Alþýðublaðið - 03.01.1987, Qupperneq 3
3
Laugardagur 3. janúar 1987
Landsvirkjun
yfirtekur eignir
í Bjarnarflagi
Með lögum nr. 102. 31. desember
1985, um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til að selja Kröfluvirkjun í Suð-
ur-Þingeyjasýslu, var ríkisstjórn-
inni ennfremur heimilað að selja
Landsvirkjun eignir Jarðvarma-
veitna ríkisins í Bjarnarflagi í
Skútustaðahreppi í Suður-Þing-
eyjasýslu. Samningar tókust milli
ríkisins og Landsvirkjunar um sölu
á eignum þessum og var samningur
þar að lútandi undirritaður í
Reykjavík miðvikudaginn 17. sept-
ember 1986. Samningurinn skyldi
taka gildi hinn 1. janúar 1987, enda
hefði þá verið gerður gufuöflunar-
samningur milli Landsvirkjunar og
Kísiliðjunnar h.f. til að taka gildi
sama dag.
Samningur milli Landsvirkjunar
og Kísiliðjunnar h.f. um gufusölu
til næstu 15 ára hefur verið undirrit-
aður. Þá hefur Landsvirkjun í dag
gefið út skuldabréf til ríkisins fyrir
kaupverði eignanna.
Iðnaðarráðherra hefur skv. því í
dag formlega afhent Landsvirkjun
gufuveituna í Bjarnarflagi til eignar
og rekstrar frá og með 1. janúar
1987 að telja.
Kaj Munk í
Hallgríms-
kirkju
Leikritið um Kaj Munk eftir
Guðrúnu Ásmundsdóttur, sem
frumsýnt verður í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 4. janúar, er fyrsta
trúarlega leikritið í fullri lengd sem
leikið er í íslenskri kirkju. Hér er
því um brautryðjendastarf að ræða
sem ef til vill markar tímamót bæði
í sögu leiklistar á íslandi og í ís-
lensku kirkjulífi.
Leikritið fjallar um trúarstyrk og
eldmóð einstaklings sem fylgir
sannfæringu sinni og trú á gildi
sannleikans, þótt sá sannleikur sé í
andstöðu við sannfæringu fjöld-
ans. Fyrir það geldur hann með Iífi
sínu, aðeins 46 ára gamall.
í leiknum eru samtals 16 þátttak-
endur, en hlutverkin eru alls 32, stór
og smá, og þar með talin þrjú hlut-
verk Kaj Munks á mismunandi ald-
ursskeiði.
Tónlist er samin af Þorkeli Sigur-
björnssyni og tónlistarflytjendur
eru Hörður Áskelsson og Inga Rós
Ingólfsdóttir.
Ekkja Kaj Munks, Lise og sonur
þeirra Arne munu koma hingað til
lands 2. janúar til að vera viðstödd
frumsýningu leikritsins.
Sýningar verða í Hallgrímskirkju
sunnudaga kl. 16.00 og mánudaga
kl. 20.30. Tekið verður við pöntun
aðgöngumiða allan sólarhringinn í
sima 10745 og einnig verða seldir
miðar við innganginn.
Getraunir
1
m
't\.
iih'
— beltin spennt
bömin í aftursæti.
GÓÐAFERÐ!
M
Brunabótafélag íslands hóf starfsemi sína 1. janúar 1917
og á því 70 ára starfsafmæli nú í upphafi árs 1987.
Opiðhús 5.janúarl987
í tilefni þessara tímamóta í sögu
félagsins munum við hafa opið hús og
taka á móti viðskiptavinum og vel-
unnurum á aðalskrifstofu Bruna-
bótafélagsins, Laugavegi 103,
Reykjavík og í eftirtöldum
umboðum okkar: Akranes,
Ölafsvík, Grundar-
fjörður, Stykkis- --------- ----------
hólmur, ísafjörður, BRUNABOTAFELAG
Sauðárkrókur, Siglufjörður, Ólafs-
fjörður, Dalvík, Akureyri, Húsavík,
Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Reyðar-
fjörður, Eskifjörður, Norðfjörður,
Vestmannaeyjar, Selfoss,
Hveragerði, Mosfells-
hreppur, Hafnarfjörður,
Kópavogur, Garða-
bær, Grindavík og
Keflavík.
JSLANDS
ii'