Alþýðublaðið - 27.07.1985, Side 4

Alþýðublaðið - 27.07.1985, Side 4
alþýðu- ■ D hT'JT'M Laugaraagur 27. júlí 1985 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 3. hæð, 108 Reykjavík., Sími: 81866 Úlgefandi: Blað hf. Ritstjórn: Kriðrik Þór Guömundsson (ábm.) og Sigurður Á. Friðþjófsson. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson. Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson, Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsd. Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf, Siðumúla 12. Áskriítarsíminn er 81866 Æskusparnaðarreikningar AIþýðubankans og Búseta Spöru þáttur og Eydda I Alþýðublaðinu í gær var greint frá þvi að Búseti hafi tekið upp sam- starf við Alþýðubankann í sam- bandi við húsnæðissparnaðar- reikninga og æskusparnaðarreikn- inga. Til að kynna þetta æsku- sparnaðarform, settu þeir hjá Bú- seta og Alþýðubankanum saman þessa stuttu sögu, sem hér fer á eft- ir. Sagan um stúlkuna SPÖRU og piltinn EYDDA SPARA og EYDDI eru jafnaldrar. Þau fengu bæði 2.000 krónur í af- mælisgjöf á fyrsta afmælisdeginum sínum frá öfum sínum og ömmum, sem lögðu upphæðina inn á ÆSKUSPARNAÐ í Alþýðubank- anum. Afarnir og ömmurnar héldu áfram að leggja inn 2.000 krónur á ÆSKUSPARNAÐ krakkanna á af- mælisdegi þeirra ár hvert. Þannig áttu bæði SPARA og EYDDI kr. 39.200 með vöxtum á fermingarár- inu, auk verðbótanna, sem eru jafn- háar verðbólgunni. Bæði fengu 15.000 kr. í peningum í fermingar- gjöf. SPARA setti 10.000,- inn á ÆSKUSPARNAÐINN, en keypti reiðhjól fyrir hin 5 þúsundin. EYDDI keypti sér líka hjól, en eyddi svo afganginum í svona ýmis- legt, sumpart kannski í hreinan óþarfa. SPARA ákvað að halda áfram að leggja inn á ÆSKUSPARNAÐINN í Alþýðubankanum kr. 5.000r á ári, en EYDDI hugsaði gott til glóðar- innar, að taka út allt sitt á 16 ára af- mælinu þegar ÆSKUSPARNAÐ- URINN er laus til útborgunar og hann bætti engu við. Á 16 ára af- mælinu stóðu ÆSKUSPARNAÐ- ARREIKNINGAR þeirra þannig: SPARA kr. 64.500,- EYDDI kr. 43.200r EYDDI ákvað að geyma að taka út þar til á 17 ára afmælinu. Þá átti hann kr. 45.375; auk verðbótanna, og notaði til að kaupa sér bíldruslu. SPARA ákvað hinsvegar að láta sinn ÆSKUSPARNAÐ liggja ó- hreyfðan um óákveðinn tíma, en stofnaði til Húsnæðissparnaðar BÚSETA í Alþýðubankanum, enda orðin félagsmaður þeirra samtaka í því augnamiði að eignast þar bú- seturétt til frambúðar. SPARA lagði fyrir lágmarksupp- hæð á Búsetusparnað, sem er kr. 1.000 á mánuði. Á 19 ára afmælinu á hún möguleika á Búseturétti, en er í iðnnámi, trú- lofuð og ákveður að bíða í eitt ár með að nýta hann, enda þá búin að ljúka iðnnáminu. Staðan gerð upp Á 20 ára afmælinu gerir SPARA upp stöðuna. ÆSKUSPARNAÐUR: — Afar og ömmur - innl. — SPARA sjálf innl. — Alþýðubankinn vextir Samtals tökurétt sem er 2,3 sinnum sparn- aðurinn að loknum fjórum árum. Lántökuréttur SPÖRU nemur því kr. 171.500r krónur. Nú víkur sögunni til EYDDA. Hann er líka í iðnnámi, sem lýkur á 20 ára afmælisdegi hans. Eins og við munum tók hann út ÆSKU- SPARNAÐINN sinn þegar hann varð 17 ára og fékk ökuskírteini, keypti sér bíldruslu, sem nú er varla lengur ökufær og búinn að kosta mikið í viðhald og rekstur. Hann er trúlofaður eins og SPARA og er að líta í kringum sig eftir húsnæði. EYDDI hafði lítið „pælt“ í þessum málum fyrr en núna, — húsnæði fokdýrt eins og venjulega og húsa- leiga jafnvel hærri en útborguð laun. kr. 28.000 kr. 20.000 kr. 30.400 kr. 78.400 SPARA stendur svona: Innstæður í Alþýðubanka Lán tökuréttur í Alþýðubanka ÆSKUSPARNAÐUR 78.400+ verðb. 