Alþýðublaðið - 21.03.1986, Side 2
2
Föstudagur 21. mars 1986
ftlTSTJÓRNARGREIN'
Heilbrigt efnahagslíf
og heilsufar þegnanna
Þaðeru löngu kunn sannindi, aö skynsamleg-
asta stefna í heilbrigðismálum er sú, að reyna
að koma í veg fyrir sjúkdóma með ýmsum for-
vörnum og fræðslu, í stað þess að beina öllu
fjármagni og þekkingu í það að lækna þá. Hér
á landi hafa það einkum verið félagasamtök,
sem hafa beint athygli manna að heilbrigðari
lífsháttum og hverskonar forvörnum.
*
A miðvikudag hófst í Reykjavík fundur Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um nýja
áætlun, sem hlotið hefur nafnið „Heiibrigði
allraárið2000“. Þettaerforvarnaáætiun, sem á
að stuðlaað betraheilsufari heimsbyggðarinn-
ar um næstu aldamót. Á fundinum var m.a.
rætt um hvernig unnt væri að fá fjölmiðla og al-
menning í aöildarríkjum stofnunarinnar til að
vinna sameiginlega að bættu heilsufari al-
mennings.
Það er aimennt talið, að forvarnastarf í heilsu-
gæslu geti sparað gífurlegar fjárhæðir í heil-
brigðiskerfi þjóða, og að auki bætir það veilíð-
an almennings. En það er stórt verkefni, sem
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ætlarað tak-
ast á hendur. — Ragnhildur Helgadóttir, heil-
brigðisráðherra, hefur þegar iýst yfir því, að hér
á landi muni stjórnvöld taka til höndum á
þessu sviði, og er nauðsynlegt, að sem flestir
styðji það átak.
Hér á landi hefur mikiö starf verið unnið á
sviði slysavarna, sem er veigamikið forvarna-
starf. Hjartavernd hefur beint athygli manna að
margvíslegum áhættuþáttum vegna hjarta- og
æðasjúkdómaog skipuiagt leitarstarf. Krabba-
meinsfélag íslands hefur rekið leitarstarf f ára-
tugi, einkum vegna legháls- og brjóstakrabba-
meins og hefur nú byrjað leit að krabbameini í
neðri hluta meltingarvegar.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins og embætti Land-
læknis hafa beint athygli manna að fjölmörg-
um áhættuþáttum í umhverfi og á vinnustöð-
um. Þá hefur aukist mjög forvarnastarf, sem
beinist að reykingum, áfengisneyslu og hvers-
konar vímuefnum og svo mætti iengi telja.
A undanförnum árum hefur athygli vísinda-
manna beinst að mörgum þáttum hins daglega
lífs, og þeir hvatt til breyttra lífshátta; meiri úti-
veru og hreyfingar, breytinga á mataræði og
hverskonar aðgerða til að draga úr streitu. Upp-
lýsingar og fræðsla hefur borið sjáanlegan ár-
angur, en betur má ef duga skal.
w
I allri þessari umræðu hefur mikil áhersla ver-
ið á það lögð, að aðstaða einstaklinga f iðnað-
arrfkjunum sé mjög misjöfn til að stunda og til-
einka sér heilbrigða iífshætti. Það er augljós
staðreynd, að heilbrigt efnahagslff og stjórnar-
far hefur mikil áhrif á bætta lífshætti. Atvinnu-
leysi eða vinnuþrælkun er ekki vænlegur
grundvöllur til að byggja á heilbrigði allra árið
2000.
Það er því erfitt að slíta baráttu fyrir bættri
heilsu úr samhengi við pólitískan veruleika.
Þetta kemur skýrast fram í möguleikum þróun-
arlandatil að bæta heilbrigði þjóðféiagsþegn-
anna. — Það er Ijóslega eitt stærsta verkefnið
á sviði heilbrigðismála, að útrýma fátækt og
misréttí. Það eru forvarnir, sem skipta veruiegu
máli.
Einn þátturinn í forvarnastarfinu, sem fram
fer til næstu aldamóta, er að upplýsa og f ræða
almenning um þau þjóðféiagsöfl, sem stofna
llkamlegri og andlegri heilsu i hættu, og hvern-
ig ber að forðast þau.
Hjúkrunarfræðingar
— Ijósmæður
Eftirtaldar stöður viö heilsugæslustöðvar eru lausar til
umsóknar nú þegar:
Reykjavfk, Miðbær, staöa hjúkrunarfræðings
Keflavlk, staða hjúkrunarfræðings
Selfoss, staða hjúkrunarfræðings og staða Ijósmóður
Dalvfk, hálf staða hjúkrunarfræðings
Ólafsvlk, staða Ijósmóður eða hjúkrunarfræðings.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigöis- og tryggingamála-
ráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
18. mars 1986.
I^RARIK útboð
Wk ^ RAFMAGNSVEITUR RfKISINS
Rafmagnsveitur rlkisins óska eftir tilboðum I eftirfar-
andi:
RARIK—86004: Götuljósker.
