Alþýðublaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. júlf 1986
3
Lögreglusam n ingarn ir:
„Löghelga ofríki
stjórnvalda“
- er skoðun Vinstrisósíalista sem telja að lög-
reglumenn verði að ganga úr BSRB til að
samningurinn standist.
„Að láta verkfallsréttinn af hendi
núna með samningi, aö löghelga
ofríki stjórnvalda," segir m. a. i
ályktun sem verkaiýðsmálahópur
vinstri sósíalista hefur sent frá sér
um samninga lögreglumanna við
ríkisstjórnina. í ályktuninni er því
haldið fram að samningurinn veiki
BSRB og svo geti farið að lögreglu-
menn verði að hverfa úr samtökun-
um til að samningurinn standist.
Ályktunin fer hér á eftir:
1. Samningsdrögin, sem gerð
hafa verið við ríkisstjórnina fela í
sér þá hættu að lögreglumenn ein-
angrist frá BSRB, jafnvel að þeir
verði að hverfa úr heildarsamtök-
unum til að samningurinn standist.
Slíkt veikir BSRB. Samstaða og
starf lögreglumanna í siðasta verk-
falli var mikill styrkur fyrir kjara-
baráttuna, sem þá var háð, jafnvel
þótt lögreglumönnum væri bannað
að leggja niður vinnu.
Einangrun lögreglumanna frá
BSRB rýrir starfsöryggi þeirra. Fyr-
ir lögreglumenn eins og aðra þá,
sem sinna erfiðum og viðkvæmum
félagslegum vandamálum eru já-
Vegna fjölda fyrirspurna til
Seðlabankans um mismunandi
vaxtatöku banka og sparisjóða af
skuldara (útgefanda) skuldabréfa,
sem annað hvort eru í innheimtu
eða kunna að hafa verið keypt af
hlutaðeigendi stofnunum, vill
bankinn upplýsa eftirfarandi.
Þegar um er að ræða almenn
skuldabréf eða afborgunarlán (veð-
skuldabréf eða skuldabréf með
áritun sjálfskuldarábyrgðarmanna
eru algengust) með ákvæðum um
breytanlega hæstu vexti á hverjum
tíma hefur Seðlabankinn samþykkt
vexti hæsta samkvæmt tillögum
banka og sparisjóða af slíkum
skuldabréfum sem hér segir frá 1.
janúar 1985 til 1. mars 1986 en frá
Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið hefur, að tillögu stjórnar
Hollustuverndar ríkisins, staðfest'
gjaldskrá vegna eftirlits Hollustu-
verndar ríkisins með starfsleyfis-
skyldum rekstri, sem haft getur í för
með sér mengun. Þessu gjaldi er
ætlað að standa undir kostnaöi við
reglubundið eftirlit Hollustuvernd-
ar ríkisins og vinnu stofnunarinnar
að starfsleyfistillögum.
Eftirlitsskyldum fyrirtækjum er
skipt í 4 flokka og er gjald mis-
mundandi eftir umfangi eftirlitsins
og nauðsyn á eftirliti. I efsta flokki
eru t. d. álframleiðsla, kísiljárn-
framleiðsla og kísilframleiðsla.
Fyrir eftirlit með slíkri starfsemi
skal greiða kr. 80 þús. árlega. í öðr-
um flokki lenda m. a. stærri fisk-
eldisstöðvar, sorphaugar og sorp-
brennslur. Árgjald af þeim er kr. 30
þús. í þriðja flokki eru m. a. minni
kvæð almannatengsl gífurlega
mikilvæg og bakstuðningur -terkra
heildarsamtaka ómetanlegi jpp á
allt starfsöryggi.
2. Lögreglumenn hafa ha erk-
fallsrétt sem hluti opinberra starfs-
manna. Með ofríki sínu i kjara-
deilunefnd í síðasta verkfalli tókst
ríkisstjórninni að ná ákvörðunar-
valdi um verkfallsrétt einstakra
hópa úr höndum þeirra sjálfra og
samtaka opinberra starfsmanna.
Að láta verkfallsréttinn af hendi
núna meö samningi, væri að lög-
helga ofríki stjórnvalda, væri að
láta undan sókn þeirra á undan-
förnum árum á hendur launafólki
og samtökum þeirra.
