Alþýðublaðið - 06.08.1986, Side 3
Miðvikudagur 6. ágúst 1986
3
Ekki sama hvar
þú kaupir filmu
— Verðkönnun NRON, ASÍ og BSRB, sýnir
nokkurn verðmun eftir stöðum og tegundum og
auðvitað margborgar sig að taka filmurnar með
sér frá útlöndum.
Það sannaðist eina ferðina enn í
verðkönnun Neytendafélagsins í
Reykjavík í $). viku, að það
borgar slg að taka eftir litlu verð-
miðunum. Nú var kannað verð á
ljósmyndavörum og þjónustu
kringum þessa tómstundaiðju svo
margra landsmanna. Það koma að
vísu i.ljós að verðmunurinn í þessari
grein er ekki eins ofboðslegur og
víða annars staðar, en hann er engu
að síður verulegur í mörgum tilvik-
um.
Könnunin var gerð 23. og 24. júlí
og náði til 11 verslana á höfuðborg-
arsvæðinu.
í könnuninni eru 4 tegundir af
35m/m litfilmum til kópíeringar á
pappír.
1 öllum tilfellum nema einu mið-
ast kópíeringin við pappírsstærðina
9x13 cm. Fyrirtækið Framköllun á
stundinni er með aðra pappírsstærð
fyrir 35 m/m filmur, þ.e. 10x15 cm.
Hjá Ljósmyndavörum var hægt
að fá tvær FUJI filmur, 24 mynda
100 ASA, pakkaðar saman, á 481r
kr.
Amatörverslunin veitir þeim sem
kaupa filmur 10% afslátt af fram-
köllun og kópíeringu.
Hjá Framköllun á stundinni er
veittur 10% afsláttur ef verslað er
fyrir 3.000r kr. eða meira.
Hjá 3 fyrirtækjum fylgir plast-
albúm með myndunum, þ.e. hjá
Amatörversluninni, Express-Iit-
myndum og Ljósmyndaþjónust-
unni.
Athyglisvert er hve endanlegur
kostnaður á einni 36 mynda filmu
er hár hérlendis og lítur helst úr fyr-
ir að ljósmyndun sé lúxus tóm-
stundaiðja, ekki ætluð hinum al-
menna launþega.
Dæmi:
Meðalverð 36 mynda
100 ASA filmu kr. 393
Meðalverð á framköll-
un kr. 98r
Meðalverð á kópíer-
ingu, 36xl8r kr. 648r
Samtals kr. 1.139r
Á ljósmyndafilmum og pappír er
35% tollur, 30% vörugjald og 1%
afhendingargjald. Þessi gjöld eru
hins vegar felld niður til þeirra aðila
sem framkalla í atvinnuskyni og á
það jafnt við um þau fyrirtæki sem
framkalla fyrir almenning sem og
atvinnuljósmyndara.
Þeim sem hyggja á utanlands-
ferðir er bent á að filmuverð i Fri-
höfninni á Keflavíkurflugvelli er
öllu skaplegra. Algeng 36 mynda
100 ASA filma sem kostar víða 411,-
kr. i verslunum kostar þar 5.-$, eða
207r kr. Þarna munar 204.- kr. eða
98,7%.
Lægsta verð í töflunni er merkt
með stjörnu.
-H d G - O rH OO W U -H d U 04 -H TJ -P G 3 >1 <Ö B U -P XX ■H W *H •H 4J *o fy vo C 4J tO tJ» U W fö O 'H *o « Ua iJ •H lj 3 04 w 04 'tu -H 4J c ftí c u Gevafoto Austurstræti 6,R. d C ^ <U W -H U 4J <U ftí Ljósmyndavörur Skipholti 31,R. c Íö 4J • W PX O ** C OO O r- -r-» r—1 Xh fö -H ,rO tJ» c <u >1 > B fö W *o c •r-i fd XX XX siö jni 13,Hafnarf. H 4J ftí u Munur á hæsta og
10.VERÐKONNIJN <§> t MRON > <U U > :0 <0 4J «0 G W <0 W < I 0 u U p 0,0 X 0 w w W 4J 'O w x: fö ‘O 4J c O (0 U-t CQ rH W 0 U M P B 4J f0 w U O tu < Hans Pe‘ Bankast: 'P fd XX u <0 XX Ti </) C rH >1 fd s: q (rýii Austursi lægsta Kr: verði %:
FUJI
135/24 mynda 100 ASA 267* 267* 280 13 4,9
135/36 " 100 ASA 380* 380* 400 20 5,3
135/24 400 ASA 342 295* 47 15,9
135/36 400 ASA 445 445 450 382* 68 17,8
KODAK
135/24 100 ASA 325 325 295 325 325 301 300 330 325 294* 36 12,2
135/36 100 ASA 411 406 395 411 411 411 410 420 385* 405 35 9,1
135/24 400 ASA 403 378 365* 378 378 378 380 420 404 375 55 15,1
135/36 400 ASA 508 508 495* 508 508 510 508 15 3,0
KONICA
135/24 II 100 ASA 240* 280 280 40 16,7
135/36 " 100 ASA 290* 378 400 110 37,9
135/24 400 ASA 340* 360 20 5,9
3 M
135/24 100 ASA 235* 235* 0 0,0
135/36 II 100 ASA 314* 0 0,0
135/24 II 400 ASA 294 290* 4 1,4
Framköllun á 1 filmu 90* 90* 100 100 100 100 100 100 100 100 100 10 11,1
Kópierinq á 1 mynd 17* 17* 18 18 19 18 18 17* 18 18 18
Verómunur milli tegunda, miðaó vió lægsta veró á hverrri tegund: Kr: % :
135/24 mynda 100 ASA 3 M (235) KODAK (294) 59 25,1
135/36 " 100 ASA KONICA (290) KODAK (385) 95 32,8
435/24 " 400 ASA KONICA (294) KODAK (365) 71 24,1
135/36 " 400 ASA FUJI (382) KODAK (495) 113 29,6
íslandssýning
í Þýskalandi
í síðasta mánuði var opnuð í
„Das Museum fúr Naturkunde“ í
Freiburg 1. Br. yfirgripsmikil ís-
landssýning. Auk íslenskra nátt-
úrumuna, ljósmynda, veggspjalda
og kvikmynda sýnir Þorlákur Krist-
insson, myndlistarmaður, lands-
lagsmyndir og Helgi Gíslason,
myndhöggvari, bronsmyndir.
