Alþýðublaðið - 21.03.1987, Page 3
Laugardagur 21.
3
mars 1987
Listasafn íslands:
Sigurður Sipurðsson
— yfirlitssýning
Laugardaginn 21. mars 1987 kl.
15.00 opnar menntamálaráðherra
Sverrir Hermannsson í Listasafni
íslands yfirlitssýningu á verkum
Sigurðar Sigurðssonar listmálara.
Sýningin spannar allan listferil hans
allt fra skólaárum og þar til á þessu
ári. Á sýningunni eru alls 98 verk,
olíumyndir og pastelmyndir.
Sigurður Sigurðsson fæddist árið
1916 á ísafirði, en fluttist síðar
ásamt foreldrum sínum til Sauðár-
króks. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1937.
Síðan hélt hann utan til Kaup-
mannahafnar og innritaðist í Lista-
akademíuna þar sem hann var við
nám á stríðsárunum 1939—45. Er
heim kom hóf Sigurður kennslu í
Myndlista- og handíðaskólanum.
Gegndi hann því starfi allt til ársins
1980 er hann lét af því fyrir aldurs
sakir. Sigurður var í forystu fyrir
myndlistarmenn um langt skeið og
var m.a. formaður FÍM allt frá
1958—68.
Sigurður kom fram á sjónarsvið-
ið á þeim tíma þegar formalisminn
var að ryðja sér til rúms hér á landi
og voru helstu vinir hans þar
fremstir í flokki. Þrátt fyrir það
hefur Sigurður alla tíð fyrst og
fremst málað landið og hina marg-
breytilegu birtu þess. Þar hafði dvöl
hans í Danmörku afgerandi áhrif á
mótun verka hans. I upphafi ferils
síns málaði Sigurður einnig upp-
stillingar og hin síðari ár hefur
hann verið fremstur íslenskra lista-
manna í gerð portrettmynda.
í tilefni sýningarinnar hefur ver-
ið gefin út vönduð sýningarskrá
með fjölda mynda. í hana ritar Að-
alsteinn Ingólfsson listfræðingur
grein um Sigurð sem nefnist
„Landslag í ljósi“ og birt er brot úr
viðtali Hannesar Péturssonar við
listamanninn úr bókinni Steinar og
sterkir litir sem út kom 1965. Einnig
hefur verið gefið út plakat í lit.
Fræðsla á
vinnustöðum
í framhaldi af fræðslu um eyðni
(alnæmi) í skólum er nú ætlunin á
vegum Landlæknisembættisins að
ná til vinnandi stétta með hliðstæða
fræðslu.
Meginmarkmið hennar eru:
1. Að stuðla að aukinni þekkingu á
sjúkdómnum eyðni (alnæmi)
meðal vinnandi stétta í landinu.
2. Að hvetja einstaklinga til
ábyrgðar varðandi fyrirbygg-
ingu sjúkdómsins til þess að:
— koma í veg fyrir smit og
— hefta útbreiðslu sjúkdóms-
ins.
Haft hefur verið samráð við helstu
samtök launþega (B.S.R.B., B.H.M.
og A.S.Í.) og vinnuveitenda (V.S.Í
Stéttarfélag íslenskra
félagsráðgjafa
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 4. aprll
kl. 13.30 að Lágmúla 7.
Stjórnin.
Laus staða
Tlmabundin lektorsstaða f örverufræði við Ifffræðiskor
raunvfsindadeildar Háskóla íslands er laus til umsókn-
ar. Lektornum er ætlað að stunda rannsóknir og
kennslu á sviði bakteríufræði.
Heimilt er að ráða f þessa stöðu til allt að þriggja ára.,
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vfsindastörf um-
sækjenda, ritsmfðarog rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavfk, fyrir 10. maf n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. mars 1987.
og V.M.S.) um skipulagningu.
Úti á landsbyggðinni verður
fræðslan í höndum heilsugæslu-
stöðva. Á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu sjá hjúkrunarfræðinemar á 4.
ári í Námsbraut í hjúkrunarfræði
við Háskóla íslands um fram-
kvæmd fræðslunnar. Hún er hluti
af kennsluþjálfun nema í heilbrigð-
isfræði. Fræðslan ásamt umræðum
er áætlað að taki um 30 mín og fer
oftast fram í kaffi- eða matartíma.
Haft hefur verið samband við
u.þ.b. 60 vinnustaði í Reykjavík,
sem hafa um 50 einstaklinga eða
fleiri í vinnu. Má þar nefna banka,
verslanir, hótel, verksmiðjur, Póst
og Síma o.fl.
Skúlptúrsýning Hansínu Jens-
dóttur að Kjarvalsstöðum 14—29.
mars 1987. Hún er gullsmiður að
mennt og starfar hjá Jens Guðjóns-
syni gullsmið. Stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og við Myndlistaskólann í
Reykjavík. Var einnig 2 ár í skúlpt-
úrdeild SAIT, í Calgary, Kanada.
Hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráöa fólk til bréfberastarfa hálfan daginn f
Reykjavfk.
Uþþlýsingar hjá póstmeistara og hjá útibússtjórum
pósthúsanna.
Störf námsbrautarstjóra við náms-
brautir í hjúkrunarfræði og iðn-
rekstrarfræði á Akureyri.
Umsóknarfrestur um störf námsbrautarstjóra við
námsbrautir f hjúkrunarfræði og iðnrekstrarfræði á Ak-
ureyri er framlengdur til 15. april 1987.
Umsóknir með ftarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverf-
isgötu 6, 150 Reykjavlk.
Menntamálaráðuneytið,
16. mars 1987
Laus staða
Tfmabundin lektorsstaða í tölvunarfraeði við stærð-
fræðiskor raunvfsindadeildar Háskóla íslands er laus
til umsóknar. Lektornum er einkum ætlað að starfa að
fræðilegum þáttum tölvunarfræöi, t.d. á sviði forritun-
armála, kerfisforritunar, tölvuteikningar og þekkingar-
kerfa.
Heimilt er að ráða f þessa stöðu til allt að þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vfsindastörf
umsækjenda, ritsmlðar og rannsóknir, svo og náms-
feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavfk, fyrir 10. maf n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. mars 1987.
KOSNINGAMIÐSTÖÐ!
Höfum opnaö skrifstofu að Austurvegi 24, Selfossi.
Sunnlendingar lítiö við og ræðið málin. Hittumst á laugar-
daginn 21. mars í spjall og fáum okkur kaffi og meðlæti.
Opið á laugardögum frá kl. 14.00—19.00. Á virkum
dögum frá kl 17.00 — 22.00. Sími 1055.
ALÞYÐUFLOKKURINN SUÐURLANDI.
A LEIÐINNI HEIM
SoQíteaaa » SS(u)9 29(5®
"Mkvnsn,
Brauð
Álegg
Kjötvörur
Fiskur
Sæigæti
Saltstengur
Snakk
ídýfur
Gosdrykkir
Klaki í
drykkina