Alþýðublaðið - 25.03.1987, Side 2
2
Miðvikudagur 25. mars 1987
-RIT5TJQRNABGREIN-
Matthías á að skrifa undir
FundurutanrfkisráðherraNorðurlandahefst (
dag. Þessi fundur getur orðið sögulegur, þvf
fyrirfundinum liggur tillaga um að setja ástofn
samnorræna embættismannanefnd til að
vinna að undirbúningi og útfærslu á kjarnorku-
vopnalausu svæði á Norðurlöndum. Álit utan-
ríkisráðherra Norðurlanda liggur Ijós fyrir. Þeir
Sten Anderson, Uffe Elleman-Jensen, Paavo
Váyrynen og Thoralv Stoltenberg leggja
áherslu á stofnun sllkrar embættismanna-
nefndar. Afstaða utanrlkisráðherra íslands,
Matthíasar Á. Mathiesen varðandi stofnun
sllkrar nefndar er hins vegar enn óljós, en I
meginatriöum heldur hann fast við þá utanrlk-
isstefnu að einhliða yfirlýsing um kjarnorku-
laus Norðurlönd gæti skaðað samstarfið við
Atlantshafsbandalagið og stefnt öryggi ís-
lands í voða. Þessi afstaða hefur hlotið undir-
tektir forystumanna Alþýðuflokks.
Nýverið gerði Félagsvfsindastofnun Háskóla
íslands skoðanakönnun um hug landsmanna
til aðildar íslands að norrænu samstarfi um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Niðurstaða
könnunarinnar var að yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar er hlynntur sllkri aðild. Þessi ein-
dregna afstaða almennings var algjörlega
óháð flokkspólitískum skoðunum aðspurðra.
Ýmsir hafaorðið til þess að túlka þessar niður-
stöður sem eindreginn stuðning allra lands-
manna við einhliða yfirlýsingu um kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd. Sú túlkun er einfald-
lega ekki rétt. Öll viljum við kjarnorkuvopnin
feig. Öll viljum við kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd — en það er ekki þar með sagt að við vilj-
um öll varnir landsins feigar. Við skulum vera
þess minnug að meirihluti þjóðarinnar vill
áframhaldandi varnarsamstarf við Atlantshafs-
bandalagið. Þess vegna verður að skoða kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum I Ijósi
skuldbindinga við NATO og með tilliti til örygg-
is og varna landsins. Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðuflokksins lýsti yfir
undrun sinni I dagblaði I fyrradag, að skoðun
Félagsvlsindastofnunar hafi ekki skilað 100%
fylgi aðspurðra um kjarnorkuvopnalaus Norð-
urlönd. Spurning Félagsvlsindastofnunar
„Ertu hlynnt(ur) þvl eða mótfallin(n) að ísland
gerist aðili að norrænu samstarfi um að lýsa
Norðurlöndin kjarnorkuvoþnalaust svæði?“
varparaðeinsljósi áviljafólkstil þessatiltekna
málsen skilgreinirekki skilyrði þau sem lands-
menn kynnu að vilja setja slfku samstarfi. Nið-
urstöður könnunar Félagsvísindastofnunar
hafa þvl verið afar frjálslega túlkaðar I fjölmiðl-
um, svo ekki sé meira sagt.
Um helginavarhaldinn fjölmennurfundurum
kjarnorkuvoþnalaus Norðurlönd sem samtök
friðarhreyfinga stóðu fyrir. Annar fulltrúi Al-
þýðuflokksins, Dr. Jón Bragi Bjarnason llf-
fræðingur, flutti þar athyglisvert erindi um
kjarnavopn og mannréttindi. Hann lagði mikla
áherslu á mikilvægi lýðræðislegrar þróunar I
Sovétrlkjunum og nýrra slökunarhugmynda
um geimvarnarkerfi Bandarlkjanna. Sú þíða
sem hugsanlega er nú að skapast milli stór-
veldanna gæti auðveldað íslandi og hinum
Norðurlöndunum að leggja fram sitt framlag I
afvopnunar- og friðarmálum I vlðu samhengi. í
framhaldi af þessu sagði Dr. Jón Bragi orðrétt:
„Þess vegna eigum við nú að ganga til samn-
inga við stórveldin um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd með hinum Norðurlöndunum.
