Alþýðublaðið - 21.03.1987, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 21.03.1987, Qupperneq 5
Laugardagur 21. mars 1987 5 í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir m.a. svo í 3. gr. „Hvers kyns mismunun eftir kynferði er óheimil. Þó teljast sérstakar tímabundnar að- gerðir, sem ætlaðar eru til að bæta stöðu kvenna til að koma á jafnrétti og jafnri stöðu kynj- anna ekki ganga gegn lögum þess- um.“ Þetta ákvæði var langþráð í íslenska löggjöf ef marka má þá umræðu sem átti sér stað um jafnréttismál síðasta áratuginn. Þó hefur lítið heyrst hvernig konur hyggjast nota sér þessi nýfengnu réttindi. Hér á eftir set ég fram nokkra punkta — hugleið- ingu um það hvern- ig nýta má þetta ákvæði. Úttektin er ekki vísindaleg, heldur eins konar hugarflug. Umræð- an verður síðan að koma í kjölfarið og stefnan að markast af henni. Hvernig hyggjast konur nýta sér nýfengin réttindi? Menntun í þeim framhaldsskólum þar sem konur eru mjög fáar, og í þeim greinum sem erfitt hefur verið að fá þær í, þ.e. tæknigreinar má leggja áherslu á að fá konur sem kennara. Hugsanlegt væri að setja kvóta á slíkt. Einnig má reyna að tryggja konum ákveðna hlutdeild við inn- töku í slíka skóla og slíkt nám, ef unnt er. Skv.uppl. frá 1983 eru kon- ur undir 20% nemenda í iðnskól- um, vélskólum og stýrimannaskól- um, undir 30% nemenda í hótel og veitingaskóla Islands og bænda- skólum. í námi á háskólastigi eru konur 10,6% nemenda í Tækni- skóla íslands. Ýmsar iðngreinar geta verið heppilegar konum, en þær hafa ekki sótt í t.d. bakaraiðn, feldskeraiðn, glerslípun, gullsmíði, húsamálun, húsa-, húsgagnasmíði og bólstrun, leirkerasmíði, Ijós- myndun, málaraiðn, netagerð, off- setljósmyndun, offset-prentun, prentmyndaljósmyndun, prent- myndasmíði, prentun, rafeinda- virkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun, skósmíði, skrifvélavirkjun, úr- smíði, útvarps- og sjónvarpsvirkj- un. Hugsanlegt er að hvetja konur inn á slíkar brautir með styrkjum, auknum lánveitingum, sérstökum verðlaunum eða fyrirgreiðslu við að setja af stað sjálfstæðan atvinnu- rekstur í lok náms. Atvinnuþátttaka Mjög hátt hlutfall kvenna tekur þátt í atvinnulífi. Takmarkað starfsgreinaval er vandamál. Konur velja sér störf í 20—30 starfsgrein- um á vinnumarkaði, á meðan karl- ar stunda vinnu í 200—300 starfs- greinum. Þessu mætti breyta með vísan til 3. gr. jafnr.laga með því að fá konur inn í hinar óhefðbundnu karlagreinar með ákvæðum um sveigjanlegan vinnutíma, aðlögun- artíma, styrkveitingum, lánafyrir- greiðslum bæði til atvinnurekenda og þeirra einstaklinga sem í hlut eiga, verðlaunum til þeirra atvinnu- rekenda sem ráða konur í óhefð- bundin kvennastörf, áróðri, auglýs- ingum, umfjöllun um þau tilvik sem reynd eru og reynast vel. Fyrir- myndir eru mikilvægastar. Konur, bílstjórar, konur öskukallar, konur smiðir, konur skólastjórar, konur kokkar. Laun Launamunur karla og kvenna er töluverður í dag, mismunandi þó eftir stéttum og starfsgreinum. Erf- itt hefur reynst að sýna fram á launamisrétti, en allt virðist benda til að hluti launamunar verði ekki rakinn til annars en misréttis. Könnun sem forsætisráðuneytið tók að sér að framkvæma fyrir þremur árum síðan hefur enn ekki séð dagsins ljós, en þar á að leiða fram launamisrétti. Könnunin er væntanleg á næstu dögum. Þegar launamisrétti liggur