Alþýðublaðið - 03.03.1987, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 03.03.1987, Qupperneq 2
2 Þriöjudagur 3. mars 1987 alþýðu- Alþýðublaðiö, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Kitstjórar: Árni Gunnarssnn og Ingólfur Margeirsson Blaðamcnn: Örn Bjarnason, Asa Björnsdóttir, Kristján Þor- valdsson og Jón Danielsson I ramkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot Alprcnt hf„ Ármúla 38 Prentun: Blaöaprcnt hf„ Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 RITSTJÓRNARGREIN —. —. Við upphaf kosningabaráttu Línumar eru farnar aö skýrast í íslenskum stjórnmálum. Framboðslistar fyrir næstu al- þingiskosningar eru komnir fram og fyrsti kosningaskjálftinn gefur glöggt til kynna að bæöi Sjálfstæðisflokkur og Alþýöubandalag líta á Alþýðuflokkinn sem sinn skæðasta keppinaut um hylli kjósenda. Það er ennfremur Ijóst af yfirlýsingum for- ystumanna núverandi stjórnarflokka, að þeir munu stefna að áframhaldandi stjórnarsam- starfi, haldi þeir þingstyrk sínum í kosningun- um í vor. Það þýðir einfaldlega að ísland verði áfram í viðjum úreltrar atvinnustefnu og svefn- genglar í velferðarmálum halda áhrifum sínum í landsstjórninni. Eina vonin til breytinga er mikið fylgi Alþýðuflokksins í komandi kosn- ingum. Þetta er staðreynd sem menn verða að gera sér grein fyrir. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar kalla þær hag- stæðu breytingar sem urðu á heildarstærðum þjóðarbúsins á síðasta ári, árangur stjórnar- stefnunnar. Réttnefni er hins vegar happdrætt- isvinningur. Góðærisvinningurinn er skamm- góður vermir ef ekki verður gerð bylting á grundvelli efnahagslífsins. Þar hefur Alþýðu- flokkurinn mest til málanna að leggja. Þar er sérstaða hans skýrust. Og þar er málefnastaða ríkisstjórnarinnar lökust ef litið er til langtíma- hagsmuna þjóðarinnar. Jón Sigurðsson, efsti maður á lista Alþýðu- flokksins í Reykjavík flutti athyglisverða ræðu á fundi Alþýðuflokksfélaganna á Akureyri s.l. sunnudag. Jón nefndi nokkur dæmi þess að núverandi ríkisstjórn hafi hvorki sinnt fram- faramálum né verið nægilega vakandi við jafn- vægisstjórn í efnahagsmálum frá ári til árs, og lagði fram stefnu Alþýðuflokksins til úrræða. Helstu dæmi Jóns voru eftirfarandi: • Eftir fjögurra ára stjórnarsetu er skattakerfið í rúst. Alþýðuflokkurinn vill gera heildarend- urskoðun skattakerfisins að forgangsverk- efni nýrrar ríkisstjórnar. Markmiðið er einfalt, réttlátt og heilsteypt skattakerfi. • Lífeyrissjóðamálið er i einum hnút í höndum núverandi ríkisstjórnar. Alþýðuflokkurinn vill þjóóaratkvæði um málið og leggur til að komið verði á einum Iífeyrissjóði fyrir alla landsmenn. • Offramleiðslustefna stjórnarflokkanna í landbúnaðarmálum erendanlega gengin sér til húðar. Alþýðuflokkurinn vill verja fé til vöruþróunarog sölu áframleiðslunni, stöðva flótta úr sveitum og miða að hagkvæmum sjálfsbjargarbúskap. • Alþýðuflokkurinn styður frjálst fiskverð og fiskmarkaði hér á landi og vill sveigjanlegra veiðileyfakerfi í samráði við aðila innan sjáv- arútvegsins. • Ríkisstjórnin hefur skilað auðu í endurnýjun bankakerfisins. Alþýðuflokkurinn vill upp- stokkun bankakerfisins, og að alhliða bankar keppi á jafnræðisgrundvelli sín á milli. • Húsnæðislánakerfið er hrunið. Alþýðuflokk- urinn vill treysta fjárhagsgrundvöll húsnæð- islánakerfisins með auknum beinum fram- lögum úr ríkissjóði og stuðla að því að ungir jafnt sem aldnir eigi kost á kaupleigu- eða búseturéttaríbúðum. I upphafi kosningabaráttunnar skulu kjósend- ur þess minnugir að ríkisstjórnin stærir sig af því að hafa náð árangri í efnahagsmálum á sama tíma og augljóst er, að hún hefur látið reka á reiðanum í mikilvægum málum sem varða undirstöðuna sjálfa. Þessu þarf að breyta. Það þarf meiri framsýni, hugrekki og myndarskap. Um þetta snúast komandi kosn- ingar. Þýðingarverðlaun American Scandinavian Foundation 1987 American-Scandinavian Foundation í New York hefur auglýst árleg þýðingarverðlaun sín, sem veitt verða i haust. Verðlaun þessi eru fyrir þýðingar á ensku af Ijóð- um, lausamáli eða leiktexta eftir norrænan höfund, fæddan eftir 1880. Verðlaunin nema 1000 dölum, brons- medalíu og loks verðurþýðingin í heild eðaað hluta birt í tímaritinu Scandinavian Review. Verðlaunin verða af- hent við hátíðlega athöfn í New York. Nánari upplýsingar um reglur og fyrirkomulag má fá í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík (sími: (91)—25000). Menntamálaráðuneytið, 25. febrúar 1987. Sjúkraliðar og aðstoðarfólk Óskast til starfa nú þegar og til afleysinga í sumar, sveigjanlegur vinnutími — lifandi starf. