Alþýðublaðið - 13.03.1986, Síða 2
2
Fimmtudagur 13. mars 1986
• RITSTJ O R N A RG R El N*
Félagslegur jöfnuður er forsenda
aukins hagvaxtar og framþróunar
Ingvar Carlsson, hinn nýi formaöur sænskra
jafnaðarmanna, ritaði fyrir skömmu grein í
tlmaritiðTiden, þar sem hann fjallar um ný við-
fangsefni jafnaðarmanna. Þar segir hann, að
það sé ekki nóg að finna nýjar ieiðir að gömlum
markmiðum. Það verði einnig að berjast fyrir
nýjum markmiðum.
Ingvar bendir á, að þungamiðjan i hinum ein-
falda boðskaþ nýfrjálshyggjunnar sé I raun eft-
irfarandi: „Framþróunin hefur sfn takmörk og
þeim mörkum hefur nú verið náð. Umbóta-
stefna er ekki lengur framkvæmanleg, og ein-
mitt þess vegna eru dagar jafnaðarstefnunnar
taldir.“
Þessi boðskapur feilur óvenju vel að íhalds-
sömum útreiknings-hugsunarhætti. En það
sem kemur á óvart er, aö þrátt fyrir þennan
hefðbundna hægriboðskap, hefur nýfrjáls-
hyggjumönnum tekist að auglýsa sig sem
bjartsýnismenn áallaframþróun og sem hand-
hafa traustra framtíöaráætlana.
Ingvar segir, að sé hugmyndafræði jafnaðar-
stefnunnar rannsökuð á sama hátt, fáist þver-
öfug niðurstaöa. Þar sitji i fyrirrúmi trúin á þró-
un og framfarir, trúin á að breytingar séu fram-
kvæmaniegarog nauðsynlegar. Það komi þó á
óvart hve illa hafi tekist að markaðssetja þessa
bjartsýnu trú á framtíðina. Vanhæfni jafnaðar-
manna að þessu leyti gæti að hluta tii verið
ábending um, að þörf sé á sjálfsgagnrýninni
endurskoðun.
IngvarCarisson veltirþeirri spurningu fyrirsér
hvort jafnaðarmönnum takist aö vinna bug á
öfgafyllstu hugmyndum nýfrjálshyggjunnar.
Það gefi svigrúm og tækifæri til að láta kreppu-
pólitíkina lönd og leið, og móta stefnu, sem
geri trúna á framtfðina jafn sjálfsagða og eðli-
lega og nokkru sinni fyrr.
Ingvar nefnir nokkurdæmi um nýmarkmið, og
segir, að þaö sem skilji á milli jafnaðarmanna
og borgarafiokkanna sé ekki ágreiningur um
einstök atriði, enda hafi borgarafiokkarnir tek-
ið undir mörg af stefnumiðum jafnaðarmanna,
heldur snúist ágreiningur um það hvaða lög-
mál liggi að baki þróuninni.
r
I borgaralegri nýfrjálshyggjuhugsun sé gert
ráð fyrir, að menn standi ævinlega frammi fyrir
eínhverskonar vali. Það þurfi að velja á milli
iðnþróunar annarsvegar og góðrar opinberrar
þjónustu hinsvegar, —• milli verðbólgu og
blómlegs atvinnulffs — milli jafnaðar og fram-
þróunar. — Þettaséu meiraog minna tilbúnar
andstæður, og það hafi tekist að færa sönnur
á þaö.
Ingvar Carlsson segir, að þrátt fyrir þær höml-
ur, sem kreppupólitlkin hafí lagt á jafnaðar-
menn á undanförum árum, hafi verið farin
þriðja leiðin I efnahagsmálum, þar sem gengið
sé út frá þvl að hægt sé að halda I við verðbólg-
una og skapa jafnframt aukna atvinnu.
N iðurstaða Ingvars er sú, aö félagslegur jöfn-
uður sé forsenda fyrír auknum hagvexti óg allri
framþróun. í því moidviðri, sem nýfrjálshyggj-
an hefurþyrlað upp héráíslandi.errétt aðgefa
þessum orðum hans gaum. Fulltrúar nýfrjáis-
hyggjunnar reyna að telja almenningi trú um,
að framfarir geti því aðeins orðið að horfiö
verði frá velferðarkerfinu. Þetta er bæði röng
og hættuleg kenning, sem verður að brjóta á
bak aftur.
Alþýðnflokkuriiiu
70 ára
Alþýðuflokkuriim minnist 70 ára afmælis Síðdegis þennan dag er boðað til hátíðar-
síns með hátíðarsamkomum að Hótel Sögu: fundar með vanda*i dagskrá. Um kvöldið
sunnudaginn 16. mars næstkomandi. — verður síðan samkoma og dansleikur.
