Tíminn - 12.07.1967, Qupperneq 2
TÍMINN
MIÐVffiUDAGUR 12. júlí 1967.
Ungtempl-
aramót á
Fyrsta Landsmót fslenzkra
ungtemplara var haldiS á
Sighifírði um mánaðamótin,
og vorn þátttakcndur rúmlega
þrjú hundruð, víðs vegar að
af landinu. Mótið þótti takast
mjög vcl í alla staði, en það
var ungtemplarafélagið Hrönn
á Siglufirði, sem sá um fram-
kvæmd mótsins.
Myndin er frá mótsetnmg-
unni á íþróttavellinum.
(Tímamynd: JÞ)
BK'Laugafelli, þriðjudag.
Grasspretta er hér seinni á
ferðinni en í fyrra og 2-3 vikum
seinni en í meða'lári. Sláttur er
hér hvergi hafinn enn. Nokkuð
víða, einkum í Laxárdal og
Hvammssveit, ber tailsvert á kali,
og er það meira en verið hefur
um árabil. Mningar eru rétt að
byrja, og eru þeir samuleiðis með
seinasta móti. Þeir bændur, sem
Býður íslenzkum
kennara til Eng-
lands
Eskur kennari býður ungum
íslenzkuim kennara við fram-
haldsskóla til dvalar í júlí á
heimili sínu í Englandi. Upp-
lýsingar hjá formanni LSFK,
sími'35894.
Fann stolinn hlut
eftir tvö ár
KJ-Reykjavik, laugardag.
Fyrir tveim árum síðan var
stolið lítilli rafsuðuvél í sand
nátni suður i Grindavík, og upp
lýstist þjófnaður þessi núna fyrir
tveim dögum. Þá varð eigand-
anum litið inn í bíl í Reykjavík
cg sér þá, hvar rafsuðuvélin er
niðurkomin. Var eigandi bílsins
tekinn til yfinheyrslug og viður-
kenndi hann að haiía stolið vél-
inni fyrir tveim árum síðan. Má
segja, um þjófnað þennan,- að
upp komist svik um síðir.
lokið hafa við að taka af, eru
ibyrjaðir að reka fé á afrétt.
Að Laugum kom í dag hópur
46 orlofskvenna, sem mun dvelj-
ast þar í 10 daga, en annar hópur
litlu minni fór eftir jafnlanga
dvöl. Munu slí'kir 'hópar dveljast
þar í sumar, en Orlofsnefnd
Reykjavíkur hefur skólann á leigu
í þessu skyni út júlímánuð, og
Orlofsnefnd Gullbringu- og ' Kjós-
arsýslu í ágúst. Stunda konurnar
sund og útivist og halda kvöid-
vökur með heimatilbúnu' efni, og
eru þær mjög ánægðar með dvöl-
ina. Sundlaugin að Laugum er
nýlega endurbætt og lagfærð
nokkuð.
EiS-Reykjavík, þriðjudag.
Horfur eru á, að sláttur hefjist
með seinna móti vestanlands
vegna vorkulda, og nokkuð er þar
einnig um kal í túnum. Rúningar
standa nú víðast hvar yfir. Blaðið
hafði samband við nokkra af
fréttariturum sínum á Vesturlandi
í dag, og fara frásagnir þeirra
hér á cftir.
SÞ-tBúðarda'l, þriðijudag.
Vorverk og grasspretta eru
'hér þremur vikum á eftir áætl-
un. S'Iáttur hefst eftir miðjan
mánuðinn, og er það töluvert
seinna en venjulega. Noktouð er
um kal, einkum hér frammi í Lax
árdalnum, og fer upp undir það
að vera allt að helmingur af
ræktuðu landi. Nokkuð ber einnig
á kali í fyrra, Og vcldur það því
erfiðleikum hjá þeim, sem hafa
orðið fyrir því tvö ár í röð, og
gæti jafnvel orsakað niðurskurð.
Vegna mikillar úrkomu er ekki
enn búið að rýja hér vestra, en
sennilega verður það gert í næstu
vitou.
Félagsheimilið var tekið í end-
anlega notkun 24. júní sl. með
hófi fyrir Laxdælinga, en Laxár-
dalshreppur og ýmis félagasam-
tök innan hreppsins hafa staðið
að byggingu þess.
GG-'Hjarðarfelii, þriðjudag.
Sláttur er byrjaður á einstaka
bæ, en sprettan er með minnsta
móti, miðað við þennan tíma
sumars, og heldur lakari en í
fyrra. Dálítið er um kal í túnum,
einkum nýræktum, en er þó ekki
tilfinnanlegt, þótt það komi sér
ver núna en í fyrra vegna lítillar
sprettu. Sennilega verður aðeins
sleginn einn sláttur nú í sumar.
Verið var að smala og rýja í gær
og í dag, cn vegna rigningar
var það ekki hægt í síðustu
viku. Ferðamannastraumurinn hef
ur verið með meira móti, einkum
inn í Breiðafjarðareyjar og vegir
eru orðnir ágætir miðað við það
sem gerist.
