Alþýðublaðið - 21.03.1986, Síða 3
Föstudagur 21. mars 1986
3
ÞJOÐARATAK
TIJ. VERNQAR
ÞER OG ÞINUM
Krabbameins-
lækningar
I þessum dálki birtum við á
nœstunni margvíslegar upplýs-
ingar um krabbamein. A næst-
unni verður fjallað um krabba-
meinslœkningar upphaf þeirra og
þróun:
Um síðustu aldamót var mann-
kynið að stíga fyrstu sporin í nú-
tíma krabbameinslækningum.
Skurðlækningar voru þá byrjaðar
að nema burtu æxli í maga og
brjóstum kvenna, svo að dæmi
séu nefnd, en að öðru leyti stóðu
menn nánast ráðþrota andspænis
illkynja sjúkdómum. Þegar fyrsti
þriðjungur aldarinnar var liðinn
höfðu skurðlækningar eflst að
mun og auk þess voru röntgen-
geislar þá almennt komnir í notk-
un, ekki aðeins sem hjálp við
sjúkdómsgreiningar, heldur einn-
ig við krabbameinslækningar.
Töldu fróðir menn þá, að takast
mætti að lækna tuttugu af hundr-
aði allra krabbameinssjúklinga.
Árin liðu og upp úr 1950 höfðu
bæði skurð- og geislalækningar
þróast hröðum skrefum og um
það bil þriðji hver sjúklingur fékk
fullan bata, þar sem aðstaða til
meðferðar var best. Nú má telja
fullvíst að víða um lönd læknist
fjörutíu af hundraði krabba-
meinssjúklinga.
Krabbamein er í rauninni marg-
ir sjúkdómar, sem haga sér mis-
jafnlega eftir tegund meinsins og
heimkynnum þess í hinum ýmsu
líffærum mannslíkamans. Sé
miðað við þess háttar skiptingu
illkynja sjúkdóma telst mönnum
svo til, að þeir séu hálft þriðja
hundrað.
í stuttu máli er engin leið að
gera grein fyrir meðferð svo
margra sjúkdóma og verður því
aðeins stiklað á stóru um helstu
atriði krabbameinslækninga og
þær framfarir, sem hafa orðið á
síðari árum, en fyrst nokkur orð
um eðlilegan frumuvöxt til sam-
anburðar við óeðlilegan vöxt ill-
kynja frumuhópa.
Frumuvöxtur
Frumur manna og dýra fjölga
sér með skiptingu. Á fyrsta stigi
skiptingarinnar tvöfaldar fruman
erfðaefni sitt, sem er kjarnasýran
DNA. Siðan skiptist erfðaefnið í
tvennt og flyst sinn helmingurinn
í hvorn enda frumunnar og lokast
þar af, og þannig verður ein
fruma að tveim.
Ekki alls fyrir löngu gerðu vís-
indamenn samanburð á krabba-
meinsfrumum og eðlilegum
frumum til þess að fá vitneskju
um muninn á skiptingu þessara
tveggja frumuflokka. Niðurstað-
an varð, að skiptingin í illkynja
frumu sé ekki hraðari en í heil-
brigðri frumu, heldur miklum
mun tíðari þar sem heilbrigðar
frumur hvíla sig eftir skiptingu,
en 10 eða 20 af hverjum 100
krabbameinsfrumum unna sér
aldrei hvíldar, heldur skipta sér án
afláts og hlaða þannig upp
frumudyngjum, sem við nefnum
æxli.
Eðlilegur frumuvöxtur er
stundum mjög ör, til dæmis í
fóstrinu, þegar líffærin eru að
myndast og stækka, en sá vöxtur
fer fram eftir ákveðnum reglum
og samkvæmt áætlun sköpunar-
verksins. Á hinn bóginn vaxa
krabbameinsfrumur stjórnlaust
og takmarkalaust. Þær ráðast
eins og óvígur her inn í vefina um-
hverfis, inn í blóðæðar og sogæð-
ar og berast með straumnum út
um líkamann. Þannig ná þær að
festa rætur í fjarlægum líffærum
og setja á stofn nýlendur, mynda
ný æxli eða meinvörp.
Fyrir um það bil þremur áratug-
um tóku menn að gera sér grein
fyrir því að krabbameinsfrumur
fara mjög snemma að dreifa sér
um líkamann, eftir að æxlisvöxt-
urinn hefst, að vísu í smáum stíl
meðan frumæxlið er lítið. Sam-
kvæmt því ættu flestir krabba-
meinssjúklingar að vera með æxl-
isfrumur í blóðinu. Þessi vit-
neskja kom á óvart og vakti ýmsar
spurningar, svo sem: Af hverju
deyja þá ekki allir sem fá krabba-
mein? Hvernig má það vera, að
suma sjúklingana tekst að lækna
með skurðaðgerð?
