Alþýðublaðið - 19.07.1986, Qupperneq 2
2
Laugardagur 19. júlí 1986
'RITSTJORNARGREIN'
96 smákóngar
Þaö er í raun grátbroslegt að þjóðarkríli það sem
þetta land byggir skuli hafa komið sér upp 96 lífeyr-
issjóðum meé mismundandi réttindum og Irfeyris-
greiðslum ásamt jafnmörgum smákóngum sem yfir
tróna. Jóhanna Siguröardóttir alþm. ritar í fyrradag
grein í DV þar sem hún ræðir nauðsyn á róttækri
uppstokkun í lífeyrismálum til þess að unnt verði að
byggja upp fjárhagslega sterkt lífeyriskerfi, jafna líf-
eyrisréttindi og tryggja viðunandi lífeyri í framtíðinni,
sem nái til allra landsmanna.
*
I grein sinni segir Jóhanna m. a.: „í einn áratug
hefur verið starfandi nefnd um lífeyrismál, sem hef-
ur haft það verkefni að semja tillögur um nýskipan
lífeyriskerfisins. Þó ýmsar endurbætur hafi verið
gerðar á iífeyrisréttindakerfinu á undanförnum árum
þá liggur ekki enn fyrir nein niðurstaða um framtíð-
arskipan lífeyrismála. Ekki er að efa, að ein megin-
ástæða þess er, að erfitt hefur reynst að stugga við
smákóngaveldinu í lífeyriskerfinu. í árslok 1980
voru starfandi 96 lífeyrissjóðir, hver með sinn smá-
kóng. Það sem smákóngarnir eiga sameiginlegt er
að sitja sem fastast á gullkistunum, að koma í veg
fyrir allar tilraunir til að sameina ríkin og gullkisturn-
ar til hagsbóta fyrir fólkið í landinu, ef það kostar þá
kórónuna.
Ekki er að efa að þau sjónarmið eiga mikið fylgi hér
á landi að sameina lífeyrissjóðina og koma á einum
sjóði, sem nái til allra landsimanna og sem byggi
á því að lífeyrisréttindi verði jöfnuð og samræmd.
Nokkrum sinnum hefur verið hreyft við því máli á Al-
þingi. Niðurstaðan er ávallt sú sama. Vísað er til
þess að starfandi er nefnd til þess að endurskoða
lífeyrisréttindakerfið og því séu ekki tímabærar
breytingar. Alþingi á ekki að láta bjóða sér þessi
vinnubrögð af hálfu framkvæmdavaldsins og smá-
kónganna. Þó að tveir tugir manna hafi setið á rök-
stólum um framtíðarskipan lífeyrismála í einn áratug
bólar ekki á þeirri róttæku uppstokkun, sem nauð-
synleg er á lífreyrisréttindakerfinu. Af því sem fyrir
liggur í skýrslu lífeyrisnefndarinnar er Ijóst að horfið
hefur verið frá þeim markmiðum að koma á einum líf-
eyrissjóði fyrir alla landsmenn.
jÞess í stað er sú hugmynd uppi að leggja fram
frumvarp sem kveður á um lágmarksskyldu, sem líf-
eyrissjóðirnir þurfi að uppfylla varðandi lífeyrisrétt-
indi, iðngjöld o. fl. í þeim frumvarpsdrögum, sem fyr-
ir liggja um þetta efni, er Ijóst að þau ákvæði munu
engan veginn stuðla að þeim jöfnuði í lífeyrisgreiðsl-
um sem að hefur verið stefnt. Vilji smákónganna á
áfram að ráða ferðinni þó að telja megi víst að vilji
fólksins, sem á sjóðina, standi til þess að komið
verði á einum sameiginlegum sjóði fyrir alla lands-
menn.“
*
I lok greinar sinnar þendir Jóhanna Sigurðardóttir
á það, að Alþýðuflokkurinn hafi sett fram tillögur á
Alþingi um einn lífeyrissjóð allra landsmanna. Sá
sjóður muni bæði tryggja traustan fjárhagsgrundvöll
lifeyrisréttindakerfisins sem og jöfnuð í réttindum
og viðunandi lífeyri til framfærslu. Alþýðuflokkurinn
mun fylgja því fast eftir að tekið verði á þessu mikla
hagsmunamáli fólksins í landinu og að hagsmunir
smákónganna víki fyrir heill fjöldans.
B. P.
Vinstrimenn í Háskólanum:
Harma úrskurð
Kjaradóms
Þ) óðveldisbær-
inn öllum opinn
Félaga vinstrimanna við Háskóla
íslands hefur ályktað um niður-
Sumar-
hátíð
að Sogni
Hin árlega sumarhátíð
Styrktarfélags Sogns verður
haldin að Sogni í Ölfusi dag-
ana 25. — 27. júlí n. k.
Að venju verður um að raeða
hátíð fjölskyldunnar og
munu margir góðir skemmti-
kraftar koma. Dansað verður
bæðí á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Sú nýbreytni verður upp
tekin, að dans og dagskrá
mun fara fram inni í 400 m2
skemmu þannig að rok og
regn mun því ekki hafa trufl-
andi áhrif á samkomuna.
stöður kjaradóms varðandi launa-
mál BHMR.
