Alþýðublaðið - 25.02.1987, Side 3

Alþýðublaðið - 25.02.1987, Side 3
Miðvikudagur 25. febrúar 1987 Silfur hafsins Ný heimildarkvikmynd um saltsíldariðnað íslendinga Nú er lokið gerð heimildarkvik- myndar um saltsíldariðnað íslend- inga, sem undirbúningur hófst að haustið 1979. Ráðgert er að frum- sýna myndina, sem er um klukku- stundar löng á Höfn í Hornafirði, sunnudaginn 22. febrúar n.k. Vik- una þar á eftir verður myndin sýnd á öllum helstu söltunarstöðunum á Austfjörðum. Síðan verða sýningar á Suðurnesjum, Þorlákshöfn, Vest- mannaeyjum og Akranesi, áður en myndin verður sýnd í Reykjavík. Lifandi myndir h/f, sem nú heldur upp á 10 ára starfsafmæli, fram- leiddi myndina fyrir félög síldar- saltenda á Suður- og Vesturlandi og Norður- og Austurlandi með styrk frá Síldarútvegsnefnd. Um gerð myndarinnar Árið 1979, þegar minnst var ald- arfjórðungsafmælis Félags síldar- saltenda á Suður- og Vesturlandi, kom fram sú hugmynd að láta gera kvikmynd um saltsíldariðnað ís- lendinga. Hugmynd þessi fékk góð- ar undirtektir og varð að samkomu- lagi við Félag síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi að ráðast í gerð slíkrar kvikmyndar. Undirbúningsvinna vegna hand- ritsgerðar hófst í nóvember árið 1979. Veturinn 1980—81 var lokið vinnu við fyrstu útgáfu kvikmynda- handritsins. Handritið tók síðan talsverðum breytingum á fram- leiðslutímanum, vegna þess hve efnið er yfirgripsmikið og vanda- samt var að koma því fyrir í einni 20 ára Hamra- hlíðarhátíð Menntaskólinn við Hamrahlíð minnist nú 20 ára afmælis síns. Sér- stök afmælisdagskrá verður í skól- anum fimmtudaginn 26. þ.m., og verður þar margt til skemmtunar og fróðleiks. Dagskráin hefst klukkan 20.30 og verður Þorvarður Helga- son kynnir. Dagskráin verður á þessa leið: 1. Hljóðfæraleikur nemenda. 2. Ávarp: Guðmundur Arnlaugs- son. 3. Söngur: Kristinn Sigmunds- son. 4. Minningar frá skólaárunum: Sigurður G. Tómasson. 5. Sögur úr skólalífinu: Örnólfur Thorlacius. 6. Létt jazzsveifla: Tómas Einars- son og fl. 7. Sögur úr skólalífinu: Örnólfur Thorlacius. 8. Söngur: Björk Guðmundsdótt- ir. 9. Danssýning: Ástrós Gunnars- dóttir og fl. 10. Lokasenna: íslenskudeild M.H. 11. Söngur: Valgeir, Egill, Diddú og e.t.v. fleiri. 12. Fjöldasöngur undir stjórn kennara. 13. Afmæliskaffi á Miðgarði við jazzundirleik. Sjötta íslandsmeistarakeppnin i freestyle dönsum er á næsta leiti. Tónabær og íþrótta- og tóm- stundaráð standa saman að keppn- inni sjötta árið i röð. Dansráð ís- lands sér um faglegu hliðina. Is- landsmeistarakeppnin hefur mæist .mjög vel fyrir og verður keppt um titilinn „íslandsmeistari unglinga 1987“ vegleg verðlaun fylgja þeim titli. Keppnisflokkar eru tveir: Ein- staklingsdans. Hópdans (hópur er minnst 3 einstaklingar). Fyrirkomulag: Allir íslenskir ungíingar á aldrinum 13—17 ára þ.e. fæddir 1970—1973 að báðum árum meðtöldum hafa rétt til þátt- töku. Fyrirkomulag: Dagana 5. 6, og 7. mars fer forkeppni fram um land allt. Líklega verður keppt á átta kvikmynd, sem væri innan við klukkustundar löng. Af þessum sökum er t.d. sleppt að geta um per- sónur, sem koma við sögu bæði í nútíð og fortíð og engin viðtöl eru í myndinni. Mikil vinna fór í að leita að göml- um kvikmyndum og ljósmyndum, vegna myndgerðarinnar. Við þessa leit hafðist upp á mörgum merki- legum kvikmyndum, sem legið höfðu í gleymsku bæði hér heima og erlendis og koma nú sumar hverjar fyrir sjónir almennings í fyrsta sinn í Silfri hafsins. Gerð myndarinnar stóð síðan yf- ir með hléum fram á haustið 1986. Kvikmyndataka hófst að marki á síldarvertíðinni 1981—82 en megin hluti myndarinnar er tekin á árun- um 1984—1985. Helstu upptöku- staðir voru: Vopnafjörður, Seyðis- fjörður, Eskifjörður, Stöðvarfjörð- ur, Djúpivogur, Hornafjörður, Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn, Grindavík, Keflavík og Reykjavík. í kvikmyndinni er notuð tónlist úr ýmsum áttum, bæði