Alþýðublaðið - 13.03.1986, Qupperneq 3
Fimmtudagur 13. mars 1986
3
Líkurnar fyrir því að börn fái
astma eða aðra ofnæmissjúkdóma
aukast verulega ef slíkir sjúkdómar
eru fyrir hendi hjá öðru foreldrinu
og enn meira ef báðir foreldrarnir
hafa ofnæmissjúkdóm. Ef báðir
foreldrarnir hafa sama ofnæmis-
sjúkdóminn, má reikna með að
þrjú af hverjum fjórum börnum
þeirra fái sjúkdóminn líka.
Þetta kemur fram meðal annars í
athyglisverðri grein eftir Björn Ár-
dal, barnalækni, sem hann ritar í
Fréttabréfi Samtaka gegn astma og
ofnæmi.
Alþýðublaðið birtir hér kafla úr
grein Björns, en þeim sem hafa
áhuga á að lesa greinina í heild skal
bent á Fréttar SAO. Samtökin eru
til húsa að Suðurgötu 10, sími
22153.
íslendingar
í New York:
Mótmæla
Sverri
íslenskir námsmenn í New York
snúast öndverðir gegn tillögum
Sverris Flermannssonar í málefnum
Lánasjóðsins, eins og meðfylgjandi
ályktun frá þeim ber með sér.
Á fjölmennum fundi New York
deildar SÍNE, sem haldinn var
laugardaginn 15. febrúar síðastlið-
inn, var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„ Við íslenskir námsmenn í New
York mótmælum harðlega fyrir-
huguðum breytingum menntamála-
ráðherra á lögum um Lánasjóð ís-
lenskra Námsmanna. Við teljum
tillögur hans vanhugsaðar og sýna
lítinn skilning á aðstæðum og kjör-
um námsmanna og háskólamennt-
aðra manna. Ef tillögur hans koma
til framkvæmda er ljóst að margir
muni hrökklast frá námi og mark-
mið Lánasjóðsins um jafnrétti til
náms óháð efnahag, verði að engu
höfð. Við getum ekki lifað á banka-
lánum árum saman meðan á námi
stendur, né verið háð duttlungum
fjármálavaldsins hverju sinni um
hve mikið við fáum í lán. Tillögur
menntamálaráðherra hafa þegar
skapað óvissu hjá námsmönnum
hér um áframhaldandi nám næsta
vetur, svo sem um hvort við getum
staðið við skuldbindingar okkar
um greiðslu skólagjalda og hárrar
húsaleigu, eða hvort við getum yfir-
höfuð verið hér næsta ár.
Við skorum á Sverri Hermanns-
son að kynna sér kjör námsmanna
og hvaða afleiðingar tillögur hans
gætu haft ef þær yrðu að lögum.
Við minnum hann á að menntun er
máttur íslendinga og ef við viljum
afnema jafnrétti til náms óháð
efnahag, þá hlýtur að vera illa fyrir
íslendingum kornið"
Tíðni
Tíðni astma í börnum er ekki
þekkt hér á landi, en ef marka má
reynslu annarra þjóða þá hafa um
5% barna á skólaaldri astma í ein-
hverjum mæli. Sumir hafa mjög
óveruleg vandræði af astmanum,
en aðrir hafa mikil vandræði af
honum.
Astmi er langalgengasti langvar-
andi sjúkdómurinn í börnum og er
enginn annar sjúkdómur, sem
kemst nálægt astma hvað tíðni
snertir. Þegar öll börn með lang-
vinna sjúkdóma eru tekin saman
eru 30% þeirra börn, sem hafa
astma. Hér eru eingöngu tekin með
þau börn, sem hafa slæman, krón-
iskan astma. Astmi hefur skiljan-
lega mjög víðtæk áhrif á allt líf
þessara barna, m.a. skólagöngu.
Þegar kannað hefur verið, hvaða
sjúkdómar valdi fjarvistum frá
skóla, kemur í ljós, að astmi á sök
á 30% þeirra.
Áreynsluastmi
Mörg börn með astma hafa svo-
kallaðan áreynsluastma, sem vikið
verður að síðar. Leikfimikennari
þessara barna verður að vita af því
og hann verður að hafa skilning á
því vandamáli.
Krónískur astmi hjá barni getur
haft mikil áhrif á allt fjölskyldulíf-
ið, foreldrarnir geta misst úr vinnu
þegar barnið er veikt og þau geta
ekki stundað félagslíf að því marki,
sem þau annars mundu gera. Eins
geta foreldrar átt svefnlausar nætur
þegar þau þurfa að vaka með barn-
inu vegna veikinda þess. Önnur
börn í fjölskyldunni verða einnig
fyrir áhrifum, þau njóta ekki eins
mikillar athygli og þau annars
myndu gera og þannig mætti áfram
telja.
