Alþýðublaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 16
í öruggum höndum hjá OtC!HVtl« Sumaráætlun ATLANTIK er komin út. Sextán síöna litprent- aöur bæklingur með myndum og upplýsingum auk fjögurra síðna veröskrár. Við bjóðum þér bækl- inginn á skrifstofunni. Páskaferðir. Því ekki að hrista af sér vetrardrungann i hrífandi ferð til fjalllendis Sviss 11.-20. apríl? Þar býðst glæsileg gisting á Axenfels, nýju einkar vönduðu hóteli. Öll herbergi með síma, sjónvarpi og útvarpi, míníbar, svölum og baði. Páskaferð til Mallorka. Vinnudagarnir eru fáir sem tapast og á þessum tíma þráir fólk sólaryl. Islenskur fararstjóri tekurá móti farþegum við kom- una. Flogið til Palma 15. apríl og ueim- leiðis er haldið þann 29. apríl. Verðdæmi: Hjón með tvö börn. Kr. 22.000 á fjöl- skyldumeðlim. Á Mallorka bjóðum við upp á fjögur hótel. Royal Playa de Palma, Roj- al Jardin del Mar, Royal Sa Coma og Royal Torrenova. Allt gististaðir í sér- flokki. Til þess að taka eitt dæmi um aðbúnað má skoða Royal Jardin del Mar. Allar íbúðir hótelsins hafa svalir að sjó, eldhús, baðherbergi, stofu og svefn- herbergi. Á hótelunum er auk þess skemmtidagskrá sex daga vikunnar. Á næstu grösum eru klúbbar, veitingastað- ir, þjónustufyrirtæki, dansaðstaða og aðstaða til hvers kyns íþróttaiðkana. Verðdæmi fyrir hjón með tvö börn í þrjár vikur i júlí: Kr. 28.300 á fjölskyldumeðlim. Brottfarir til Mallorka í sumar: apríl 15. 29. maí 23. júní 1. 13. 22. júlí 4. 13. 25. ágúst 3. 15. 24. sept. 5. 14. 26. okt. 5. Sumarhús við sjó. Enn bjóðum við vinsælar ferðir í Weissenhauser - Strand sumarhúsin við strendur Eystrasaltsins norður af Hamborg. íþrótta- og tómstundaað- staða er með því besta sem gerist í Evrópu. Golf, tennis, keiluspil, billjard. Frá húsunum er stutt til Kaupmannahafn- ar með börnin í Tívolí eða á Strikið. Enn styttra er í Hansaland sem er feikistórt leiktækja-, skemmtana- og útivistarsvæði í nágrenninu. íslenskur fararstjóri á staðnum svarar öllum spurningum. Flogið er beint til Hamborgar. Tekið á móti farþegum og ekið á áfangastað. Hægt er að velja um tvo kosti og báða góða. Sumarhús fyrir 2-8 eða ibúð í þriggja hæða íbúðarbyggingu á svæðinu. Verðdæmi fyrir hjón með tvö börn í hálfan mánuð: Kr. 20.900 á fjölskyldumeðlim. Siglingar, sérgrein Atlantik.skhfstof an hefur einkaumboð fyrir hið óviðjafnanlega skipafélag Royal Caribbean. Sé markmiðið munaður og viðurgerningur á heimsmælikvarða er sigling með Royal Caribbean rétti kosturinn. Unnt er að velja milli siglinga í 7-17 daga með ólíkum áfangastöðum. Lúxusferð. Verð frá kr. 71.000 á mann. Heillandi heimsborgir. Vinsældir stórborg- arferða aukast stöðugt. Við bjóðum upp á flug og bil til Hamborgar, Amsterdam, Lúxemborgar, Kaupmannahafnar, Glasgow, Rómar, Parísar og London. Verðdæmi Hamborg: Fimm saman í bíl í viku. Kr. 14.400 á mann. Rútuferðir. Notaleg ferð um Norður-Þýskaland. í ferðinni er meðal annars farið í borgarskoðanir í Hamborg, Bremen og Hannover. Ferðir 4.-14. júní og 27. ágúst - 6. september. Myndræn ferð um Mið-Evrópu. Heillandi ferð um fögur fjallahéruð og skóga. Flogið er til Frankfurt og þaðan ekið áfram. Meðal áfangastaða eru Heidelberg, Freiburg, Svarti- skógur, Tyrol hérað, Innsbruck, Vínarborg, Múnchen og Núrnberg. Ferð 2. - 23. ágúst. Barnaafsláttur Það koma allir brosandi heim ^VTMC FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1 SÍMAR 28388 - 28580 Umboö a Islandi fyrir DINERS CLUB INTERNATIONAL

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.