Tilraun stjórnvalda til að svipta
lögreglumenn verkfallsrétti núna er
liður í heildarstefnu um að svipta
enn fleiri opinbera starfsmenn
verkfailsrétti, helst til þess að því
marki væri náð, að einungis þeir
hefðu verkfallsrétt, sem „lítil áhrif
hafa með því að leggja niður
vinnu“. Með samningnum við lög-
reglumenn vonast ríkisstjórnin til
aö ísinn verði brotinn til framgangs
þeirrar stefnu. Er þá hætt við að
þeim tíma ákveður Seðlabankinn
vexti þessa einhliða:
Eftirfarandi vextir gilda fyrir
skuldabréf útgefin fyrir 11. ágúst
1984, svo og bréf með ákvæði unt
að vextir fylgi meðaltali vaxta
nýrra, almennra skuldabréfa, eins
og það hefur verið auglýst:
Seðlabankinn lítur svo á að ofan-
greindir vextir séu þeir hámarks-
vextir, sem beita má fyrir greint
tímabil í viðskiptum tveggja aðila t.
d. í afborgunarviðskiptum verslana
við neytendur eða í viðskiptum
heildasala og smásala, þegar
skuldabréf með ákvæðum um
breytanlega vexti eru notuð sem
skuldaskjöl. Þegar víxlar eru
skuldaskjöl í slíkum viðskiptum
eru forvextir nú 15,25% á ári.
fiskimjölsverksmiöjur, minni fisk-
eldisstöðvar og fyrirtæki sem ann-
ast yfirborðsmeðhöndlun á járni,
stáli og öðrum málmum t. d.
„galvaneseringu“. Árgjald af þeim
er kr. 15 þús. I fjórða flokki er ann-
ar minni háttar iðnaður t. d. lím- og
málningarverksmiðjur, hreinlætis-
verksmiðjur og plastvöruverk-
smiðjur. Árgjald af þeim er kr. 5
þús.
Gjaldskrá þessi er sett með
heimild í 17. gr. laga um hollustu-
hætti og heilbrigðiseftirlit og byggir
á þeim grundvallarmarkmiðum
mengunarréttarins að eftirlits-
skyldum aðilum beri að standa
undir kostnaði við lögskipað eftirlit
og að líta beri á slíkan kostnað sem
hluta af reksturskostnaði slíkra
fyrirtækja. Gjaldtaka af þessu tagi
hefur tíðkast um nokkurt skeið í
nágrannalöndunum.
draga mundi úr baráttustyrk sam-
taka opinberra starfsmanna, og
þau yrðu lítið til að miða sig við.
3. Afnám verkfallsréttarins rýrir
allt öryggi, bæði hvað varðar laun
og atvinnu, t. d. á tímum þegar at-
vinna er minni, og erfiðara er að
beita uppsagnarvopninu.
4. Samningar, sem byggst hafa á
fastri viömiðun við aðra hópa eða
launaflokka hafa reynst afar illa,
sérstaklega hvað varðar öll hin
lægri laun, vegna örra breytinga á
starfsheitum í launakerfinu, sem og
vegna launaskriðs.
Þá má benda á að kjarabarátta
viömiöunarhópanna þyngist, og
þeim verður stöðugt bent á að
hækki laun þeirra muni laun lög-
reglumanna hækka svo og svo mik-
iö líka. Hætt er viö að þessir hópar
mundu þá freistast til að fallast á
duldar hækkanir og hliðarráðstaf-
anir í stað beinna launahækkana og
yrðu þannig léleg viðmiðun fyrir
lögreglumenn. Þetta mundi ýta
undir þá viðleitni, sem allt of mikiö
hefur borið á í seinni tíð, að aðal-
atriðið sé að komast fram úr næsta
láglaunahóp við hliðina, í stað þess
að sameinast í baráttu um við að fá-
um öll mannsæmandi laun.
Einnig má benda á að öll launa-
mál í landinu eru komin í slíka sjálf-
heldu og vitleysu að búast má við
allsherjar uppstokkun á næstu ár-
um. Hætt er við að sjónarmiö hins
almenna lögreglumanns megi sín
lítils í þeirri uppstokkun, ef hann
hefur ekki á bakvið sig sterkt félag
með fullum samningsrétti. Annars
yrði það stefna ríkisvaldsins, sem
yrði allsráðandi, en hún hefur kom-
ið skýrt í Ijós á undanförnum árum:
Að hækka toppana og halda hinum
hinna lægra launuðu niðri.