60% (30 stig) HÚSNÆÐISSPARNAÐUR 54.100 + verðb. 230% LÁNTÖKURÉTTUR 171.500 TIL RÁÐST. í BÚSETUR. 304.000, auk verðb. ’ BÚSETUR. KOSTAR 200.000 (Dæmi: ca. 10% af kostn.v. íbúðar) AFGANGS TIL ANNARRA NOTA 104.000 (T.d. innbú!) EYDDI stendur svona: INNSTÆÐUR í BANKA: SEM SAGT ENGAR (launareikn.) LÁNTÖKURÉTTUR: ENGINN (e.t.v. skammtímalán) BÍLLINN: ÓVISS UPPHÆÐ (Lélegur) HÚSNÆÐISSPARNAÐUR BÚSETA (4ár) — SPARA sjálf innl. kr. 48.000 — Alþýðubankinn vextir kr. 6.100 (4%) Samtals kr. 54.100 Samtals á því SPARA kr. 132.500f á sparnaðarreikningum í Alþýðu- bankanum á þessum tyllidegi. Þá er ótalinn skattafsláttur, sem gæti numið kr. 12.000; aurar sem hún hefði annars þurft að greiða Gjald- heimtunni. Og nú kemur rúsínan í pylsuendanum! Með reglubundnum sparnaði sín- um og fyrirhyggju hefur SPARA nú öðlast lántökurétt í Alþýðubankan- um. Með þátttöku sinni í Búseta reiknast henni lántökuréttarstig í hlutfalli við áunna vexti af ÆSKU- SPARNAÐl, eitt stig fyrir hverjar með vöxtum, auk verðbóta með vöxtum, auk verðbóta 1.000 krónur i vöxtum (breytist m/ vísitölu). Hvert stig gefur 2% lán- tökurétt miðað við innstæðu á ÆSKUSPARNAÐINUM. Hús- næðissparnaður Búseta veitir lán- Á krossgötum Og nú standa þau jafnaldrarnir SPARA og EYDDI á.krossgötum. Hann hefur, sem sagt varla úr neinu að spila upp í húsnæði. Það hefði þó verið hægurinn, ef hann hefði hugsað út í það, eða venslamenn, kannski foreldrar, bent honum á, að með því að leggja fyrir u.þ.b. kr. 800; á mánuði að meðaltali, frá 14 ára afmælinu og láta ÆSKUSPARNAÐINN standa óhreyfðan eins og SPARA gerði þá stæðu þau nú jafnfætis. SPARA er á góðum rekspöl, 20 ára með lánstraust í banka og öruggt þak yfir höfuðið, en EYDDI fer með mest allt í húsaleigu og er í bölvuðu basli. Þetta var sagan um stúlkuna SPÖRU og piltinn EYDDA. Eiginkonulíf Við höfum fjallað hér í blaðinu um kyngimagnaða grein Dr. Svans Kristjánssonar um Alþýðu- bandalagið, þaðan sem hann er flóttamaður, í tímaritinu Mann- líf. Svanur er einn af fjölmörgum allaböllum sem gefist hafa upp á bandalaginu, en sá fyrsti sem skil- ar opinberri greinargerð um ástæðurnar. Þær eru fjölmargar. Ekki hefur mikið borið á við- brögðum, fyrr en Össur Skarp- héðinsson Þjóðviljaritstjóri klippti og skar í blaði sínu á fimmtudag. Össur segir svo sem ekki neitt. „Vantar dýpt“ segir hann um „mannlífssönginn“, en sjálfur viðhefur Össur þá dýpt að stinga litlu tánni i gjálfrið við fjöruborðið, tekur undir flest það sem kemur fram hjá Svani og bið- ur um meira. Skýtur þó föstu skoti að Dr. Svani með því að kalla hann prófessor í félags- fræði, en hann er reyndar prófess- or í stjórnmálafræði og eins og allir vita mætir félagsfræðin víða andstöðu, meðan allir eru hrifnir af stjórnmálafræðingum! Uttekt Dr. Svans tekur upp drjúgt pláss í Mannlífsblaðinu. Og segja má að það sé engin til- viljun að Dr. Svanur velji sér þennan vettvang, því ritstjórnar- fulltrúi blaðsins er engin önnur en Auður Styrkársdóttir, eiginkona Svans, en hún flúði með honum úr Alþýðubandalaginu og um leið af málgagninu, Þjóðviljan- um . . . Raunir aðalsins Einhvern tímann á næstunni