Alþýðublaðið - 17.07.1985, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 17.07.1985, Qupperneq 3
Miðvikudagur 17. júll 1985 3 > Þórarinn Eldjárn landi til vina á Vesturlöndum 5.000 ljósmyndaspólum, áður ejn hann fluttist úr landi ásamt fjölskyldu sinni. Þó bæði Vladimir og kona hans Aida, séu tilheyrandi rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni (eða grísku- orþódoxu kirkjunni) fengu þau vegabréfsáritanir til ísraels með því að uppdikta gyðinglega ættingja og afla sér þannig heimboðs frá ísra- elsstjórn. Vladimir Sichov hefur gefið út einstæða bók um Sovétríkin, Les Russes vus par Vladimir Sichov, sem komið hefur út á allmörgum tungumálum, þar á meðal norsku, sænsku og ensku: The Russians (Little, Brown & Company, 1981). Bókin, sem er löngu uppseld á öll- um málum, er óvenjulega opinská og nærfærin lýsing á daglegu lífi í Sovétríkjunum sem útlendingum er aldrei gefið færi á að sjá eða kynn- ast áf eigin raun — lífi á rússnesk- um heimildum og samyrkjubúum, í strætum og húsasundum stór- borga, í verksmiðjum og herbúð- um, í óhugnanlegum fangabúðum og geðveikrahælum sovésku leyni- þjónustunnar, KGB, í kirkjum og heimkynnum útskúfaðra lista- og vísindamanna. Sérkennilegur og mjög persónu legur myndstíll Vladimirs Sichovs hefur gert hann einhvern virtasta og eftirsóttasta Ijósmyndara Evrópu nú um stundir. Hal Calbom og Phil Davies Höfundar myndarinnar lceland Crucible eru bandarískir kvik- myndagerðarmenn, sem átta sinn- um hafa verið sæmdir hinum eftir- sóttu Emmy-verðlaunum, sem veitt eru fyrir framúrskarandi sjónvarps- þætti. Þeir eru báðir búsettir í Seattle í Washington-fylki og starfa þar. Hal Calbom stundaði nám í stjórnmálafræðum og síðar ensk- um bókmenntum og naut margra virðulegra styrkja, var m.a. Nation- al Merit Scholar, Great Book Scholar og Frank Knox Fellow. Hann lauk BA-prófi í stjórnmála- fræðum frá Harvard College árið 1971 og MA-prófi í enskum bók- menntum frá háskólanum í Exeter í Englandi árið 1976. Að námi loknu starfaði hann sem fréttamaður, höfundur og framleiðandi sjón- varpsþátta. Eftir átta ára starf hjá NBC, gerðist hann sjálfstæður rit- höfundur og kvikmyndaframleið- andi í félagi við Phil Davies. Phil Davies lauk BA-prófi i fjöl- miðlafræðum frá The Evergreen State College árið 1974. Eftir það starfaði hann um sinn sem frétta- ljósmyndari og síðan kvikmynda- gerðarmaður og framleiðandi hjá NBC. Á þeim árum var hann átta sinnum sæmdur Emmy-verðlaun- unum. Síðan 1983 hefur hann starf- að sjálfstætt í félagi við Hal Cal- bom að gerð kvikmynda og mynd- banda fyrir sjónvarp og einkafyrir- tæki. Sigurður A. Magnússon Sigurður hefur samið nokkrar bækur á ensku, auk fjölmargra á ís- lensku, m.a. Northern Sphinx — Iceland and the Icelanders from the Settlement to the Present (1977 og 1984) og Stallion of the North — The Unique Story of the Iceland Horse (1978), sem komið hefur út á sjö tungumálum. Þá þýddi hann og ritstýrði The Postwar Poetry of lce- land (University of lowa Press, 1982) og ritstýrði og gaf út Iceland- ic Writing Today (1982) Skáldsaga hans, Undir kal- stjörnu, hefur komið út á þýsku, Unter frostigem Stern (1984), og ensku, Under a Dead Star (1985). Ljóð hans, smásögur og bók- menntagreinar hafa birst í safnrit- um og tímaritum á Norðurlöndum öllum, í Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Hollandi, Grikklandi, Ítalíu, Spáni, Indlandi, Mexíkó, Bandaríkjunum og Kan- ada. Ásdfs Magnúsdóttir dansari Kynning á íslenskri nútímalist Hilda hf. og Bókaútgáfan Vaka hafa tekið höndum saman um viða- mikla kynningu á gróandanum í nútímalistum Islendinga. Kynning- in er samsett úr þremur meginþátt- um, þ.e. stórri ljósmyndasýningu, kvikmynd og vandaðri bók. Hér er um einstæðan viðburð að ræða í menningarlífi íslendinga og þótt víðar væri leitað, því ekki er vitað til að nokkurn tíma hafi verið efnt til jafn víðtækrar kynningar á öllum listgreinum heillar þjóðar. Ráðgert er að fara með kynningu þessa víða um lönd á næstu árum, en forsýning hennar verður opnuð á Kjarvalsstöðum laugardaginn 13. júlí og mun standa þar fram til 28. júlí, frá klukkan 14 til 22 daglega. Kynningin hefur hlotið yfirskrift- ina Iceland Crucible. Ljósmyndirnar Á kynningunni er sýning á 330 ljósmyndum af um 170 íslenskum listamönnum úr öllum greinum, eftir heimskunnan ljósmyndara, Vladimir Sichov. Hann starfar að staðaldri fyrir ýmis helstu mynd- skreytt