Tíminn - 05.08.1967, Síða 1

Tíminn - 05.08.1967, Síða 1
EN FJÖLSKYLDA” í KÓPAVOGI! Þessa mynd tók Ijósmyndari Tímans G. E. af hjónunum Gunnvöru Braga Sigurðardótt ur og Ðirni Einarssyni ásamt 10 fulltrúum á hinu norræna æskulýðsmóti, sem haldið er þessa dagana. Þau Björn og Gunnvör hafa sýnt þá rausn að hýsa þessi 10 ungmenni með- an á mótinu stendur, og er þetta þegar orðin hin bezta fjölskylda — norræn fjöl- skylda. Tíminn heimsótti hóp- inn í dag, og fleiri myndir og viðtöl við unga fólkið er á bls. 2. Lét hópurinn í Ijósi rnikla ánægju að fá að dveljast svona mörg saman á einkaheimili, og fá þannig tækifæri til að kynn ast vel innbyrðis og njóta ís- lenzkrar gestrisni. í fyrradag fóru þátttakend- urnir i hinu norræna æskulýðs móti til Þingvalla, þar sem staðurmn var skoðaður. Hlýddu þeir á fyrirlestur Sig- Framhald á bis 15. FUNDUR ÆÐSTU MANNA ARABA- RÍKJA HALDINN Á NÆSTUNNI? NTB-Khartoum, föstudag. Súdan stefnir að því að lialda fund æðstu manna Arabaríkjanna í Khartoum, höfuðborg landsins, fyrir 25. ágúst næstkomandi, svo að hægit sé að ræða afleiðingar styrjaldarinnar í löndunum fyrir botni Miðjarðarliafs fyrr í sumar. Var frá þessu skýrt á blaðamanna fusrdi í Khartoum, en þar sitja utanríkisráðlierrar Arabaríkjanna 13 á fundi. Góðar heimildir segja, að ráð- herramir séu í stórum dráttum sammála um að halda fund æðstu manna Arabaríkjanna, en að deitu mál, eins og styrjöid in í Jemen og áframhatd olíubannsins á Bretland, Bandaríkin og Vestur- Þýzkalands, geti enn komið í veg fyrir slíkan toppfund. Súdanskir embættismenn telja að Saudi-Araíbía muni fallast á egypzka tillögu þess efnis, að skipuð verði þriggja manna nefnd, sem fái það verkefni að sjá um að Jedda-samningurinn frá 1965 milli Egyptajands og Saudi- Arabíu um frið í Jemen kæmist í framkvæmd. Eins og kunnugt er styðja þessi ríki sitt hvom aðil- ann í borgarastyrjöldinni í Jemen en árið 1965 sömdu þeir Nasser Egyptalandsforseti og Feisal Saudi-Arabíukonungur um stöðv un styrjaldarinnar í landinu. Bar- dögum hefur þó verið haldið áfram. Fjármálaráðherra Súdans, S. Elhindi, vísaði í dag á bug frétt ,'ramhald a ols 15 Gott veður! GÞE-Reykjavik, föstudag. _ Ferðalangar geta yfirleitt bú izt við góðu veðri um lielgina, eftir því jem okkur var tjáð á Veðurstofunni í kvöld. Hvergi er gert ráð fyrir mikilli úr- komu né hvassviðri, og á morg- un verður veðrið líklega svipað eg pað var í dag um allt land, sólskin og hægviðri víðast hvar. Á sunnudag er hins vegar búizt við, að það þykkni dálítið uipp við suðurströndina og á Austunlandi, en þó ekki svo mikið að rigningu geri. Vindur á þeim slóðum verðuir að aust- an eða norðaustan og gert er náð fyrir svipuðu hitastigi og verið hefur. Á Vesturlandi og í innsveitum norðanlands verð ur væntanlega sólskin og blíð viðri alla helgina og Jónas Jakobsson veðurfræðingur sagði við Tímann, að ferðalang- ar gætu1 lagt af stað álhyggju- lausir í dag, hvert á land sem þeir ætluðu. Mynd þessi er fra fundi utanríkisráðherra Arabaríkjanna í Khartoum, höfúðborg Afríkuríkisins Súdan. Fundurinn hófst á miðvik^rlag. ÓPÍUM- STRiÐ! NTB-Bang'kok, föstudag. Herskár ættbálbnr í norður- hluta Thailands hefur drepið á fjórða hundrað fyrrverandi her menn kínverskra þjóðernis- sinna þar um slóðir. Er hér um að ræða baráttu um yfirráð yfir opíum-flutningum á þess- um slóðum yfir til annarra rikja. Þessar upplýsingar koma frá innanrí'kisráðherra Thailands, Oharusathien hershöfðragja. Sagði hann, að bardagamir Framhald á bls. 15 ————BBaaagMigaiai——aw—wbmmihmmm

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.