Alþýðublaðið - 15.10.1985, Side 1
Stórmarkaðir í Danmörku.
Þriðjudagur 15. október 1985 196. tbl. 66. árg.
Framfærslan
hækkar enn
— Framfærsluvísitalan komin í 2% fram úr
viðmiðun kjarasamninga. Skófatnaður
hækkaði um 10% milli mánaða
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
framfærslukostnaðar miðað við
verðlag í byrjun þessa mánaðar.
Þessi vísitala reyndist nú komin upp
í 152 stig í stað þeirra 149 sem ráð
var fyrir gert þegar kjarasamning-
arnir voru undirritaðir í júní.
Þessi hækkun er 2,2% frá því í
byrjun síðasta mánaðar og sam-
Hafnarfjörður:
Heimili
fatlaðra
Á laugardaginn var opnað
nýtt heimili fyrir fatlaða að
Klettahrauni 17 í Hafnarfirði.
Það er Svæðisstjórn fyrir fatl-
aða á Suðurnesjum sem stendur
að þessu framtaki og er reiknað
með að 7 fatlaðir muni að stað-
aldri búa á heimilinu.
Klettahraun 17 er um 300 fer-
metra hús auk bílskúrs, byggt á
tveimur hæðum. Á heimilinu
verða 4 starfsmenn, en hinir
fötluðu sem þarna búa þurfa
mikillar þjónustu við. Þór Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri
svæðisstjórnarinnar sagði í
spjalli við Alþýðublaðið að
reiknað væri með að íbúarnir
nytu þjónustu annars staðar að
degi til en starfsfólk heimilisins
sæi um þá á kvöldin og nótt-
unni.
svarar það 30% verðbólgu á árs-
grundvelli. Þetta gæti e. t. v. verið
vísbending um það að verðbólgan
sé á hægri leið niður á við því sið-
ustu 12 mánuði hefur vísitalan
hækkað um nærri 38% og verð-
bólguþróun síðustu þriggja mán-
aða bendir til rúmlega 36% verð-
bólgu.
Af einstökum útgjaldaliðum
vísitölufjölskyldunnar hafa 'föt,
einkum þó skórnir, hækkað mest.
Fatnaðarliðurinn vegur 0,4% í
heildarhækkuninni. Að örðu leyti
orsakast hækkunin einkum af
hækkunum á verði landbúnaðar-
afurða og húsnæðis, svo og af
auknum kostnaði við að eiga og
reka bíl. Þessir liðir vega hver um
sig 0,3% í hækkuninni.
Hækkanir þeirra einstöku kostn-
aðarliða, sem til samans mynda
framfærsluvísitöluna, eru reyndar
ákaflega misjafnar. Þannig virðast
skór hafa hækkað í verði um rétt
tæp 10% frá því í síðasta mánuði.
Að sögn skósala sem Alþýðublaðið
hafði samband við stafar þessi
hækkun af hækkuðu verði Evrópu-
gjaldmiðla að stórum hluta. Sami
skósali sagði einnig að haustsend-
ingarnar væru enn ekki farnar að
koma í búðirnar nema að litlu leyti
og mætti því jafnvel vænta þess að
skófatnaður ætti eftir að hækka
eitthvað til viðbótar.
Allra mest hækkun einstakra
kostnaðarliða varð þó á ýmissi
þjónustu sem ekki er skilgreind sér-
staklega í skýrslum. Þessi þjónusta
hækkaði um tæp 14%!
Hrikalegur aðbúnað-
ur afgreiðslufólks
VR: Astandið langt frá því að vera svona alvarlegt hér
Sumar missa hreinlega minnið
(blackout), sumar fara á taugum,
margar hafa ekki orku í annaó en
að fara beint í rúmið. Trúnaðar-
menn hafast ekkert að vegna þrýst-
ings vinnuveitenda, uppsagnir vofa
almennt yfir. Afgreiðslufólk er oft
kært fyrir þjófnað sem aðrir eiga
sök á.
Þetta eru lýsingar úr dönsku
blaði á aðbúnaði afgreiðslustúlkna
i stórmörkuðum Danmerkur.
Sannarlega hrikalegar lýsingar og
vaknaði upp sú spurning, hvernig
aðbúnaður afgreiðslufólks verslana
væri hér á landi. Eitthvað í líkingu
við ástandið í Danmörku?
