Alþýðublaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 4
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavik
alþýðu' Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Áskriftarsíminn
1 n FT' ]T» u er 681866
Miðvikudagur 16. júlí 1986 Prentun: Blaðaprent hf., Siðumúia 12
Amnesty:
Fangar mánaðarins
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli al-
mennings á máii eftirfarandi sam-
vizkufaaga í júní. Jafnframt vonast
samtökin til að fólk sjái sér fært að
skrifa bréf til hjálpar þessum föng-
um og sýna þannig í verki andstöðu
sína við að slík mannréttindabrot
eru framin. íslandsdeild Amnesty
hefur nú einnig hafið útgáfu póst-
korta til stuðnings föngum mánað-
arins, og fást áskriftir á skrifstofu
samtakanna.
Tékkóslóvakía: Pavel Krivka og
Pavel Skoda eru menntamenn á
þrítugsaldri, sem eru í fangelsi
vegna friðsamlegrar gagnrýni á
stjórnvöld. Pavel Krivka er náttúru-
fræðingur, og var dæmdur í 3 ára
fangelsi21. 11. 1985 vegna bréfs sem
hann skrifaði vini sínum í
V—Þýzkalandi, þar sem hann
gagnrýndi tékknesku stjórnina
vegna vanrækslu í umhverfisvernd-
armálum. Hann reyndi að senda
bréfið með vini sínum sem var á leið
til Júgóslavíu, en öryggislögreglan
fann það.Hann var einnig ákærður
fyrir að festa upp landakort þar
sem bent var á vanrækslu umhverf-
isverndarmála, og fyrir að búa til
krossgátur sem „rægðu“ stjórnvöld
og fulltrúa þeirra; ennfremur fyrir
að skrifa grínstælingu á tékkneskri
jólamessu þar sem hann ku hafa
nítt niður forsetann og sett fram
óvæga gagnrýni á stjórnarstefnuna.
Vinur hans, Pavel Skoda, aðstoðar-
maður við vísindarannsóknir, var
dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir
að vera meðhöfundur að hinu síð-
astnefnda.
Taiwan: Yang Chin-hai er 54 ára
gamall fyrrum forseti Verzlunar-
ráðs Kaohsiung héraðs, sem hlaut
lífstíðardóm í júlí 1976 ásamt 6 öðr-
um fyrir ráðagerð til að „kollvarpa
ríkisstjórninni, ógna öryggi al-
mennings með ofbeldi, og valda
glundroða með því að skemma
orkuveitur“. Rétta ástæðan fyrir
handtöku hans er talin vera beiðni
sem hann og aðrir stjórnmálamenn
í stjórnarandstöðu settu fram í maí
1976, um að fá að stofna stjórnar-
andstöðuflokk, en samkvæmt her-
lögum eru slíkir flokkar bannaðir.
Allt frá 1972 hefur Yang Chin-hai
stutt marga frambjóðendur í
stjórnarandstöðu, og tekið þátt í
gagnrýni á meint kosningasvindl.
Hann var í einangrun í 2 mánuði
eftir handtökuna, og bar við réttar-
höldin að hann hefði verjð pyntað-
ur á 19 vegu til að neyða fram játn-
ingu um skipulagningu hryðju-
verka. Hann þjáist af blæðandi
magasári og lungnasýkingu, og er
talin hætta á að hann fái ekki nægi-
lega aðhlynningu.
Comoro-eyjar: Moustoifa Said
Cheikh er rúmlega fertugur stjórn-
málaleiðtogi, sem var dæmdur i
lífstiðarfangelsi árið 1985 vegna
friðsamlegra afskipta af stjórnmál-
um. Hann er aðalritari Lýðræðis-
hreyfingar Comoro-eyja (Front
democratique des Comores), sem
hefur fengið að þrífast án teljandi
hindrana frá stofnun samtakanna
1982, þrátt fyrir að alræði ríki á
eyjunum, og m. a. boðið fram í
kosningum. Þann 8.3 1985 voru 30
hermenn úr lífverði forsetans hand-
teknir, grunaðir um uppreisnará-
form, en seinna í mánuðinum gáfu
stjórnvöld þá skýringu að um hafi
verið að ræða tilraun stjórnarand-
stöðu til valdaráns og handtöku
fjolda manns þ.á.m.Cheikh. Hann
var sakaðurum.að.hafa skipulagt
valdaránið, en hann sagði að hópur
uppreisnarmanna hefði komið til
máls við sig en hann hefði neitað að
eiga nokkurn þátt i ráðagerð þeirra
og ráðið þeim frá ofbeldisaðgerð-
um. Engar sannanir komu fram um
sekt hans. Einn þeirra sem handtek-
inn var um leið og Cheikh er talinn
hafa verið barinn til dauða fyrir
réttarhöldin, og margir, þ. á m.
Cheikh voru pyntaðir með raflosti.
í janúar og maí 1986 voru allir látn-
ir lausir nema Cheikh og þrír aðrir
framámenn í FDC.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið mann-
réttindabaráttu almennt, eru vin-
samlegast beðnir að hafa samband
við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykja-
vík, sími 16940. Upplýsingar sem
og heimilisföng þeirra aðila sem
skrifa skal til. Einnig er veitt aðstoð
við bréfaskriftir ef óskað er.
Bandalag
jafnaðarmanna:
For-
dæmir
Þingflokkur Bandalags jafnað-
armanna sendi í gær frá sér ályktun
þar sem fordæmd er setning bráða-
birgðalaga til að stöðva verkfall
flugvirkja og flugvélstjóra hjá
Arnarflugi hf.