Opnunardagur: Þriðjudagur 22. aprfl 1986, kl. 14:00.
Tilboðum skal skilað áskrifstofu Rafmagnsveitna rfkis-
ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropnunartfmaog
verða þau opnuö á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
rfkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavfk, fráog með föstu-
degi 21. mars 1986 og kosta kr. 200.- hvert eintak.
Reykjavlk, 19. febrúar 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans I Reykjavlk og að undangengn-
um úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrir-
vara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð rfkissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir
eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir okt., nóv. og des. 1985, svo og sölu-
skattshækkunum, álögðum 27. nóv. 1985 — 14. mars
1986; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir okt., nóv.
og des. 1985; skipulagsgjaldi af nýbyggingum, gjald-
föllnu 1985; þungaskatti af dlsilbifreiðum fyrirárið 1986
ogskoðunargjaldi bifreiðaog vátryggingariðgjaldi öku-
manna fyrir árið 1986; mælagjaldi af dfsilbifreiðum,
gjaldföllnu 11. febr. 1986, aðflutningsgjöldum 1985, svo
og skemmtanaskatti fyrir árið 1985.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
14. mars 1986.
Veiðibann
Sjávarútvegsráðuneytið hefur í
dag gefið út reglugerð um eftirfar-
andi:
1. Allar fiskveiðar báta minni en 10
brl. eru bannaðar frá kl. 20:00
22. mars til kl. 10:00 árdegis 1.
apríl.
2. Þorskanetaveiðar báta 10 brl. og
stærri eru bannaðar frá kl. 20:00
25. mars til kl. 10:00 árdegis 1.
apríl.
3. Allar togveiðar eru bannaðar á
svæði, sem að sunnan markast*
af línu, sem dregin er 270° frá
Stafnesvita. Að vestan markast
Spörum 1
verði og hins vegar hæsta verði.
í innkaupakörfunni eru yfir 60
vörutegundir og verð á körfunni er
birt fyrir 50 verslanir.
Helstu niðurstöður könnunar- •
innar eru eftirfarandi:
Ódýrasta innkaupakarfan kost-
aði 20.800 kr. en sú dýrasta um
26.100 kr. Verðmunur var um 26%.
Ef ávallt væri keypt á lægsta verði
í ódýrustu versluninni væru ársút-
gjöld fjögurra manna fjölskyldu
um 70 þús. kr. lægri en ef hún
keypti alltaf á hæsta verði þar sem
innkaupakarfan var dýrust.
Ef miðað er við lægsta og hæsta
verð innan sömu verslunar er verð-
munur á innkaupakörfunni mestur
um 15%. Getur munur á ársút-
gjöldum fjögurra manna fjöl-
skyldu numið meira en 40.000 kr.
eftir því hvort keyptar eru ódýrustu
vörutegundir í ákveðinni verslun
eða dýrustu vörutegundir í sömu
verslun.
Verðlag í s.k. stórmörkuðum var
skv. könnuninni ekki áberandi
lægra en í öðrum verslunum sem
könnunin náði til.
Okrið 1
laun“ Hermanns Björgvinssonar,
numið um þriðjungi af okurhagn-
aðinum.
Að lokum er kannski rétt að
vekja athygli á því að samkvæmt
fréttum af rannsókn þessa máls, var
ekki ýkja mikill munur á „ávöxtun-
arkröfu“ Hermanns Björgvinsson-
ar og ýmissa annarra sem nú stunda
lánastarfsemi í landinu fyrir opn-
um tjöldum og að því er virðist'í
fullu samræmi við lög.
um páska
svæðið af 23° 40‘5 V og að norð-
an af 64° 20‘0 N. Bann þetta
gildir frá og með 1. apríl til og
með 15. maí.
4. Allar togveiðar eru ennfremur
bannaðar á svæði, sem markast
af línum, sem dregnar eru á milli
eftirgreindra punkta:
a) 63°10‘0 N, 22°00‘0 V
b) 63°25‘3 N, 22°00‘0 V
c) 63°33‘7 N, 22°03‘0 V
5. Jafnframt hefur ráðuneytið
ákveðið að línusvæði það, sem
sett var út frá Sandgerðisvita á
s.l. hausti falli úr gildi frá og með
26. mars n.k.
Kort af veiðisvœðum þar sem togveiðar eru bannaðar 1/4 — 15/5, enn-
fremur að friðuðu hólfunum á Selvogsbanka, þar sem allar veiðar eru
bannaðar 20/3 — 15/5 og svæði í norðanverðum Faxaflóa, þar sem
netaveiðar eru bannaðar allt árið.
Kvenfélag
Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur almennan félagsfund mánudag-
inn 24. mars nk. kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu
við Strandgötu.
Gesturfundarins verður ÉiðurGuðnason
form. þingflokks Alþýðuflokksins.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.