„Mér er það ánægja að upplýsa
að ástandið hér á landi er langt frá
því að vera svona alvarlegtý sagði
Elís Adolfsson hjá Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur í samtali
við blaðið. „Okkur berast einstaka
sinnum kvartanir, t.d. út af kulda
og trekki, en þá er slíkt yfirleitt lag-
að með hraði. Stórmarkaðirnir hér
láta fólk yfirleitt skipta reglulega
um verkefni, þannig að enginn er
samfellt lengi t.d. við afgreiðslu-
kassana. Við höfum fylgst nokkuð
vel með þessu og höfum einstaka
sinnum þurft að gera athugasemd-
ir, en almennt held ég að vinnuveit-
er.dur hafi skilning á því, að ef þeir
Eftir nokkuð stöðugan fjölda
dóma hjá Fíkniefnadómstólnum
1981—1984 hefur á þessu ári orðið
talsverð fjölgun. Þrjú hin síðustu ár
voru dómar um 250—260 á ári, en
í byrjun októbermánaðar ■ ár voru
dómarnir komnir upp í þennan
fjölda, sem bendir til um þriðjungs
aukningar.
Þessar upplýsingar fékk Alþýðu-
blaðið hjá Ásgeiri Friðjónssyni.
Ásgeir sagði að sér virtist sem
meiri áhersla væri nú lögð á að
grípa inn í áður en efnin færu í um-
bjóða fólki sínu upp á mikið álag og
slæma vinnuaðstöðu, þá fær starfs-
fólkið atvinnusjúkdóma, afköst
ferð, en Arnar Jenson hjá Fíkni-
efnalögreglunni sagði, að hún hefði
haldið sínu striki hvað stærri fíkni-
efnasala varðar, en auk þess lagt
undanfarið aukna áherslu á „götu-
lífið“ og haft eftirlitsmann á hinum
ýmsu samkomustöðum, á Hlemmi,
spilabúllunum og víðar.
Þróunin undanfarið hefur verið
sú að kannabisefnin halda sínu,
amfetamínið er að ná sér á fastan
grunn, LSD er að koma aftur og
það er farið að örla á enn sterkari
efnum.
minnka og tilkostnaður eykst. Við
segjum gjarnan að við eyðum hálfri
ævinni á vinnustaðnum og því þarf
fólki að líða vel þarý sagði Elís.
Elis sagði enn fremur að mikið
álag á vissum tímum hefði verið
viðurkennt í hærri launum. VR
berðist nú fyrst og fremst fyrir því
að fá dagvinnulaunin upp. „Við fá-
um ekki skilið hvers vegna ekki er
hægt að hækka dagvinnulaunin,
því þegar kemur að eftirvinnu- og
næturvinnu virðast vera til nógir
peningar. Þetta kemur ekki heim og
saman við mína rökfræðiý sagði
Elís.
Grensásdeildin:
Nýja sund-
laugin vígð
Nýja sundlaugin við Grensás- !
deild Borgarspítalans var form- !
lega tekin í notkun á föstudag-
inn. Við það tækifæri var sér- I
staklega minnst tveggja látinna
stjórnmálamanna, þeirra
i Magnúsar Kjartanssonar og Jó-
! hanns Hafstein, en þeir voru á
j sínumtímaaðalhvatamennþess
! að laugin yrði byggð.
Sundlaugin er 17 metra löng
og 10 metra breið og mun hún
bæta mjög aðstöðu til sjúkra-
þjálfunar á staðnum, en fram að
þessu hefur verið farið í sund
einu sinni í viku með þá sjúkl-
inga sem verið hafa ferðafærir.
Til viðbótar Grensásdeildinni
mun sundlaugin einnig þjóna
öðrum deildum Borgarspítal-
ans.
Við laugina eru tvær setlaug-
ar með innbyggðu vatnsnuddi
og mismunandi hitastigi. Þá er
einnig fullkomin búningsað-
staða við laugina og í kjallara
undir búningsherbergjunum er
gert ráð fyrir göngudeild í sam-
bandi við taugarannsóknir.
Fíkniefnadómstóllinn:
Þriðjungs fjölgun dóma
Helgi Skúli Kjartansson:
Ekki eitt,
heldur allt!
