Alþýðublaðið - 27.07.1985, Síða 3
Laugardagur 27. júll 1985
3
Nyr bókaklúbbur:
Blómaklúbburinn
blóm, umhirðu þeirra og ræktun.
Verður það gert með útgáfu bóka-
flokks um blómarækt, fyrst um
inniplöntur en síðar um blóma- og
trjárækt utan dyra. Þá mun klúbb-
félögum berast sérstakt félagsblað,
Blómablaðið, með hverri bók. í því
verður fjallað um blómarækt,
blómafólk og starfsemi klúbbsins.
Einnig fá klúbbfélagar plöntufræ í
hæsta gæðaflokki með hverri send-
ingu frá klúbbnum og sérstök til-
boð um kaup á blómavörum með
afslætti frá almennu verði.
Nýlega kom út fyrsta bókin hjá
Blómaklúbbnum. Nefnist hún
Svona dafna blómin best, og fjallar
um ræktun pottaplantna. Þetta er
aðgengileg handbók með ráðlegg-
ingum um grundvallaratriði blóma-
ræktar qg prýða litmyndir hverja
síðu bókarinnar. Bókin er 64 síður,
innbundin og plasthúðuð. Fríða
Björnsdóttir hefur þýtt bókina og
staðfært miðað við íslenskar að-
stæður en uppruni bókarinnar er
sænskur.
Samheiti bókaflokksins er Allt
um inniplöntur. Gefur það til
kynna að víða verði komið við á
þessu sviði og fjölbreytni efnisins
verði mikil. Vaka hefur þegar gert
samninga um útgáfu átta bóka í
þessum flokki, tvær þeirra fjalla
um ræktun inniplantna almennt,
umhirðu þeirra og meðferð, tvær
bókanna eru ítarlegar kynningar-
og ráðgjafarbækur um blaðplöntur
eða svokallaðar grænar plöntur,
þrjár bækur fjalla um blómstrandi
plöntur af ýmsum gerðum og ein
um blómaskreytingar af ýmsu tagi.
Blómabækurnar verða eingöngu
boðnar innan vébanda Blóma-
klúbbsins, sem er nýstofnaður
fræðslu- og ræktunarklúbbur fyrir
áhugafólk um blómarækt. Með
slíkri klúbbsölu er ætlunin að ná
upplagi bókanna verulega upp fyrir
það, sem algengt er á almennum
markaði, en það gerir bókaútgáf-
unni kleift að halda verði þeirra í al-
geru lágmarki. Hver bók verður
seld á 298 krónur og fylgir ókeypis
með henni fréttablað Blóma-
klúbbsins og poki með fræjum til
ræktunar á vinsælli pottaplöntu.
Fyrsta bókin í bókaflokknum býðst
aftur á móti á sérstökum kynning-
arafslætti sem nemur um 50% af
venjulegu klúbbverði og kostar þá
umræddur pakki aðeins 148 krónur
auk sendingarkostnaðar.
Prentsmiðjan Rún sf. annaðist
setningu og umbrot bókarinnar
Svona dafna blómin best, en prent-
un og bókband fór fram í Hollandi.
Bokautgafan Vaka hefur stofnað klúbburinn. Megintilgangur
nýjan bókaklúbb, fyrir blómarækt- klúbbsins er að veita félagsmönn-
unarfólk. Kallast hann Blóma- um aðgengilegar upplýsingar um
Kennarar
Kennara vantar við Grunnskóla Grindavíkur.
Kennslugreinar: Danska, íþróttir og almenn
kennsla. Húsnæði fyrir hendi.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í símum
92-8555 og 92-8504.
Laus staða
Landbúnaðarráðuneytið óskar að ráða starfs-
mann nú þegar. Sérmenntun í búnaðarhagfræði
eða viðskiptafræði æskileg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og
fyrri störf sendist ráðuneytinu.
Landbúnaðarráðuneytið,
26. júlí 1985.
Kynning á útboði
Vegagerð ríkisins kynnir útboð á vegskála í Ós-
hlíð á næsta ári. (Lengd áætluð 90 m, steypa 1000
m3).
Kynningargögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 29. júlí 1985.