Þar til í lok siðustu aldar var það
útbreidd skoðun að astmi væri bara
einkenni um „taugaveiklun“. Þá
þekktu menn ekki til þeirra hluta,
sem við nú vitum að valda astma.
Sýkingar
Hjá öllum börnum með astma
koma astmaeinkenni fram þegar
þau fá loftvegasýkingar og verður
þetta eingöngu þegar sýkingar
verða af völdum veira eða „micro-
plasma“, sem er sýkill, sem flokkast
hvorki með bakteríu eða veiru, en
má segja að sé einskonar millistig.
Bakteriusýkingar koma hins vegar
ekki af stað astmaeinkennum hjá
börnum.
Alls konar ósérhæft áreiti annað
getur komið af stað astmaeinkenn-
um svo sem kaldur, þurr vindur,
mikill loftraki, sterk lykt hverskon-
ar, málningarlykt og ekki hvað síst
tóbaksreykur, sem er mjög slæmur
fyrir astmasjúklinga.
Áreynsla getur komið af stað
astmaeinkennum hjá 80% þeirra,
sem hafa astma. Til eru þeir, sem
eingöngu fá astmaeinkenni við
áreynslu. Það er mjög misjafnt eftir
gerð áreynslunnar, hvað líklegt er
að valdi astma. Sund veldur mjög
sjaldan áreynsluastma, en hlaup,
sérstaklega úti í köldi veðri, veldur
oftast astmaeinkennum hjá þeim,
sem hafa áreynsluastma. Þó að
barn hafi áreynsluastma þýðir það
ekki að það eigi alls ekki að stunda
leikfimi eða íþróttir. ÖIl börn hafa
gott af líkamsþjálfun, og ekki síst
börn með astma, þau þurfa að vera
í sem bestu líkamsástandi til að geta
fengist við sín erfiðu einkenni þegar
þau koma. Því er líkamsþjálfun
astmaveikra barna mjög mikils-
verð. Barnið verður að læra á
áreynsluastmann, hvernig má koma
í veg fyrir hann og hvaða líkams-
þjálfun hentar því best. Leikfimi-
kennarinn verður að hafa skilning á
þessu fyrirbrigði.
Erfðir
Astmi er arfgengur sjúkdómur,
en erfist ekki eftir mjög ákveðnum
lögmálum eins og margir arfgengir
sjúkdómar gera. Hjá barni með
astma má oft finna aðra ofnæmis-
sjúkdóma í ættunum ásamt astma.
Þessir sjúkdómar virðast því erfast
saman, en ekki endilega þannig að
barnið hafi sama sjúkdóm og
systkini þess eða foreldri.
Mismunagreining astma er alls
ekki mjög flókin og eru það ein-
göngu fáir og sjaldgæfir sjúkdóm-
ar, sem líkst geta astma og greina
þarf frá. Þekktastur þessara sjúk-
dóma er Cystic fibrosis, sem er
rrijög sjaldgæfur hér á landi og
raunar sjaldgæfari en hjá ná-
grannaþjóðum okkar. Nokkrum
ruglingi veldur þó það ástand, sem
ég vil kalla ungbarnaastma. Þetta
fá börn á fyrstu mánuðum og árum
lífs síns og er yfirleitt þannig að
börn fá einkenni við veirusýkingar í
efri loftvegum, en geta raunar einn-
ig fengið einkenni við áreiti hvers
konar, svo sem sterka lykt, sterkan
gust, tóbaksreyk o.s.frv. og einnig
við áreynslu. Þessi börn hafa ekki
ofnæmi og ekki fjölskyldusögu um
ofnæmissjúkdóma. Þau hættayfir-
leitt að fá astmaeinkenni fyrir
skólaaldurinn.
Meðferð
Meðferð er fyrst og fremst fólgin
í því að forðast það, sem einkennum
getur valdið og þarf því að gera
greiningu á því.
Næst er að nefna lyf, sem eru fyr-
irbyggjandi, svo sem Lomudal, en
sterar eru einnig notaðir. Fyrst og
fremst í innúðaformi, en einnig sem
Prednison, tekið annan hvern dag.
