Alþýðublaðið - 27.07.1985, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.07.1985, Blaðsíða 1
 Laugardagur 27. júlí 1985 141. tbl. 66. árg. Hvaleyrin fær ekki lán Segir varnarliðinu stríð á hendur Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra er kominn í heilagt stríð við varnarliðið. Svo virðist sem honum hafi svið- Rafveita Hafnarfiarðar: Innheimtir dráttarvexti Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef- ur heimilað Rafveitu Hafnarfjarð- ar að reikna dráttarvexti á gjald- fallna reikninga. Þykir slikt ■ sjálfu sér ekkert óeðlilegt að Rafveita fái dráttarvexti reiknaða, og gátu flest- ir bæjarstj.órnarmenn verið sam- mála um það. Hinsvegar lagði Al- þýðuflokkurinn áherslu á að sam- tímis væri vinnubrögðum Rafveit- unnar breytt þannig að Rafveitan greiddi vexti af inneign einstaklinga hjá fyrirtækinu. Einsog fólki er kunnugt er raf- magnsnotkun heimila áætluð og gerist það ekki ósjaldan að hún sé áætluð of mikil. Það kemur því oft fyrir að Rafveitan verður að greiða afnotendum til baka þegar raf- magnsneyslan er gerð upp. Þótti eðlilegt fyrst Rafveitan ætlaði að innheimta dráttarvexti að hún borg- aði jafnframt vexti af því sem hún hefur ofáætlað á neytendur. Meirihlutinn var þó ekki á því og vísaði til þess að slíkt væri ofviða nýjum tölvum Rafveitunnar. Þær kunna semsagt bara að reikna út dráttarvexti en ekki vexti af inneign. Eru margir undrandi á þessari við- báru, því ekki þarf merkilegra tæki til slíkra reikninga en blað og blý- ant, venjuleg vasatölva getur hins- vegar auðveldað reikninginn, hvað þá þegar komin er stór tölva í fyrir- tækið. Alþýðuflokkurinn greiddi því atkvæði gegn þessari tillögu. ið svo meðferð bandarískra stjórn- valda á íslensku skipafélögunum með því að veita — í skjóli banda- rískra einokunarlaga — skipafélag- inu Rainbow Navigation flutninga fyrir varnarliðið, að hann hafi séð ástæðu til að hefna harma þeirra. Hann fyrirskipaði stranga tollskoð- un á gámum Rainbow Hope og hugðist stöðva flutning á kjötvö’rum inn á völlinn — í skjóli laga frá 1928 um bann við innflutn- ingi á hráu kjöti vegna hættunnar á gin- og klaufaveiki! Þó þessi lög séu gömul þá eru þau þó nýrri á nálinni en bandarísku lögin sem kveða á um að bandarískir aðilar sjái um flutning á vörum fyrir bandaríska herinn. „Hermennirnir verða að borða mat sem við höfum alist upp á“ er haft eftir Albert. Eiginleg tollskoðun á innflutn- ingi varnarliðsins til eigin þarfa hef- ur sama og aldrei átt sér stað. Albert fyrirskipaði að nú skyldi skoðað grannt og lögunum frá 1928 fylgt eftir. Albert vísar til þess að í Bandaríkjunum séu íslensk skip vandlega tollskoðuð og vísar til þess að ef íslendingar eigi að lúta Fiamh. á bls. 2 „Það er orðið sem orðið er og nú verður ekki aftur snúið,“ sagði Guðmundur Árni Stefánsson, bæj- arfulltrúi Alþýðuflokksins í Hafn- arfirði, þegar við spurðum hann út í þá afstöðu bæjarstjórnarinnar að þrýsta á bankayfirvöld að veita Hvaleyri hf. lánafyrirgreiðslu vegna fyrirhugaðra endurbóta á nýkeyptu fiskiðjuveri Bæjarútgerðar Hafn- arfjarðar og togurum BÚH. Ástæðan fyrir þessu er sú að Út- vegsbankinn hefur ekki viljað veita Hvaleyri afurðalán út á framleiðslu sína, en birgðir