Alþýðublaðið - 25.03.1987, Page 1

Alþýðublaðið - 25.03.1987, Page 1
Dr. Jón Bragi Bjarnason, líffræðingur, um hug- myndina um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd: „Lausn er til“ Norðurlönd leggi fram sinn skerf til friðarmála sameiginlega. „Á Reykjavíkurfundi Reagans og Gorbachevs s.l. haust, þá munaði litlu að mjög merkur áfangi og ár- angur næðist í afvopnunarmálum. Það strandaði hins vegar á þvi að Bandaríkjamenn héldu fast við geimvarnaáætlunina, en Sovét- menn voru óbifanlegir i sinni skil- yrtu pakkalausn, sem þýddi það að þeir vildu ekkert semja nema geim- varnaráætlun Bandaríkjamanna færi út. Síðan hefur það gerst og raunar eftir friðarþingið í Moskvu, þar sem Sakarov gagnrýndi þessa ein- strengingslegu afstöðu stórveld- anna og færði mjög sterk rök fyrir því hvað þaú séu gagnslaus og háskaleg, að Sovétmenn hafa lýst sig fúsa til að taka þátt í samningum um meðaldrægar eldflaugar, án þess að nokkuð sé fjallað um geim- varnaráætlunina samtímis. Um svipað leyti gerist það að Sam Nunn, formaður hermála- „Nú er lag til að sœtta sjónarmið og standa með hinum Norðurlöndun- um,“ segir Jón Bragi Bjarnason. deildar Bandaríkjaþings og öld- ungadeildarþingmaður frá Georg- íufylki, gefur afdráttarlausa og skýra yfirlýsingu um það, að hin víða skilgreining á gagnflauga- samningnum, ABM-áætluninni frá 1972, sé röng, það er sú skilgreining sem Reagan forseti og Weinberger varnarmálaráðherra settu fram. Þetta hvort tveggja vekur vonir núna um árangur í afvopnunarmál- um, ásamt með hinni jákvæðu þró- un í mannréttindamálum í Sovét- ríkjunum á undanförnum misser- um. Ég tel því að nú sé lag fyrir okkur íslendinga og aðra Norðurlanda- búa til þess að leggja fram okkar skerf í afvopnunar- og friðarmál- um, í víðu samhengi afvopnunar í Mið-Evrópu, mannréttinda í Sovét- ríkjunum og öryggis í heiminum . Þess vegna eigum við nú að ganga til samninga við stórveldin um kjarnorkuvopnalaus Norður- lönd ásamt hinum Norðurlöndun- um. Þetta verðum við að gera af mikilli vandvirkni og með tilliti til mismunandi öryggissjónarmiða Norðurlandanna allra og banda- lagsþjóða þeirrra í huga. Við verðum að athuga það að þrjár af þessum fimm Norður- landaþjóðum eru í NATO og ís- lenska þjóðin vill vera áfram í því bandalagi, en hún vill einnig kjarn- orkuvopnalaus Norðurlönd. Og þessi sjónarmið verðum' við að sætta. Raddir allra Norðurland- anna verða að vera samhljóma og framlag okkar verður að vera fram- lag til friðar, til öryggis og til mann- réttinda“ sagði Jón Bragi Bjarna- son, líffræðingur. Kjaraþrœtur kennara og ríkisins: vegg“ „Það stóð allt fast. Um leið og við fórum að tala um kaup þá stoppaði allt,“ sagði Kristján Thorl- acius, formaður HÍK, í samtali við Alþýðublaðið í gær. Á mánudag slitnaði upp úr viðræðum samn- inganefnda HÍK og ríkisins. Kristján sagði að í viðræðunum hefði náðst samkomulag um ákveðnar bókanir, m.a. um að á fyrirhuguðu samningstímabili skuli taka launakerfið allt til endurskoð- unar. „Laga launakerfið betur að kennarastarfinu og taka það út úr skrifstofumannakerfinu" „Við rákumst á — sagði Kristján Thorlacius, formaður HÍK. — Deilu- aðilar ræðast ekki við. Er fjármálaráðuneytið þá ekki til viðræðna um kauphækkanir? „Við rákumst á vegg þegar ræða átti kaupið á samningstímanum. — Það má e.t.v. kalla þetta kauphækk- anir, en tilboð þeirra ganga út frá því að þeir sem eru með lengri starfsaldur borgi kostnaðinn við byrjendurna . Það er ekki hægt að fá fólk í verkfalli til að samþykkja slíkar niðurstöður." Þegar gengið var til atkvæða- greiðslu hjá HÍK vegna verkfallsað- gerða voru um 65% þeirra sem tóku ‘ afstöðu samþykkir. Því hefur verið haldið fram að stjórn HÍK hafi ekki nægilegan stuðning félagsmanna til svo harðra aðgerða sem nú er kom- ið? „Þegar menn fara í verkfall er ekki alltaf mikill meirihluti fyrir því. Það má líka benda á að við- semjendur okkar hafa ennþá minni meirihluta á bak við sig, — ef við lítum á þetta í prósentum. Ríkis- stjórnin getur gert það sem henni sýnist þótt hún hafi ekki nema 51% meirihlutaþ sagði Kristján. „Það má e.t.v. kalla þetta kaup- haekkanir, en tilboð þeirra ganga út frá því að þeir sem eru með lengri starfsaldur borgi kostnaðinn