fyrir í tölu- formi opnast möguleiki á að nota 3. greinina þar. Má hugsa sér að ákveðnir hópar fari sömu leið og bankamenn I Svíþjóð, þ.e. að gera kröfu til viðbótarprósentuhækkun- ar launa kvenna umfram karla. Krafa kvenna verði 2% umfram karlanna eða eitthvað því um líkt. Einnig má hugsa sér leiðir í gegnum skattakerfið til að ná þessari niður- stöðu. Slíkt myndi þó að öllum lík- indum festa enn frekar í sessi launa- misréttið en nú er, og flytja vand- ann af launagreiðendum yfir á rík- ið. Launin sjálf þarf að hækka og samræma. Starfsmat hefur lengi verið lausnarorð, og hefur mjög verið einblínt á komandi fastlauna samninga, þar sem raða á starfs- heitum í launaflokka upp á nýtt. Launamisréttið er tvíþætt, annars vegar lág laun í kvennagreinum, hins vegar lægri laun til kvenna í sömu greinum og karlar. Starfsmat- ið á ágætlega við í fyrri flokknum. í síðari flokknum mætti hugsa sér frekar kvóta, þvingun, styrki eða eitthvað því um líkt. Áróður getur einnig haft sitt að segja, auglýsing- ar eins og: „Hjá okkar fyrirtæki hafa konurnar sömu laun og karl- arnir, enda standa þær sig með sóma“ í starfsmatsleiðinni má hugsa sér að beita tímabundnum aðgerðum við röðun í flokka. „Vegna kynferð- is fást 5 punktar." Mun auðveldar er að koma við starfsmati hjá hinu opinbera, ríki og sveitarfélögum, heldur en á frjálsum vinnumarkaði, þar sem frelsið og samkeppnin ráða miklu um starfsval og ráðningar í störf. Þannig er nauðsynlegt fyrir konur að vera meðvitaðar um stöðu sína, gera sömu kröfur til launa og karl- arnir, bera virðingu fyrir störfunum sem þær gegna og vera tilbúnar að taka á sig ábyrgð til jafns við karla, þ.e. gera sig að æskilegu vinnuafli, sem kostar það sama og karlarnir, þ.e. gera sig að æskilegu vinnuafli. Það viðhorf er allt of algengt hjá konum að gera minni kröfur til sjálfra sín, einmitt vegna þess hve kaupið er lágt. Þannig skapast oft vítahringur. Forysta Hægt er að beita 3. gr. jafnréttis- laga til að innleiða þá reglu, að við tilnefningar í nefndir og ráð skuli tilnefnd kona og karl, og síðan val- ið á milli. Einnig má hugsa sér stíf- an kvóta, sem er mun róttækara skref. Rétt er að byrja smærra og fikra sig áfram, til að forðast það að konum sé þröngvað í stöður, nefnd- ir og ráð sem þær kæra sig ekki um, en telja sér skylt að gegna vegna ein- hvers konar kvóta. Hægt er að hugsa sér að viðkomandi stjórnvald setji reglur um tilnefningar hjá sér e.t.v. með auglýsingu frá viðk. ráðu- neyti. Stjórnmálaflokkarnir ræða nú mjög kvóta, og er hann kominn á í Alþýðubandalagi í nefndir og stjórnir flokksins. Hér að framan hafa verið nefnd nokkur dæmi um leiðir. Þær má í meginatriðum greina í tvennt, ann- ars vegar kvótaleiðina, hins vegar styrkjaleiðina. Kvótaleiðin hefur verið reynd í Noregi um nokkurn tíma og hefur að flestra mati tekist mjög vel. Konum hefur fjölgað verulega í opinberu lífi, og má í dag segja að norska ríkisstjórnin sé kvennaríkisstjórn. Aldrei áður hafa svo margar konur átt sæti í ríkis- stjórn eða verið svo hátt hlutfall ríkisstjórnar í heiminum. Styrkjaleiðin er sú leið sem farin hefur verið í Bretlandi ög víðar. Hún er ekki eins þvingandi, og árangur hennar er ekki eins augljós. Hér stöndum við í raun frammi fyr ir því hvort tilgangurinn helgi meðalið. Lára V. Júlíusdóttir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.