fyrirtækisins nema nú um 7—8 milljónum króna. „Hvaleyrin hefur þegar hafið rekstur fiskiðjuversins og þar eru nú 80 manns á launaskrá. Þeirri staðreynd getum við ekki horft framhjá. Þessvegna er Alþýðu- flokkurinn tilbúinn að hjálpa til ef einhver kostur er að koma fyrirtæk- inu í viðskipti innan bankakerfis- ins. Það væri mjög bagalegt fyrir Alþýðuflokkurinn styður að bœjaryfir- völd í Hafnarfirði reyni að koma fyrir- tækinu í bankavið- skipti, svo starfsemin stöðvist ekki einusinni enn og starfsfólk fiskiðjuversins verði atvinnulaust. „Engan pilsfatakapítalsima í útgerð Hvaleyrarinn- ar/‘ segir Guðmundur Árni Stefánsson. starfsfólkið ef enn einusinni þyrfti að stöðva reksturinn.“ Þá sagði Guðmundur Árni að bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins hefðu séð þetta fyrir og bent á þeg- ar fjallað var um sölu BÚH á sínum tíma. „Við bentum á, þegar gengið Framh. á bls. 2 Bœjarútgerð Reykjavíkur: Kerfið hrunið! „Skipulagabreytingin“ sem meirihluti sjálfstæðismanna í út- gerðarráði Bæjarútgerðar Reykja- víkur kom á, er hrunin! Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum Alþýðublaðsins má heita að gamla skipulagið sé í reynd komið í framkvæmd. Nýja skipulagið gerði Borgarráð: Sala Hafnarbúða samþykkt! A borgarráðsfundi í gær sam- þykkti meirihluti sjálfstæðismanna að selja ríkinu Hafnarbúðir fyrir 55 milljónir króna, þar af eiga að grejðast 5 milljónir við undirskrift. Áður en borgarstjórn fór í sum- arfrí bókaði minnihlutinn þá kröfu sína að ef borgarráð hygðist af- greiða þetta mál yrði borgarstjórn kölluð saman til aukafundar. Sá fundur verður haldinn á miðviku- daginn kemur. Tveir borgarfulltrúar sjálfstæðis- manna hafa lýst sig andvíga sölu, þeir Páll Gíslason og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Ef þeir mæta á borg- arstjórnarfundinn á miðvikudag- inn og standa við orð sín þá er salan 'RITSTJÓRNARGREIN- fallin, með 11 atkvæðum gegn 10. Nú velta menn því fyrir sér hvort Davíð borgarstjóri sé búinn að keyra yfir þá félaga og fá þá til að skipta um skoðun eða að minnsta kosti til að vera fjarverandi á mið- vikudaginn. ráð fyrir fimm framkvæmdastjór- um — fjórum stjórum hinna ein- stöku deilda og svo yfirfram- kvæmdastjóra. Þetta kerfi hefur ekki virkað og hefur sú staðreynd æ betur komið í ljós. Kerfið er hrunið. Miklir árekstrar hafa átt sér stað milli annars vegar framkvæmda- stjóra fjármáladeildar og hins veg- ar framkvæmdastjóra fiskvinnsl- unnar og útgerðarinnar. Nú hefur framkvæmdastjóri fjármálasviðs — Vigfús Aðalsteinsson — gefist upp og látið af störfum. Fram- kvæmdastjóri útgerðarsviðs hefur tekið við fjármálasviðinu og sviðin sameinuð. Toppunum er því tekið að fækka aftur og gamla fyrirkomulagið að komast á að nýju, með því að yfir- framkvæmdastjórinn hefur ýtt málum í æ ríkara mæli til núverandi framkvæmdastjóra fjármála- og útgerðarsviðs, Bjarna Thors. Sem sagt tveir forstjórar! Hagnast á sjúklingum Skattskráin er komin út. Fjölmiöiar fyllast spenningi og blöð, útvarp og sjónvarp tfunda það gaumgæfilega hverjir borga mest og hversu mikið. Skattskráin er hins vegar talsvert vafasamt plagg svona i upphafi því að kærur eiga eftir að sópast inn og þegar að lokum upp er staðið, getur