Þetta verðum við auðvitað að gera af mikilli
vandvirkni og með tillitssemi við hin mismun-
andi öryggissjónarmið Norðurlandanna allra
og bandalagsþjóðasumraþeirra. Raddirokkar
verða að vera samhljóma og framlag okkar
verðurað veraframlagtil friðar, til öryggisog til
mannréttinda.“ Þessi orð ítrekar Dr. Jón Bragi I
fréttaviðtali við Alþýðubiaðið I dag.
Islendingareigaekki að styðjaeinhliðayfirlýs-
ingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd sem
tefla vörnum og öryggi landsins I tvlsýnu. En
við eigum heldur ekki að gefa okkur fyrirfram
niðurstöður norræns samstarfs um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum i formi
embættisnefndar. Þvert á móti býðst okkur nú
tækifæri að leggja okkar lóð á vogarskálina til
þess að Norðurlönd semji sameiginlega af-
vopnunar- og friðarstefnu og gangi með hana
til samninga við bæði stórveldin. Það liggur í
augum uppi að sjónarmið aðildarrlkjanna
þriggja að Atlantshafsbandaiaginu, Danmerk-
ur, Noregs og íslands, myndu vega þungt f
sllkri nefnd og að um einhliða yfirlýsingu yrði
ekki að ræða. Þess vegna á Matthlas Á. Mathie-
sen að undirrita tillögu utanrlkisráðherra Norð-
urlanda um að skiþuð verði nefnd embættis-
manna til að undirbúa og útfæra kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum.
Ertu langþreyttur á þjónustu tollstjóraembœttisins? Nú átt þú möguleika
á að koma á framfœri ábendingum á sérstöku eyðublaði frá embœttinu.
Tollstjóraem bættið:
Tollafgreiðsla bætt
Leo Smith á íslandi
Framundan eru ýmsar breytingar
er varða tollafgreiðslu. Þær munu á
ýmsan hátt snerta viðskiptamenn
tollembætta eftir því sem þær kom-
ast í framkvæmd. Að baki breyting-
unum búa þessar ástæður helstar.
Ný tollalög.
Ný tollanafnaskrá (Harmoniz-
ed System).
Niðurfelling áritunar banka
vegna tollafgreiðslu.
Tölvuvæðing tollafgreiðslu í
Reykjavík.
Ný aðflutningsskýrsla.
Tilfærsla á verkefnum frá ríkis-
endurskoðun til tollstjórans í
Reykjavík.
Skipulagsbreytingar hjá toll-
stjóranum í Reykjavík.
Vegna ofangreindra breytinga
svo og hinna nýju verkefna sem toll-
stjóranum í Reykjavík eru falin hef-
ur verið ákveðið að endurskipu-
leggja starfshætti og skipulag emb-
ættisins. Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun ríkisins hefur verið falið að
veita aðstoð við þessar skipulags-
breytingar.
Einn liður í undirbúningi
nefndra breytinga er könnun meðal
viðskiptamanna tollstjóraembætt-
isins í Reykjavík á þjónustu emb-
ættisins auk þess sem leitað er eftir
ábendingum eða tillögum sem að
gagni gætu komið við endurskipu-
lagningu þá sem hér um ræðir. Af
þessum sökum liggur nú frammi á
afgreiðslustöðum tollstjóraemb-
ættisins í Reykjavík sérstakt spurn-
ingaeyðublað, þar sem viðskipta-
mönnum embættisins gefst tæki-
færi til að koma á framfæri ábend-
ingum varðandi starfsemi þess og
skipulag.