verð- ur fróðlegur þáttur í sjónvarpinu um franska aðalinn nú á tímum sósíalískrar stjórnunar. Mitter- and-stjórnin hefur ekki verið neitt ýkja tilhliðrunarsöm við franska aðalinn og sett á sérstakan stór- eignaskatt. í sjónvarpsþættinum verður sérstaklega fjallað um að- alsfjölskylduna de Ganays og höll fjölskyldunnar í Courances skoð- uð, en það hefur borið til tíðinda að fjölskyldunni hefur verið gert að opna hluta hallarinnar til sýnis fyrir almenning. En þrátt fyrir mótlætið lifir de Ganaysfjöl- skyldan sínu „eðlilega" lífi sem best hún getur, hvað sem síðar verður. Svarta-Magga í Lundúnum fyrirfinnast samtök- in „London against racism“ — London gegn kynþáttafordóm- um. Árið 1984 var „ár baráttunn- ar gegn kynþáttafordómum“ í Stór-London, en það var sam- kvæmt samþykkt GLC — Greater London Concil. Þetta er áhrifa- mikið ráð sem fylltist af vinstri- mönnum 1981. Viðbrögð Thatch- er og annarra íhaldskarla var að samþykkja að slík ráð (London, Manchester, Liverpool og víðar) yrðu lögð niður — í sparnaðar- skyni eins og það heitir. Þessi ráðagerð Thatcheristanna hefur mætt mikilli andstöðu og „ár bar- áttunnar gegn kynþáttafordóm- um“ er liður í henni. Um alla stór- borgina hanga plaköt og slagorð. Meðal þeirra er plakat þar sem segir „Hversu langt hefði Marga- ret Thatcher náð ef hún hefði ver- ið svört? — Spörkum kynþátta- fordómum út úr borginni“. Síðasta ráðgjöfin Jóhanna Kristjónsdóttir gluggaði í Mogganum í gær í erlend tíma- rit. Segir hún að aragrúi rita, viku- blaða, mánaðarrita og ársfjórð- ungshefta berist inn á skrifborðið hennar og kannast Alþýðublaðið við þetta „vandamál“. Hún fer höndum um nokkur rit og segir meðal annars um „Nordisk sosi- alt Arbeid" (málgagn norrænna Félagsráðgjafa): „Efalaust gagn- legt rit fyrir stéttina og væntan- lega er lika gagnlegt fyrir íslenzka félagsráðgjafa að taka sem mest- an og beztan þátt í samstarfi nor- rænna kollega á þessum síðustu ráðgjafatímum". Úm öll ritin sem hún fjallaði um segir hún: „Öll þau rit sem hér hefur verið minnzt á þjóna sjálfsagt sínum tilgangi og hafa öll sinn lesendahóp. Það er ósköp jákvætt“. Ósköp hefur þetta verið leiðin- legt verkefni fyrir hana Jóhönnu. Dallasdauði í Mogganum í gær var einnig „Guðað á skjáinn" og þar upplýs- ir að lesendur um það í framtfð- inni muni Bobby Júvíng farast í umferðarslysi, enda leikarinn dauðleiður á hlutverkinu. Hann vilji ekki snúa til baka, þó honum hafi ekki borist merkilegri at- vinnutilboð en að leika geit í Lísu í Undralandi. Þá er upplýst að þegar Barbara Gel Geddes hafi orðið veik og hætt að leika Miss Ellie hafi verið fengin til þess Donna nokkur Reed. Bel Geddes fékk heilsuna á ný og hlutverkið sömuleiðis, en Donna brást ókvæða við og lögsótti framleið- endurna. Krefst hún 7.5 milljóna dollana í skaðabætur, en það gera samkvæmt gengissérfræðingum Moggans 315 milljónir króna, sem er svipuð upphæð og Fjár- festingafélagið metur öll hluta- bréf Flugleiða á! Nema hvað hér skakkar nokkr- um milljónum. Greinarhöfundur virðist meta dollarann á 42 krónur en samkvæmt gengisskráningu Moggans í gær var hann ekki nema 41.12 krónur. Þá gera 7.5 milljónir dollara 308.4 milljónir króna. Mismunurinn er því 6.6 milljónir króna og munar um minna — að minnsta kosti fyrir sótsvartan almúgann!

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.