verið að sá hæsti samkvæmt upphaflegri skráskili að lokum aðeins smáaur- um til rikis og sveitarfélags. Trúlega er það fámennið og kunningsskap- urinn hér á landi, sem gerir fólk svona spennt fyrir skattgreiðslum náungans, sjá hverjir hafa opinberlega hæstar tekjur og eiga mestar eignirnar. Skattskráin kemur líka upp um marg- an huldumanninn, sem greiðir nánast engin gjöld þrátt fyrir ríkmannlegan lífsstil. Tekjuskatturinn skilar ríkissjóði tiltölulega litlum tekjum en hann er ósanngjarn. Skattur- inn kemurhelst niðuráþeim,semekki hafa að- stæöurtil þess aðdyljatekjursínar þ. e. hinum venjulega launamanni. Um leið og einstakling- ur fer út í einhvers konar rekstur fer hann að fá allskyns frádráttarliði svo sem bllakostnað, símakostnað, risnu og ferðakostnað sem lækkar skattana. Ýsmum stéttum er það líka í sjálfsvald sett, hvað þær telja fram sem tekjur sínar. Það ber þvl að leggja niður svo rangláta skattheimtu sem tekjuskatturinn er af launum sem lægri eru en 5—6 hundruö þúsund krónur á ári en afla ríkissjóði teknanna með sölu- skatti, tolium og eingarskatti á stóreignum. Það sem vekur mesta athygli við athugun skattskrárinnar er það, hversu tekjuháir þeir eru sem hafa llfsviðurværi sitt af veiku fólki. Það getur alls ekki verið tilviljun, að af tlu hæstu skattgreiðendum I Reykjaneskjördæmi eru 6 sem hafa tekjur sínar af þjónustu við sjúklinga. Einn þeirra er tannlæknir en fimm lyfsalar. Það virðist þvl vera lang gróðavæn- legasti verslunareksturinn að reka lyfjabúð. Tvær byggingavöruverslanir greiða vissulega mjög há gjöld, en hátekjur lyfjabúðareigend- anna eru almennar og undantekningarlausar. Hingað til hefur það verið talið eðlilegt, að stór- fyrirtæki og athafnamenn I atvinnurekstri, þeir sem leggja fram áhættufjármagn og uppskera mikinn hagnað, greiði há opinber gjöld. Það er aftur á móti alls ekki hægt að telja lyfsala eða tannlækna I hópi athafnamanna. Tannlækn- arnirvinnasfn verksem hverjiraðrirhandverks- menn og hafa þess vegna takmarkaða afkasta- getu og lyfsalarnir eru undir verndarvæng stjórnvalda. Lyfjabúðir eru nokkurs konar ein- okunarfyrirtæki þar sem þær selja lyf á sama verði samkvæmt gjaldskrá og ráðherra úthlut- ar lyfsöluleyfum og gætir þess að búðirnar verði ekki of margar svo að ekki sé hætta á því að samkeppni skapist. Á skattskránni sést, að gróði lyfsala er óeðlilega mikill og þess vegna hlýtur lyfjaverð að vera of hátt. Sjúklingar og sjúkrasamlög fá að borga brúsann. Nú mun það svo vera, að aukin samkeppni lækki vöruverð. Það hefur heldur ekki farið milli mála, að Sjálfstæðisflokkurinn, sem nú fer með heilbrigðis- og tryggingarmál, hefur verið mjög fylgjandi frjálsri samkeppni og frjálsri verðmyndun. Það eru ekki sjáanlegar neinarsérstakarástæðurfyrirþvl, að fólk, sem hefur til þess réttindi, geti ekki stofnað lyfja- búð hvar og hvenær sem er svona rétt eins og tískuvörubúö. Það virðist alla vega vera svig- rúm til þess 1 stærstu kaupstöðunum að bjóða upp á aukna samkeppni með lækkandi verði. Eða er þarna aðeins enn eitt dæmið um pils- faldakapitalisma sjálfstæðismanna. Skal einkaframtak lyfsalanna þrífast I skjóli stjórn- valda? B. P.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.