Alþýðublaðið - 11.03.1987, Síða 4

Alþýðublaðið - 11.03.1987, Síða 4
alþýðu- MíjFu'JT' Miðvikudagur 11. mars 1987 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf Ritstjórar: Árni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor- valdsson og Jón Danielsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot Alprent hf., Ármúia 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Askriftarsíminn er 681866 Nýr starfsmaimastjóri í Hvíta húsinu — Howard Baker er úr leik sem forsetaframbjóðandi í kosningunum 1988. Það kemur hins vegar í hans hlut að vera stoð og stytta Reagans þangað til. Sennilega verður hann mun valdameiri en forsetinn. Þær ákvarðanir sem verða fram- vegis teknar í Hvíta húsinu, verða að vísu teknar í nafni forsetans, en aðeins að fengnu samþykki Howard Baker, að því er fréttaskýr- endur í Washington segja. Baker hefur síðasta orðið. Það er gjaldið sem Reagan forseti verður að greiða vegna vopnasöluhneykslisins. Baker Fyrrverandi þingmaðurinn, Howard Baker frá Tennessee, var í fjögur ár, 1980—1984, formaður meirihluta repúblíkana í öldunga- deild bandaríska þingsins. Hæfi- leikaríkur maður að sögn, en að- hyllist ekki þá hugmyndafræði sem hefur einkennt Reaganstjórnina. Bandarísk dagblöð segja að fyrir hinn harða kjarna hægrirepúblík- ana sé ráðning þessa manns „hið versta kjaftshögg“. Hann er fulltrúi alls þess sem þeir fyrirlíta; tilslak- ana og samningsvilja, bæði gagn- vart demókrötum og „óvininum í austri“. Það var engin eftirsóknarverð staða að taka við starfi starfs- mannastjóra Hvíta hússins einmitt núna, enda munu þeir hafa verið fleiri en einn og fleiri en tveir sem höfnuðu því góða boði. En Baker þykir hafa alla þá hæfileika til að bera sem eru nauðsynlegir til að rétta við þá erfiðu stöðu sem skap- ast hefur. í fyrsta lagi varðar það forsetann sjálfan. Turn-nefndin svokallaða var óvægin í dómum sínum um hann, bæði beint og óbeint. Það mátti lesa milli línanna margt fleira en það sem sagt var berum orðum í skýrslu nefndarinnar um íransmál- ið. Forsetinn þykir hafa verið held- ur ónákvæmur um málsatvik og ekki þykir hann heldur hafa gaum- gæft nægilega afleiðingar póli- tískra ákvarðana. Edmund Muskie, fyrrverandi ut- anríkisráðherra, sem var einn þriggja nefndarmanna í Turn- nefndinni, lét hafa það eftir sér í síðustu viku að hann væri alveg dolfallinn yfir minnisleysi forsetans varðandi vopnasölumálið. Hann sagði ennfremur að Reagan væri auðsjáanlega ekki fær um að gegna starfi sínu. Umkvartanir um slíkt hafa verið algengar upp á síðkastið. í síðustu viku meira að segja úr röðum hátt settra repúblíkana. Einn af ráðgjöf- um forsetans kvartaði yfir því að hann hefði auðsjáanlega átt erfitt með að halda sér vakandi á stuttum fundi með varnarmálaráðherran- um, Caspar Weinberger. Wein- berger hefur síðan, reynslunni rík- ari, notað litskyggnur og fleira þessháttar til að halda athygli for- setans á fundum þeirra, eftir því sem sagt er. Kreppuástand Það er fátt eitt eftir af uppruna- legu starfsliði Reagans. Aðal-ör- yggismálaráðgjafi Reagans í írans- málinu, John Poindexter fékk reisupassann, ásamt nánasta sam- starfsmanni sínum Oliver North of- ursta. CIA-foringinn, William Casey liggur á sjúkrahúsi með heilablóðfall, Robert Gates, mað- urinn sem Reagan tilnefndi sem eft- irmann Casey vill nú draga sig til baka, eftir að hafa fengið slæma út- reið i þinginu. Forveri Poindexters, Robert McFarlane er á batavegi eft- ir sjálfsmorðstilraun, starfsmanna- stjórinn, Donald Regan var látinn hætta í því starfi og allmargir aðrir starfsmenn Hvíta hússins hafa lagt inn uppsagnarbréf. Shultz utanrík- isráðherra og Weinberger varnar- málaráðherra hafa fengið á sig ljót- an stimpil eftir að Turn-nefndin skilaði áliti. Og skýrsla Hirn-nefndarinnar er bara byrjunin. Tvær sérstakar þing- nefndir starfa að áframhaldandi rannsókn íransmálsins, auk margra minni nefnda i báðum deildum þingsins. Rannsóknin snýst aðal- lega um það að hve miklu leyti íransmálið hafi brotið í bága við gildandi bandarísk lög, einkum svokölluð hlutleysislög, lög um vopnaútflutning og sérstök lög um bann við vopnaaðstoð við Contra- skæruliða í Nicaragua, fyrir tíma- bilið frá 1984 og fram í október 1985. Tímaritið Newsweek greindi frá því í síðustu viku að einmitt á þess- um tíma hefðu verið sendir 17 skipsfarmar með vopn og skotfæri til Contra-skæruliðanna og þeim aðgerðum hefði verið stjórnað frá Hvíta húsinu. Langsennilegast er að ekki séu öll kurl komin til grafar í þessu máli. Svo gæti farið að North og Poindexter yrðu leiddir fyrir herrétt og það er ólíklegt að forsetinn telj- ist ekki að einhverju leyti ábyrgur fyrir því sem gerst hefur og því sem enn kann að vera óupplýst. Þegar íransmálið verður komið í höfn, þá verður líka valdatíma Reagans forseta senn lokið. For- setakosningar verða haldnar í Bandaríkjunum 1988 og kosninga- baráttan hefst væntanlega strax í byrjun næsta árs. Howard Baker hefur verið talinn líklegur forseta- frambjóðandi af hálfu repúblíkana og mun þegar hafa verið farinn að hugsa sér til hreyfings þegar honum bauðst staða starfsmannastjóra Hvíta hússins. Þar með er hann úr leik sem frambjóðandi í næstu kosningum, en aftur á móti kemur það í hans hlut að bjarga því sem bjargað verður það sem eftir lifir af stjórnartíð Ronalds Reagan for- seta.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.