Alþýðublaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 21. mars 1987 Nýbreytni í starfi kirkjunnar: Leikmannastefna um helgina Biskup kallar til hinnar fyrstu leikmannastefnu hérlendis nú um helgina 21—22. mars. Verður hún haldin í Kirkjuhúsinu Suðurgötu 22 í Reykjavík. Samkvæmt starfsmannafrum- varpi kirkjunnar sem nú liggur fyrir Alþingi skal halda leikmannastefnu árlega. Skal hvert prófastsdæmi velja sinn fulltrúa úr hópi leik- manna, nema tveir koma frá Reykjavíkurprófastsdæmi. Auk þess munu leikmenn í Kirkjuráði sækja stefnuna. Prófastafundurinn sem haldinn var á Akureyri 1986, hvatti mjög til þess að biskup beitti sér fyrir því að koma leikmanna- stefnu á laggir sem fyrst. Kemur það og glögglega fram í Hirðisbréfi biskups að hann vill hlut leikmanna sem mestan í kirkjunni. Leikmannastefnan verður sett kl. 10.00 laugardaginn 21. mars með ávarpi biskups en síðan flytur Guð- rún Ásmundsdóttir leikari inn- gangserindi um efnið: Kirkjan min. Eftir hádegisverð í boði kirkju- málaráðherra mun dr. Ármann Snævarr fjalla um lög og reglur, um leikmannastörf og safnaðarþjón- ustu. Síðar um daginn kynna for- stöðumenn deilda og stofnana þjóðkirkjunnar starf þeirra. Á sunnudag verður Hallgríms- kirkja heimsótt og síðan verið þar við messu kl. 11.00. Síðdegis verður fjallað um hlutverk leikmanna- stefnu en stefnunni verður síðan slitið í Biskupsgarði. Leitin að týndu kynslóðinni Ákveðið hefur verið að gera breytingar á rekstri veitingahússins Hollywood. Höfuðbreytingin er í því fólgin, að dagar hússins sem diskóteks eru taldir — það verður framvegis rekið sem einskonar mið- stöð fyrir lifandi tónlist. Húsið verður opnað 20.—21. mars. Þá er reiknað með að meðalaldur gesta hækki nokkuð, því einkum verður LAUSAR STODUR HJA REYKJAVÍKURBORG Starfsfólk vantar 1 hlutastörf 1 eldhús Seljahllðar. Upp- lýsingar gefurforstöðumaðurmötuneytis 1 slma 73633. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð fyrir 30. mars n.k. á sérstökum eyðubiöðum sem þar fást. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG — HALLÓ ÞÚ — Langar þig til að vinna með unglingum? Viö ( Útideild erum að leita að starfsfólki til að vinna með og fyrir unglinga í Reykjavik. Vinnutiminn er á dag- inn og kvöldin virka daga. Umsækjendur þurfa að hafa menntun á uppeldis- og fé- lagssviði og/eða starfsreynslu meö unglingum. Við gefum nánari upplýsingar i slma 20365 milli kl. 13.00- 16.00. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð, fyrir mánudaginn 6. apríl n.k. ásérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást. LAUSAR STOÐUR HJA REYKJAVÍKURBORG Heilsuverndarstöð Reykjavlkur óskar að ráða eftirtalið starfsfólk: Sjúkraþjálfara ný starfsemi. Vinnutlmi eftir samkomu- lagi. Deildarmeinatækni. í sumarafleysingar: Hjúkrunarfræðinga á barnadeild, húð- og kynsjúk- dómadeild, heimahjúkrun, dag- og kvöldvaktir. Ljósmæður á mæðradeild. Upplýsingar um ofangreind störf gefur hjúkrunarfor- stjóri I síma 22400. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 30. mars n.k. á sérstökum umsóknareyðu- blöðum sem þar fást. Utboð Innkaupastofnun Reykjavlkurborgarf.h. Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboöum i eftirfarandi: 1) Stálpipur — Útboð nr. 87015/HVR Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 28. apríl 1987, kl. 11.00 2) Skrúfaður svartur fittings — Útboð nr. 87016/HVR Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 28. apríl 1987, kl. 14.00 Útboðsgögn afhent eru á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3, Reykjavlk, og verða opnuð þar á ofangreindum tíma. