Alþýðublaðið - 21.10.1986, Page 1
alþýðu-
Þriðjudagur 21. október 1986 202 tbl. 67. árg.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi:
Guðmundur Einarsson
1. maður
á lista
„Ákveðið var á kjördæmisþingi
Alþýðuflokksins, sem haldið var i
Valaskjálf á Egilsstöðum um helg-
ina, að Guðmundur Einarsson færi
fram sem 1. maður á lista Alþýðu-
flokksins í Austurlandskjördæmi.
Guðmundur á ættir að rekja til
Austuriands og þekkir vel til í kjör-
dæminu. Hann segir álit sitt á þess-
ari ákvörðun í stuttu spjalli sem hér
fer á eftir“.
„Það leggst mjög vel í mig að fara
i slaginn fyrir austan. Aldarfjórð-
ungs„múr“ hefur staðið í vegi fyrir
því að maður frá Alþýðuflokknum
kæmist að í Austfjarðakjördæmi,
en nú ætlum við að brjóta þennan
múr niður, það eru til þess ágætar
forsendur. í fyrsta lagi þá er Al-
þýðuflokkurinn sem heild í mikilli
sókn um allt land. Eins er mikið af
ungu fólki sem aðhyllist þá pólitík
sem Alþýðuflokkurinn stendur fyr-
ir. En það sem mér þykir skipta
mestu er þó hin sterka sjálfstjórnar-
hefð sem Austfirðingar eru þekktir
tyrir og þessi krafa um að fá að ráða
sér sjálfur. Ég hef haft mikinn
áhuga á þess háttar pólitík og verið
aðili að því að flytja um það þing-
mál og hef að auki skrifað talsvert
um slíkt, svo sem fylkisstjórnir,
þriðja stjórnsýslustigið og fleira í
þá átt. Þetta er, ef svo má segja
austfirsk hugmynd, og ætti því að
falla vel að málflutningi okkar Al-
Framh. á bls. 2
Framlög til fatlaðra skorin niður;
Sjálfsbjargarhúsið
í smíðum í 20 ár
„Framlög í framkvæmdasjóð eru
langt fyrir neðan það, sem ákveðið
er í lögum. Sjóðnum eru ætlaðar
100 milljónir á næsta ári, en ef lög-
unum hefði verið fylgt frá byrjun
væri um að ræða 200 milljónir",
sagði Theódór A. Jónsson formað-
ur Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra, í samtali við Alþýðublaðið
í gær.
„Þetta gerir það að verkum, að
aðeins brot af þeim framkvæmdum
sem sótt er um til sjóðsins fær af-
greiðslu“, sagði Theódór. Hann
sagði að alla tíð frá því lögin um
málefni fatlaðra voru sett, hafi
framlög verið verulega skorin nið-
ur. Sem dæmi nefndi hann að nú
væru 20 ár síðan framkvæmdir hóf-
ust við Sjálfsbjargarhúsið og væri
því ólokið enn.
Af þeim hundrað milljónum sem
sjóðnum er ætlað á næsta ári koma
50 milljónir úr erfðafjársjóði.
Starfsemi dvalarheimilis og dag-
vistunar Sjálfsbjargar er rekin með
sama hætti og annarra stofnana
heilbrigðiskerfisins. Theódör sagði
að reksturinn væri mjög erfiður.
„Þetta hefur verið rekið með sama
hætti og fyrir sama fjölda síðustu
ár. Reksturinn hefur samt engan
veginn gengið vel og nú fyrstu 9
mánuði ársins er um 19% halli á
rekstrinum".
Framh. á bls. 2
19 þúsund króna mánaðarkaup:
„Verkalýðshreyf-
ingin ber ábyrgð“
„Þann blett verðum við aí
mundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambandsins.
„Hvernig sem að næstu kjara-
samningum verður staðið virðast
meginverkefni samninganna Ijós,
afnám lægstu taxta og uppstokkun
taxtakerfisins. Verkalýðshreyfingin
ber ábyrgð á 19 þúsund króna mán-
aðarkaupi, kaupi sem ekki nægir til
mannsæmandi framfærslu. Þann
þvo af okkur“, segir As-
ASÍ í Vinnunni, málgagni
blett þurfum við að þvo af okkur“,
segir Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ m.a. í leiðara í nýju tölublaði
Vinnunnar, tímariti ASÍ. í upphafi
leiðara síns ræðir Ásmundur þau
viðbrögð sem komu fram við þeirri
hugmynd, að leið dreifðra samn-
inga yrði farin í næstu kjarasamn-
ingum. Asmundur telur að við-
brögðin hafi almennt verið nei-
kvæðari en hann átti von á, þó segir
hann of snemmt að draga af því
endanlega ályktun.
„Lægsta kaupið verður að
hækka og þeir sem náð hafa lengra
verða að veita því beinan stuðning
að það kaup hækki meira en þeirra
eigið. Verkalýðshreyfingin ber
ábyrgð á kauptöxtum sem atvinnu-
,Framh. á bls. 2
Stórpólitísk yfirlýsing forsœtisráðherra:
Afnám vísitöluviðmiðunar fjármagns
Eitt atriðið í ræðu Steingríms
Hermannssonar, forsætisráðherra,
vakti athygli okkar Alþýðublaðs-
manna. Hann sagði:
„Við það að verðbólga fer vel nið-
ur fyrir 10 af hundraði, mun verða
unnt að koma heilbrigðari skipan á
ýmislegt í peninga- og efnahags-
málum þjóðarinnar. M.a. er þá
tímabært að athuga hvort ekki er
rétt að afnema alla vísitöluviðmið-
un fjármagns og annarra skuld-
bindinga“.