innlend og erlend. Þeirri megin stefnu er fylgt, að tónlistin sé í samræmi við tíðar- andann á hverjum tíma. Silfur Hafsins — efnisyfÍFÍit Heimildarkvikmyndin Silfur Hafsins fjallar um saltsíldariðnað íslendinga, bæði fyrr og nú. í upp- hafi myndarinnar er gerð örstutt grein fyrir áhrifum síldarinnar á sögu Evrópu frá miðöldum til loka síðustu aldar og gildi síldveiða og síldarsöltunar fyrir íslendinga, eftir að byrjað var að salta síld hér á landi fyrir réttum 100 árum. Kjölfesta myndarinnar er þó í nú- tímanum, þar sem lýst er einu starfsári í þessari atvinnugrein. Starfsemi Síldarútvegsnefndar og félaga síldarsaltenda er kynnt, fylgst er með undirbúningi samn- inga og gangi samningaviðræðna. Samvinnubankinn: Hávaxtabók Um síðustu áramót var kjörum Hávaxtareiknings breytt þannig að hann henti betur sparnaði til lengri tíma. í kjölfar þess var stofnaður nýr hávaxtareikningur í bókarformi undir nafninu Hávaxtabók. Frá og með 21. febrúar næstkom- andi munum við bjóða Hávaxta- kjör á tékkareikninga Iaunafólks. Þau hávaxtakjör felast í dagvöxt- um, þ.e. vextir eru reiknaðir daglega og hækka með hækkandi inn- stæðu. Jafnframt hefur Launavelta bankans sem tengist launareikning- um verið endurskoðuð og við hana bætt láni til skamms tíma, eftir 3ja mánaða viðskipti. Einnig viljum við vekja athygli á nýjum vöxtum frá 1. febr. s.l. þar sem m.a. vextir af almennum spari- sjóðsreikningum voru hækkaðir í 10%. stöðum þ.e. Reykjavík, Egilsstöð- um, Akranesi, Akureyri, ísafirði, Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Selfossi. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist hverjum for- keppnisstað þremur dögum fyrir kepjmi. Urslitakvöldið verður haldið föstudaginn 13. mars með miklum glæsibrag í Tónabæ og þar verða nýir íslandsmeistarar krýndir úr hópi þeirra hópa og einstaklinga sem komust áfram úr forkeppnum. Unglingar sem hyggja á þátttöku geta fengið æfingartíma sér að kostnaðarlausu á viðkomandi stað og er þeim bent á að panta tíma sem allra fyrst þar sem búist er við mik- illi aðsókn. Að öllum líkindum mun verða sjónvarpað frá úrslitakvöldi keppn- innar. Undirbúningi í sjávarplássunum fyrir komu síldarinnar eru gerð skil, markaðs- og sölumálin eru kynnt og fylgst er með veiðum, söltun og útskipun. Inn í þessa frásögn er fléttað sögulegum köflum, þar sem m.a. er fjallað um ástandið í síldarsölu málum á fyrstu áratugum aldarinn- ar, skipulagningu atvinnugreinar- innar og stofnun Síldarútvegs- nefndar, mikilvægi síldarútvegsins fyrir þjóðarbúið á kreppuárunum 1930—40, síldarleysissumrin eftir heimsstyrjöldina síðari, nýjar veiði- aðferðir, sem leiddu til síldaræv- intýrisins á sjöunda áratugnum, hrun norsk-íslenska síldarstofnsins kringum 1968, og uppbyggingu saltsíldariðnaðarins eftir síldveiði- bannið 1972—74. Handrit/klippmg/stjórn: Er- lendur Sveinsson, Sig. Sverrir Páls- son. Þulir: Guðjón Einarsson, Rób- ert Arnfinnsson. Kvikmyndun: Sig. Sverrir Pálsson, Þórarinn Guðna-' son. Hljóð: Erlendur Sveinsson, Sigfús Guðmundsson. Kort: Gunn- ar Baldursson. Öflun heimilda- og myndefnis: Erlendur Sveinsson. Ráðgjöf: Margeir Jónsson, Hilmar Bjarnason, Jakob Jakobsson, Hreinn Ragnarsson o.fl. Fram- leiðsla: Lifandi myndir h/f fyrir Fé- lag síldarsaltenda á suður- og vest- urlandi, Félag síldarsaltenda á norður- og austurlandi með styrk frá Síldarútvegsnefnd. Fiskifélag íslanðs: Utflutningur sjávarafurða Heildarútflutningur sjávarafurða 1986 nam 718.764 tonnum, að verð- mæti 35.469.002 þúsund krónum. Árið 1985 námu afurðirnar 698.014 tonnum, að verðmæti 25.939.591 þúsund krónum. Á milli áranna hefur magnið aukist um 3% og virði þeirra um 36.7%. Heildarvöruútflutningur lands- manna 1986, nam 44.967.8 milljón- um króna. Samkvæmt því er hlut- fall sjávarafurða 78.9%. í dollurum talið var virði út- fluttra sjávarafurða 861 milljón 1986, á móti 625.5 milljónum 1985. Sé miðað við S.D.R., sem