Alþýðublaðið - 22.04.1987, Síða 2

Alþýðublaðið - 22.04.1987, Síða 2
2 Miðvikudagur 22. apríl 1987 MPYÐIHmH) Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: 681866 Útgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Árni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson og Jón Daníelsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38 Prentun: Blaöaprent hf., Siðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 Lifandi hreyfing fólks Kosningabaráttan er nú að ná hámarki. Auglýsinga- flóð og óprúttnaraðferðirhafaeinkennt kosningabar- áttuna í ár. En hún hefureinnig borið merki flokkaupp- lausnar, ráðleysis og hugsjónalegrar deyfðar. Fram - bjóðendasveit Alþýðuflokksins hefur borið af hvað varðar hæfni einstaklinga og samleik. Listi Alþýðu- flokksins í Fteykjavík er skipaður óvenjulega hæfu og vel menntuðu fólki og sömu sögu er að segja um lista Alþýðuflokksins um allt land. Frambjóðendur flokks- ins hafa einnig sýnt hugrekki og baráttuviija sem er einstakurí íslenskri pólitík. Þannig mánefnaformann flokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, sem er reiðubú- inn að leggjaallt undir. Með því að styrkja liðsheildina og fá viðurkenndan hæfileikamann í efsta sætið i Reykjavík gaf hann kost á sér i þriðja sætið og sýndi þarmeð einstakadirfsku sem enginn flokksformaður áíslandi hefuráðursýnt. Jón Baldvin hefurennfremur lýst því yfirað nái hann ekki kjöri í þessum kosningum muni hann segja af sér flokksformennsku. Þar með hefur hann lagt pólitfskt líf sitt að veði fyrir árangri Alþýðuflokksins. Fyrirskömmu sagði Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Al- þýöublaðið að hann vildi ekkert um það segja, hvort hann segði af sérformennsku, ef Sjálfstæðisflokkur- inn næði ekki 30% fylgi í komandi kosningum. Þor- steinn þorði með öðrum orðum ekki að standa ábyrg- ur fyrir hugsanlegu fylgismissi flokksins og taka af- leiðingunum. Þar skilur á milli tveggja formanna. Alþýðuflokkurinn hefur breyst úr smáflokki í sterkt stjórnmálaafl undirforystu Jóns Baldvins Hannibals- sonar. FráþviaðJón Baldvin tók við formennsku íárs- lok 1984 hefur öflug uppbygging flokksins átt sér stað; ekki síst hefur hæft fólk verið kallað til dáða og nútlmaleg stefna byggð á hefðum jafnaðarstef nunnar fundið farveg að hugum og hjörtum almennings í landinu. Nýverið sagði formaður Alþýðuflokksins í viðtali við Alþýðublaðið: „Það sem með öðrum orðum tókst, var að hin rétta, sígilda sósíaldemókratíska pólitík náði meirihluta. Stefnan var skilgreind og þar með var flokkurinn skilgreindur. Ég sagði: Við erum ekki gamaldags ríkisforsjárflokkur. Við erum róttæk- ur umbótaflokkur." Á öðrum stað i sama viðtali segir Jón Baldvin: „Ef Alþýðuflokkurinn fer af leið, þá er honum þegar refsað. Eru gerðar meiri kröfur til hans? Hann er með öðrum orðum ekki flokkskerfi og hann er ekki trúarsöf nuður. Alþýðuf lokkurinn er hreyf ing, sem getur náð árangri ef fólk treystir honum; ef hann er á réttri leið. Annars er flokkurinn bara afskrifaður.