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik höfðað til þess fólks, sem upplifði tónlist áranna 1965—1975 af eigin raun. Dagskrá næstu mánaða í hinu nýja Hollywood verður undir yfir- skriftinni „Leitin að týndu kyn- slóðinni" og mun hún byggjast upp á því að hljómsveitir og söngvarar, sem réðu ríkjum í íslensku dægur- tónlistarlífi á þessum árum koma fram á föstudags- og laugardags- kvöldum, 3—4 hljómsveitir og/eða söngvarar á hverju kvöldi. Þetta tímabil var tvímælalaust það gróskumesta í íslenskri dægurtón- list. Sem dæmi um það má minna á, að í dag er hending ef fleiri en tvær danshljómsveitir eru að leika á reykvískum veitingahúsum á venju- legu sunnudagskvöldi en fyrir rétt- um 20 árum, 1967, voru þær að minnsta kosti sjö. Það voru hljóm- sveitir á borð við Hljóma, Náttúru, Flowers, Dúmbó, Pónik, Bendix, Ævintýri, Tilveru, Óðmenn, Pops, Pelican, Mána, Roof Tops, Tatara, Júdas, Faxa, Hauka, Tempó, Tóna, Mods, Dáta, Toxic, Ingimars Eydal, Blúes Company og fleiri og fleiri. Þessar hljómsveitir og margar fleiri munu væntanlega koma fram í Hollywood á næstunni, ásamt er- lendum stórstjörnum, þegar leitað verður að týndu kynslóðinni sem vel er falin út um allt í þjóðfélaginu. Lúðrasveit Verkalýðsins: Ybrtón leikar Laugardaginn 21. mars næst- komandi heldur Lúðrasveit Verka- lýðsins sína árlegu vortónleika. Verða þeir að þessu sinni haldnir i Langholtskirkju og hefjast þeir kl. 17.00 (fimm síðdegis). Efnisskrá er að vanda fjölbreytt og viljum við þar sérstaklega nefna „FINLANDIÁ“ eftir Sibelius og „CONSERT RONDO” eftir Moz- art en það verk er fyrir hljómsveit og einleikshorn. Einleikari með Lúðrasveit Verkalýðsins verður Emil Friðfinnsson, en hann er um þessar mundir að ljúka einleikara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Auk þessara verka verða svo á efnisskránni ýmis þekkt og minna þekkt lúðrasveitaverk. Stór- sveit L.V. mun á tónleikum þessum flytja nokkrar þekktar sveiflu- melódíur. Stjórnandi Lúðrasveitar Verka- lýðsins, eins og undanfarin ár, er Ellert Karlsson. Formaður er Torfi Karl Antonsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis að venju og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Jafndægurtónleikar Tónlistarskólans Tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík heldur árlega tónleika sína að Kjarvalsstöðum mánudag- inn 23. mars n.k. kl. 21:00. Þar verða flutt frumsamin verk nemenda einleiksverk, kammer- verk og raftónlist. öll verkin eru flutt af nemendum Tónlistarskólans. Tónleikarnir eru öllum opnir. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Gatnamála- stjórans I Reykjavík, óskar eftir tilboðum I viögerðir á hellulögðum gangstéttum viðsvegar I ReykjavIk.Áætl'.- að heildarflatarmál u.þ.b. 6000 m2. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 8. aprll n.k., kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Utboð Forval Sæti í áhorfendasali í Borgarleikhúsi Innkaupastofnun Reykjavikurborgar óskar eftir upplýsingum um þá aðila sem gætu smíðað og/eða selt vönduð áhorfendasæti í sali Borgarleikhúss. Um er að ræða allt að 550 sæti í aðalsal og 170 til 270 sæti í minni sal. Afhending og uppsetning sætannaskal lokiðeigi aíðar en 1. júni 1989. Viðkomandi aðilarskili inn nöfnum sínum ásamt upplýsingum um vöru sína til Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar fyrir kl. 12.00 föstudaginn 3. apríl n.k. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavik Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboö- um í endurnýjun hitaveitulagna sam- kvæmt eftirfarandi: 1) í Norðurmýri Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 31. mars 1987, kl. 14.00 2) í Skólavörðustíg Tilboðin verðaopnuð fimmtudaginn 2. apríl 1987, kl. 11.00 3) í Garðhús í Hraunbæ 1—99 Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 7. apríl 1987, kl. 14.00 Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, gegn kr.lö.OOOskilatrygg- ingu, fyrir hvort verk fyrir sig og verða opnuð á sama stað á ofangreindum tíma. JNN KAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Útboð Innkaupastofnun Reykjavikurborgar f.h. Gatna- málastjórans í Reykjavlk, óskar eftir tilboðum i viðgerðirá malbiki innan borgarmarka Reykjavik- ur, samkvæmt eftirfarandi: 1. Samkvæmt A-hluta, opnun tilboða verður 7. april. n.k., kl. 11.00 2. Samkvæmt B-hluta, opnun tilboða verður 9. april n.k., kl. 11.00 Útboðagögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkir- kjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000 skilatryggingu fyrir hvort verk fyrir sig. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.