hefur haldið betur verðgildi gagnvart . krónunni, nam virði sjávarvörunn- ar 735 milljónum en var 611.9 millj- ‘ónir 1985. Árið 1981, sem skilaði hvað mestu raunvirði, nam verðmæti út- : fluttrar sjávarvöru 713.2 milljónum idollara, eða rúmlega 608.5 milljón- um S.D.R. Þrátt fyrir rýrnandi verðgildi |U.S. dollar, sem er aðal gjaldmiðill fyrir seldar sjávarafurðir, hefur aldrei í sögunni, fengist meira verð- mæti fyrir sjávarfeng landsmanna, en árið 1986. Stórfundur um námslánin Námsmannahreyfingarnar Iðn- nemasamband íslands, Stúdenta- ráð Háskóla íslands, Bandalag ís- ; lenskra sérskólanema og Samband íslenskra námsmanna erlendis hafa ákveðið að halda stórfund um lána- málin í Háskólabíói miðvikudaginn 25. febrúar 1987 kl. 14.00. Til fundarins eru boðaðir for- ystumenn þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Með þessum fundi vilja náms- menn krefja forystumenn stjórn- málaflokkanna svara um hver stefna flokkanna sé í málefnum Lánasjóðs ísl. námsmanna, þar sem kosningar fara nú í hönd. Fulltrúar flokkanna verða: Friðr- ik Sophusson Sjálfstæðisflokki, Svavar Gestsson Alþýðubandalagi, Jón Sigurðsson, Alþýðuflokki, Finnur Ingólfsson Framsóknar- flokki og Kristín Halldórsdóttir Kvennalista. Form fundarins verður með þeim hætti að fulltrúar fiokkanna og einn fulltrúi námsmanna fiytja stuttar ræður. Þar á eftir verða pall- borðsumræður þar sem stjórn- málamennirnir verða krafðir svara. Lúðrasveit Hafnarfjarðar: Hraustlega blásið laugardagimt 28. Laugardaginn 28. febrúar n.k. heldur Lúðrasveit Hafnarfjarðar sína árlegu tónleika. Tónleikarnir verða í íþróttahús- inu v/Strandgötu og hefjast kl. 14:30. Stjórnandi Lúðræ>veitar Hafnar- fjarðar er Hans ^wder, en hann hefur verið stjórnarfrfi sveitarinnar í rúm tuttugu ár. Kynnir á hljómleikunum verður Markús Á. Einarsson veðurfræð- ingur. Gröfumaður Haf narf jarðarbær óskar að ráða gröf umann á JCB vél, viðkomandi þarf að hafa tilskiiin vinnuvéla- réttindi. Allar upplýsingar gefur yfirverkstjóri f áhaldahúsi. Bæjarverkfræðingur Útboð Innkaupastofnun ReykjavíkurbOFgar óskar eftir tilboðum í gatnagerðirog lagnirásamt lögn hita- veitu fyrirGatnamálastjórann í Reykjavík og Hita- veitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavik gegn kr. 20.000,- skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10. mars n.k. kl. 11. INNKAUPASTO^NUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Postholt 878 101 Reykjavik Ritari Laust er til umsóknar starf skólaritara við Flens- borgarskóla. Umsóknir er greini aldur og fyrri störf skulu berast Bæjarskrifstofunum f Hafnar- firði eigi sfðar en 27. feb. n.k. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði Frá menntamálaráðuneytinu: Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu( fræðslustjóra ( Norðurlandsumdæmi eystra framlengist til 1. apríl n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavfk. Menntamálaráðuneytið Auglýsing til mjólkurframleiðenda er ætla að taka tilboði Framleiðnisjóðs um söiu eða leigu fullvirðisréttar næsta haust. Rfkissjóðurmun fráog með23. febrúar1987 til og með 31. ágúst 1987 gefa þeim mjólkurframleið- endum er ætla að taka tilboði Framleiðnisjóðs næsta haust kost á þvf að hætta framleiðslu nú þegar. Fyrir hvern Itr. af ónotuðum fullvirðisrétti þessa verðlagsárs mun ríkissjóður greiða 15 kr. Tilboð þetta er háð samþykki viðkomandi búnað- arsambands. Eigi verður leigt minna magn hjá hverjum fram- leiðanda, nema sérstakar ástæður liggi fyrir, en sem svarar til 20% af úthlutuöum fullvirðisrétti hans verðlagsárið 1986/87. Greiðsla leiguupphæðar fer fram eigi sfðar en þremur vikum frá undirskrift samnings. Skrifleg umsókn sendist til landbúnaðarráðu- neytisins Arnarhvoli, 150 Reykjavík, en það veitir jafnframt allar nánari upplýsingar. Landbúnaðarráðuneytið, 19. febrúar 1987 Danskeppiti 1987

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.