Alþýðublaðið - 19.02.1987, Síða 9
◄ Lára V. Júlíusdóttlr
4. sætl
Lögfræðingur Alþýðusambands
íslands og formaður
Kvenréttindafélags Islands. Nýr
og öflugur baráttumaður fyrir
hagsmunum kvenna og jafnrétti,
með sterk tengsl við
launþegahreyfinguna.
4 Jón Bragl BJarnason
5. sæti
Lifefnafræðingur og prófessor við
Háskóla Islands. Frumkvöðull
nýrrar framtíðargreinar,
liftækninnar, og verðugur fulltrúi
þeirra ungu vísindamanna, sem
móta nú svipmót og atvinnuhætti
þjóðfélags okkar, í náinni og
fjarlægari framtið.
◄ Björgvin
Guömundsson
6. sæti
Viðskiptafræðingur. Einn af
reyndustu forystumönnum
Alþýðuflokksins í Reykjavík og
formaður fulltrúaráðsins í
borginni. Björgvin var
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins í 12
ár. Hann gjörþekkir sjávarútveg
og fiskútflutning, var forstjóri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
rekur nú eigið fyrirtæki á sviði
fiskútflutnings.
Óttar Guðmundsson ►
10. sæti
Yfirlæknir á Vogi, þar sem glímt
er við sívaxandi vímuefnanotkun
landsmanna, - verkefni sem er
jafn aðkallandi og það er
vandasamt. Óttar er ötull
baráttumaöur fyrir umbótum í
heilbrigðismálum og heilsugæslu.
Björn Björnsson ►
, 11. sæti
Hagfræðingur Alþýðusambands
Islands. Hefur áunnið sér
almennt traust og virðingu, bæði
innan verkalýðshreyfingarinnar
og utan, fyrir málefnalega
framgöngu fyrir hönd samtaka
launafólks.
Aða/heiður
Fransdóttir ►
12. sæti
Fiskverkakona og stjórnarmaður
í Verkakvennafélaginu
Framsókn. Aðalheiöur hefur verið
trúnaöarmaður verkafólks í
stærsta frystihúsi landsins,
Granda hf„ og er atkvæðamikil i
hagsmunabaráttu verkakvenna.
◄ Bjarni Sigtryggsson
16. sæti
Aðstoðarhótelstjóri á Hótel Sögu
og sérmenntaður á sviði
ferðaþjónustunnar, sem er
framtíðaratvinnugrein á Islandi.
Bjarni er jafnframt kunnur frétta-
og dagskrárgerðarmaður.
◄ Hildur Kjartansdóttir
17. saéti
Varaformaður Iðju, félags
iðnverkafólks og talsmaður
stéttarinnar innan raða
jafnaðarmanna. Einn af niu
forystumönnum
launþeasamtaka, sem eiga sæti
á þessum framboðslista.
◄ Regína Stefnisdóttir
18. sæti
Hjúkrunarfræðingur. Verðugur
fulltrúi heilbrigðisstéttanna, sem
hún tekur nú þátt i að móta og
mennta í starfi sínu sem kennari
í hjúkrunarfræðum.
Alfreð Gíslason ►
22. sæti
Handknattleiksmaður og
glæsilegur fulltrúi iþróttafólks.
Leikur nú með vesturþýska liðinu
Essen.
Björg Kristjánsdóttir ►
23. sæti
Húsmóðir, - ekki „bara
húsmóðir", heldur verðugur
fulltrúi mikilvægrar starfsstéttar
og hefur tekið virkan þátt f starfi
Kvenfélags Alþýðuflokksins í
Reykjavík.
Jóhanna
Vilhelmsdóttir ►
24. sæti
Skrifstofumaður og einn af
forystumönnum
verslunarstéttarinnar sem
stjórnarmaður í
Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur.
◄ Þorsteinn Jakobsson
28. sæti
Stýrimaður hjá Ríkisskipum um
langt skeið, en er nú starfsmaður
Reykjavikurhafnar. Einn af
ötulustu liðsmönnum í flokksstarfi
Alþýðuflokksins.
■4 Hörður Filippusson
29. sæti
Dósent i lifefnafræði við Háskóla
islands. Vel metinn kennari og
vísindamaður í þýðingarmikilli
◄ Eggert Jóhannsson
30. sæti
Yfirlæknir við Borgarspítalann,
þar sem hann gegnir starfi
forstöðumanns
rannsóknardoildar. Virtur fulltrui
læknastéttarinnar.
L
:
Guðni Guðmundsson ►
34.-sæti
Rektor Menntaskólans í
Reykjavik, sögufrægasta
skólaseturs þjóöarinnar.
Gylfi Þ. Gíslason ►
36. sæti
Prófessor og fyrrverandi
formaður Alþýðuflokksins. Einn
virtasti stjórnmálaleiðtogi
íslendinga á þessari öld,
þingmaður Reykvíkinga í 32 ár
samfellt og menntamálaráðherra
í 15 ár. Hefur auðgað íslenskt
þjóðlíf og menningu með
þekkingu sinni og listfengi
umfram flesta aðra
stjómmálamenn og skipar nú
heiöurssætið á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Rögnvaldur
Sigurjónsson ►
35. sæti
Píanóleikari og einn fremsti og
frægasti tónlistarmaður landsins.