Alþýðublaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 8
◄ Jón Sigurðsson 1. sætl Forstjóri Þjóðhagsstofnunar, einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í efnahags- og atvinnumálum um langt skeið, við góðan orðstír og mikla reynslu af slíkum störfum á alþjóðavettvangi. Framboð hans er andstæðingunum jafn mikið áhyggjuefni og það er jafnaðarmönnum fagnaðarefni. ◄ Jóhanna Sigurðardóttlr 2. sætl J Alþingismaður. Hefur áunnið sér virðingu langt út fyrir flokksmörk sem einn dugmesti þingmaðurinn og skeleggasti málsvari velferðarmála og almannatrygginga á Alþingi. Um hana hefur formaður flokksins sagt að hún hafi dugaö málstaö kvenna betur en samanlagður Kvennalistinn. Heyrst hefur aö Tannlæknafélagið sé ekki jafnhrifið af Jóhönnu! ◄ Jón Baldvirt Hannibalsson 3. sætl Formaður Alþýðuflokksins. Hefur á stuttum formannsferli leitt Alþýðuflokkinn upp úr öldudalnum til öndvegis I íslenskum stjórnmálum, gert hann að næststærsta flokki þjóðarinnar. Fáir íslenskir stjórnmálamenn standa Jóni Baldvin jafnfætis í sókndirfsku og málflutningi sem hittir í mark. Margrét Heinreksdóttir ► 7. saeti Fréttamaður og lögfræðingur. Einn vandvirkasti fjölmiðlamaður okkar, með langa reynslu af dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi og sérþekkingu á alþjóðamálum, vandamálum þróunarríkja og mannréttindamálum. Hún er fyrrverandi formaður Amnesty International á íslandi. Hinrik Greipsson ► 8. sæti Formaður Sambands islenskra bankamanna og forstöðumaður hagdeildar Fiskveiðasjóðs. (Ijósi þeirrar endurskipulagningar, sem framundan er á bankakerfinu, - þótt núverandi stjórnarflokkar hafi veigrað sér við að takast á við hana, - er sérstakur fengur að slíkum liðsmanni úr forystu bankamanna. Jóna Möller ► 9. sæti Yfirkennari í Kópavogsskóla og virk í félagsmálastarfi innan stéttar sinnar og samtaka málfreyja. ◄ Sigþór Sigurðsson 13. sæti Nemandi og yngsti frambjóðandinn, nítján ára að aldri. Hann er formaður ' Nemendafélags Fjölbrautaskólans i Breiðholti, stærsta framhaldsskóla landsins, en það félag hefur m.a. vakið athygli fyrir að ganga fram fyrir skjöldu í baráttunni gegn alnæmi. ◄Sjöfn Sigurbjörnsdóttir 14. sæti Kennari og formaður framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins, fyrsta konan sem gegnir því starfi. Sjöfn er kunn af röggsömu starfi að borgarmálum fyrir hönd flokksins og var borgarfulltrúi í Reykjavík I tíð fyrrverandi meirihluta. ◄ Valgerður Halldórsdóttir 15. sæti Nemandi í stjórnmálafræöi við Háskóla (slands á lokaári og virkur þátttakandi í starfi ungliðahreyfingar Alþýðuflokksins. Ragna Bergmann ► 19. sæti Formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar, með langa reynslu af verkalýðsbaráttu og starfi I þágu Alþýðuflokksins. Pálmi Gestsson ► 20. sæti Leikari. Einn hæfileikamesti og vinsælasti leikari sinnar kynslóðar, þjóökunnur af frammistöðu sinni á leiksviði, í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Sigurlaug Kristjánsdóttlr ► 21. sæti Kennari við Tækniskóla (slands. Enn einn afbragðs liðsmaðurinn úr röðum kennarastéttarinnar á framboðslista Alþýðuflokksins, með drjúga reynslu af félagsmálastarfi. ◄ Ólafur Ágústsson 26. sæti Verkamaður við Álverið í Straumsvík og virkur þátttakandi í starfi Alþýöuflokksins. ◄ Lýður S. HJálmarsson 25. sætl Nemandi og einn fulltrúi ungu kynslóðarinnar á framboðslistanum. Lýður er jafnframt stjórnarmaður I Öryrkjabandalaginu. ◄ Guðrún Hansdóttir 27. sæti Bankastarfsmaður, fyrrverandi formaður starfsmannafélags Landsbankans og hefur beitt sér í jafnréttisbaráttunni. Atli Heimir Sveinsson ► 33. sæti Tónskáld. Eitt snjallasta og fjölhæfasta tónskáld þjóðarinnar, jafnvígur á vinsælar dægurvísur og flóknar óperur, sem borið hafa hróður hans langt út fyrir landsteinana. Hefur öðrum mönnum fremur gert sígilda tónlist að almenningseign með landskunnum útvarpsþáttum. Gunnar Dal ► 32. sæti Heimspekingur og skáld, höfundur fjölmargra bóka, skáldsagna, Ijóðabóka og heimspekiverka, auk þess sem hann er virtur og vinsæll kennari. Emelía Samúelsdóttir ► 31. sæti Húsmóðir. Kunn af atorkumiklu starfi í þágu Alþýðuflokksins og Alþýðublaðsins um langt árabil. Formaður skemmtinefndar flokksins í Reykjavik I fjölda ára og eina konan sem gegnt hefur formennsku í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.