Alþýðublaðið - 16.07.1986, Qupperneq 3
Miðvikudagur 16. júlí 1986
3
Afleiðingar kjaradómsins:
Tækniskólakennarar
hóta hörðum aðgerðum
Félag tækniskólakennara hefur
sent frá sér eftirfarandi
greinargerð:
Eins of komið hefur fram í fjöl-
miðlum, er nýgenginn dómur í
kjaradómsmáli FTK gegn fjár-
málaráðherra f. h. ríkissjóðs, sem
og í málum annarra aðildarfélaga
BHMR.
FTK getur ekki látið hjá líða að
koma á framfæri nokkurm athuga-
semdum i þessu samb^ndi, enda al-
varlegt mál á ferðinm.
Samkvæmt lögum skal kjara-
dómur ákveða þeim starfsmönnum
ríkisins, sem hann fjallar um,
launakjör, sem séu sambærileg við
þau, sem starfsmenn með sambæri-
lega menntun, sérhæfni og ábyrgð í
starfi njóta á almennum vinnu-
markaði.
Eins og áður hefur komið fram í
fjölmiðlum, hefur undanfarið stað-
ið yfir könnun á því, hver þessi kjör
væru, og lágu niðurstöður fyrir nú
í vor. Kröfugerð félagsins um nýjan
sérkjarasamning var byggð á þess-
um gögnum, þannig að kjaradóm-
ur hafði nú tækifæri til að byggja
úrskurð sinn á svo traustum gögn-
um, sem verða má, enda var könn-
unin unnin á vegum beggja aðila
málsins, þ. e. ríkisins og viðsemj-
enda þess.
Kjaradómur skammtaði félags-
mönnum FTK hækkun um
3—þrjá—launaflokka og einn í
viðbót þann 1. desember n.k.. Sýnt
hafði verið fram á, að til að ná sam-
bærilegum kjörum við viðmiðun-
arhæfa hópa á almennum vinnu-
markaði þyrfti hækkun að vera um
18—átján— launaflokkar, eða um
70%. Úrskurður kjaradóms þýðir
9,3% frá 1. marz og 3% í viðbót 1.
desember. í úrskurði dómsins er
þetta kallað leiðrétting og nefnt, að
tilefni sé t'il frekari leiðréttingar síð-
ar. Hlálegt er einnig, að dómurinn
beinir því til málsaðila að komast
sín á milli að samkomulagi um
þetta, en ástæða þess, að málið fór
fyrir kjaradóm var algert viljaleysi
fulltrúa ríkisvaldsins til að leiðrétta
á nokkurn hátt laun þessara starfs-
manna sinna.
Kjaradómur hefur nú klúðrað
því tækifæri, sem gafst til að upp-
fylla þá lagaskyldu, sem á honum
hvílir, sbr. það sem sagt er hér að
framan. í úrskurðum fyrri ára heí-
ur dómurinn ætíð skotið sér á bak
við skort á upplýsingum um kjör á
Fimmtudaginn 3. júlí s.l. var
haldinn aðalfundur Kísiliðjunnar
hf. Á aðalfundinum kom fram að
framleiðslan gekk mjög vel á árinu
1985. Framleidd voru 29.388 tonn
af fullunnum kísilgúr, sem er fram-
leiðslumet.
Afkoma Kísiliðjunnar hf. batn-
aði mjög á árinu 1985. Heildarvelta
nam 342,2 millj. kr. og hagnaður
almennum vinnumarkaði, en nú
lágu fyrir mjög marktækar upplýs-
ingar um þetta efni.
Úrskurður kjaradóms nú
er reginhneyksli.
Hann er einnig staðfesting á því,
að hérlendis er út í hött að ætla sér
að reka kjarabaráttu með faglegum
og vönduðum vinnubrögðum.
' Frumskógarlögmálin eru í fullu
gildi og annað ekki.
Hvað snertir nýúrskurðaðan sér-
kjarasamning FTK skal nefna, að
félagið er dæmigert vinnustaðarfé-
lag, bundið við starfsmenn einnar
stofnunar, þ. e. Tækniskóla íslands.