,, Stúdentaráðsliðar Félags
vinstrimanna (FVM) í Háskóla Is-
lands harma niðurstöðu kjara-
dóms í máli BHMR og lýsir yfir
fullum stuðningi við baráttu
BHMR fyrir leiðréttingu á launa-
kjörum háskólamanna.
Það er krafa FVM að kennarar
við Háskóla íslands geti sinnt
kennslu og rannsóknum heilir og
óskiptir og geti haft af því framfæri
sitt og fjölskyldu sinnar. FVM
bendir á mikilvægi þess að til starfa
við háskólann fáist jafnan hæfustu,
starfskraftar sem völ er á og þar
eigi háskólinn í samkeppni við
launakjör á almennum markaði og
rannsóknarstofnanir erlendis."
Samhljóða ályktun var borin upp
í nafni Stúdentaráðs Háskóla Is-
lands (SHÍ) á stúdentaráðsfundi
15. júlí af stúdentaráðsliðum
FVM. Henni var vísað frá af meiri-
hluta Vöku og Stíganda með tilvís-
un í samstarfssamning þeirra. Við
slík málalok getum við (FVM) ekki
unað
I sumar verður Þjóðveldisbærinn
I Þjórsárdal opinn daglega kl. 13—
17. Á undanförnum árum hefur
aðsókn verið góð í bæinn.
Eins og mörgum er kunnugt er
Þjóðveldisbærinn eftirlíking af bæ
frá þjóðveldisöld. Hann er hugar-
smíð Harðar Ágústssonar listmál-
ara og lagði hann rústirnar á Stöng
til grundvallar við hönnun bæjar-
ins sem og aðrar heimildir, bæði
skriflegar og uppistandandi mann-
virki í nágrannalöndum þá aðal-
lega Noregi sem eiga sannanlega
að rekja rætur aftur til miðalda.
Óhætt mun að fullyrða að Þjóð-
veldisbærinn hefur vakið verð-
skuldaða athygli bæði meðal inn-
lendra og útlendra gesta, og að
sögn bæjarvarðar sem nú er Ásólf-
ur Pálsson á Ásólfsstöðum vakna
margar spurningar upp í hugum
Þau krefjast réttra viðbragöa
ökumanna. Þeir sem aö jafnaöi
aka á vegum meö bundnu slit-
lagi þurfa tíma til þess aö
venjast malarvegum og eiga
því að aka á hæfilegum hraða.
Skilin þar sem malarvegur
tekur við af bundnu slitlagi
hafa reynst mörgum hættuleg.
yUMFERÐAR
RÁÐ
gesta þegar gengið er um og kring-
um bæinn.
Stjóm bæjarins og rekstur er í
höndum nefndar sem er skipuð af
forsætisráðuneytinum og eiga í
henni sæti fulltrúar frá Þjóðminja-
safni íslands, Landsvirkjun og
Gnúpverjahreppi.
Sem fyrr segir verður bærinn op-
inn til sýnis frá kl. 13—17 daglega í
sumar.
fP Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd byggingar-
deildar, óskar eftir tilboðum í viðhald og viðgerðir utanhúss,
á Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi 3-5.
Útboðsgögn em afhent á skrifstofu vorri, Fnkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 6. ágúst n.
k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkju''ugi 3 — Simi 25800
Staða forstöðumanns
Staða forstöðumanns Droplaugarstaða, vist- og hjúkrunar-
heimilis fyrir aldraða, er laus til umsóknar.
Áskilin er menntun hjúkrunarfræðings með reynslu á sviði
stjórnunar og hjúkrunar aldraðra.
Allar f rekari upplýsingar gefur Guðjón Ó. Sigurbjartsson, yfir-
maður fjármála- og rekstrardeildar Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknar-
eyöublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 8.
september 1986.
Kennarar
Gmnnskólann í Grindavík vantar kennara fyrir yngstu nem-
enduma næsta vetur. Einnig vantar í 7—9 bekki kennara í eðl-
is- og stærðfræði, að lokum vantar svo handmennta og mynd-
menntakennara. Áhugasamir fá nánari upplýsingar hjá skóla-
stjóra í símum 92—8504 og 92—8555.
Skólanefnd
Á verkstæði og tækjaþjónustumiðstöð Skipadeildar Sam-
bandsins á Holtabakka sem ætlað er að annast allt viðhald og
viðgerðir á flutnings- og lyftitækjum útgerðarinnar er leitað
eftir eftirfarandi starfsmönnum:
Verkstjóra:
er hafi stjórn á verkstæðisstarfseminni allri og yfirumsjón
með viðhaldi og viðgerðum.
Viðgerðarmanni:
er vinni við viðgerð og viðhald tækja, fagkunnátta og starfs-
reynsla i vélvirkjun/stálviðgerðum æskileg.
Aðstoðarmanni:
er annist reglubundna þjónustu á tækjum svo sem smurningu
tækja og aðstoð á verkstæði.
Almenn starfsreynsla á þessu sviði æskileg.
Umsóknir sendist starfsmannahaldi.
Umsóknarfrestur er til 28. júlí næst komandi.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALQ
Lindargötu 9A ,