í ályktuninni segir:
„Þingflokkur Bandalags jafnað-
armanna fordæmir vinnubrögð
samgönguráðherra í vinnudeilu
flugvirkja hjá Arnarflugi. Síendur-
teknar lagasetningar undir for-
göngu Sjálfstæðisflokksins hafa í
reynd afnumið frjálsan samnings-
rétt fólks sem starfar að samgöngu-
málum.
Lagagleði samgönguráðherrans
hefur losað forystu eigenda og
starfsfólks hjá samgöngufyrirtækj-
um undan því að standa á ábyrgan
hátt að kröfugerð og kjarasamning-
um. Enn þá einu sinni hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn vanhelgað samn-
inga- og athafnafrelsi einstaklings-
ins.“
Molar
Kredit sigraði Debit
Sumarráðstefna Félags löggiltra
endurskoðenda var nýlega haldin,
hefur skapast sú hefð að skipta í
lið, Debit og Kredit, og keppa í
fótbolta, meðan á ráðstefnunni
stendur. Það var Debit sem sigraði
að þessu sinni eftir æsispennandi
leik. Birtum við mynd af þessu
sigursæla liði, sigurgleðin leynir
sér ekki á svip kappanna.
Ferðaparadís
í Reykjahverfi
„Við lítum alls ekki á þetta sem
aukabúgrein," sagði Steinunn
Bragadóttir húsfrú að Bláhvammi
i Reykjahverfi í Suður- Þingeyjar-
sýslu í samtali við blaðamann.
Hún ásamt manni sínum Jóni Fri-
mann rekur nú rómaða ferða-
þjónustu þar á staðnum. „Okkur
finnst þetta mjög gefandi starf og
viljum reka þetta á persónulegum
grunni, og þannig reyna að kapp-
kosta að veita sem bestu þjón-
ustu“
Bláhvammur er miðja vegu milli
Húsavíkur og Mývatns. A staðn-
um er sérhús fyrir 12 manns. í
hlaðinu er hver, sem gefur staðn-
um mikið gildi því úr honum
rennur vatn í sundlaug sem ætluð
er þeim sem þarna gista. Inn í hús-
ið er síðan leidd leiðsla í sérstaka
gufuvél sem hægt er að elda mat í.
Það er aðeins andartak verið að
hella upp á kaffi og kakó, eins
geta menn t. d. soðið sér mjólkur-
graut og skroppið á sama tíma til
Húsvíkur, því engin hætta er á að
sjóði upp úr né brenni við. Vekur
þetta mikla undrun ferðamanna.
Meirihluti þeirra sem þarna gista
eru íslendingar. Virðast menn
helst vilja dvelja á staðnum og
njóta þess er þar býðst. En stutt er
bæði til Húsavíkur og Mývatns.
Byggðasafn er að Grenjaðarstað í
11 km fjarlægð og verslun við
Laxárvirkjun í 9 km fjarlægð. Um
200 metra frá Bláhvammi er gróð-
urhús þar er hægt að fá keypta
ávexti og grænmeti.
Þarna er ekki bara hugsað um
fullorðna fólkið, börnin fá líka
sinn skammt, því sérstakt barna-
leikhorn er í húsinu, og síðast en
ekki síst eru á búinu lifandi dýr,
grísir, hestar, hundurinn Bási,
lömb, hænur, sá frægi hani Ólaf-
ur Pá og Bréfdúfan Alfreð sem
hefur nú fast aðsetur í Blá-
hvammi.
Þeir sem vilja notfæra sér þessa
nýju þjónustu er bent á að hringja
í hjónin sjálf í Bláhvammi. Sím-
inn er: 96—43901.
Ólafur eða Þorsteinn?
Menn reyna stundum að setja sig
í spor annarra. Getur reynst hæp-
ið að gera það, því fullkomleiki
manna er ekki ennþá kominn á
það stig að menn viti hvað hver
annar hugsar. — En engu að síður
reyna menn þetta samt.
Sagan segir af félögum tveim sem
ræddu saman um daginn og veg-
inn. Talið berst, að sjálfsögðu
fljótlega að stjórnmálunum, og
þeim hræringum sem þar eru að
gerast þessa dagana. Veltu þeir
ekki síst fyrir sér tveim forystu-
mönnum á andstæðum pólum
stjórnmálanna, þeim Ólafi Ragn-
ari Grímssyni og Þorsteini Páls-
syni. Spurði nú annar hinn hvort
hann mundi frekar vilja vera Þor-
steinn eða Ólafur, hvort hann
teldi viskulegri kost, ef velja þyrfti
á milli:
„Af tvennu illu, mundi ég frekar
vilja vera Þorsteinn, allavega með
tilliti til jólagjafa"
Hvers eiga grísir að gjalda?..
Kók í kaupbæti
Videosjúklingar og kókistar geta
nú gert sér glaðan dag og brugðið
sér til Keflavíkur, því þar er reynt
að höfða til þessara neytenda á'
Hvað eiga Coca-Cola
og góð video-mynd
sameiginlegt?
ansi nýstárlegan hátt. Videoleiga
ein á staðnum býður „ókeypis“
kók fyrir hverjar tvær spólur sem
leigðar eru út, og svo kók fyrir
hverja spólu umfram tvær. Er nú
bara vonandi að ekki verði um-
ferðaröngþveiti í Keflavík út af
þessu, þannig að flestir eigi greið-
an aðgang að sælunni. . .