Alþýðublaðið - 21.03.1986, Síða 4
alþýðu-
■ HhT'Tf'M
Föstudagur 21. mars 1986
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 81866, 81976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóltir
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Árraúla 38
^Prentun: Blaðaprent hf., Siðumúia 12
Áskriftarsíminn
er 681866
Það þyrfti að lækka
eftirlaunaaldurinn
— Rætt við Kristínu Karlsdóttur verkakonu
í húsinu nr. 28 við Melgeröi býr
Kristín Karlsdóttir ásamt dóttur
sinni og fjölskyldu hennar.
Kristín varð fyrir því óhappi að
detta, eða réttara sagt fjúka um koll
í hvassviörinu mikla í nóvember.
Við það hlaut hún slæmt olnboga-
brot og brákaðist á mjöðm. Síöan
hefur hún verið í sjúkraleyfi. Ekki
vill hún gera mikið úr þessum
meiðslum; segist áður hafa bein-
brotnað og náð sér vel á strik eftir
það.
Kristín er fædd og uppalin á ísa-
firði, en fluttist til Reykjavíkur vor-
ið 1939. Þá var hún 19 ára. Hún hef-
ur unnið úti allt frá því börnin kom-
ust á legg; nú síðustu 14 árin hjá Af-
urðadeild Sambandsins, en þar áð-
ur vann hún í mörg ár við að bera út
póst. Hún er trúnaðarmaður’starfs-
Bónusvinnan er al-
verst. Konur sem
vinna bónusvinnu
eru búnar að vera á
miðjum aldri.
manna á sínum vinnustað og er því
vel kunnug öllum þáttum starfsins,
bæði hvað snertir kjörin og vinnu-
aðstöðuna og einnig koma til henn-
ar kasta málefni vinnustaðarins af
samstarfs- eða félagslegum toga.
—Hvernig er að vinna í kjötiðn-
aðarstöð? Er það ekki erfitt og slít-
andi starf?
Mér hefur aldrei þótt þetta leið-
inleg vinna og ekki óþrifaleg held-
ur. Börnunum mínum þótti reyndar
stundum nóg um þegar þau sáu
sundurhlutaða kjötskrokka á
vinnsluborðinu, en þeir sem vinna
við matvælaiðnað vita að það er
mikilvægt starf og mikið veltur á
því að það sé vel af hendi leyst. En
starfinu fylgir talsvert líkamlegt
erfiði. Það þarf að rogast með
þunga hluti fram og aftur, því að
sjálfvirkni er lítil sem engin. Áhöld
og ilát eru úr þungum málmi og það
reynir mikið á handleggina og bak-
ið að lyfta þeim og færa til. Þetta .er
eiginlega hálfgerð fornaldaraðstaða.
Til dæmis þarf að skrúfa niður
hangikjötspressurnar með handafli
og það er mjög erfitt. Það þyrfti að
auka sjálfvirkni til að létta fólkinu
erfiðustu störfin. Það mætti víða
koma því við, t.d. með færiböndum
og eins mætti vinna mörg störf sitj-
andi. Það er líka erfiðara en nokk-
uð annað að standa í sömu sporum
við vinnu sína allan daginn. Það er
mikið um bólgna fætur og æða-
hnúta hjá konunum sem hafa unnið
lengi og eru farnar að eldast.
Vöðvabólga er líka talsvert algeng-
ur atvinnusjúkdómur. Ég hugsa að
einhæf störf séu verri að þessu leyti
heldur en þau sem reyna á kraftana.
Samt er bónusvinnan alverst.
Það er hreinn þrældómur, sem eng-
inn ætti að leggja á sig þó það
hækki kaupið. Konur sem vinna
bónusvinnu eru búnar að vera á
miðjum aldri. Það kemur illa út
fyrir alla. Verkin verða ekki nógu
vel unnin og varan stenst þá ekki
gæðakröfur, slysahætta er meiri og
svo heldur bónusvinnan kaupinu
niðri fyrir öðrum. Ég hef alltaf ver-
ið á móti bónusvinnu.
Sums staðar í húsinu er ansi mik-
iil hávaði, sérstaklega í pökkunar-
salnum, því vélasalurinn er þar inn
af og opið á milli. Þegar vélarnar
eru í gangi heyrist ekki mannsins
mál, en það er ekki allan daginn.
Það eru til eyrnahlífar, en fólkið vill
ekki nota þær og það er ekkert
kvartað undan hávaða.
—-Yfir hverju er helst kvartað?
Hvaða mál eru þaö sem koma til
kasta trúnaðarmanns.
Á mínum vinnustað eru hátt á
annað hundrað manns í vinnu, svo
það er eðlilegt að upp komi ágrein-
ingsmál annað slagið. Oftast er það
á misskilningi byggt; eitthvað í sam-
bandi við launin og þá nægir að
ræða málið og greiða úr misskiln-
ingnum.
Einnig geta komið upp ýmsir
samskiptaörðugleikar og þá hefur
mér reynst best að ræða málin í
bróðerni. Það vinnst ekkert með
æsingi. Það gerir bara illt verra.
Núna setur fólkið
allt sitt traust á fyrir-
hugaðar verðlags-
lœkkanir. Allt veltur
á því að staðið verði
við gefin fyrirheit.
Stundum getur það komið fyrir að
einhver telji sig órétti beittan, t.d.
gagnvart uppsögnum. Það eru allt-
af viðkvæm mál, en mér hefur
fundist að fyllstu sanngirni hafi
verið gætt á mínum vinnustað og
það er gert vel við gott starfsfólk.