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 91—29133 frá kl. 8—16. Vinnu og dvalarheimili Sjálfsbjargar !S! . ||) Utboð Innkaupastofnun Reykjavikurborgar fyrir hönd Hita- veitu Reykjavlkur er að fara af stað með lokaútboð á smfði og uppsetningu ávinnubúðum að Nesjavöllum. Þeir bjóðendur sem áhuga hafa á að taka þátt í útboði þessu skulu leggja inn nafn og slmanúmer á skrifstofu vora fyrir 7. mars n.k., ennfremur liggja frammi til sýnis á skrifstofu vorri útboðs- og verklýsing ásamt teikning- um á verkinu til og með sama tlma. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Poslholf 878 — 101 Reykjavik Flokksstj órnarfundur Flokksstjórn Alþýðuflokksins kom saman til fundar á Akureyri sl. laugardag. Á fundinum voru af- greiddir allir framboðslistar flokks- ins vegna alþingiskosninganna. Á fundinum fóru fram miklar umræður um byggðamál og flutti Árni Gunnarsson framsögu. Aðrir málaflokkar voru ræddir s.s. lífeyr- issjóðsmál og skattamál. Að loknum flokksstjórnarfund- inum bauð fulltrúaráð Alþýðu- á Akureyri flokksfélaganna á Akureyri flokks- stjórnarmönnum í skoðunarferð og að þeirri ferð lokinni var boðið upp á veitingar í skrifstofu flokksins. Árshátíð Alþýðuflokksfélag- anna var siðan haldin í Alþýðuhús- inu um kvöldið. Neytendasamtökin og Neytendafélag Rvíkur og nágr.: Ríkisstjórnin hefur fengið nægan frest „Vegna þeirra upplýsinga sem fram hafa komið í fjölmiðlum og í umræðum innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar að undanförnu, telja Neytendasamtökin og neyt- endafélag Reykjavíkur og nágrenn- is, mjög brýnt að nú þegar verði settar ítarlega reglur um fram- leiðslu og eftirlit með steinsteypu. Sérstaklega er mikilvægt að sett verði skýr ákvæði um eftirlit, hvernig það skuli framkvæmt og á hvers ábyrgð. Það er sjálfsögð og Dúndurstuð í Stapa Um 6—700 manns komu á Reykjaneshátíð A-listans í Stapa á laugardagskvöld, þegar listinn í kjördæminu var kynntur. „Þetta var sannkölluð stórhátíð“, sagði Karl Steinar Guðnason í sam- tali við Alþýðublaðið í gær. „Það var þvílíkt dúndurstuð að menn muna ekki eftir öðru eins“ Á hátíðinni voru sem áður sagði frambjóðendur kynntir og flutti Guðmundur Oddsson, fjórði mað- ur á listanum, ávarp. Að því loknu hófst spaug og glens þar sem fram komu nokkrir helstu listamenn og skemmtikraftar landsins. Síðan var dansað fram eftir nóttu. eðlileg krafa að neytendur fái ætíð þá vöru og þjónustu sem lofað er samkvæmt vörulýsingu, eða eins og við á um steinsteypu, að varan sé í samræmi við ákvæði byggingar- reglugerðar“, segir í frétt frá Neyt- endasamtökunum og Neytendafé- lagi Reykjavíkur og nágrennis. Ennfremur segir: „í ljósi þess að algengasta fjárfesting almennings er bygging íbúðarhúsnæðis, er sér- staklega mikilvægt að húsbyggj- endum sé tryggt að það byggingar- efni sem þeir eiga kost á, sé ósvikin vara sem stenst tímans tönn. Neytendasamtökin og Neytenda- félag Reykjavíkur og nágrennis munu leita allra mögulegra leiða til þess að tryggja rétt þeirra húsbyggj- enda sem hugsanlega hafa keypt lé- lega eða ónýta steinsteypu á síðustu misserum. Neytendasamtökin og Neytenda- félag Reykjavíkur og nágrennis minna á það, að Alþingi fól ríkis- stjórninni fyrir tveimur árum að, semja frumvarp til laga um sölu varanlegrar vöru. Neytendasamtök- in og Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis telja að ríkisstjórnin hafi þegar fengið nægan frest til þess að semja slíkt frumvarp og hvetja hana til dáða í þessum efnum. t Móöir okkar og tengdamóöir Guðmunda Vilhjálmsdóttir Hofsvallagötu 22 lést að heimili sínu 2. mars Börn og barnabörn t Bjarni Vilhjálmsson Fyrrverandi þjóöskjalavöröur er látinn Kristin Eiríksdóttir og fjölskylda

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.