Af öðrum fyrirbyggjandi aðgerð-
um má nefna bólusetningu fyrir
sjúkdómum, sem gjarnan valda
einkennum hjá astmabörnum. In-
fluensa er slíkur sjúkdómur og
einnig mislingar og ættu öll börn
með astma að fá mislingabólusetn-
ingu við fyrsta tækifæri, eða um 18.
mán. aldur, en þá svara þau bólu-
setningu vel. Þá má nefna það að
fréttir berast af tilraunum til að
koma í veg fyrir kvef með því að
úða interferon i nef og e.t.v. verður
hægt að nota slíkt í framtíðinni.
Næst ber að nefna lyf, sem slaka
á vöðvunum í lungnapípunum, en
þekktust þeirra eru Theophyllin lyf,
Bricanyl og Ventolin. Sterar eru oft
nauðsynlegir þegar einkennin eru
hvað verst, en þá nægir oft ekki að
gefa eingöngu lyf, sem slaka á vöðv-
unum því þá er bólga í slímhúð mik-
il og slímmagn mikið, en á þessa
þætti vandamálsins geta sterar haft
bætandi áhrif.
Varðandi áreynsluastma má
nefna mikilvægi þess að velja réttar
íþróttagreinar. Sprettiíþróttir, svo
sem handbolti, körfubolti, ganga
oft vel og sund veldur sjaldan
áreynsluastma eins og áður er getið.
Hins vegar eru langhlaup oftast
óheppileg og valda nánast alltaf
einkennum.
Upphitun í 10—15 mín. minnst,
áður en tekið er meira á, er mjög
mikilvæg og minnkar líkur á
áreynsluastma. Þá má einnig nota
ýmis lyf, fyrirbyggjandi, Lomudal
tekið 10—15 mín. fyrir áreynslu
hefur gefist vel, auk þess sem það er
alveg laust við aukaverkanir.
Með þessum ráðum geta börnin
oft aukið þrek sitt smám saman og
þola þá kannski áreynslu, sem þau
Landssamband iðnaðarmanna
hefur beint þeiin tilmælum til fé-
lagsmanna sinna sem selja út vinnu
að þeir láti ekki launahækkanir
koma fram i útseldum taxta nema
að sem allra minnstu leyti. Þetta
kemur frain m.a. í ályktun sem
sambandið hefur sent frá sér og fer
hér á eftir.
Framkvæmdastjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna fagnar
þeirri tilraun sem felst í nýgerðum
kjarasamningum til þess að draga
úr verðbólgu. Jafnframt lýsir
Landssamband iðnaðarmanna
ánægju með ýmsar þeirra efna-
hagsráðstafana, sem ríkisstjórnin
beitti sér fyrir í tengslum við kjara-
samningana, einkum lækkun raf-
orkuverðs, lækkun tolla, lækkun
vaxta og aukningu fjármagns til
húsnæðislánakerfisins. Auk þess er
sérstaklega fagnað niðurfellingu
launaskatts á iðnað, sem Lands-
sambandið hefur lengi barist fyrir.
Ekki verður þó hjá þvi komist að
vekja athygli á, að sú ráðstöfun nær
aðeins til iðnaðar samkvæmt at-
vinnuvegaflokkun Hagstofu ís-
lands. Ýmsar stórar iðngreinar, sem
selja út vinnu, s.s. byggingariðnað-
ur, verða áfram launaskattsskyldar.
Möguleikar þessara iðngreina til að
standa undir launahækkun án þess
að veita því út í verðlagið eru því
Lífsvon
ófæddra
Samtökin „Lífsvon" sem berjast
gegn fóstureyðingum hafa sent frá
sér ályktun um þessi efni og fara
hlutar úr henni hér á eftir:
Almennur fundur í LÍFSVON,
samtökum til verndar ófæddum
börnum, haldinn þann 8. febrúar
1986, beinir þeim eindregnu tilmæl-
um til háttvirtra alþingismanna, að
þeir standi vörð um lífsrétt ófæddra
barna og setji lög þeim til verndar.
Fundurinn lýsir því áliti sínu, að
það sé brýnasta verkefni Alþingis á
þessari stundu að koma í veg fyrir,
að enn fleiri saklausum börnum
verði grandað í móðurkviði. Fjöldi
þeirra, sem enda þannig líf sitt, er
nú á áttunda hundrað á ári hverju.
Félagið leggur áherzlu á, að ekk-
ert geti réttlætt það að slá á frest
lagasetningu um verndun lífsins,
þar sem það er helgasti réttur hvers
einstaklings. Fóstrið, sem er varnar-
laus mannvera, á skýlausan rétt á
slíkri lagavernd.
ekki þoldu áður. Það ætti því ekki
að dæma neitt fyrirfram um það,
hvað börnin geta í íþróttum, heldur
iáta reyna á og vinna smám saman
að settu marki ef áhugi er til staðar.