viku- og mánaðarrit vestan hafs og austan og hefur fengið fleiri myndir birtar en nokkur annar ljós- myndari í heiminum á síðustu sex árum. Ljósmyndasýningin á Kjarvals- stöðum er stærsta, fjölbreytilegasta og listrænasta mannamyndasýning sem nokkru sinni hefur verið efnt til hérlendis. Kvikmyndin Annar hluti kynningarinnar er hálftíma kvikmynd um grósku ís- lenskra Iista í nútímanum. Myndin nefnist Iceland Crucible og er gerð af tveimur kunnum bandarískum kvikmyndagerðarmönnum, Hal Calbom og Phil Davies, sem átta sinnum hafa verið sæmdir hinum eftirsóttu Emmy-verðlaunum fyrir sjónvarpsþætti sína. Til skamms tima unnu þeir fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina NBC, en starfa nú sjálfstætt. Kvikmyndin er í litum og koma þar við sögu ýmsir kunnir lista- menn á mörgum sviðum. Myndin verður sýnd a.m.k. tvisvar daglega meðan á kynningunni á Kjarvals- stöðum stendur. Bæði kvikmyndin og ljósmyndir Vladimirs Sichovs voru gerðar að frumkvæði og á kostnað Hildu hf. Bókin í tengslum við sýningarnar á Kjarvalsstöðum kemur út á vegum Bókaútgáfunnar Vöku stór og vönduð bók á ensku með úrvals- myndum Sichovs af um 170 íslensk- um listamönnum úr hinum ýmsu greinum og á öllum aldursskeiðum. Bókin ber heitið Iceland Crucible, A Modern Artistic Renaissance. Texta hennar samdi Sigurður A. Magnússon, rithöf- undur, og rekur hann i skilmerki- legu máli þróun og helstu afrek hverrar listgreinar frá öndverðu fram á þennan dag. Aldrei fyrr hefur svo yfirgrips- mikil bók um sögu allra listgreina komið út í neinu landi veraldar. Hér er því um að ræða jafnt alþjóðlegan sem innlendan menningarsöguleg- an viðburð. Heimskynning Á næsta ári er ráðgert að fara með ljósmyndasýninguna og kvik- myndina um þver og endilöng Bandaríkin og Kanada og koma bókinni á framfæri við lesendur sem allra víðast vestan hafs. Bóka- útgefendur og forstjórar sýningar- sala og sjónvarpsstöðva hafa sýnt þessu framtaki verulegan áhuga. Síðan er ætlunin að snúa sér að Evrópu og Asíu og þá fyrst og fremst Japan. Með því að hefja kynninguna hérlendis vakir fyrst og fremst fyrir aðstandendum bókar og sýninga að vekja athygli heimamanna á þeirri ótrúlegu blómgun, sem átt hefur sér stað í öllum listgreinum á undan- förnum áratugum. Þar koma bæði við sögu listamenn sem unnið hafa afrek á heimavelli og fjölmargir listamenn sem gert hafa garðinn frægan með öðrum þjóðum. Hvers vegna? Eðlilegt er að fólk spyrji: Hvers vegna eru einkaaðilar að ráðast í slíkt kynningarátak á íslenskri menningu og listum í útlöndum? Svarið er ekki einhlítt. Helsta ástæðan er samt sú, að þeir er að út- flutningi standa og aðrir, sem tengj- ast íslandskynningu i útlöndum telja sig hafa séð að þörf sé orðin á viðameiri menningarkynningu ís- lendinga erlendis en verið hefur. Kynning á náttúru, landslagi, land- háttum og framleiðsluvörum sé góð og gild, en landkynning, sem tengist menningu og lífi fólksins í landinu verði yfirleitt áhrifameiri fyrir land og þjóð og um leið fyrir þá sem selja útlendingum vöru og þjón- ustu. Forráðamenn Hildu hf. sem hafa stundað viðamikinn ullarvöruút- flutning um árabil höfðu frum- kvæði að þessari kynningu sem hlotið hefur yfirskriftina Iceland Crucible, sem þýða mætti Islensk deigla. Með henni er ætlunin að sýna hvernig alþjóðlegir straumar í listum blandast íslenskum áhrifum og verða til þess að hér er nú meiri gróandi í Iistum en víðast hvar ann- ars staðar. Bókaútgáfan Vaka annast einn þátt málsins, sem er gerð og útgáfa bókar um þetta efni, en ljósmynda- sýningin og gerð kvikmyndarinnar er á vegum Hildu hf. Líklegt er að fleiri fyrirtæki teng- ist þessu kynningarátaki á síðari stigum, jafnframt því sem það gæti orðið all miklu víðtækara. Höfundarnir Vladimir Sichov Sichov er heimskunnur Ijós- myndari af rússnesku bergi brotinn. Hann hefur búið í París síðan 1979 og starfar fyrir ýmis helstu viku- og mánaðarrit austan hafs og vestan, svo sem Paris Match, Stern, Life, People, Vogue og Esquire. Hann fæddist í Kazan á Volgubökkum ár- ið 1945. Að loknu námi í rafmagns- verkfræði gegndi hann um tveggja ára skeið herþjónustu í Baykonur- geimstöðinni og varð liðsforingi. Eftir lausn úr hernum starfaði hann á eigin vegum sem ljósmyndari og tók einkum myndir fyrir minjakort og hljómplötukápur. Á þessum tíma tók hann um 180.000 ljós- myndir og lánaðist að smygla úr

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.