Alþýðublaðið - 02.08.1986, Side 2

Alþýðublaðið - 02.08.1986, Side 2
2 Laugardagur 2. ágúst 1986 ■RITSTJQRNARGREIN Ekki núna, heldur næst Það var svo sem við var að búast. Sýndarkrafa Gunnars Schram um endurgreiðslu hinna of- teknu skatta um kr. 650milljónirhéltekki nema einn sólarhring. Það var heldur ekki við neinu öðru að búast. I ÐV áfimmtudaginn, daginn eft- ir að krafan var birt í sama blaði, er viðtal við þingmanninn þar sem hann er staddur á þing- flokksfundl á Sauðárkróki. Og nú er búið að berjaúrhonum allan vindinn. Fjármálaráðherr- ann er búinn að eyða aurunum fyrirfram. Þing- maöurinn viðurkennir það, að óhjákvæmilegt hafi verið að verjahinum auknu tekjum af skatt- heimtunni til að halda verðbólgu og verðlagi niðri svo að ekki væri farið yfir rauðu strikin og þannig unnt að standa við kjarasamninga sem væri höfuöatriðið. Ekkert svigrúm gæfist þvl til leiðréttingar á skattlagningu og væri það al- menn skoðun fundarmanna á þingflokksfund- inum. En rúsínan í pylsuendanum er niðurlagið á viðtalinu við þingmanninn: „Á hinn bóginn er fullur vilji fyrirþví hjá ráðherrum og þingmönn- um flokksins, að mlnu mati, að lækka skatt- byrði einstaklinga á næsta ári frá þvl sem nú er. Það hefur komið fram hér á fundinum. Hafamenn einhvern tímann heyrt þettaáður? Ekki núna, heldur næst, og áfram heldur fólk að streða fyrir sköttunum slnum I trausti þess að væntanleg sé betri tið. Hins vegar er best að hafa allar dyr opnar. Þingflokkurinn hefurekki tekið neina ákvörðun sem treysta mætti, held- ur er aðeins um að ræða „fullan vilja“ og hann að mati Gunnars Schram. Mat hans á skatta- málum Sjálfstæðisflokksins hefur þó hingað til verið heldur ótryggt og komið launamönn- um I þessu iandi aö litlu haldi. Umræður um skattamálin að undanförnu hafa verið allfróðlegar. Aðalmaðurinn f umræð- unni hefurverið fjármálaráðherrann, sem ávalft fullyröir að aldrei hafi verið um eins miklar skattalækkanir að ræða og í t(ð núverandi rikisstjórnar. Hann er að sjálfsögðu að fram- fylgja stefnu Sjálfstæðisflokksins og fyrir- mælum slðasta landsfundar. Landsfundur er æðsta vald flokksins. Honum ber að hlýða en siðasti landsfundur samþykkti eftirfarandi: „Heildarskattbyrði verði lækkuð til þess að stuðla að auknu framtaki einstaklinga og fyrir- tækja. Þessari skattalækkun verði mætt með lækkun rikisútgjalda og sölu rikisfyrirtækja.“ Skattakóngurinn Þorsteinn Pálsson erekkert á þeim buxunum að viðurkenna að skattbyrði einstaklinganú hafi vaxið um 20% af hans sök- um. Það er allt saman þjóðhagsstofnun að kenna og þó fyrst og fremst fólkinu í landinu. Það vann fyrir allt of miklu kaupi og ég á að fá happdrættisvinning. Það er svo sem ekkert nýtt að stjórnmálamenn segist vera að lækka skatta með því að hækka þá. Það er hins vegar algjör nýjung fyrir skattgreiðendur, að álagn- ing skatta sé einhvers konar happa og glappa- atriði. Fjármálaráðherrann blði spenntur eftir væntanlegum vinningi. Vegna þessara furðulegu skattauppákomu í ár hefur þingflokkur Alþýðuflokksins vakið at- hygli á, að með skattastefnu sinni hafi ríkis- stjórnin brotið gegn sámþykktum Aiþingis og forsendum kjarasamninga á þennan hátt. I fyrsta (agi leggur rfkisstjórnin nú á tekju- skatt, sem er 800 milljónum króna hærri en ákveðið er í fjárlögum yfirstandandi árs. Þetta er ekki óvænt uppákoma eins og fjármálaráð- herra hefur látið liggja að. Rlkisstjórnin vissi hvert stefndi f april sl. Þá var ráörúm til þess að leiðrétta skattvfsitölu. Það var hins vegar ekki gert. I öðru lagi hefur rfkisstjórnin með þessari skattlagningu brotið gegn samþykkt Alþingis frá 22. maf 1984 um afnám tekjuskatts f áföng- um. Stórhækkun tekjuskattsins nú gengur þvert á þessa samþykkt svo og margftrekuð lof- orð og yfirlýsingar um lækkun tekjuskatts. I þriðja lagi gengur þessi skattahækkun í ber- högg við samkomulag aðila vinnumarkaðarins og rikisstjórnarinnar frá 28. febrúar þar sem samið var um hóflegar launahækkanir gegn fyrirheitum um skattalækkanir. B. P. Við fleytum kertum til minningar um Hírósíma — ávarp frá Samstarfsnefnd friðarhreyfinga í tilefni af því að áþriðjudagskvöldið eru liðin 41 ár frá Hírósíma. Klukkan korter yfir átta að inorgni hins sjötta ágúst fyrir 41 ári varpaði bandarísk flugvél