Fyrstu 6. mánuði yfirstandandi
árs hafa verið skráðir 144 þúsund
atvinnuleysisdagar á landinu öllu
sem jafngildir 1100 manns atvinnu-
lausum að meðaltali á þessu tíma-
bili eða 0,9% af áætluðum mann-
afla á vinnumarkaði samkvæmt
spá Þjóðhagsstofnunar.
Samkvæmt þessum tölum hefur
atvinnuástand á landinu í heild ver-
ið mun betra á fyrrihluta þessa árs
en á sama tímabili undanfarin 3 ár.
Skráðir atvinnuleysisdagar janúar-
—júní 1985 voru þannig 181 þús-
und, 1984 246 þúsund og 1983 158
þúsund og hlutfallslegt atvinnuleysi
1,2% 1,6% og 1,1% af mannafla.
í júnímánuði sl. voru skráðir
tæplega 15.000 atvinnuleysisdagar
á öllu landinu, sem jafngildir því að
um 700 manns hafi verið á atvinnu-
leysisskrá allan mánuðinn en það
svarar til 0,5% af mannafla á
vinnumarkaði í mánuðinum. At-
vinnustigið var nánast hið sama og
í júnímánuði í fyrra þegar litið er til
landsins í heild en dreifing atvinnu-
leysis nokkuð önnur. Þannig var
skráð atvinnuleysi á höfuðborgar-
svæðinu í júnímánuði í fyrra tæp-
lega 50% af heildarfjölda atvinnu-
nam 23,5 millj. kr. Góðar markaðs-
aðstæður, hagstæð gengisþróun og
aukin hagræðing í rekstri eru helztu
ástæður bættrar afkomu.
Meðalfjöldi starfsmanna fyrir-
tækisins árið 1985 var 73. Stjórnar-
formaður fyrirtækisins er Sigurður
Rúnar Ragnarsson og fram-
kvæmdastjóri Róbert B. Agnars-
son.
Á undanförnum árum hefur stofn-
unin misst marga nýta starfsmenn
vegna hraksmánarlegra launakjara.
Sú þróun er enn í gangi og ekki mun
úrskurður kjaradóms draga úr.
Þeir, sem enn þrauka, hafa bætt sér
upp kjörin með óhóflegri yfirvinnu
eða með því að vinna jafnframt fyr-
ir aðra aðila. hvort tveggja spiílir
því starfi, sem erfitt getur orðið að
bæta. Meðal starfsmanna ríkir nú
reiði yfir þeirra svívirðu, sem kjara-
dómur hefur dæmt þeim.
í framhaldi af umræddum úr-
skurði mun félagið beita sér fyrir
því að reyna að ná fram kjarabótum
eftir þeim leiðum, sem lög leyfa.
leysisdaga en rúmlega 40% í júní-
mánuði í ár. Breyting milli ára var
mest á Suðurlandi og Norðurlandi
vestra, en óbreytt ástand eða minni
háttar breytingar á öðrum svæðum.
í júnímánuði sl. fækkaði skráð-
um atvinnuleysisdögum um 2 þús-
„Mér finnst hún ekki sérlega vel
heppnuð og ég átta mig ekki al-
mennilega á, hvað fyrir nefndar-
mönnum vakir —það kemur í raun
fram ansi kuldalegur andi í henni,“
sagði Páll Pétursson alþingismaður
og bóndi í samtali við Alþýðublað-
ið í gær aðspurður um skýrslu sem
í tengslum við aðalfundinn áttu
forráðamenn Manville Internation-
al og iðnaðarráðherra viðræður um
samkeppnisstöðu fyrirtækisins og
um breytta tilhögun orkusölu til
fyrirtækisins. En með fyrirhuguð-
um kaupum Landsvirkjunar á
Jarðvarmaveitum ríkisins í Mý-
vatnssveit mun Landsvirkjun yfir-
taka skuldbindingar ríkisins um
jarðgufusölu til Kísiliðjunnar hf.
