Alþýðublaðið - 08.01.1987, Síða 3

Alþýðublaðið - 08.01.1987, Síða 3
Fimmtudagur 8. janúar 1987 3 RITDÖMAR Á misjöfnu þrífast börnin best Upphafið lofar góðu — en framhaldiö skiptir öllu máli Séra Emil Björnsson hefur skrif- að fyrsta hluta sjálfsævisögu sem nú er komin út hjá Bókaútgáfunni Örn og Örlygur. Slikar sjálfsævi- sögur eru nú fastur liður i jólahaldi íslendinga og vafamál hvort jól verða lengur haldin án þeirra. Er sennilegt að eldri kynslóðin fái þannig bækur í jólagjöf og virkar þetta stundum á mann þannig að hér sé á ferðinni sendibréf í bókar- formi frá einum vísum öldungi til annars. Er það svo sem ósköp vina- legt og margt má af þessum bókum læra. Fólkið sem fæddist sitt hvoru megin við 1920 (!) getur kennt okk- ur hinum býsna margt, en spurning- in er þá hvort nokkur vilji taka lær- dóminn gildan? Allavega verður maður lítið var við skjót viðbrögð í þeim efnum. Á misjöfnu þrífast börnin best, bók séra Emils er mjög einkennandi \ Ferðu stundum á hausinn? Hundruð gangandi manna slasast árlega í hálkuslysum. Á mannbroddum, ísklóm eða negldum skóhlífum ertu „svellkaldur/köld“. Heímsæktu skósmíðinn! || UMFERÐAR fyrir þennan flokk bóka eða eins og stendur í upphafi formálsorða: „Fyrri hluti þessarar bókar fjallar um mikið sólskin á morgni lífsins og umskiptin, sem verða, þegar dökkan flóka dregur upp“. Fyrri hluta bókarinnar kallar höfundur þeim dulráðu orðum: „Morgunroði lífsins er hverfull". Fyrsti kafli bók- arinnar heitir: Staðfærsla og ætt- færsla og fyrsta setningin í bókinni er svona: „Þú ert fæddur í frum- skógi málsins", sagði Sigurður Guðmundsson, skólameistari, eitt sinn við mig í íslenskutíma“. Þannig er eins og minningarnar verði allar með ævintýrablæ þegar mikið ligg- ur við og er ekki nema gott um það að segja, — svona orðfæri þótti gáfumerki hér áður og tengdist skáldskap og merkilegum hlutum öðrum. Svona nokkuð fellur eldra fólki örugglega vel í geð, en ég veit ekki hvort ungt fólk skilur orðin lengur, hvað þá þegar þau koma mörg saman. Því miður. Unga fólk- ið er ekki líklegt til að njóta slíkra bóka. Öðru máli gegnir hins vegar um það fólk sem komið er á miðjan aldur og þar yfir. Reynslan sýnir að hjá þeim hópi njóta ævisögur geysi- mikilla vinsælda, — sem fara síst dvínandi. Þannig séð er bók séra Emils Björnssonar mikill happa- gripur og fengsæll afli ævisögu- grúskara. Og það er hafið yfir allan vafa, að maður á borð við séra Emil hefur frá fjölmörgu að segja, sem við hinir ættum og ef til vill verðum að læra af. (Reyndar kemur þá aft- ur upp spurningin um hvort mögu- legt sé að læra af reynslu annarra, en það má þó að minnsta kosti reyna.) Menn eins og Emil lifðu „tímana tvenna“ í þess orðs fyllstu merkingu, — þessir menn hafa lifað tvo heima í einu og sama jarðlífinu. Kannski fleiri? Er nema von að þeir setjist niður og skrifi bók? Eins og áður er getið er hér á ferðinni fyrsta bindið á bók í ævi og starfi séra Emils Björnssonar. Ekki veit ég hvað þau verða mörg á end- anum, en hitt veit ég að ef vandað verður til verksins í