Tíminn - 12.07.1967, Qupperneq 1
Auglýsing í TÍMANUM
kemur dagiega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Gerist áskrifendur að
TIMANUM
Hringið i síma 12323
154. tbl. — Miðvikudagur 12. júlí 1967. — 51. árg.
Alexander Sjetepin
Sjelepin lækkar í tign:
Upphaf
mikilla
manna-
skipta?
NTB-Moskvu, þriðjudag.
Alezander Sjelepin, sem eitt
sinn var talinn liklegastur til
mikilla valda af yngri mönnum í
sovézka komniúnistaflokksins, var
í dag skipaður eftirmaður V.
Grisjins sem formaður sovézka
Alþýðusainbandsins. Hefur þessi
breyting vakið geysimikla at-
hygli í Moskvu. Telja erlendir
fréttamenn, að þetta sé athyglis-
verðasta breytingin síðan Nikita
Krustjoff var steypt af stóli liaust
ið 1964, og er þetta talið upphaf
að 'i'íðtækri breytingu á skipun
flokksstjórnarinnar.
Sjelepin, sem er 49 ára, er
einnig flokksritari, en búist er
við, að hann muni láta af því
embætti þegar Miðstjórnin kem-
ur saman til fundar næst, og er
þá einnig búist við fleiri breyting
um. Telj.a fréttamenn, að með
skipun Sjelepins sem formanns A1
þýðusambandsins, hafi hann ver
ið lækkaður í tign.
Framhald á bls- 15.
SKATTSKRÁ REYKJAVÍKUR LÖGÐ FRAM:
Útsvörin 722,2 milijónir
- heildarhækkunin 22,5%!
ÞYNGSTI ÚTSVARSBAGGI, SEM LAGÐUR HEFUR VERIÐ
Á BORGARBÚA, ÞRÁTT FYRIR „STÖÐVUNARSTEFNUNAí
AK-Reykjavík, þriðjudag.
Á morgun kl. 9 árdegis verður
útsvars- og skattskrá Reykvíkinga
lögð fram og mun liggja frammi
lögákveðinn tíma, eins og nánar
er auglýst í blöðum í dag, til
25. júlí n.k. í Iðnaðarmannahús-
inu við Vonarstræti og í Skatt
stofu Reykjavíkur. Á skattskránni
eru alls 16 tegundir gjalda, og á
sömu stöðum liggja einnig frammi
skrár um skatta útlendinga hér,
aðalskrá um söluskatt árið 1966
og skrá uan landsútsvör 1967.
Kærulrestur er til 25. júlí.
Útsvör þau, sem Reykvík-
ingum er gert að greiða í ár,
samkvæmt þessari skrá, bæði
af tekjum og eignum, eru 722
milljónir 232 þúsund kr. Á
f járhagsáætlun borgarinnar
fyrir árið 1967 — að við-
bættum þeim 25—30 millj.
sem borgarstjórn bætti ofan
á með samþykkt fyrir nokkr-
um dögum — er útsvarsupp-
hæðin áætluð 658,3 millj. kr.
10 hæstu útsvarsgreiðendur — sjá baksíðu
auk vanhaldaálags, sem má
vera 5—10%, og má hámarks-
upphæðin samkvæmt því vera
724 millj. og 130 þús. kr. —
Hefur þessi heimild verið
dyggilega notuð, þar sem
álögð útsvör eru 722 millj.
sem fyrr segir, og vanhalda-
álagið hefur verið haft 9,75%.
Útsvör þessi eru lögð á 27297
einstaklinga, en þeir voru 25818
í fyrra, og á 1289 félög, en þau
voru 1146 í fyrra. Tala gjaldenda
nú ei því samtals 28586 en þeir
voru 26964 í fyrra og hefur fjölg-
að 'im 6%.
Útsvarsupphæðin í fyrra var
U
um 590 millj. kr. og er hækkunin
í heiid 22,5%. Þegar 6% fjölgun
gjaldanda er tekin með í reikning
inn hæbkar meðalútsvar á gjald-
anda um 16,5% og er það sannar-
lega allmikil hækkun á einu ári,
ekki sizt þegar höfð eru í huga
„stöðvunarlög" s©m banna allar
hækkanir. Mönnum verður og
miklu erfiðara en áður að greiða
iþessi hækkuðu útsvör á þessu
ári, þar sem tekjur hafa yfirleitt
rýrnað og kaup alls ekki hækkað.
Útavörin eru nú lögð á eftir
sama stiga og í fyrra, og síðan
veittur 6% afsláttur af útsvars-
upphæðinni, en hann var 5% í
fyrra. Útsvör, sem nema 1500 kr.
eða lægri upphæð eru felld niður.