Verkstjórarnir hafa kvartað yfir
að fólkið mætti of seint í vinnuna.
Þá var gripið til þess ráðs að greiða
aukaþóknun til þeirra sem mættu á
réttum tíma. Þetta mæltist misjafn-
lega fyrir, en það er þó tekið tillit til
þess ef þannig stendur á strætis-
vagnaferðum að fólkið kemur fá-
einum mínútum of seint.
Hins vegar var mikil óánægja
meðal starfsfólksins í vetur, þegar
teknar voru af því s.k. „pásur“, sem
var fimm mínútna hlé tvisvar á dag
til að rétta úr sér, tylla sér niður, eða
fá sér sígarettu. Það var sagt að
„pásurnar“ væru misnotaðar og
yrðu miklu lengri en til stóð, en mér
fannst nú að verkstjórarnir gætu
stjórnað því. Ég reyndi að Iiðka
málið til, en fékk engu um þokað og
þetta eru heldur ekki samnings-
bundnar ,,pásur“. En ég er þeirrar
skoðunar að þetta sé rangt að farið,
því að vinnuafköstin verða meiri og
betri ef fólki er gefinn kostur á að
taka sér stutta hvíld, fyrir nú utan
það að fólkið verður ánægðara og
líður betur.
— Hvað með kaup og kjör?
Við konurnar fáum greitt sam-
kvæmt samningum Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar, en karlmenn-
irnir eru á Dagsbrúnartaxta. Þessir
samningar eru alveg sambærilegir.
Það eru greidd sömu laun fyrir
sömu vinnu. Það er gert vel við
okkur í launum. Við fáum t.d. alla
yfirvinnu ríflega reiknaða og það er
reynt að hífa launin upp eins og
hægt er innan þess launafíokks sem
við vinnum eftir. En kaupið er
óneitanlega mjög lágt. Eftir 7 ára
starf er það 19. 472 kr. en hæst er
hægt að komast í kr. 20.419 eftir 15
ára starf og þá er miðað við 8
stunda vinnudag. Það hefur verið
talsverð yfirvinna allt þetta ár. Án
þess væri ekki hægt að láta enda ná
saman.
Kaupið hefur aldrei enst jafn illa
svo lengi sem ég man eftir, eins og
síðasta ár. Fólkið var almennt tilbú-
ið til að fara í verkfall hefðu samn-
ingar dregist á langinn núna. Það
hefur enginn efni á því að leggja
niður vinnu, en núna var svo komið
að það voru engin önnur ráð.
Núna setur fólkið allt sitt traust á
fyrirhugaðar verðlagslækkanir. Fá-
einar krónur í launaumslagið eru
lítils virði, ef allt verðlag hækkar í
kjölfarið, eins og svo oft hefur
sannast. Samningarnir núna eru
a.m.k. athyglisverð tilraun og allt
veltur á því að staðið verði við gefin
fyrirheit.
Annars eru öll launamál í mesta
ólestri svona yfirleitt. Mér finnst ég
verða vör við vaxandi „Amerikani-
seringu" í þeim efnum. Þá á ég við
að enginn veit hvað aðrir hafa í
laun. Yfir því hvílir mikil leynd og
það veldur óánægju og tortryggni
og rýfur samstöðuna.
— Eitthvað sem þú vilt taka fram
að lokum?
Eins og ég sagði áður þá hefur
mér líkað þessi vinna vel. Én þegar
fólk er farið að eldast finnur það
meira fyrir erfiðinu. Það þyrfti að
berjast fyrir lækkuðum eftirlauna-
aldri hjá fólki sem vinnur stritvinnu
allt sitt líf.
1
i RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafeindaverkfræðingur/
— tæknifræðingur
Rafmagnsveitur rlkisins óska eftir að ráöa, raf-
eindamenntaðan starfsmann til starfa á rafeinda-
deild stofnunarinnar.
Starfið er aðallega fólgið í áætlanagerð, hönnun
og verkumsjón með framkvæmdum og tæknileg-
um rekstri áfjargæslu-og fjarskiptakerfum. Starf-
ið býðuruppáfjölbreytt og áhugaverð verkefni við
rafeindabúnað, tölvur og hugbúnað almennt.
Leitað er að manni með próf í rafeindaverkfræöi/
— tæknifræði eða sambærilega menntun.
Upplýsingar um starfið veitir deildarverkfræðing-
ur rafeindadeildar RARIK I síma 91—17400.
Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að
skiia til starfsmannadeildar, Laugavegi 118,
Reykjavfk, fyrir 10. aprll 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavlk
Auglýsing
frá Póst- og símamálastofnuninni
Ný götu- og númeraskrá fyrir Reykjavík, Bessa-
staðahrepp, Garðabæ, Flafnarfjörð, Kjalarnes-
hrepp, Kjósarhrepp, Kópavog, Mosfellshrepp og
Seltjamarnes er komin út og ertil sölu I afgreiðsl-
um Pósts- og símamálastofnunarinnar í Reykja-
vík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfiröi, Seltjarnar-
nesi og Varmá.
Verð skráarinnar er kr. 600.00 með söluskatti.
Póst- og símamálastofnunin.
KNRARIK útbo6
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISiNS UlOOO
J
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK—86003: Háskpennuskápar 12 kV í dreifistöövar.
Opnunardagur: Fimmtudagur 17. aprll 1986, kl. 14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og
verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 20. mars 1986 og kosta kr. 200,- hvert ein-
tak.
Reykjavlk, 17. mars 1986
Rafmagnsveitur ríkisins