Alþýðublaðið - 26.11.1985, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 26.11.1985, Qupperneq 2
2 -RITSTJÓRNARGREIN.-. .................... Hugmyndir Alþýðuflokksins um kjara þjoðhagsvisitolu sáttmála og Þær hugmyndir, sem að undanförnu hafa ver- ið ræddar um einhverskonar kjarasáttmála verkalýðshreyfingar og vinnuveitenda með að- ild ríkisvaldsins, eru ekki nýjar af nálinni. Fyrir Alþingiskosningar 1978 lögðu Alþýðuflokks- menn fram hugmyndir af þessu tagi, og var höf- undur þeirra Benedikt Gröndal, fyrrverandi for- maður Alþýðuflokksins. Um svipað leyti gerði Gyifi Þ. Gislason, fyrr- um formaður flokksins grein fyrir hugmyndum um svokallaða þjóðhagsvisitölu. Hans hug- myndir voru þær, að reiknuð yrði út vísitala, sem sýndi breytingar á þjóðartekjum á þriggja mánaða fresti. Hann taidi slíka visitölu síst óábyggilegri en visitölu framfærslukostnaðar. Kauphækkanir, sem sigldu i kjölfar slíkrar þjóðhagsvísitölu, gætu orðið grundvöllur raunverulegrar kauphækkunar. <r I tillögum Benedikts Gröndal voru tilgreind mörg grundvallaratriði, sem hægt væri að byggjaákjarasáttmála. Rauði þráðurinn varsá, að kjarabæturyrðu aldrei tryggðar með krónu- töluhækkunum, nemaað baki þeim væru raun- veruleg verðmæti. Samningar um skattkerfis- breytingar og lagfæringar á almannatrygging- um, gætu oft verið raunhæfari og vænlegri til árangurs en hækkanir á kauptöxtum. I þeim umræðum, sem þá urðu um kjarasátt- mála, var meðal annars bent á eftirfarandi dæmi: Ef verðhækkun verður á kaffi erlendis hækkar verðlag hér innanlands. Kaupmáttur þjóðarteknanna minnkar. Getur það orðið traustur eða varanlegur grundvöllur kaup- hækkunar innanlands? Ef oltuverð hækkar erlendis, hækkarframfærslukostnaðurog visi- tala framfærslukostnaðar. Getur kauphækkun í reynd tryggt það, að kaupmáttur haldist óbreyttur? Svörin við þessum spurningum hljóta að verða nei. Þetta eru skýr dæmi um það, hvernig erlend áhrif geta gert samninga um krónuhækkanir að engu. Ákvarðanir rikisstjórna um aðgerðir í efnahagsmálum geta einnig gert samninga að engu á örskömmum tima, eins og fjölmörg dæmi sanna. A hinn bóginn geta þær breytingar orðið, t.d. i utanrikisverslun þjóðarinnar, að þjóðartekjur aukist verulega. Má þar nefna fiskverðshækk- anir. Núgildandi vísitölukerfi myndu ekki færa launþegum neinar kjarabætur, þrátt fyrir veru- lega aukningu þjóðartekna. — Það eru þvi margir augljósir gallar á visitölukerfinu. Þann- ig skilar það engu, að hækka allt kaupgjald hlutfallslega, þegar kaupmáttur þjóðartekna rýrnar vegna verðhækkana erlendis. Kerfið skilar launþegum ekki heldur sjálfkrafa kaup- hækkunum, þegar kaupmáttur þjóðartekn- anna eykst. Pað er því orðin brýn nauðsyn, að finna aðrar leiðir við gerð kjarasamninga, Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamannasam- bandsins hefur um langt skeið talað fyrir þess- um hugmyndum, um leið og hann hefur krafist aðgerðatil launajöfnunar í þjóðfélaginu. Hug- myndir hans fengu góðar undirtektir á þingi Verkamannasambandsins. Karl Steinar byggir skoðanir sínar á þessum málum á niðurstöð- um mikilla umræða, sem fram hafa farið i Alþýðuflokknum á undanförnum