Markmiðið með þessum viðræðum
er að treysta rekstrarstöðu Kísiliðj-
unnar hf. og skapa langtíma rekstr-
aröryggi að því er þessi þýðingar-
miklu rekstrarþætti varðar.
Ríkissjóður íslands á 59,82%
hlutafjár i Kisiliðjunni hf.,
Mannville International á 39,82%
hlutafjár og sveitarfélög á svæðinu
eiga 0,36% hlutafjár í Kísiliðjunni
hf.
Ljóst er, að nýdæmdum kjara-
samningi verður sagt upp við fyrsta
tækifæri. Einstakir félagsmenn
munu væntanlega efna til aðgerða,
sem félagið er ekki í aðstöðu til að
stýra, en mun leitast við að stuðla
að því, að ekki verði brotin iög. Fé-
lagið getur ekki heldur ábyrgzt, að
stundakennarar skólans ráði sig til
starfa að nýju á komandi hausti, en
án verulegs fjölda þeirra er starf-
semi stofnunarinnar lömuð.
Félagið mun koma sjónarmiðum
sínum á framfæri hér eftir sem
hingað til á hverjum þeim vett-
vangi, sem þurfa þykir.
Með úrskurði sínum hefur kjara-
dómur endanlega dæmt sjálfan sig
úr leik, með því að skjóta sér undan
að vinna það verk, sem honum ber
að lögum. Sá takmarkaði samn-
ingsréttur, sem aðildarfélög BHMR
hafa búið við, er greinilega ekki til
neins nothæfur. Félagar í þeim
munu tæpast lengur sætta sig við að
vera meðhöndlaðir sem annars eða
þriðja flokks fólk, almennt álitnir
aumingjar fyrir þá sök að Iáta
bjóða sér launakjör ríkisins.
und frá mánuðinum á undan en í
fyrra var fækkunin 5 þúsund milli
sömu mánaða. Virðisl af þessu
mega ráða að minni þensla sé að
vinnumarkaði nú en á sama tíma í
fyrra.
landbúnaðarráðherra opinberaði
nýlega og ber yfirskriftina: „Land-
nýting á íslandi og forsendur land-
nýtingar.“ í skýrslunni kemur fram
það sjónarmið að búum muni
fækka en muni aftur á móti
stækka. Bent er á að bændum
fækki líkast til um helming.
„Það að hafa trú á stóru búunum
er vitleysa,“ sagði Páll. „Það leiðir
af sér mikinn aukinn tilkostnað og
það eru hæpin rök fyrir því að
framleiðsla þar þurfi að vera hag-
kvæmari. Við megum heldur ekki
grisja byggðina of mikið.“ — Sagði
hann að einnig út frá sjónarmiði
landnýtingar væri Ijóst að sú stefna
sem boðuð er í skýrslunni væri
mjög óskynsamleg. Álagið mun
færast á örfá svæði meðan önnur
væru vannýtt.
Páll sagði ýmsar aðrar leiðir fær-
ar til að mæta vandanum, aðrar en
beinlínis fækka bændum. Skyn-
samlegt væri að hafa búskap ekki
of sérhæfðan. „Menn þurfa að slá
þessu saman. Ég hef meiri trú á
blönduðum búskap, loðdýrarækt
og sauðfé, kanínurækt svo dæmi
séu tekin. — Skógrækt getur líka
farið saman við heföbundin land-
búnað.“
„Páll sagði að lokum að skýrslan
væri ekki alslæm, en varast ber að
taka of mikið mark á þeim anda
sem kemur fram í henni.“
Sagði hann að hún gæfi ekki til-
efni til mótunar nýrrar byggða-
stefnu.
Verkfall flugvirkja:
Bráða-
birgða-
lög
Á föstudaginn voru undirrituð
bráðabirgðalög sem stöðvuðu verk-
fall flugvirkja og flugvélstjóra hjá
Arnarflugi. í bréfi frá samgöngu-
ráðuneytinu vegna þessarar laga-
setningar segir að verkfallið hefði
haft í för með sér stöðvun á öllu
millilandaflugi félagsins óg innan-
landsflugi, auk þess sem verulegar
líkur væru fyrir því að félagið gæti
ekki uppfyllt samning sinn um píla-
grímaflug frá Alsír til Jeddah, sem
hefjast á 19. júlí n. k.
