Alþýðublaðið - 29.07.1986, Síða 2
2
Þriðjudagur 29. júlí 1986
■RITSTJÓRNARGREIN.....
Einstæðar hótanir
Það eru óneitanlega kaldar kveðjur sem ís-
lendingum berast þessa dagana frá vinaþjóð-
inni (vestri. Mávart annað skiljaen bandarlskir
embættismenn haldi sig geta sagt okkur að
standa og sitja að sinni vild. Af einstæðum
hrokaog fyrirlitningu telja þeir sig geta komið
fram við íslensku þjóðina sem hvert annað
bananalýðveldi.
Það getur verið nokkuð hollt aö skoða þetta
einhliða samskiptamunstur með tilliti til þess
að hernaðarumsvif Bandarlkjamanna hér á
landi I tlð núverandi ríkisstjónareru með þeim
mestu frá þvl varnarliðið kom hingað fyrst til
lands. Framkvæmdir f Helguvlk, framkvæmdir
á Keflavlkurvelli, bygging radsjárstöðvaog um-
ræða um varaflugvöll fyrir Keflavlkurflugvöll
og þátttaka Bandaríkjamanna við gerð hans
eru allt dæmi um áður óþekkt umsvif Banda-
rikjamanna hér á landi. Aronskuraddir þykja
Ifka vart lengur athugasemdaveröar.
Þetta vekur spurningar um hvort of langt hafi
verið gengið við að veita Bandaríkjamönnum
afnot af okkar landsins gagni og gæðum.
Hvort Bandaríkjastjórn lítur hernaðarsamstarf
okkar gagnkvæmum augum, eðatelur sig geta
virt sjálfsákvörðunarrétt þjóöar að vettugi, í
krafti stórveldiskomplexa og heimsvalda-
hyggju.
Þetta mál getur ekki og má ekki snúast upp í
umræðu um afstöðu manna til hvalveiða í vís-
indaskyni. Það eru hættulegar raddir sem
heyrst hafa I þá átt, m. a. frá þingmanninum,
Guðrúnu Helgadóttur. Eins er það DV til lltils
sóma að vera að ýja að því f leiðara að það sé
fyrst og fremst þrjóska sjávarútvegsráðherra
sem hafi gert það að verkum að nú sé stærsti
freðfiskmarkaðurokkar, Bandaríkjamarkaöur, I
hættu. Ef menn hugsa svona þá getum við al-
veg eins hætt að vera þjóð. Það er svo aftur
annað mál hvort íslendingar hafi sem skyldi
komið sjónarmiðum sínum á framfæri erlend-
is. Hvort ekki megi komaýmsum bandarfskum
aöilum betur í skilning um Iffsviðurværi okkar
og lifnaöarhátt. — Það virðist ekki veita af.
Sú ákvörðun fslenskra stjórnvalda að hætta
hvalveiðum í bili, flýta sumarleyfum hjá Hval
hf., og leggja til við Bandaríkjamenn að fresta
ákvörðun um efnahagsþvinganir gagnvart ís-
lendingum á meðan reynt verður að komast að
samkomulagi, hlýtur að teljast skynsamleg. —
Sá vægir sem vitið hefur meira, getur átt við f
þessu sambandi. En það má heldurekki sjást
að við sýnum undanlátsemi eðaeftirgjöf þegar
vegið er að grundvelli stjórnskipulags okkar af
slfku miskunnarleysi sem nú er gert.
Það verður að treysta því að ríkisstjórnin fari
meóengu offorsif þessu máli og þjóðarsam-
staða náist um viðbrögð gagnvart Bandarfkja-
stjórn. Forsætisráðherra hefur þegar sýnt við-
leitni f þá átt er hann brást vel við þeirri ósk
þingflokks Alþýðuflokksins um að stjórnar-
andstaðan fái að fylgjast gjörla með framvindu
og þróun málsins. Hélt hann þegar fund og
skýrði stjórnarandstöðunni frá stöðunni þá
stundina.
*
\ bréfi sem Eiður Guðnason þingflokksfor-
maður Alþýðuflokksins skrifaði forsætisráð-
herrafyrirhönd þingflokksins segirmeðal ann-
ars: „Við teljum, að hér sé um það stórt mál að
ræða, að ríkisstjórninni beri skylda til að gera
stjórnarandstöðunni ítarlega grein fyrir stöðu
þess, svo og hvernig rfkisstjórnin hyggst
bregðast við þessum einstæðu hótunum
Bandaríkjastjórnar."
K. Þ.
Ákveðið hefur verið að framlengja sýningunni á verkurn Picasso á Kjar-
valsstöðum til 10. ágúst. Hátt í tólf þúsund manns hafa séð sýningunafrá
því hún var opnuð 31. maí s.l. Sýningin kemur úr einkasafni ekkju lista-
mannsins, Jacquline, en hún var viðstödd opnun sýningarinnar í vor.
Bíllinn í lagi
— beltin spennt
bömin í aftursæti.
GÓÐAFERÐ!