árum um nýtt fyrirkomulag kjarasamninga; kjarasáttmála, sem t.d. yrði grundvallaður á nýrri þjóðhags- vísitölu, breytingum á skattakerfi og almanna- tryggingakerfi. Þær hugmyndir, sem Þröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar reifaði fyrir skömmu, eru þvl ekki nýjar af nálinni, en það er af hinu góða, að hann skuli taka undir með Alþýðuflokksmönnum í þessu mikilvæga hagsmunamáli verkalýðshreyfingarinnar. Hv'ert eftirtalinna atrfða telur öú brýnast að fá fram tfl að bœta húsnœðfsAJör föJAs I dag? CRa6i6 eftir mikilvœgi) TILNEFNINGAR TILNEFNINGAR 'I 1 -3. SfETI T 1. SfETI X X Lœkkun vaxtakostnaAar 86,5 58,6 Hœkkun lána til nybygginga 22,8 5,6 Hœkkun lána til kaupa eldra húsn. 44,1 13,3 Lenging lánstima 55,1 7,5 Lœkkun útborgunar vi6 kaup b2,4 18,1 Aukinn skattafrádráttur 59,9 11,6 Styttri biAtíma eftir lánum 29,3 3,4 Hvað ffnnst Þér að œttf að ráða mestu vfð ákv'örðun uppöceðar opfnöerra búsnæðf sJána? C Raáiai) TILNEFNINGAR TILNEFNINGAR T 1. SftTI X T 1-3. SfETIX A. LAGLAUNAMENN FAI HÆRRI LAN 24,4 79,1 B. STffiRRI FJÖLSKYLDUR FAI HffiRRI LAN 19,1 83,7 C. ALLIR FAI SöMU LAN 7,9 23,7 D. HfERRI LAN TIL FYRSTU TBUÐARKAUPA 46,0 87,1 - KJRARIK ■L N RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboð- um í eftirfarandi: RARIK—85014: Aflstrengir og ber koparvír. Opnunardagur: Þriðjudagur 14. janúar 1986, kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik, fyrir opn- unartíma og verða þau opnuð á sama stað að við- stöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með miðvikudegi 27. nóvember 1985 og kosta kr. 200.- hvert eintak. Reykjavík 25. nóvember 1985 RAFMAGNSVEIT- UR RÍKISINS. Húsnœði 1 hún býr í. Þegar spurt var um hvað brýnast væri að leggja áherslu á í húsnæðismálum landsmanna á næstunni nefndu flestir aukna nýt- ingu eldra húsnæðis og auknar ný- byggingar í einkaeign. Það voru einkum þeir sem leigja sem nefndu byggingu búseturéttaríbúða. Meðalhúsnæðiskostnaður eig- enda á mánuði var 27.400 krónur, þar orkukostnaður er með í mynd- inni, en kostnaðurinn sjálfsagt vel yfir 20 þúsund án hans. Greinileg skil eru hvað húsnæðiskostnaðinn varðar eftir því hversu lengi menn hafa búið í húsnæðinu og má tala um þáttaskil fyrir 5—6 árum, þann- ig að kostnaðurinn er lægri hjá þeim sem keyptu eða byggðu áður en kom til almennrar verðtrygging- ar lánskjara. Húsnæðiskosntaður- inn er að sjálfsögðu mismikið hlut- fall af tekjum; hjá fólki með fjöl- skyldutekjur undir 40 þúsundum á mánuði var húsnæðiskostnaðurinn 79—80% af tekjunum, en hjá fólki með 80 þúsund eða meira var hús- næðiskostnaðurinn kominn í 27%. Hlutfallið var 60% hjá verkamönn- um, en 44% hjá vinnuveitendum. Almennur stuðningur við skyldusparnaðinn kom fram; yfir 80% svarenda voru honum mjög eða fremur hlynntir. 