Alþýðublaðið - 27.09.1985, Page 3
Föstudagur 27. september 1985
3
‘~T. ^iw^BitnsitiiakiS
'ttM«»æðtir'j«aiv:4 ^a««^«*'»
a mm mmm ?* i«»p«,*ir" a««r ■*;«?•«,
i««• «tmmm’i Jti*ak.-<fc*Ha»*.»«.3 ,
mwmviáMmsszzszszzzzú
***9****:?*MmBm*v*****A
m*#a nmm
ifeÉPSsS [ J8j
jjS
■■
ͧ|Éj$fejgM 1§H
Tölvumar nota mikið af hugbúnaði og sum íslensk fyrirtœki hafa sérhœft sig íþeirri framleiðslu, Samkeppnisað-
staða þeirra versnar nú til muna ef söluskattur verður lagður á framleiðslu þeirra.
Hugbúnaður 4
anlega neyðast til þess að leggja upp
laupana.
Núverandi ríkisstjórn hefur vak-
ið vonir um nýsköpun í íslensku at-
vinnulifi, og í því sambandi hefur
Selkórinn
syngur
Um þessar mundir stendur yfir
undirbúningur vetrarstarfsemi Sel-
kórsins á Seltjarnarnesi. Sem fyrr
verður leitast við að hafa verkefna-
valið eins fjölbreytt og auðið er,
þótt auðvitað verði stefnt að þvi að
léttleiki einkenni dagskrána. Kór-
inn nýtur starfskrafta Helga R. Ein-
arssonar, sem verið hefur stjórn-
andi kórsins npkkur undanfarin ár.
Á liðnum árum hefur kórinn
haldið sjálfstæða tónleika, auk þess
að syngja á sjúkrahúsum og öðrum
stofnunum, en áform eru um að því
verði haldið áfram.
Félagsstarfið er bæði líflegt og
fjölbreytt og félagsandinn sagður
mjög góður, enda er kórinn bland-
aður, þ.e. hann er skipaður bæði
konum og körlum.
Sjálfu vetrarstarfinu lýkur svo
með vorskemmtun í byrjun maí. í
frétt frá kórnum segir að í hann
vanti alltaf gott söngfólk i allar
raddir.
Formaður Selkórsins er Stefán
Hermannsson s. 626434, gjaldkeri
Sigrún Guðmundsdóttir s. 625773
og ritari er Elísabet Einarsdóttir s.
27831.
tölvuiðnaðurinn verið nefndur sem
ein vænlegasta nýsköpunargreinin.
Því torskiljanlegri eru áform
stjórnvalda um að vega nú að þess-
ari atvinnugrein einmitt á þeirri
stundu, sem hún er í örum vexti, en
að sama skapi viðkvæm gagnvart
öllum óvæntum breytingum á
rekstrargrundvelli sinum.
Ennfremur er hætt við, að rekstr-
argrundvöllur þeirra fyrirtækja,
þar sem tölvunotkun og aðkeypt
tölvuþjónusta er mikil, versni til
Undanfarna mánuði hafa staðið
yfir samningaumleitanir um fyrir-
framsölu á saltaðri Suðurlandssíld
til hinna ýmsu markaðslanda. í
frétt frá Síldarútvegsnefnd kemur
fram að gengið hafi verið frá samn-
ingum um fyrirframsölu á samtals
um 245 þúsund tunnum til Sovét-
ríkjanna, Finnlands og Svíþjóðar.
Söluverðið til Finnlands og Sví-
þjóðar er óbreytt frá fyrra ári en
verðið til Sovétríkjanna er um 13%
lægra en í fyrra.
Þrátt fyrir þessa verðlækkun til
Sovétríkjanna er söluverðið þangað
tæplega 40% hærra en verð það,
sem keppinautar íslendinga hafa
ýmist samið um við Sovétmenn eða
muna. Einhver þeirra verða fyrir
miklum skakkaföllum, nái þessi
skattheimta fram að ganga. Önnur,
t.d. opinber fyrirtæki, munu velta
kostnaðaraukanum út í verðlagið,
þ.e. almenningi verður gert að axla
hann.
Skýrslutæknifélag íslands hvetur
stjórnvöld því eindregið til þess að
falla frá hugmyndum um söluskatt
á tölvur og tölvuþjónustu og Ieita
annarra leiða til þess að leysa fjár-
hagsvanda ríkissjóðs.
boðið þeim og er þá miðað við til-
svarandi stærðar- og gæðaflokka.
Þessu til staðfestingar lögðu Sov-
étmenn fram í viðræðunum undir-
ritaðan sölusamning, sem þeir
höfðu þá nýlega gert við Kanada-
menn svo og skrifleg tilboð, sem
þeim höfðu skömmu áður borist
frá Noregi, Hollandi o. fl. fram-
leiðslulöndum saltaðrar síldar.
Grundvöllur fyrir söltun síldar er
nú mun verri en á undanförnum ár-
um. Mestur hluti síldarinnar er
seldur í Bandaríkjadollurum, en
gengi dollarsins gagnvart íslenskri
krónu er nánast óbreytt frá því út-
flutningur hófst í lok nóvember á
sild frá vertíðinni í fyrra. Á sama
tímabili hefur verðbólga í landinu
verið um 30%.