Kennslumálaráðherra Dana í opinberri heimsókn:
Lausn handritamálsins
undirrituð á Þingvöllum
Uagana 29. júlí til 2. ágúst n.k.
heimsækir kennslumálaráðherra
Danmerkur, Bertel Haarder, og eig-
inkona hans ísland í opinberu boði
menntamálaráðherra. Ráðherrann
mun heimsækja Háskóla íslands og
helstu söfn höfuðborgarinnar.
Norðurland, Mývatn og Akureyri
heimsótt og ennfremur ferðast um
Borgarfjörð og til Þingvalla.
Heimsóknin er í tilefni af lúkn-
ingu hins alkunna og mikilvæga
handritamáls, en á Þingvöllum,
hinn 1. ágúst, fara fram lokaundir-
skriftir vegna lausnar þess máls.
Dagskrá heimsóknarinnar er á
þessa leið:
Þriðjudagur 29. júlí
Kl. 15.30 Komið til Keflavíkur
með flugvél Flugleiða.
Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra,
og Knútur Hallsson,
ráðuneytisstjóri, taka á
móti gestunum og fylgja
þeim á Hótel Sögu, þar
sem dönsku ráðherra-
hjónin búa ásamt föru-
nautum sínum.
Kl. 19.30 Kvöldverður (óformleg-
ur) á heimili mennta-
málaráðherrahjónanna,
Einimel 9.
Miðvikudagur 30. júlí
Kl. 9.40 Heimsókn í Þjóðminja-
safn íslands. Safnið
skoðað undir leiðsögn
Þórs Magnússonar,
þjóðminjavarðar.
Kl. 10.40 Heimsókn í Listasafn ís-
lands. Yfirlitssýning á ís-
lenskri myndlist skoðuð
undir leiðsögn dr. Selmu
Jónsdóttur, forstöðu-
manns.
KI. 12.00 Hádegisverður í boði
Háskóla íslands.
Kl. 14.00 Heimsókn í Háskóla ís-
lands. Starfsemi háskól-
ans kynnt og m.a. komið
í Odda, þar sem Lista-
safn Háskóla Islands er
til húsa.
Kl. 15.30 Heimsókn í Stofnun
Árna Magnússonar á ís-
landi. Léttar veitingar.
KI. 19.30 Kvöldverðarboð Sverris
Hermannssonar,
menntamálaráðherra,
og eiginkonu hans,
Grétu Kristjánsdóttur, í
Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Fimmtudagur 31. júlí
Kl. 10.00 Haldið með flugvél frá
Reykjavíkurflugvelli til
Norðurlands. Lent á Að-
aldalsflugvelli og farið
þaðan með bifreið í Mý-
vatnssveit. Hádegisverð-
ur snæddur í Hótel
Reynihlíð. Að loknum
hádegisverði farin skoð-
unarferð um Mývatns-
sveit og síðan haldið til
Akureyrar með viðkomu
við Goðafoss.
Kl. 19.00 Kvöldverður á Akureyri í
boði Bæjarstjórnar Ak-
ureyrar.
Kl. 22.00 Haldið með flugvél frá
Akureyrarflugvelli til
Reykjavíkur.
Skorradal til Borgarness.
Hádegisverður snæddur
á Hótel Borgarnesi. Ekið
um Norðurárdal og Staf-
holtstungur í Reykholt
og drukkið þar síðdegis-
kaffi. Haldið þaðan um
Lundarreykjadal og
Uxahryggi til Þingvalla.
Kvöldverður í Hótel Val-
höll á Þingvöllum kl.
19.00.
Laugardagur 2. ágúst
Kl. 7.45 Brottför frá Keflavíkur-
flugvelli.
Hver
er þín
afsökun r
Föstudagur 1. ágúst
Kl. 10.00 Haldið af stað í skoðun-
arferð um Borgarfjörð.
Komið við í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd og
ekið um Dragháls og
Sundlaugarnar
Vegna viðgerða og endurbóta á
Sundlaug Vesturbæjar verður laug-
in lokuð frá og með mánudeginum
28. júlí n. k. Gert er ráð fyrir að
hægt verði að opna aftur eftir 2—3
vikur. Sundlaugargestum er bent á
aðrar sundlaugar í Reykjavík:
Sundhöll Reykjavíkur:
Mánud—föstud. frá kl.
07.00—20.30.
Laugardaga frá kl. 07.30—17.30.
Sunnudaga frá kl. 08.00—14.30.
Sundlaugin í Laugardal:
Mánud—föstud. frá kl.
07.00—20.30.
Laugardaga frá kl. 07.30—17.30.
Sunnudaga frá kl. 08.00—17.30.
Sundlaug Fjölbrautaskólans í
Breiðholti:
Mánud—föstud. frá kl.
07.20—20.30.
Laugardaga frá kl. 07.30—17.30.
Sunnudaga frá kl. 08.00—17.30.
Lokunartími er miðaður við þeg-
ar sölu er hætt, en þá hafa gestir 30
mínútur áður en vísað er uppúr
laug.
Vonast er til að gestir Sundlaugar
Vesturbæjar taki þessari lokun með
þolinmæði og stundi íþrótt sína í
öðrum sundlaugum borgarinnar
þar til við opnum á ný.