Einnig er bent á að stöðvun far-
þegaflugs nú hjá Arnarflugi h. f.
yfir háferðamannatímann mundi
ekki aðeins valda fyrirtækinu ó-
bætanlegu tjóni, heldur og myndi
íslensk ferðaþjónusta í heild bíða
mikinn siðferðilegan og fjárhags-
legan hnekk sem ekki væri séð fyrir
endann á. — Málið verður lagt í
gerðardóm sem ljúka skal störfum
fyrir 15. september í haust.
Bifreiðaeign
á íslandi
næst mest
í heiminum
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur gefið út kynningarbækling
þar sem gerð er grein fyrir fjöl-
breyttri starfsemi félagsins. í ávarpi
Jónasar Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins, kemur
m. a. fram, að bifreiðaeign á íslandi
er nú næst mest í heiminum, þegar
rniðað er við íbúafjölda. Hann seg-
ir, að 95% allra fólksflutninga í
landinu fari fram með bifreiðum.
FÍB er fremur ungt félag á mæli-
kvarða bifreiðaeigendafélaga í
heiminum, en það var stofnað í maí
1932. Þá voru skráðar um 1700 bif-
reiðir í landinu. Frá stofnun hefur
meginmarkmið FÍB verið fjölþætt
hagsmunagæsla fyrir bifreiðaeig-
endur og er félagið neytendafélag
þeirra. FÍB hefur beitt ýmsum að-
ferðum til þess að hafa áhrif á mál-
efni, sem varða bifreiðaeign sér-
staklega. Þær hafa einkum beinst
að skattlagningu bifreiða og rekstr-
arvörum þeirra, vegamáium, þjón-
ustu bifreiðaumboða, öryggismál-
um í umferð og slysavörnum. FÍB
hóf t. d. að beita sér fyrir „hægri
umferð" þegar árið 1939.
Það sem af er þessu ári hefur
margt gerst í málefnum bifreiðaeig-
enda. FÍB talar jafnvel um árið
1986 sem „ár bílsins“ á íslandi.
Hæst ber lækkun aðflutnings-
gjalda á bifreiðum og hjólbörðum
og lækkun bensínsverðs. Þá geta
bifreiðaeigendur valið um mismun-
andi sterkt bensín, aurhlífar eru
ekki lengur skylda á stórum hluta
fólksbifreiða. Nýtt og alsjálfvirkt
bílasímakerfi var tekið í notkun i
byrjun mánaðarins. FÍB telur sig
hafa átt verulegan þátt í því að þessi
árangur hefur náðst.
í kynningarriti FÍB er gerð grein
fyrir lögfræðiráðgjöf, sáttaþjón-
ustu FÍB og Bílgreinasambandsins,
vegaþjónustu, Ökuþóri, málgagni
FÍB, ferðaskrifstofu FÍB, aðstoð
við kaup og sölu bifreiða, aðstoð
við útvegun varahluta, fjarskipta-
sveit FÍB, fjarskiptaráðgjöf, fyrir-
greiðslu erlendis, FÍB—afslætti af
vörum og fleira efni er í ritinu.
Grunnskóli
Ólafsvíkur
Kennara vantar í eftirtaldar stöður: almenna
kennslu, sérkennslu, tónmennt og íþróttir. Nánari
upplýsingar veita skólastjóri í síma: 93-6293 og
yfirkennari í síma: 93-6153.
Leikskóli Ólafsvíkur
Forstöðumann vantar við leikskóla Ólafsvíkur.
Fóstrumenntun æskileg. Nánari upplýsingar á
bæjarskrifstofu í síma: 93-6153.
Bæjarstjóri
Kísiliðjan:
Betri rekstrarafkoma
Atvinnuástand betra
nú en undanfarin ár
1100 atvinnulausir fyrstu 6 mánuði ársins
Landnýtingarskýrslan:
Kuldalegur
andi í henni
segir Páll Pétursson þingmaður og bóndi