61.6% svar- enda töldu mjög eða nokkuð rétt- látt að skattleggja óvenju stórt íbúðarhúsnæði sérstaklega til að jafna húsnæðiskjör í framtíðinni. Spurt var um afstöðu til þess hvort æskilegt eða óæskilegt væri að hús- næðislán hins opinbera, lífeyris- sjóða og banka yrðu öll afgreidd í gegnum einn húsnæðisbanka. Greinileg óvissa kom fram varðandi þetta hugtak og svöruðu 29% „veit ekki“, 23% mjög eða fremuróæski- legt en 47% mjög eða fremur æski- legt. Um 57% töldu mjög eða frem- ur óæskilegt að lán frá Húsnæðis- stofnun verði aðeins veitt til fyrstu húsnæðiskaupa, en um 27% töldu þetta mjög eða fremur æskilegt. Um 73% svarenda fannst mjög eða fremur æskilegt að skerða lán frá Húsnæðisstofnun til þeirra sem byggja óvenjulega stórt. Um 60% töldu mjög eða fremur æskilegt að skattleggja verslunar- og skrif- stofuhúsnæði sérstaklega til að fá meira fé inn í húsnæðiskerfið. Nær helmingur aðspurðra settu í fyrsta : sæti „hærri lán til íbúðarkaupa“ 1 þegar spurt var um hvað ætti að ráða mestu við ákvörðun upphæð- ar opinberra húsnæðislána, en fáir vildu að allir fengju sömu lán. Þegar spurt var um hvort greiðsluáætlanir afborgana hefðu staðist hjá þeim sem svo átti við, svöruðu rúmlega 60% að svo væri, en um þriðjungur svaraði nei og þá sérstaklega vegna óvenjulegrar þró- unar verðlags, ónógra tekna eða Ié- legra lánskjara. Þegar valkostir voru gefnir um hver væru brýnustu atriðin til að bæta húsnæðiskjör fólks í dag nefndu flestir í fyrsta sæti lækkun vaxtakostnaðar eða 58.6%. Af öðr- um atriðum sem oftast voru nefnd í fyrsta til þriðja sæti voru aukinn skattafrádráttur, lenging lánstíma og lækkun útborgunar við kaup. Loforð 1 stjórnarinnar voru komnar til framkvæmda, en aðrar aðgerðir hafa ekki litið dagsins ljós þrátt fyr- ir þessi loforð. Þá segir í frétt Áhugamannanna: „í umræddu sjónvarpsviðtali segir fjármálaráðherra enn fremur, að það sé rangt hjá Áhugamönnum um úrbætur í húsnæðismálum að það fjármagn sem aflað var með þessu frumvarpi hafi þyngt láns- byrðar fólks. Hér skal á það bent að á meðal þess sem ákveðið var til að afla 700 millj. til húsnæðismála var að hækka söluskatt. Það ætti hverj- um manni að vera ljóst að hærri söluskattur hefur í för með sér hærra vöruverð, hærri vísitölu og þar af leiðandi meiri hækkun lána og aukna greiðslubyrði. Niðurstað- an er sú að loforðin hafa verið svik- in en fjáröflunin hefur þyngt greiðslubyrðina". Molar Bakarar mótmæla vöru- gjaldi Landssamband bakarameistara hélt félagsfund fyrir nokkrum dögum. Þar var einróma sam- þykkt ályktun gegn hugmyndum um að taka upp 30% vörugjald á framleiðsluverð brauða. í álykt- uninni segir, að vörugjald sé í eðli sínu afar órökræn skattheimta. Þá orki tvímælis að skattleggja hollustuvörur eins og brauð, þeg- ar sérfræðingar séu sammála um, að brauðmeti þurfi að vera stærri þáttur í fæðu manna. Bakarar segja, að með fyrir- huguðu vörugjaldi sé afkomu fyr- irtækja og starfsfólks í greininni teflt í tvísýnu, en brauð- og köku- gerð sé stærsta matvælagrein hér- lendis, og veiti um 700 manns fulla vinnu. Jólafrímerki komin út Jólafrímerki 1985 eru komin út. Þau eru að þessu sinni verk listamannsins Snorra Sveins Friðrikssonar. Tákn myndanna er veturinn — tími jólanna. Listamaðurinn lýsir myndefn- inu með þessum orðum: „Vetrarmyndir íslands eru furðu- myndir úr snjó. Sólin kveikir ljós í snjókristöllum. Snjókorn falla, mætast og mynda form á hvítum fjallatindum, vörðu á heiðarbrún". W

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.