Kynnisferð á byggingarstað verður farin 20. ágúst
nk.
Vegamálastjóri.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i gerð
Borgarfjarðarvegar um Bóndastaðaháls. (Lengd
4,6 km, fylling og burðarlag ca. 55.000 m3).
Verki skal lokið 1. desember 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 29. þ. m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 12. ágúst 1985.
Vegamálastjóri.
JÍjSfc ST. JÓSEFSSPÍTALI
Landakoti
Lausar stöður á barnaheimilum
Litla Kot. Ein staðastarfsmanns á barnaheimilinu
Litla Koti (börn 1—3 ára). Upplýsingar veitir for-
stöðumaður milli kl. 9 og 16 í síma 19600.
Brekkukot. Hálf staða starfsmanns í eldhús á
barnaheimilinu Brekkukoti (börn 2—5 ára). Upp-
lýsingarveitirforstöðumaðurí Brekkukoti milli kl.
12 og 14 ( síma 19600.
Skóladagheimilið. Ein staða fóstru og ein staða
starfsmanns óskast á skóladagheimilið (börn
5—9 ára), frá 1. september. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður milli'kl 9 og 16 í síma 19600.
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra.
||Í Útboð
Til sölu
Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðarog tæki sem
eru til sýnis í porti Vélamiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar að Skúlatúni 1:
1. Volvo FB 88, árg. 74.
2. VW sendibifreið, árg. 77.
3. VW sendibifreið, árg. 77.
4. M. Benz L-207 pallbíll, árg. 76.
5. Chevrolet Malibu fólksbifreið, árg. ’80.
6. M. Ferguson 135 dráttarvél, árg. 74.
7. M. Ferguson 165 dráttarvél, árg. 75.
8. PZ 135 sláttuþyrla.
Jafnframt eróskað eftirtilboðum (2 strætisvagna
sem eru til sýnis hjá Strætisvögnum Reykjavfkur
að Kirkjusandi:
9. Leyland vörubifreið með 6-manna húsi,
árg. 78.
10. Volvo B. 58 strætisvagn, árg. '68.
11. Volvo B. 58 strætisvagn, árg. ’68.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, fimmtudaginn 1. ágúst nk. kl. 14
e. h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
|9RARIK
■k. ^ RAFMAGNSVEmjR RlKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða 3 rafeinda-
menntaða starfsmenn til starfa á rafeindadeild stofn-
unarinnar.
Deildarstjóri
Starfið er fólgið ( stjórn rafeindadeildar, m. a. umsjón
með áætlanagerö, hönnun, framkvæmdum og tækni-
legum rekstri á fjargæslu- og fjarskiptakerfum auk um-
sjónar með starfrækslu rafeindastofu deildarinnar. Hér
er um mjög fjölbreytt og sjálfstætt starf að ræða sem
krefst alhliða þekkingará rafeindabúnaði og tölvum og
hugbúnaði almennt.
Leitaðerað manni með próf (rafeindaverkfræði/-tækni-
fræði eða með sambærilega menntun.
Tæknimaður
Starfið er aöallega fólgið ( áætlanagerð, hönnun og
verkumsjón með framkvæmdum og tæknilegum
rekstri á fjargæslukerfum. Starfið býður upp á fjöl-
breytt og áhugaverð verkefni á sviði rafeinda- og hug-
búnaðar.
Leitaðerað manni með próf í rafeindaverkfræði/-tækni-
fræði eða með sambærilega menntun.
Rafeindavirki
Starfið er fólgiö I viðgerðum og daglegum rekstri á ým-
iss konar rafeindabúnaði og býður upp á fjölbreytt og
áhugaverð verkefni.
Leitað er að manni með sveinspróf I rafeindavirkjun,
símvirkjun eða sambærileg réttindi. Laun eru skv.
kjarasamningi við Rafiðnaðarsamband íslands.
Upplýsingar um störfin veitir yfirverkfræðingur raf-
magnsdeildar tæknisviðs RARIK í síma 91-17400.
Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að skila
til starfsmannadeildar Rafmagnsveitna rikisins, fyrir 1.
ágúst 1985.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegur118,
105 Reykjavík.