DAGðiKRÁ
hátíðarfundarins verður á þessa leið:
Klukkan 13:30
- 14:00
- 14:10
- 14:30
- 14:45
- 15:05
- 15:25
15:45
- 16:00
i
Lúðrasveit verkalýðsins leikur.
Hátíðarfundurinn settur: Jóhanna Sigurðardóttir,
varaformaður Alþýðuflokksins.
Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari syngur
við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Avörp erlendra gesta.
„Úr 70 ára sögu Alþýðuflokksins“. Leikarar flytja samfellda dagskrá.
Félagar úr Jslensku liljómsveitinni leika.
Bergþóra Ámadóttir syngur.
Ávarp: Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins.
Átta Fóstbræður syngja og stjóma fjöldasöng.
Kynnir: Gunnar Eyjólfsson.
DAGSKRÁ
kvöldsamkoun verðnr á þcssa leíð:
— 19:30 Sameiginlegur kvöldverður.
Haukur Morthens skemmtir matargestum.
Laddi flytur sína vinsælu dagskrá.
Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi.
Yeislustjóri: Bima Eyjólfsdóttir.
Á matseðli verður skelfísksúpa, marinerað lambalæri
og afmæliseftirréttur.
Almennar npplýslngar: Kaffiveitingar á hátíðarfundinum kosta 200 krónur fyrir
manninn. Verð aðgöngumiða á kvöldsamkomuna er 1.650 krónur fyrir manninn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í kvöldsamkomu til skrifstofu Alþýðuflokksins klukkan
13 —17 daglega í síma 29244. Þar em jafnframt veittar allar nánari upplýsingar imi af-
mælishátíðina.
Ólafsvík:
Sveinn Elinbergsson
efstur í prófkjöri
Sveinn Erlinbergsson yfirkennari
hlaut fyrsta sætið á lista Alþýðu-
flokksins fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í Ólafsvík í prófkjörinu
þar á sunnudaginn. Sveinn hlaut 84
atkvæði í fyrsta sætið en 105 alls. I
öðru sæti varð Trausti Magnússon,
rafvirki, með 59 atkvæði í 1.—2.
sæti en 95 atkvæði alls. í þriðja sæti
varð Sjöfn Aðalsteinsdóttir, banka-
starfsmaður með 54 atkvæði í
1.—3. sæti en 77 alls og í fjórða sæti
varð Kristín Guðmundsdóttir versl-
unarmaður með 59 atkvæði í 1.—4.
sæti og 72 atkvæði alls.
í prófkjörinu tóku alls þátt 107
manns sem teljast verður mjög góð
þátttaka, en til samanburðar má
geta þess að 58 tóku þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins um daginn.
Alþýðuflokkurinn býður nú
fram í Ólafsvík í fyrsta sinn í 24 ár.
Á þessu tímabili hafa Alþýðu-
flokksmenn í Ólafsvík átt aðild aí
H-lista samstarfi, en því er nú lokið
Alþýðuflokksfélag
Siglufjarðar
Hefur ákveðiö að viðhafa prófkjör um fjögur efstu sæti
í framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar
I vor. Kjörgengir til prófkjörs eru ailir flokksbundnir Al-
þýðuflokksmenn sem lögheimili eiga á Siglufirði og
náð hafa 18 ára aldri á kjördegi bæjarstjórnarkosning-
anna. Rétt til þátttöku I prófkjörinu hafa allir sem lög-
heimili eigaáSiglufirði og náð hafa18áraaldri fyrirárs-
lok 1986ogeru ekki flokksbundnireða stuðningsmenn
i öðrum stjórnmálaflokki.
Prófkjörsdagar verða laugardagur og sunnudagur
15—16 mars nk. að Borgarkaffi.
Alþýðuflokkurinn:
Prófkjör á Akureyri
Prófkjör Alþýðuf lokksins vegna bæjarstjórnarkosning-
anna á Akureyri I vor fer fram á Hótel Varðborg sunnu-
daginn 16. mars kl. 10—22. Kosið verður um tvö efstu
sætin og verða eftirtaldir frambjóðendur í kiþri:
Gísli Bragi Hjartarson, Helga Árnadóttir, Freyr Ófeigs-
son, Herdls Ingvadóttir, Jóhann G. Möller, Áslaug Ein-
arsdóttir, Hulda Eggertsdóttir.
Utankjörstaðakosning hófst í gær og verður hægt að
greiða atkvæði á skrifstofu flokksins að Strandgötu 9
alla daga fram til kjördags frá kl. 17—19.
Rétt til þátttöku i prófkjörinu hafa allir þeir sem lög-
heimili eiga á Akureyri, náð hafa 18 ára aldri fyrir árslok
1986 og eru ekki flokksbundnir i öðrum stjórnmála-
flokkum.
Kjörgögn vegna atkvæðagreiðslu, utan kjörfunda eru
einnig á skrifstofu Alþýðuflokksins I Reykjavlk, Hverf-
isgötu 8—10, opiö kl. 13—17.