Alþýðublaðið - 01.05.1987, Page 2

Alþýðublaðið - 01.05.1987, Page 2
2 Föstudagur 1. maí 1987 MfflUltUlIII Simi: 681866 Útgefandi: Blaö hf. Ritstjórar: Árni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson og Jón Daníelsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guömundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 Einn heilsteyptan jafnaðarmannaflokk Alþjóðlegurdagurverkalýðsinserl. maí. Þáminnast menn gamalla sigra og fylkja sér um nýjar kröfur. Verkalýðsbaráttan í dag erað mörgu leyti ósvipuð bar- áttu fyrri ára. Stéttarmeðvitund hefur dofnað og hinn pólitíski kraftur verkalýðshreyfingarinnar hefur dreifst. Samkvæmt könnunum Félagsvísindastofn- unar Háskólans styðja svonefndar láglaunastéttir ekki verkalýðsflokkana, heldurfyrst og fremst hægri flokka sem Borgaraflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn. Ástæður þessara breytinga eru eflaust margþættar, en nefna má breyttar þjóðfélagsaðstæður og meiri velmegun, hagfræðileg stjórnun verkalýðsfélaga á kostnað pólitískrar vitundar, og landvinningur mark- aðsstefnu í stað félagshyggju. Alþýðuflokkurinn hefur á undanförnum árum sótt mjög í sig veðrið sem lýðræðislegur jafnaðarmanna- flokkur í stórsókn. Baráttumál jafnaðarmanna fyrir aukinni velferð allra landsmanna birtist m.a. í stefnu- málum flokksins í lífeyrismálum, skattamálum, hús- næöismálum og heilbrigðismálum. Úrslit kosning- annavoru svörun kjósendavið velferðarstefnu flokks- ins. Kjósendur sem juku fylgi flokksins, vita að Al- þýðuflokkurinn er jafnaðarmannaflokkur sem fylgir tlmanum en hefur ekki einangrast ( gömlum, innan- tómum slagorðum eins og raunin hefur því miðurorð- ið á með Alþýðubandalagið. Mikil innri gagnrýni og uppstokkun er nú fyrirdyrum hjá Alþýðubandalaginu. Flokkur verkalýðsins hefur reynst eiga minnsta fylgi verkalýðs að fagna. Hvers vegna skyldi það vera? Það er einkum vegna þess að Alþýðubandalagið hefur gleymt að fylgjast með tímanum; að verkalýður nú- tímans setur aðrar kröfur á oddinn en áður. Alþýðu- bandalagiö hefureinnig svikið láglaunafólkið með því að binda pólitík sína við ASI-stefnuna. Útkoman var máttlaus kjaramálapólitík í kosningabaráttunni. Hættan við þá þróun sem átt hefur sér stað innan verkalýðsfélaga og Alþýðusambandsins er sú, að þessi voldugu félög breytist í dauöa hagfræðikontóra sem ekki eru í virku sambandi við félagana. Rofin tengsl verkalýðsforystu við hið lifandi afl — fólkið sjálft — kann að sjálfsögðu ekki góðri lukku að stýra. Þettakerfi verðuraðbrjótaupp. í fyrstalagi verðurað framkvæma hugmyndir Alþýðuflokksins um sameig- inleg stéttarfélög ávinnustöðum. í öðru lagi verðurað sameinavinstri menn og félagshyggjuöfl í einn stóran jafnaðarmannaflokk. Launafólk sem er dreift um, marga félagshyggjuflokka, er fólk í upplausn og rekur auöveldlega í hugsjónalegri deyfð á fjörur hægri flokkanna. Þreifingar síðustu daga um myndun ný- sköpunarstjórnar gæti orðið fyrsta skrefið til sam- runa A-flokkanna. Innra uppgjör Alþýöubandalagsins hlýtur að lykta á þann veg, að flokksmenn viðurkenna að hin nútímalega, lýðræðislega leið Alþýðuflokksins til velferðar sé rétt í öllum aðalatriðum. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður alþýðuflokks- ins, sagði eftirfarandi orð í 1. maf ræðu fyrir ári sem hann hélt á Siglufirði: „ímyndið ykkur, hvernig um- horfs væri í þessu þjóðfélagi, ef við ættum nú þegar heilsteyptan verkalýðsflokk sem starfaði á traustum hugmyndagrundvelli lýðræðisjafnaðarstefnu og hefði að bakhjarli vel skipulagða og lýðræðislega verkalýðshreyfingu eins og víðast hvar annars staðar í Evrópu." Þessi orð eru óvenjufersk í dag. Þessi mynd er frá fyrstu kröfugöngunni sem farin var á íslandi á baráttudegi verkalýðsins, 1. mai 1923. (höfundur óþekktur - Ljósmyndasafnið). Frá gleymdum dögum Það var árið 1923 sem fyrst var far- ið í almenna kröfugöngu í Reykja- vík á hátíðis- og baráttudegi verka- lýðsins, 1. maí. Síðan eru liðin 64 ár og kröfugöngurnar og hátíðahöld- in eru fyrir löngu orðnar fastur lið- ur í þjóðlífinu þennan dag. Alþýðu- blaðið minnist dagsins með nokkr- um myndum úr sögu íslenskrar al- þýðu. Myndirnar hér á síðunni eru fengnar á Ljósmyndasafninu, en þar eru varðveitt mikil menningar- leg verðmæti í formi mynda frá gamaili tíð. Konur og börn lögðu hart að sér'við vinnu, ekki slöuren karlmenn, þótt minnafari fyrirvinnuframlagi þeirra I skráð- um heimildum. Hér er unnið að saltfiskþurrkun á Kirkjusandi um 1910. ‘ Þessir verkamenn unnu við grjótnám I Öskjuhllðinni nálægt árinu 1915. (Magnús Ólafsson — Ljósmyndasafnið)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.