Vaxandi offramboð er á síld á öll-
um mörkuðum og hefur því veru-
legur hluti síldaraflans hjá keppi-
nautum íslendinga farið til
bræðslu.
Kópavogur:
Hananú
gengur
aftur!
Frístundahópurinn Hana nú í
Kópavogi gengur aftur á morgun,
laugardaginn 28. september. Á
morgun er hópnum boðið að skoða
listaverk eins Hana nú-félaga í
Hvömmunum. Markmið hinnar
vikulegu göngu Hana nú er hreyf-
ing, súrefni og samvera. Lagt er af
stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00
fyrir hádegi.
Allir Kópavogsbúar eru vel-
komnir.
PÓST- OG SÍMA-
MÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
póstafgreiðslumann
til starfa við póstmiðstöðina, Ármúla 25.
Nánari upplýsingarverðaveittaráskrifstofu póst-
miðstöðvarinnar að Ármúla 25.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Þormóður Ögmundsson
fyrrverandi aðstoðarbankastjóri,
Miklubraut 58
andaðist að morgni 25. september á Vifilsstaöaspitala.
Lára Jónsdóttir,
Jón Ögmundur Þormóðsson, Lilja Guðmundsdóttir,
Salvör Þormóðsdóttir, Björn Sverrisson,
Guðmundur Þór Þormóðsson, Vigdis Ósk Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
Vaxandi offram-
boð á síld
Samið um sölu á245þús. tunnum til Rússlands
Vinnuvemd á
Austurlandi
— til umfjöllunar á ráðstefnu Alþýðusam-
bands Austurlands að Iðavöllum í dag og á
morgun
Vinnuvernd og ástand vinnu-
staða á Austurlandi er viðfangsefni
ráðstefnu, sem Alþýðusamband
Austurlands heldur 27. og 28. sept-
ember að Iðavöllum á Héraði. Ráð-
stefnan er undirbúin í samvinnu við
Menningar- og fræðslusamband al-
þýðu.
Á ráðstefnunni verður gerð grein
fyrir ástandi vinnustaða á Austur-
landi með tilliti til aðbúnaðar, ör-
yggis og hollustuhátta, en að und-
anförnu hefur farið fram nokkur
könnun í þessu efni. Rætt verður
hvað einkum virðist ábótavant og
um leiðir til úrbóta. Sérstök áhersla
verður lögð á hlutverk öryggistrún-
aðarmanna og öryggisvarða.
Erindi á ráðstefnunni munu
flytja þeir Ásmundur Hilmarsson
starfsmaður Sambands bygginga-
manna og Snorri S. Konráðsson
starfsmaður Menningar- og
fræðslusambands alþýðu. Þá mun
Eyjólfur Sæmundsson forstjóri
Vinnueftirlits ríkisins ræða um
stofnunina og næstu verkefni.
Skúli Magnússon vinnueftirlits-
maður á Austurlandi og Hörður
Bergmann fræðslufulltrúi ræða um
framkvæmd vinnueftirlits og upþ-
lýsingastarf.
Gert er ráð fyrir að allt að 50
manns sæki ráðstefnuna frá aðild-
arfélögum Alþýðusambands Aust-
urlands, allt frá Bakkafirði til
Hafnar í Hornafirði.
Ráðstefnan hefst kl. 13.00 á
föstudag 27. september og lýkur
síðdegis á laugardag.
FÉLAG$STARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Hafnfirðingar
Aðalfundur F.U.J. í Hafnarfirði verðurhaldinn laug-
ardaginn 12. okt. nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur félagsfund mánudaginn 30. september
næstkomandi, kl. 20:30 i Alþýöuhúsinu, Hafnar-
firði.
Mætiö vel og stundvíslega.
Stjórnin.
VII. landsfundur Sambands
Alþýðuflokkskvenna
4. og 5. október 1985
Staður: Hótel Loftleiðir — Kristalssaiur.
Föstudagur 4. október:
Kl. 20.00 Setning — Kristín Guðmundsdóttir, formað-
ur SA.
Ávarp — Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins.
Erindi: Konurog framboðsmál — Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir.
Kosning starfsmanna landsfundarins.
Erindi: Konurog tækni — Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Laugardagur 5. október:
Kl. 09.00 Kosning í nefndir fundarins.
Skýrsla stjórnar.
Almennar umræður.
Lagabreytingar — fyrri umræða.
Starfshópar taka til starfa.
Kl. 16.00 Áætlað að starfshópar skili af sér.
Umræður.
Lagabreytingar — siðari umræða.
Kosningar.
Kl. 20.00 Kvöldfagnaður.
Kaffi- og hádegisverðarhlé verða ákveöin af fundar-
stjóra.
Þátttökugjald kr. 300,—. Kvöldfagnaður kr. 800,—.
Þátttökutilkynningar i síma 29244 kl. 13—17 daglega.