Rannsóknir síðari ára benda til
þess að ónæmiskerfi iíkamans
geri ekki aðeins út af við sýkla,
heldur einnig sumar krabba-
meinsfrumur, sem hafa yfirgefið
frumæxlið og farið á flakk og
komi þannig, þegar vel tekst til, í
veg fyrir háskalega útbreiðslu
meinsins.
Skrifstofustarf
Skrifstofustarf VI hjá Rafveitu Hafnarfjarðar er
laust til umsóknar, laun eru samkvæmt 57. launa-
flokki.
Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum
fyrir 26. mars nk. til rafveitustjóra, sem veitir nán-
ari upplýsinar um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar
Alþýðuflokksfélag
Húsavíkur
Fundur á Bakkanum mánudaginn 24. mars kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Tillaga kjörnefndar að framboðslista flokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar I vor.
2. Fjárhagsáætlun Húsavlkurkaupstaðar.
Allt stuðningsfólk velkomið.
Stjórnin.
Leiðrétting
Það var missagt í frétt Alþýðu-
blaðsins i gær um okurvexti í víxla-
viðskiptum bankanna, að ábeking-
ur þurfi að vera á vixli, til að unnt
sé lögum samkvæmt að kaupa hann
með afföllum. Bönkum er heimilt
að kaupa víxilinn af útgefanda á
svokölluðu kaupgengi. Ef víxill er
keyptur af samþykkjanda, er hins
vegar óheimilt að nota kaupgengi.
Skylt er að biðja lesendur afsökun-
ar á þessum mistökum.
WRÐGÍSA
r -V-
• •
-goo vom gegn
verðhækkunum
Alþýðusamband íslands beinir þeim tilmælum
x~Vtil alls launafólks að það taki virkan þátt í
verðlagseftirliti. í meðf. töflu eru upplýsingar ii
Verðlagsstofnunar um verð á nokkrum vörurm _ V
Þú getur gerst virkur þátttakandi í
verðgæslunni með því að skrá niður
verðið þar sem þú verslar.Fáir þú ekki (
fullnægjandi skýringu á því verði sem
þú þarft að greiða hringdu þá í kvörtun
arsíma Verðlagsstofnunar 91-25522,
sendu kvörtun til Verðlagsstofnunar / J
Borgartúni 7, 105 Reykjavík eða / M
hafðu samband við þitt verkalýðs-
eða neytendafélag
KÖNNUN VERÐLAGSSTOFNUNAR Verðcæsia
Vörutegundir Alg. verð í stórmörkuðum á höfuðb.sv. Alg. verð í kjörbúð á höfuðb.sv. Nafn á búð: Nafn á búð: Nafn á búð: Nafn á búð:
Kjúklingar 1 kg 210 kr. 230-260 kr.
Vínarpylsur 1 kg 240-270 kr. 270 kr.
Egg Ikg 98-120 kr. 98-120 kr.
Fransman fr. kart. 700 g 95 kr. 105 kr.
Þykkvabæjarfr. kart.700g 95 kr. 105 kr.
Hvítkállkg 27-30 kr. 30-40 kr.
Tómatar 1 kg 170-180 kr. 190-220 kr.
Alpasmjörlíki400g 65 kr. 69 kr.
Akrablómi smjörlíki 400 g 68 kr. 72 kr.
Robin Hood hveiti 5 Ibs. 95 kr. 102 kr.
Pillsbury hveiti 5 Ibs. 75 kr. 81 kr.
Juvel hveiti2kg 45 kr. 55 kr.
Dansukker strásykur 2 kg 40 kr. 43 kr. *
Kellogg’s corn flakes 375 g 98 kr. 103 kr.
K.Jónsson gr.baunirUdós 29 kr. 30 kr.
Ora gr. baunir 'A dós 31 kr. 35 kr.
Tab innih.30cl 19 kr. 19 kr.
Egils pilsner innih. 33 cl 29 kr. 29 kr.
MSísll 107 kr. 107 kr
/ samstarfi Alþýðusambandsfélaganna og neyt-
endafélaga einstakra byggðalaga mun verð á
þessum ogfleiri vörum verða kannað víðs vegarum
landið nœstu daga.
ALÞÝÐUSAM BAN D
ÍSLANDS
KLIPPIÐ UT