“ Það er full ástæða til að hugleiða þessi orð. Alþýðu- flokjKurinn er lifandi afl kjósenda. Lifandi hreyfing fólks. Hann erekki staðnað miðstýringarveldi eðasér- hagsmunavél. Alþýðuflokkurinn vill reisa við velferð- arríkið og berjast fyrir nýsköpun efnahagslifsins. Hvað þýða þessi orð? Þau þýða að Alþýðuflokkurinn mun, komist hann til valda að afloknum kosningum, beita sér fyrir sanngjarnari tekjuskiptingu, stytta vinnutímann, styðja frjálst og framsækið atvinnulíf og skapasamfélag um menningu og mannúð. Alþýðu- flokkurinn hefur lagt fram heilsteyptaog málefnalega stefnuskrásem stuðlarað betra, mannúðlegraog rétt- látara þjóðfélagi. Það er okkar kjósendanna að velja þessar jákvæðu breytingar á lífshögum okkar eða af- skrifa þær. Kaffisamsæti eldri borgara og Evrópuhátíöin; Um 1300 manns komu Mikið fjölmenni var samankom- ið á tveimur kosningahátíöum Al- þýðuflokksins á skírdag. Um 500 manns mættu í kaffisamsæti eldri borgara í veitingahúsinu Ártúni að Vagnhöfða 11 og um 800 manns komu á hátíð unga fólksins í Veit- ingahúsinu Evrópu við Borgartún. í Ártúni þáðu eldri borgarar kaffi og meðlæti, stigu dans og hlustuðu á ávarp Jóhönnu Sigurð- ardóttur. í Evrópu flutti Jón Bald- vin Hannibalsson ávarp kvöldsins og nokkrir landskunnir skemmti- kraftar sáu um söng og gleði fram að miðnætti. Rósir á hvert heimili: Vantar sjálfboðaliða! Á sumardaginn fyrsta ganga Al- þýðuflokksmenn í hús og bjóða landsmönnum rósir. Rósadreifingin hefst klukkan 13.00 og er mikilvægt að það takist að bera sem flestar rósir í hús fyrir kvöldið. Stuðningsmenn Alþýðu- flokksins sem taka vilja þátt í skemmtilegu starfi eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Kosningamiðstöðina að Síðumúla 12 í Reykjavík, síminn er 68 93 70. Alþýðuflokkurinn: Ný skrifstofa á Patró Alþýðuflokkurinn hefur opnað kosningaskrifstofu að Urðargötu 17 á Patreksfirði. Síminn er (94)- 1550. Kosningastjóri er Ásthildur Ágústsdóttir. Á sumardaginn fyrsta ganga Al- þýðuflokksmenn í hús og bjóða landsmönnum rósir. Rósadreifing- in hefst klukkan þrjú og eru allir þeir sem vilja taka þátt í dreifing- unni beðnir um að hafa samband við Kosningamiðstöðina að Síðu- múla 12. Síminn er 68 93 70. Tilkynning Frá landbúnaðarráöuneytinu Ráðuneytið verður lokað eftir hádegið miðviku- daginn 22. apríl og föstudaginn 24. apríl vegna flutnings úr Arnarhvoli. Opnað verður mánudaginn 27. apríl að Rauðarár- stíg 25, 4. hæð. Símanúmer ráðuneytisins er óbreytt, 62-2000, Póstfang er Rauðarárstígur 25, 150 Reykjavík. 21. apríl 1987 Landbúnaðarráðuneytið Kjörstaðir í Reykjavík við kosningar til Alþingis laugardaginn 25. apríl 1987 verða þessir: Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Austurbæjarskóli, Breiðagerðisskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Foldaskóli, Langholtsskóli, Laugarnesskóli, Melaskóli, Miðbæjarskóli, Sjómannaskóli, Öldu- selsskóli. Auk þess verða kjördeildir í Elliheimilinu „Grund“, Hrafnistu og Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis, og lýkur kl. 23.00. Athygli ervakin á, að kjörstjórn geturóskað þess, að kjósandi sanni hver hann er með því að fram- vísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt. Yfirstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur í Austur- bæjarskólanum og þar hefst talning atkvæða að loknum kjörfundi. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur Jón G. Tómasson Skúli Pálmason Sigurður Baldursson Hrafn Bragason Hjörtur Torfason Aðalfundur Samvinnubankans Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 1987 að Hótel Loftleiðum, Kristalssal og hefst kl. 14.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild bankaráðs til útgáfu jöfn- unarhlutabréfa og tillögur til breytinga á samþykktum bankans, ef fram koma. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í aðalbanka, Bankastræti 7, dagana 27. - 29. apríl svo og á fundarstað. Ðankaráð Samvinnubanka íslands hf

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.