Þessi ummæli forsætisráðherra
eru stórpólitísk og vonandi ekki
kosningabrella. Með þessum orð-
um er ráðherrann að gefa skuldug-
um húsbyggjendum vonir um að lát
verði á þeirri brjálæðislegu eigna-
upptöku, sem átt hefur sér stað hér
á landi að undanförnu.
Ef hins vegar ráðherrann er með
þessu að gefa falskar vonir um leið-
réttingu á misgengi kaupgjalds og
lánskjaravísitölu, þá verður að
tryggja að hið sanna komi í ljós
þegar í stað. Það verður að ganga
eftir því við ráðherrann hvað hann
meinar með þessum orðum.
Ásgeir Hannes Eiríksson:
Sjálfstæðisf 1 okkurinn að
ganga sér til húðar
Flokkseigendafélagið sigraði í prófkjörinu
í nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, fyrir alþingiskosningar 1987, vakti athygli
hvað flokkseigendafélagið svonefnda innan Sjálf-
stæðisflokksins var fast í sessi, þrátt fyrir allt frjáls-
lyndistal.
Ásgeir Hannes Eiriksson er einn af þeim ungu
mönnum sem varð hart úti í prófkjörinu, þrátt fyrir
smekklegar auglýsingar í blöðum, nokkurn vina-
fjölda og fjölmargar blaðagreinar í DV um áhugamál
sín og baráttusvið. Virðist fullljóst eftir þetta próf-
kjör þeirra sjálfstæðismanna, að ungt fólk sem vill
láta til sín taka í stjórnmálum hlýtur að snúa sér eitt-
hvað annað en til Sjálfstæðisflokksins, því yfir
flokkseigendamúrinn er engum fært nema fuglinum
fljúgandi.
Viðtalið við Ásgeir Hannes Eiríksson fer hér á eftir.
„Þú verður að athuga að próf-
kjörið var bundið við flokks-
menn, og „svarta klíkan“ i
flokknum er ekkert á því að
hleypa neinum að. Þetta er svona
vel neglt niður. „Svarta klikan “
skilar sér eins og hún leggur sig,
umhverfis Geir Hallgrímsson og
félaga. Albert Guðmundsson,
Rúnar Guðbjörnsson og ég, við
erum þeir einu, sem erum fyrir ut-
an þessa klíku. Vegna þess að í
prófkjörinu varð að kjósa átta
menn og ekki minna, þá varð fólk
sem studdi okkur alltaf að kjósa
fimm af þeim, aðeins til þess að fá
seðilinn gildan, á sama tíma og
þeir sem studdu „svörtu klíkuna“
gátu kosið átta frambjóðendur af
henni, en sleppt okkur“, sagði Ás-
geir Hannes Eiríksson í samtali
við blaðið.
„Þú sérð til dæmis hvað Albert
er með miklu færri atkvæði en
þeirra menn. Ef atkvæðamagn
hefði raðað niður í sæti, — væri
Albert í því níunda. Og allt þetta
nýja fólk sem við smöluðum inn í
flokkinn, 630 manns, vorum við í
rauninni að smala fyrir þá, allan
tímann“.
„Þetta verður síðasta prófkjör-
ið innan flokksins, þannig að eftir
þetta er útilokað fyrir mann eins
og mig að taka þátt í pólitík í
gegnum Sjálfstæðisflokkinn.
Næst verður stillt upp starfs-
mönnum flokksins og starfs-
mönnum Morgunblaðsins. Svona
er nú þetta“.
„Ég held að eina leiðin, sem er
fær í framtíðinni, sé einhverskon-
ar forval innan flokkanna, ef
menn vilja binda þetta við flokks-
bundna, og síðan raði kjósendur á
listana. Sleppa þessum prófkjör-
um, — eða að hafa allt galopið.
Þá mætti kjósa þannig að allir
flokkar hefðu prófkjör í einu. Þá
væri engin hræðsla við að yrði
smalað úr öðrum flokkum. Ann-
ars kemur þetta ekki að sök í
Sjálfstæðisflokknum".
„Og hvað gerir maður sem
smalað er á kjörstað? Hann á ekki
annarra kosta völ en að velja á
milli 15, 20 eða 30 sjálfstæðis-
manna. Varla fer sjálfstæðismað-
ur að kjósa kommúnista á listann,
þótt honum sé smalað á kjörstað.
Hann kýs kannski einn sjálfstæð-
ismann öðrum fremur, en það er
þá líka allur munurinn“.
„Ég auglýsti með litlum auglýs-
ingum í blöðum fyrir prófkjörið
og skrifaði um áhugamál mín í
DV, en þrátt fyrir það þá er ég
svona neðarlega. Það er eins og ég
hafi ekki náð út fyrir þann hóp
sem ég þekkti fyrir. „Svarta klík-
an“ er svona grimmsterk að
auki“.
„Það er ljóst að Albert hefur
tapað einhverjum atkvæðum út af
málflutningi fjölmiðla á Haf-
skips- og Útvegsbankamálinu.
Það var unnið mjög „massíft"
gegn honum og það meira en
nokkru sinni fyrr. Albert vann
samt fyrsta sætið með mikilli
hörku og dugnaði. Hann sagði
sjálfur, að hulduherinn hefði
unnið mjög vel og það er rétt að
hulduherinn er afl sem menn
skyldu ekki vanmeta“.
„Það verða ekki fleiri prófl:' >r,
en ég er sjálfstæðismaður eftir
sem áður. Sjálfstæðisflokkr.inn
er reyndar að ganga sér til húðar
sem flokkur, það er alveg ljóst. Ef
einhver maður vill flokknum vel,
þá þarf að skipta þarna um for-
ystu og starfsmenn. Það er að
detta niður allt starf í flokknum.
Það er komin mikil þreyta í þetta
fólk, sem svona lengi hefur setið,
það er greinilegt".