GG-iFornahvammi, þriðjudag.
H)ér hafa gengið kuldar fram á
þennan dag, og sláttur hefst í
fyrsta lagi upp úr 20. júlí. Tölu-
vert kal er í upphéruðum og hér
er um þriðjungur túnsins skemmd
ur af kali. Er það með mesta
móti, en nýræktir og flæðiengi
eru víða illa farin. Heyskapar-
horfur eru töluvert undir meðal-
lagi, og verri en á sama tima í
fyrra. Mningar standa hér nú
yfir, og Stafholtstungnamenn
ráku á fjal'l í síðustu viku. Um-
ferðin er mun minni en venja er
á þessum tíma árs, og lítið hefur
verið af ferðafólki.
LANDKRABBAR Á SJÓ
Margt er það, sem menn
gera sér til uppörvunar og
ánægju. Sl. föstudagskvöld
hoppuðu nokkrir landkrabbar
og innisetumenn um borð í
60 tonna bát hér í Reykja-
víkurhöfn, Hrönn GK 241, og
héldu út á mið á handfæra-
veiðar.
Þetta var . blandaður hópur,
bandariskur skiptistúdent frá
Kansas í sinni fyrstu sjóferð,
tveir erlendir starfsmenn við
Straumsvíkurverið, íslenzkir
verkfræðingar, ritstjóri Vísis,
tveir starfsmcnn hjá Shell,
form. Alþýðubandalagsfélags-
Reykjavíkur, starfsmaður hjá
auglýsingastofu, að ógleymd-
um starfsmanni hjá sjónvarp-
inu. Já, og ekki má gleyrna
tveimur starfsmönnum hjá
Loftleiðum. Meginstofninn í
þessum hópi voru klúbbfélag-
ar hér í borg, sem hafa ofar-
lega á stefnuskrá sinni að
stunda „utrásir" í einhverri
mynd.
Sjóferð þes=i var á engan
Framhald á bls. 14.
Happdrætti Há-
skóla íslands
Mánudaginn 10. júlí var dregið
í 7. flokki Happdrættis Háskóla
íslands. Dregnir voru 2.200 vinn-
ingar að fjárlhæð 6.200.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 500.000,
krónur, kom á heilmiða númer 59.
595. Annar heilmiðinn var seld-
ur í umboði Frímanns Frímanns
sonar í Hafnarhúsinu, en hinn í
umboðinu á Akureyri.
100.000 króur' komu á hálf-
miða númer 57.577. Tveir hálf-
miðar voru seldir hjá Arndísi Þor
valdsdóttur, Vesturgötu 10, einn
hálfmiði hjá Frímanni Frímanns-
syni í Hainarhúsinu og einn í um
boðinu á Selfossi.
10.000 krónur:
3858 — 5626 — 8645 — 9864 —
Vegleg minningar-
gjöf til Staðar-
kirkju í Hrútafirði
Við fermingarguðsþjónustu,
sunnudaginn 18. júní, var tekið
til notkunar í fyrsta sinn vand-
að og myndarlegt kirkjuorgel,
sem Staðarkirkju hafði borizt
frá systkinum frá Jaðri hér í Stað
arhreppi. Sigurður Hjartar-
son, Jón Hjartarson, Óli Hjartar-
son og Theódóra Hjartardóttir
gáfu kirkjunni þessa ágætu gjöf
til minningar um elskulega for-
eldra sína, Hjört Björnsson og
Hólmfríði Jónínu Jónsdóttur, sem
bjuggu búskapartíð sína á Jaðri
hér í byggð.
Mjög var það kirkjunni kær-
komið, að eignast orgel þetta þar
sem hið gamla orgel kirkjunnar
var úr sér gengið og lítt nothæft.
Hið nýja orgel er smíðað í Lind-
hólm-verksmiðjunum í Svílþjóð
og sérstaklega gert til notkunar
í kirkju. Um leið og ég færi gef
endunum innilegar þakkir kirkju
og safnaðar fyrir þessa góðu gjöf,
sem ber með sér hlýhug þeirra
til kirkjunnar og ræktarsemi við
minningu látinna foreldra, vil ég
vona, að orgelið verði kirkjulegu
trúarlífi til eflingar í byggð-
inni og söfnuðinum hvatning til
þess að meta vel sinn kristilega
trúararf.
Yngvi Þórir Árnason,
sóknarprestur.
11759 — 12318 — 14989 — 14385
—- 15173 — 17074 — 17014 —
23956 — 26611 — 26726 — 27269
— 27902 — 31701 — 32040 —
32790 — 33549 — 35598 ----- 36528
— 37121 — 37294 — 38053 —
38108 — 43072 — 44089 — 50470
— 50946 — 51547 — 51892 —
52026 — 53125 — 53373 — 53414
— 56634 — 59594 — 59596.
Fremstur á myndinni er Guðmundur Ágústsson, næstur Ragnar Jóhannesson, Vilhjálmur Þorláksson,
bandarfski stúdentinn frá Kansas og Jóhannes Söivason. (Tímamynd: SJ).
i