við byrjendurna. — Það er ekki hœgt að fá fólk i verkfalli til að sam- þykkja slíka niðurstöðu,“ sagði Kristján Thorlacius, formaður HÍK. Willy Brandt hefur sagt af sér for- mennsku v-þýska Jafnaðarflokks- ins. V-Þýskaland: Brandt segir af sér Willy Brandt hefur sagt af sér formennsku vestur-þýska Jafnaö- armannaflokksins (SPD). Afsögn hans var tilkynnt í fyrradag af Jo- hannes Rau, kanslaraefni flokksins í síðustu kosningum. Eftirmaður Brandts verður kjörinn á þingi flokksins í sumar. Traustar heimild- ir í V-Þýskalandi segja að eftirmaö- ur Brandts hafi þegar verið ákveð- inn; Hans Jochen Vogel, formaður þingflokksins. Afsögn Brandts kom í kjölfar mikillar gagnrýni flokksmanna á formanninn fyrir að setja hina grískættuðu Margaritu Mathio- poulos til embættis blaðafulltrúa flokksins. Margarita er bæði reynslulaus í stjórnmálum og ekki skráður flokksmaður. Hún hefur nú lýst yfir að hún sækist ekki eftir starfinu. Valgeir Guðjónsson og Halla Margrét Árnadóttir fara til Brussel með lag Valgeirs, „Hægt og hljótt“, sem hlaut flest atkvæði íslensku laganna í beinni útsend- ingu í Sjónvarpi í fyrrakvöld. Hægt og hljótt Albertsmálið: ÞINGFLOKKURINN BRA SÉR í BÖÐULSLÍKI „Þetta er ákveðið“, sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks- ins í gær áður en fundurinn hófst, þar sem hin endanlega aftaka skyldi fara fram ef Albert segði ekki af sér sjálfur. „Ég lít svo á, að þetta múl sé ekkert á borði stjórnar fulltrúa- ráðsins. Maðurinn er ráðherra og kosinn af þingflokknum. Stjórnin kemur því ekkert inn í þetta mál fyrr en önnur staða kemur upp i málinu,“ sagði Sveinn H. Skúla- son, formaður stjórnar fulltrúa- ráðs Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík, í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Þá var ekki vitaö hvaða afstöðu Albert tæki varð- andi afsögn ráðherraembættis, né vitað um stöðu hans sem efsta manns á lista flokksins sam- kvæmt prófkjöri. Gífurleg spenna ríkti í gær um hvaða stefnu mál Alberts Guð- mundssonar tækju. Boltinn var hjá Albert og þingflokkurinn, formaðurinn og fulltrúaráðið biðu þess að geta spilað út sinum trompum, sem öll miðuðust við að losa sig við Albert Guðmunds- son sigurvegara úr prófkjöri flokkSins í Reykjavík. Morgunblaðið hélt því fram í gær að Þorsteinn hefði boðið Al- bert þá málamiðlun að hann viki úr ráðherrastól en héldi sínu sæti á listanum. Málið virtist einnig snúast um þann punkt i gær og héldu stuðningsmenn Alberts að sér höndum í sérframboðsmálum. í gærmorgun sagði reyndar Ás- geir Hannes Eiríksson, huldu- hersmaður, að trúlega yrði sótt um listabókstað þá síðar um dag- inn. Áður en Alþýðublaðið fór i prentun í gær var því ekki talið líklegt að mál Alberts fengju lausn þá um daginn. Sveinn H. Skúlason vildi engu spá um af- stöðu stjórnar fulltrúaráðsins ef Þorsteinn og þingflokkurinn viki Albert. Sveinn sagði að stjórnina skipuðu 25 menn og væri ekki vit- að hvaða afstöðu hver og einn þeirra hefði í þessu máli. Stjórnin getur kallað saman fulltrúaráðs- fund og borið upp að Albert verði látinn víkja af listanum. Heimild- armenn Alþýðublaðsins töldu að sú staða gæti komið upp. Bentu þeir m.a. á að Sjálfstæðisflokkur- inn í Reykjavík gæti engan veginn flaggað Alberti sem efsta manni á lista, ef honum væri ekki treyst- andi til að gegna ráðherraem- bætti. % Um fjögur leytið í gær rétt áður en þingflokksfundur hófst, sagði Ólafur G. Einarsson að þegar hefði verið tekin ákvörðun um mál Alberts. Svo virtist því sem fundurinn sjálfur væri aðeins formsatriði. Blaðamaður spurði Ólaf hvort Albert ætti enga vini í þingflokknum: „Þetta eru allt vinir hans, en þetta er ákveðið“ — Þingflokkurinn er sem sagt búinn að bregða sér í böðulslíkið? „Þú mátt kalla það þetta ef þú vilt“ sagði Ólafur G. Einarsson. Síðustu fréttir Rétt áðuræn blaðið fór í prent- un bárust þær fréttir af þing- flokksfundinum, að Albert Guð- mundsson hefði sagt af sér. Ákveðið var að Þorsteinn Pálsson tæki við iðnaðarráðuneytinu og sinnti því jafnhliða fjármálaráðu- neytinu. Albert taldi stöðu sina óbreytta á lista flokksins i Reykja- vík, en þau mál komu ekki til um- fjöllunar þingflokksins. Bl

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.