5. Vegna uppsagnarbaráttu sinn-
ar hafa lögreglumenn nú sterka
stöðu, og geta náð þeim kjarabót-
um, sem um er að ræða, án þess að
gefa frá sér verkfallsréttinn. Verði
einhver vafi á því eftir fall samn-
ingsins þurfa heildarsamtökin að
stilia sér upp með öllu sínu afli til
stuðnings lögreglumönnum.
Lögreglumenn, verkfall BSRB
1984 er eina meiri háttar tilraunin
til að stöðva sókn stjórnvalda á
hendur launafólki á undanförnum
árum. Þá stóðum við saman lcngst
af, og mikill var fögnuður okkar,
þegar Reykjavikursamningurinn
var felldur. Hann hafði verið gerður
til að rjúfa samstöðu okkar. Stönd-
um saman enn. Hvert einasta mót-
atkvæði styrkir raðir okkar til að
halda því starfi áfram, sem þá var
hafið.
Lögrcgluinenn, fórnum ekki
sjálfstæðinu fyrir meinta stundar-
hagsmuna. Eflum samstöðuna ineð
þcim, sein standa okkur næst.
Happadrœtti
Alþýðuflokksins:
Vinnings-
númerin
Dregið heíur verid í íerðahapp-
drætti fulltrúaráðs Alþýðuflokks-
félaganna í Reykjavík. Dregið var
5. júlí. Dregnir voru út 12 ferða-
vinningar að verðmæti 30.000
krónur hver. Útgefnir miðar voru
10.000. Vinningar komu á miða
númer:
2064, 2584, 2741, 4125, 4679,
5332, 5631, 8132, 8725, 8941,
9780, 9967.
15. júlí var dregið í happadrætti
Alþýðuflokksins í Kópavogi. Vinn-
ingsnúmer hafa verið innsigluð og
verða birt síðar.
Seðlabankinn:
Hámarksvextir
Mengunareftirlit:
Fyrirtækin verða
látin borga sjálf
FASTEIGN
TIL SÖUJ
Tilboö óskast í fasteignina
nr, 2 viö Smiöjuveg í Kópavogi.
Stœrö hússins er 7,357 ferm.
og 32.220 rúmm. Stœrö
lóöar er 15.356 ferm. Tilboö
skilist til undirritaöra fyrir
15. ógúst n.k.
IÐNLÁNASJÓÐUR
IÐNAÐARBANKIÍSLANDS HF.
IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR
Á mölinni mætumst
með brosávör —
ef bensíngjöfin
er tempruð.
Útboð
Sementsverksmiðja ríkisins óskar tilboða í
6.500m3 olíugeymi úr stáli, sem stendur á ióð
verksmiðjunnar á Akranesi.
Lokið skal við að fjarlægja geyminn 1. nóvember
1986.
Útboðsgögn verðaafhent hjá Almennu verkfræði-
stofunni hf., Fellsmúla 26 [ Reykjavík.
Tilboðum skal skilatil Sementsverksmiðju rfkis-
ins á Akranesi eigi síðar en kl. 13:30 þriðjudaginn
19. ágúst n. k.
Sementsverksmiðja ríkisins
Kennarar
Grunnskólann í Grindavík vantar kennara fyrir yngstu
nemendurna næsta vetur. Einnig vantar f 7—9 bekki
kennara í íslensku, eðlisf ræði og stæröf ræöi, að lokum
vantar svo myndmenntakennara. Áhugasamir fá nánari
upplýsingar hjá skólastjóra í símum 92—8504 og
92—8555.
Skólanefnd
Útboð
Sementsverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboðum
í að brjóta niðurog flytja í burtu rúml. 60 m af færi-
bandahúsi verksmiðjunnar. Húsið er úr járnbentri
steinsteypu og stendur á bryggju við verksmiðj-
una á Akranesi.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. des. 1986.
Útboðsgögn verðaafhent hjá Almennu verkfræði-
stofunni hf., Fellsmúla26 í Reykjavík.
Tilboðum skal skilatil Sementsverksmiðju ríkis-
ins á Akranesi eigi síðar en kl. 11.30 þriðjudaginn
19. ágúst n.k.
Sementsverksmiðja rikisins