kjarn- orkusprengju á Híroshima. Þá var klukkan á lslandi korter yfir ellefu að kvöldi fimmta ágúst. Á minnis- varða í borginni má nú lesa nöfn liðlega 113 þúsund karla, kvenna og barna sem fórust þegar tortímingin æddi með áður óséðum krafti yfir borgina. Þetta er þögull minnis- varði um ólýsanlegar hörmungar fórnarlambanna. Margir köstuðu sér logandi í ár og vötn í örvænting- arfullri tilraun til að slökk va eldinn. Á hverju ári síðan er þess minnst í Japan og víða um heim með þvi að kertum er fleytt á vötnum og ám. Samstarfsnefnd friðarhreyfinga á íslandi mun gangast fyrir slíkri minningarathöfn við Tjörnina í Reykjavík að kvöldi 5. ágúst. Margt breyttist við fyrstu kjarn- orkusprenginguna í Híróshíma. Siðan hefur mannkynið Iifað við aðrar aðstæður en áður, þær að til eru vopn sem geta ekki aðeins vald- ið fjöldamorðum margfalt hrika- Iegri en áður voru dæmi um, heldur geta þau útrýmt mannkyninu öllu. Þess vegna hyggjumst við fjöl- menna á fund sendiherra kjarn- orkuveldanna á íslandi áður en við fleytum kertunum. Þeim verður af- hent áskorun um að hætta tilraun- um með kjarnorkuvopn, stöðva framleiðslu kjarnorkuvopna og taka þess í stað höndum saman í sameiningu um alhliða afvopnun. Allir eru hvattir til að taka þátt í þessum aðgerðum. Safnast verður saman við Hagatorg (framan við Háskólabíó) klukkan 20.30 að kvöldi 5. ágúst. Þaðan verður geng- ið fylktu Iiði um Espimel og Víði- mel og komið við í Kínverska sendi- ráðinu. Þaðan áfram um Hofs- vallagötu, Túngötu og Garðastræti með viðkomu í Franska og Sovéska sendiráðinu og þaðan um Suður- götu og Skothúsveg, upp á Laufás- veg til sendiráða Bandaríkjanna og Breta. Loks verður gengið niður að Tjörn þar sem Guðmundur Georgs- son læknir og séra Míyako Þórðars- son flytja stutt ávörp áður en kert- um verður fleytt út á tjörnina klukkan 23.15. Friðarhópur fóstra Friðarhreyfing íslenskra kvenna Friðarhópur listamanna Menningar og friðarsamtök ís- Ienskra kvenna Samtök íslenskra eðlisfræðinga gegn kjarnorkuvá Samtök herstöðvaandstæðinga Samtök lækna gegn kjarnorkuvá Samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland Thailand 4 álit Thailendinga og þeir eru farnir að þreytast á því að halda uppi að- stoð, sem ekki sér fyrir endann á. Samt eru þeir í erfiðri aðstöðu. Ef þeir vísuðu öllum flóttamönn- um úr landi eða hættu að taka við bágstöddu fólki yrði það þeim álits- hnekkir út á við og einnig hafa landsmenn sterkar taugar til frænda sinna og nágranna, sem leita á þeirra náðir. Thailendingar hafa nú varpað boltanum til Vesturlanda, ef svo má segja og það er fyrirsjáanlegt að án aðstoðar þaðan neyðast þeir til að kippa að sér hendinni með aðstoð til fióttafólks. Jafnvel má búast við að sumt af því verði sent aftur til sins heimalands, án tillits til þess hvað bíður þess þar. FLUGMÁLASTJÖRN Verkamenn Verkamenn með vinnuvélaréttindi óskast til starfaáReykjavfkurflugvelli. Um framtíðarstöj'f er að ræða. Upplýsingar gefur yfirverkstjóri flugvallarins, sími17430. Flugmálastjórn. Starfskraftur Fjármálaráðuneytið, fjárlaga- og hagsýslustofn- un, óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna ýmsum hagsýsluverkefnum. Starfsmanninum er meðal annars ætlað að stjórna slfkum verkefnum og er menntun eða reynsla i stjórnun þvi æskileg. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fjárlaga- og hagsýslustofnun, Arnarhvoli, fyrir 25. september n. k. Á mölinni mætumst ' með brosávör — ef bensíngjöfin er tempruð. _________________J Laus staða — fulltrúi Sjávarútvegsráðuneytið óskar að ráða fulltrúa til að annast fræðslumál fyrir verkafólk I fiskiðnaði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Sjávarútvegsráðuneytinu eigi síðar en 15. ágúst n.k. Sjávarútvegsráðuneytið, 1. ágúst 1986. Orðsending til sauðfjáreigenda Athygli sauðfjáreigenda er hér með vakin á því að samkvæmt lögum um sauðfjárbaðanir nr. 22, 10. maí, 1977 er skylt að baða allt sauðfé og geitfé á komandi vetri. Skal böðun fara fram á tímabilinu 1. nóvember til 15. mars. Nota skal Gammatox-baðlyf. Sauðfjáreigendur skulu hlíta fyrirmælum eftir- litsmanna og baðstjóra um tilhögun og fram- kvæmd þessara baðana. Reykjavlk, ágúst 1986 Landbúnaðarráðuneytið.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.