Alþýðublaðið - 06.08.1986, Síða 1
alþyðu
Miðvikudagur 6. ágúst 1986
147 tbl. 67. árg.
Verslunannannahe/gin:
Gekk að mestu
áfallalaust
Verslunarmannahelgin varð að
mestu stórslysalaus að þessu sinni.
Umferðin, sein víðast hvar á land-
inu var geysimikil, gekk tiltölulega
greiðlega fyrir sig og að sögn lög-
reglu virðist sem áróður sá sem við-
hafður hefur verið um þetta leyti
árs á hverju ári, sé nú farinn að bera
árangur.
Útihátíðirnar sem að venju voru
haldnar á fjölmörgum stöðum um
landið, fóru yfirleitt hið besta fram.
Langflest fólk var að þessu sinni
saman komið á þjóðhátíð Vest-
mannaeyinga og munu þar hafa
verið um 11 þúsund manns þegar
flest var. Þar varð það óhapp að sá
sem kveikti í brennunni brenndist
illa. Talsvert var um ölvun i Eyjum
og munu tveir menn hafa verið
teknir þar fyrir ölvun við akstur.
Næstflest fólk var að þessu sinni
samankomið í Galtalækjarskógi,
eða um 6 þúsund manns þegar flest
var. Þar fóru hátíðahöldin friðsam-
legar fram en í Eyjum, enda hér um
bindindismót að ræða og mun eink-
um fjölskyldufólk hafa sótt þessa
hátíð.
Á allmörgum stöðum á landinu
safnaðist fólk saman í tjaldbúðum
þótt þar væru engin hátíðahöld
skipulögð. Sem dæmi um slíka
staði má nefna Vaglaskóg, Þórs-
mörk, Laugarvatn, Húsafell og
Atlavík, þar sem hátíðahöld hafa
verið felld niður um verslunar-
mannahelgi vegna skemmda á
gróðri sem þar hafa orðið undan-
farin ár.
Nokkur umferðaróhöpp urðu á
landinu um helgina, en yfirleitt
munu meiðsl á fólki í þeim hafa ver-
ið mjög óveruleg. Þannig varð
árekstur á Fljótsdal er tveir bílar
óku saman á blindhæð og þurfti
læknir að gera að meiðslum þeirra
er í bílunum voru. Enginn þeirra
mun hafa notað bílbelti. Norður á
Ströndum gjöreyðilagðist bíll sem
drukkinn ökumaður ók út af vegin-
um, en maðurinn slapp lítið meidd-
ur, Sömu sögu var að segja af útaf-
akstri á Barðaströnd. Þar fór bíll
fram af hamri og hrapaði niður í
fjöru, en ökumaðurinn slapp
ómeiddur.
Hvalamálið
Matthías skrifar Shultz
„Það stendur ekki á mér að ræða
við bandaríska utanríkisráðherr-
ann ef ekki næst árangur í ferð
Halldórs Ásgrímssonar til
Washington. — Eg skrifaði Shultz
bréf á föstudaginn þar sem ég
skýrði honum frá því að ég mundi
hugsanlega fara fram á viðræður
við hann þegar búið væri að meta
árangur úr viðræðum sjávarútvegs-
ráðherra við ráðamenn vestra.
Utanríkisráðuneytið og sendiráðið
munu að sjálfsögðu fylgjast með
þeim viðræðum," sagði Matthías
Mathiesen í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. En í síðustu viku lagði
Kjartan Jóhannson alþingismaður
fram tillögu í utanríkismálanefnd,
þess efnis að Matthías Mathiesen
ætti viðræður við George Shultz
utanríkisráðherra Bandarikjanna
um hvalveiðimálið þar sem við-
skiptaþvinganir gagnvart íslend-
ingum gæti stórlega spillt samskipt-
um þjóðanna.