Uppstokkun Þorsteins í Thatcer-stíl
Það vantar ekki Thatchertil-
burðina hjá Sjálfstæðisflokknum
þessa dagana, og það fer víst ekki
á milli mála að uppstokkunin á
ráðherraliði flokksins eigi að vera
aðgerð í breskum íhaldsstíl, fyrsta
tilraunin til að innleiða þá hefð
hér á landi. Hvernig hefur nú Þor-
steini tekist að feta í fótspor frú
Thatcher?
Að auglýsa
foringjavaldið
Þegar forsætisráðherra íhalds-
flokksins breska stokkar upp
ráðuneyti sitt á miðju kjörtímabili
er hann (eða hún) m. a. að stað-
festa og auglýsa vald sitt í flokkn-
um og stjórninni, enda vita allir
að forsætisráðherranum er full-
komlega í sjálfsvald sett hvenær
og hvernig hann stokkar upp.
Slíkri auglýsingu var Þorsteini
blessuðum víst engin vanþörf á,
og hann reynir líka að gera sem
mest úr valdasýningunni með þvi
að skáka til hverjum einasta ráð-
herra flokksins. Gallinn er bara
sá, að hinn óralangi og hallæris-
legi aðdragandi uppstokkunar-
innar er löngu búinn að sýna að
Þorsteinn ræður ekki yfir þing-
flokknum eða ráðherraliðinu,
þótt í þetta sinn væri samþykkt að
leyfa honum að þykjast. Og með
því að færa til alla ráðherrana er
Þorsteinn í rauninni að sýna hve
lítið vald hann þorir að taka sér til
að gera upp á milli þeirra.
Að endurnýja
forustusveitina
Uppstokkun ríkisstjórnar (eða
skuggaráðuneytis ef flokkurinn er
ekki við völd) gefur breskum
íhaldsleiðtoga tækifæri til að
lyfta nýjum mönnum til metorða
í flokknum, bæði til að verðlauna
þá sem vel hafa gert og til að
kynna kjósendum með góðum
fyrirvara þá nýju menn sem ætl-
unin er að leiki áberandi hlutverk
í næstu kosningabaráttu. í upp-
stokkun Þorsteins Pálssonar er
það aðeins einn maður sem
hækkar í tign, nefnilega Þor-
steinn Pálsson. Endurnýjunin á
forustusveit flokksins er engin.
Að sníða af kal-
kvistina
Til að rýma fyrir nýju mönnun-
um verður breskur íhaldsleiðtogi
að víkja til hliðar einhverjum af
æðstu ráðherrunum, ýta þeim
kannski upp í lávarðardeild eða
gera þá hreinlega að óbreyttum
þingmönnum. Þannig losar hann
(hún) sig við óþægilega sam-
starfsmenn.
Þorsteinn hefur ýtt einum ráð-
herra algerlega til hliðar, Geir
Hallgrímssyni, en einungis af því
að hann einn reyndist fús til að
fórna sér. Annars hefði það ein-
mitt verið Geir af öllum ráðherr-
unum sem Þorsteinn hefði mátt
trúa til heilinda í samstarfi, svo að
líklega blóðsér hann eftir honum.
í Bretlandi er líka litið svo á, að
leiðtoginn sé að afneita ábyrgð á
mistökum eða óvinsældum þeirra
ráðherra sem reknir eru úr stjórn-
inni, og jafnvel þeirra líka sem
fluttir eru gegn vilja sínum í ann-
að ráðuneyti ekki veglegra en hið
fyrra. Hinir ráðherrarmr, sem
sitja kyrrir eða hækka í tign, það
eru verk þeirra sem stjórnin vill
láta dæma sig fyrir.
Hjá Þorsteini er það einkum
Albert sem sett hefur ofan við
ráðuneytisskiptin, Matthías Mat-
hiesen að því leyti líka að hann
telst mega missa sig í bili. En allir
hinir eru líka færðir til án þess að
hækka í tign, sem á breskan mæli-
kvarða myndi tákna að Þorsteinn
sé að firra sig ábyrgð á verkum
þeirra hingað til.
Nú situr Þorsteinn, ólíkt
Framh. á bls. 2