Á skránni eru einnig aðstöðu-
Framhald á bls. 14.
Vopn streyma til Araba
Sovétríkin hafa sent Egyptum mikið magn flugvéla og skriðdreka
NTB-Washington, þriðjudag.
-jf Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að Arabaríkin hafi
þegar fengið endurbætt helming
þeirra flugvéla, sem þau misstu í
styrjöldinni við fs.rael, og fjórð-
ung allra skriðdreka og annarra
hervagna, sem þessi ríki misstu.
ic Óstaðfestar fregnir hermia,
að Egyptar hafi misst 300—400
orrustuþotur og sprengjuflugvél-
ar í styrjöldinni og helming
þeirra 1000 skriðdreka af Stalín
-111 gerð, sem þeir áttu áður en
styrjöldin hófst.
Bandaríkjastjórn lét í dag í
ljósi áhyggjur síniar yfir miklum
vopnasendingum Sovétríkjanna til
Egyptalands og annarra Araba-
ríkja fyrir botni Miðjarðarhafs.
Er hér bæði um að ræða send-
ingu flugvcla og annarra vopna.
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins sagði á blaða-
mannafundi í Washington í dag,
að bandaríska stjórnin hefði á ný
skorað á Sovétrikin að takmarka
sendingu hernaðartækja til land
anna fyrir botni Miðjarðarhafs,
svo hægt væri að koma í veg fyr
ir nýtt vigbúnaðarkapphlaup þar
um slóðir.
Talsmaðuri-nn minnli á, að
Johnson Bandaríkjafiorseti hefði
19. júní s. 1. sagt, að styirjöldin
milli ísraels og Arabaríkjanna
sýndi greinilega, hvílik hætta
væri fólgin í vígbúnaðarkapp-
hlaupi fyrir botni Miðjarðarhafs.
— Að okkar áliti ættu stór-
veldin að vinna að takmörkun
vopnasendinga til þessara ríkja,
en ekki að nýju vígbúnaðarkapp-
hlaupi, — sagði talsmaðurinn,
Robert MeClosky. Hann skoraði
einnig á Sovétríkin og öll önnur
ríki að fallast á þá tillögu Banda
rikjaforseta, að allar vopnasend
ingar til þessa svæðis yrðu skráð
ar hjá Sameinuðu þjóðunum.
McClosky skýrði frá því, að
Framhald á bls. 15.
t *•
■Lií^vj
i - *
■ A -t < ■*’■ ' '+' . ■' ‘ i **
SiÍa V ‘ ** * iié*
Margot Fonteyn
F0NTEYN 0G NUREJEV
FJÓRA TÍMA í FANGELSI
NTB-San Francisco, þriðjuáag.
Ballettstjörnurnar hcimsfrægu
Dame Margot Fonteyn og Rudolf
Nurejev voru handtekin í sam-
kvæmi i ,,Hippies-hverfinu“ í San
Francisco snemnia í morgun-
Voru þau sökuð um að trufla frið
inn með því að þau voru á stað,
þar sem marihuana var liaft um
hönd, og þar sem Iögreglan fann
klámmyndir. Var þeim sleppt
gegn 330 dollara tryggingu fyrir
livort þeirra eftir að þau höfðu
dvalið á lögreglustöðinni í fjórar
klukkustundir.
Þessir heimsfrægu danarar
voru meðal 18 manns, sem hand
tekin voru eftir að lögreglan hafði
stöðvað hávaðasamt og fjörugt sam
kvæmi í Belvedere Street 42 í
hverfi því, sem er aðsetursstaður
svonefndra ,,Hippies“ í San Franc
isco — en þetta er ungt fólk
með langt hár, sem leggur helzt
stund á frjálsar ástir og notkun
ýmis konar eitur- og deyfilyfja.
Eigandi þekrar íbúðar, sem
samkvæmið var haldið i, var af
lögreglunni sakaður um að hafa
undir höndum klámkvikmynd, og
fyrir að hafa veitt húsaskjól ein-
staklingum, sem verið höfðu und
ir áhrifum eiturlyfja. Lögreglan
tilkynnti, að hún hefði fundið 7
marihuana-sígarettur i íbúðinni.
Þá tilkynnti lögreglan, að með
al þeirra, sem handtekin voru,
hafi einnig verið aðstoðarhljóm-
sveitarstjórinn við sinfóníuhljóm
sveitin,a í Seattle. Hann hafði
Framhald á bls. 14.
Rudoif Nereyev