Bandaríski trompetleikarinn Leo
Smith og hljómsveit hans, N’Da,
hafa verið á tónleikaferð um Evr-
ópu að undanförnu og lýkur þeirri
ferð með þrennum tónleikum hér á
landi. Hljómsveitin hefur haldið
tónleika í Hollandi, Þýskalandi,
Austurríki, Ungverjalandi og Júgó-
slavíu.
Leo Smith er ættaður frá Missi-
sippi og hóf feril sinn með því að
leika með blúshljómsveitum á þeim
slóðum. Hann hefur síðan öðlast
sess sem einn af brautryðjendum
nútímajazztónlistar, var t.d. kjör-
inn besti trompetleikari af ungu
kynslóðinni hjá jazztímaritinu
Down Beat árið 1980. Smith er nú í
fararbroddi þeirrar stefnu sem veitt
hefur nýjum straumum úr funk- og
reggaetónlist inn í iazzmúsíkina.
Hann hefur heimsóttlsland þríveg-
is og haldið hér tónleika og nám-
skeið.
Hljómsveitina N’Da skipa auk
Smiths:
Wes Brown bassagítarleikari.
Hann hefur leikið með Leo Smith
um árabil auk fjölda annarra
þekktra jazzleikara.
Kamal Sabir trommuleikari er af
yngri kynslóð jazzleikara í Banda-
ríkjunum og hefur m.a. leikið með
Leroy Jenkins og Ornette Coleman.
Þorsteinn Magnússon (Stanya) -
gítarleikari. Hann hefur leikið með
fjölda þekktra íslenskra hljóm-
sveita og spilað inn á yfir 50 íslensk-
ar hljómplötur. Hann hefur verið
helsti samstarfsmaður Leo Smith
hér á landi og leikur stórt hlutverk
á nýjustu plötu hans, „Human
Rights“, sem hljómplötuútgáfan
Gramm gaf út á síðasta ári.
Hljómleikarnir hér á landi verða
31. mars á Akureyri, 1. apríl á Hótel
Akranesi og 2. apríl á Hótel Borg í
Reykjavík og lýkur þar Evrópuför
Leo Smith & N’Da að þessu sinni.
Flugleiðir hafa veitt myndarleg-
an ferðastyrk vegna þessa hljóm-
leikaferðalags.
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar
Kosningafundur í Kirkjuhvoli Garðabæ fimmtu-
daginn 26. mars kl. 20.30.
Framsögumenn:
Jón Sigurðsson Reykjavfk, Kjartan Jóhannsson,
Hafnarfirði, Rannveig Guðmundsdóttir Kópavogi,
Bjarni Sæmundsson Garðabæ.
Fyrirspurnum svarað.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaða-
hrepps
Auglýsing
frá yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis
Framboðslistá í Reykjaneskjördæmi til alþingiskosn-
inga, sem fram eiga að fara þann 25. apríl nk., ber
að afhenda formanni yfirkjörstjórnar, Guðjóni Stein-
grímssyni hæstaréttarlögmanni, sem tekur á móti
framboðslistum að Linnetsstíg 1, Hafnarfirði, föstu-
daginn 26. marz kl. 15.00 til 17.00, og að Ölduslóð
44, Hafnarfirði, sama dag frá kl. 22.00 til kl. 24.00.
Framboðslistum fylgi yfirlýsing þeirra, sem á listunum
eru, að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listana, enn-
fremur listi stuðningsmanna listanna.
Fundur yfirkjörstjórnar með umboðsmönnufn fram-
boðslista verður haldinn í veitingahúsinu Gaflinum í
Hafnarfirði laugardaginn 27. marz kl. 10.00.
Yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis.
Guðjón Steingrímsson
Björn Ingvarsson Hjörleifur Gunnarsson
Vilhjálmur Þórhallsson Tómas Tómasson