Langtímahorfur
Langtímahorfur astmasjúklinga
fara eftir ýmsu. Eins og áður er get-
ið eru horfur barna með ungbarna-
astma góðar og eru þau flest laus
við einkenni fyrir skólaaldur.
Skólaaldursbörn með astma og
ungabörn með ofnæmi losna við
astma í u.þ.b. 30% tilfella, en 30%
þeirra hafa þá annarskonar of-
næmiseinkenni, svo sem ofnæmis-
einkenni í nefi og augum.
Eitt helsta vandamálið í sam-
bandi við astma hjá börnum er það,
að mörg börn hafa ekki fengið rétta
greiningu og ekki rétta meðferð.
Mörg börn með astma hafa reyndar
alls ekki verið greind m'eð astma og
fá þá ranga meðferð. Þetta hefur
komið fram í rannsóknum erlendis
og þetta vandamál virðist einnig
vera til staðar hér. Það er mjög mik-
ilvægt að þessi mál verði bætt, því
með réttri meðferð má auka vellíð-
an barna með astma verulega,
þannig að þau geti þá notið lífsins
eins og önnur börn og fengið að
þroskast við leiki, íþróttir og skóla-
göngu og orðið þroskaðir einstakl-
ingar, sem nýtast þjóðfélaginu til
jafns við aðra.
minni.
Landssamband iðnaðarmanna
— samtök atvinnurekenda í löggilt-
um iðngreinum — beinir þeim til-
mælum til aðildarfélaga sinna, sem
gefa út útsölutaxta, að sú 5%
hækkun launa, sem kemur til fram-
kvæmda við gildistöku kjarasam-
inganna, verði sem allra minnst lát-
in koma fram í útsölu. Landssam-
bandið vekur sérstaka athygli á því,
að til þess að ná þeim árangri, sem
að er stefnt, þurfa allir að leggjast á
eitt. Forsenda þess, að nýgerðir
kjarasamningar standist, er, að
framleiðni atvinnuveganna aukist
verulega. Landssamband iðnaðar-
manna beinir því þeim tilmælum til
allra fyrirtækja innan sinna vé-
banda, sem framleiða vöru eða
veita þjónustu, að þau leiti ýtrustu
leiða til hagræðingar í rekstri og
aukningar framleiðni, þannig að
þau geti haldið verðlagi sem stöðug-
ustu. Þá verður einnig að gera þá
kröfu til stjórnvalda, að þau skapi
aðstæður til þess að auðvelda fyrir-
tækjum að ráðast í framleiðniauk-
andi aðgerðir.
r
Utflutningur 1
ing einstakra vörutegunda eftir
löndum, kemur í ljós að þar er um
umtalsverða hækkun í krónutölu
að ræða á flestum vöruflokkum, en
hér er vert að benda á tvö veigamikil
atriði í fyrsta lagi hefur útflutnings-
magn ársins 1985 minnkað í hlut-
falli við árið 1984 í flestum löndum
nema Bandaríkjunum, en þar er um
13% aukningu að ræða. Sé litið á
heildina hefur útflutningur ullar-
vara aukist um 1%. í öðru lagi er
meðalverð per. kg. mun hærra árið
1985 en 1984 til flestra landa, en
vegna þess, hve sala hefur dregist
saman á mörgum af okkar betri
mörkuðum, þá er um tekjurýrnun
fyrir ullariðnaðinn í heild að ræða.
Vert er einnig að geta þess, að
milli áranna 1984 og 1985 hefur
orðið umtalsverð aukning í útflutn-
ingi á vélum og tækjum til sjávarút-
vegs, auk þess sem einnig hefur orð-
ið aukning í vöruflokkunum fiski-
línur, net og kaðlar. Þessa aukningu
má m.a. rekja til þess, að undanfar-
in ár hefur markvisst verið unnið,
að markaðssetningu þessara vara,
auk þess sem unnið hefur verið að
þróun þeirra og þar lögð áhersla á
gæði og vöruvöndun. Hér virðist
því, sem þátttaka í vörusýningum á
síðasta ári auk annarrar markvissr-
ar markaðsstarfsemi sé farin að
skila árangri. Án efa má telja að
þarna muni vera um það svið ís-
lensks iðnaðar, sem hvað mest vaxt-
ar er að vænta á næstu árum.
BARNAASTMI
Hækkið ekki taxtana