Auk muna í eigu safnsins sjálfs
verða á sýningunni ýmsir lánsmunir
frá Hamborg, Oldenburg og há-
skólabókasafninu í Köln. Einnig
verða sýndir ýmsir munir, sem
tengdir eru minningu Jóns Sveins-
sonar, sem eru í eigu Herder for-
lagsins í Freiburg.
í tengslum við sýninguna verða
eftirtaldir fyrirlestrar fluttir um ís-
lensk efni:
Hinn 11. júlí 1986 hélt dr. Ewald
Glásser, prófessor, Köln, fyrirlestur
með skýringarmyndum, sem
nefndist „Landschaftsökologische
Probleme Islands in vegetations-
geographischer Sicht“.
Hinn 30. júlí las Jón Laxdal úr
verkum Halldórs Laxness.
Hinn 13. ágúst n. k. mun
Franz—Karl Freiherr von Linden
halda fyrirlestur með skýringar-
myndum sem nefnist „Island aus
der Vogelschau".
Hinn 27. ágúst mun frú Marita
Bergsson flytja fyrirlestur um ís-
lenska ljóðlist á 20. öld, sem hún
nefnir „Zeit und Wasser".
Hinn 5. september mun hr.
Dieter Wendler Jóhannsson, hjá
ferðamálaráði i Frankfurt, flytja
fyrirlestur um íslensk ferðamál í
Vinningsnúmerin
Dregið hefur verið í happdrætti
Alþýðuflokksins í Kópavogi:
Dregnir voru út 10 ferðavinningar
að upphæð krónur 30.000 hver.
Vinningar komu á miða númer:
1034, 2742, 4423, 4642, 5872, 6187,
6288, 7154, 7522, og 8577.
dag og þá þýðingu sem þau hafa
fyrir íslenskt viðskiptalíf.
Sýningunni er ætlað að gefa yfir-
lit yfir náttúru landsins, menningu
og sögu þjóðarinnar og sendiráðið
hefur eftir föngum reynt að aðstoða
forstjóra safnsins, dr. P. Lögler, við
skipulagningu sýningarinnar.
Sýningin stendur til 21. septem-
ber n. k.
Laus staða
Staða umdæmisfulltrúa við Bifreiðaeftirlit ríkis-
ins á Suðurlandi er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir berist Bifreiðaeftirliti ríksisins, Bílds-
höfða 8, fyrir 30. þ.m. á þar til gerðum eyðublöð-
um, sem stofnunin lætur í té.
Reykjavík, 1. ágúst 1986.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
(0^\ Frétt frá Hitaveitu
lmTj Suöurnesja
Stjórn Hitaveitu Suðurnesja hefir samþykkt að
lækkagjaldskráslnaávatni, sem selt erí gegnum
mæli. Lækkun þessi, sem reiknast frá 1. júlí er um
22,3%. Vatnið kostaði áður45 kr/tonnið en fer nú
niður (35 kr/tonnið. Með þessu vill stjórnin leggja
fram sinn skerf til eflingar atvinnullfs á Suður-
nesjum.endatelurhún aðfjárhagsstaðafyrirtæk-
isins leyfi það.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
gatnamálastjórans í Reykjavík óskar eftir tilboð-
um í lóðarlögun við brú á Bústaðavegi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
13. ágúst n. k. kl. 11.
inKikaupastofnun reykjavikurborgar
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Kennarar —
Kennarar!
Grunnskólann á Hofsósi, Skagafirði vantar kenn-
araí eftirtaldargreinar: íþróttir, smíðar, dönsku og
kennslu yngri barna að hluta.
Um er að ræða 1 og V2 stöðu og því tilvalinn
möguleiki fyrir 2 að deila með sér.
Gott húsnæði er í boði og leikskóli á staðnum.
Allarfrekari upplýsingarveitaskólastjóri Svandls
Ingimundar í sima 91—41780 og form. skóla-
nefndar Pálmi Rögnvaldsson f sinum 95—6400
og 95—6374.