasjóðirnir eru samtals
með 21.2% og hinir tveir sjóðir
Framkvæmdastofnunarinnar eru
með 41.4%.