framhaldinu þurfum við engu að kvíða. Þá verð- ur smám saman til ævisaga sem skiptir okkur öll máli, og gæti út- skýrt vendilega breytinguna ís- lensku, frá bændasamfélagi yfir í borgarasamfélag, þannig að við skiljum að við höfum ekki í marga mannsaldra haft allt til alls og ein- hvern tímann voru engin diskótek til! Ég óska þess okkur öllum til handa, að hér sé á ferðinni byrjun á verðmætu verki. Svo getur vissu- lega orðið ef vel er á haldið. Örn Bjarnason. Fósturheimili Fósturheimili óskast í Reykjavíkeðanágrenni fyr- ir tvo 13 ára drengi. Upplýsingar veitir Áslaug Ólafsdóttir félagsráð- gjafi í síma 685911 milli kl. 9.00—16.00 alla virka daga. FÉLAGSSTARF Frá Alþýðuflokksfélögunum í Hafnarfirði Árshátíðin verður 17. janúar. Nánar auglýst sí.ðar. Skemmtinefndin Stofnfundur Alþýðuflokksfélags Kjalarness verður haldinn í Félagsheimilinu Fólkvangi mánudag- inn 12. janúar klukkan 20:30. Dagskrá: 1. Fundarsetning. 2. Ályktun um félagsstofnun. 3. Samþykktir fyrir félagið. 4. Stjórnarkjör. 5. Önnur mál. Fimm efstu menn á lista Alþýðuflokksins i Reykjanes- kjördæmi við komandi Alþingiskosningar, þau Kjartan Jóhannsson, Karl Steinar Guðnason, Rannveig Guð- mundsdóttir, GuömundurOddsson og Elin Harðardótt- ir mæta á fundinum. Allt áhugafólk velkomið. Undirbúningsnefnd. ARGUS/SlA IÐNLÁNASJÓÐUR IÐNAÐARBANKINN Lækjargötu 12, 5. hæð Reykjavík, sími 20580. Útflutningsábyrgð IÐNLÁNASJÓÐS er framseljanleg til banka eða annarra lána- stofnana. Með þeim hætti getur útflytj- andi aukið lánstraust sitt í viðskiptabanka sínum. Fyrir útflutningsábyrgð er greidd þóknun, mismunandi eftir aðstæðum, frá 0,4% — 1,5% af heildarfjárhæð hverrar vörusend- ingar eða andvirði þjónustugreiðslu. Með þessari nýju þjónustu, sem eykur öryggi í útflutningsviðskiptum, vill Iðn- lánasjóður leggja sitt af mörkum til að örva og efla íslenskan útflutning. Skrifið eða hringið eftir upplýsinga- bæklingi og umsóknareyðublöðum. Útflutningsábyrgð IÐNLÁNASJÓÐS tek- ur til viðskiptaáhættu og stjórnmála- áhættu og tryggir útflytjandann að 80% ef greiðslufall verður á kröfu hans af þess- um ástæðum. IÐNLÁNASJÓÐUR veitir útflutnings- ábyrgð en í henni felst: • Að taka að sér að tryggja lán sem bankar eða aðrar lánastofnanir veita innlendum framleiðendum vöru eða þjónustu til fjármögnunar á útflutn- ingslánum sem veitt eru eða útveguð erlendum kaupendum. • Að tryggja kröfur íslenskra útflytjenda á hendur erlendum kaupendum enda hafi þær orðið til vegna útflutnings á íslenskum vörum eða þjónustu. LITrLYTJANPI ? ER TRYGGT AÐ ERLENDI KAUPANDINN STANDI SKIL Á GREIÐSLUM? MV ÞJÓNUSTA VIÐ ÍSLENSKA LITFLVTJENDUR Iðnlánasjóður hefur opnað TRYGGINGADEILD ÚTFLUTNINGSLÁNA. Nýja deild sem býður íslenskum útflytjendum áður óþekkta þjónustu — ÚTFLUTNINGSABYRGÐ. Þeir sem flytja út vörur eða þjónustu geta keypt ábyrgð á kröfu sem þeir eiga á erlenda viðskiptamenn. Með útflutningsábyrgðinni dregur þú úr eigin áhættu og tryggir þig fyrir skakkaföllum í rekstrinum vegna vanskila.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.