Aðspurður hvort málið væri ekki
þegar komið á það stig að afskipti
hans væru óumflýjanleg, sagði
Matthías og eins og hann hefði bent
á, þá legði utanríkisráðuneytið til
aðila sem fylgdust með þeim við-
ræðum sem nú væru í gangi, „og í
bréfi mínu til Shultz lagði ég sér-
staka áherslu á mikilvægi þess að
niðurstöður fengjust úr þeim við-
ræðum. En með framhaldið, verður
að sjá til þar til í lok vikunnar. —
Vonandi", sagði Matthías Mathie-
sen utanríkisráðherra.
Hvalfjarðarstrandarh reppur:
Vill afnema sér-
réttindi NATO
Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrand-
arhrepps hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem afskiptum Banda-
ríkjamanna af hvalveiðum íslend-
inga er harðlega mótmælt. í álykt-
uninni kemur einnig fram að
hreppsnefndin telur athugandi að
afnema þau „sérréttindi" sem
Atlantshafsbandalagið njóti nú í
hreppnum, með tilliti til þess að
Bandaríkjamenn ætli nú að leggja
aðalatvinnuveg hreppsins í rúst.
Sérréttindin" sem hér er átt við
eru þau, að því er fram kemur i
ályktuninni, að Atlantshafsbanda-
lagið á fasteignir í hreppnum en
hefur fram að þessu ekki þurft að
greiða nein gjöld til sveitarfélagsins
af þessum eignum. Að áliti hrepps-
nefndarinnar er óverjandi að líða
slík sérréttindi lengur. Hótanir
Bandaríkjamanna um viðskipta-
þvinganir telja hreppsnefndarmenn
vera beina ögrun við sjálfstæði og
sjálfsákvörðunarrétt Islendinga og
ber vott um drottnunargirni og yfir-
gang.
Ályktunin sem samþykkt var
samhljóða á fundi hreppsnefndar-
innar í fyrri viku er svona:
„Hreppsnefnd Hvalfjarðar-
strandarhrepps mótmælir harðlega
afskiptum Bandarikjanna af hval-
veiðum íslendinga í vísindaskyni.
Hreppsnefndin telur, að hótanir
Bandaríkjamanna um viðskipta-
þvinganir beri vott um drottnunar-
girni og yfirgang gagnvart smáþjóð
og sé tsein ögrun við sjálfstæði og
sjálfsákvörðunarrétt íslendinga.
Það getur ekki verið háð Iögsögu
eða á valdsviði Bandarikjanna að
ákveða, hvernig íslendingar nýta
auðlindir sínar, né hvaða vísinda-
rannsóknir þeir stunda innan l'isk-
veiðilandhelginnar og hverjum þeir
selja afurðir sínar.
Hreppsnefndin skorar á ríkis-
stjórn Islands að mótmæla yfir-
gangi Bandaríkjanna harðlega og
taka til athugunar samvinnu og
samskipti íslands við Bandríkin,
þar á meðal varnarsamninginn.
Þá rninnir hreppsnefndin á, að
Atlantshafsbandalagið á hernaðar-
mannvirki og verulegar fasteignir í
Hvalfirði og hefur lagt undir sig
jörð til þeirra hluta. Af þessum fast-
eignum eru engin gjöld greidd til
hreppsins, og nýtur Atlantshafs-
bandalagið þannig sérréttinda hér í
hreppnum. Þar sem Bandaríkin
ætla nú að leggja aðalatvinnuveg
hreppsins í rúst, er óverjandi að líða
slik sérréttindi lengur. Skorar
hreppsnefndin á ríkisstjórnina að
gera ríkisstjórn Bandaríkjanna
grein fyrir þessu og taka þessi mál
til endurskoðunnar og úrbóta“
SUMARTILBOD
Við hvetjum húseigendurog sumarbústaðaeigendurtil þess að
nota sumarið vel og búa fasteignir sínar af kostgæfni undir veturinn.
Sértilboð okkar í sumar er:
Allt fúavarnarefni á 10% afslætti
Við erum austast og vestast í bænum.
BYGGINGAVÖRUR
Stóitiöfða, simi 671100- Hringbtaul 120, simi 28600