Alþýðublaðið - 01.05.1987, Síða 7

Alþýðublaðið - 01.05.1987, Síða 7
Föstudagur 1. maí 1987 7 Ávarp Alþjóöa- sambands frjálsra verkalýös- félaga (ICFTU) Hefjum ^87 uppbyggingu framtíðar I tilefni 1. maí 1987 hvetur Al- þjóðasamband frjálsra verkalýðs- félaga (ICFTU) 85 milljónir félags- manna sinna frá 144 félagasamtök- um í 96 löndum til að halda áfram baráttunni til að leggja grundvöll að framtíðinni. Sambandið skorar jafnframt á alla ófélagsbundna verkamenn að gerast þátttakendur i þessu aðkallandi verkefni: að stuðla að betri framtíð sem grund- völluð er á réttlæti, frelsi, friði og lýðræði. Einmitt þessi gildi hafa verið hornsteinn alþjóðlegrar frjálsrar verkalýðshreyfingar allt frá stofnun hennar og eru falin í kjörorðum hennar: Brauð — friður — frelsi í dag er heimurinn sífelldum breytingum undirorpinn og um- skiptin verða æ hraðari. Á sama tíma deyja þúsundir manna úr hungri daglega. Fjórðung mann- kyns skortir viðunandi húsnæði. Milljónir ungmenna, kynslóðir framtíðarinnar, hafa ekki átt kost á nauðsynlegri menntun. Heilar verksmiðjur, tákn tækniframfara, eru þurrkaðar út í slysförum, sem drepa verkamenn og ógna bæði al- menningi og umhverfinu. Atvinnu- leysi og slæmt atvinnuástand veldur vaxandi eymd víðsvegar um heim- inn. Mannréttindi og félagafrelsi eru fótum troðin í mörgum lönd- um, jafnt af einræðisherrum sem kenna sig við vinstri- og hægri stefnu. Hinn svarti meirihluti þjóð- arinnar í S-Afríku heldur áfram einbeittri baráttu sinni til að binda endi á aðskilnaðarstefnu stjórn- valda. Barnaþrælkun heldur áfram. Sömuleiðis mismunun á vinnumarkaði eftir kynjum. Þró- unarlöndin eru að sligast undir er- lendum skuldum... Alþjóðsamband frjálsra verkalýðsfélaga krefst annarrar framtíðar Alþjóðsamband frjálsra verka- lýðsfélaga krefst djarfrar langtíma- áætlunar í efnahags- og félagsmál- um sem verði til að breyta gagngert rikjandi ástandi í efnahags- og fé- lagsmálum, leggi forsendur ekki einungis fyrir framförum og hag- vexti heldur einnig félagslegu rétt- læti: — Alþjóðsamband frjálsra verka- lýðsfélaga mótmælir tilraunum sumra ríkisstjórna til að draga í efa rétt verkalýðssamtaka, og takmarka athafnafrelsi þeirra. Það minnir á að þar sem frjáls verkalýðshreyfing hefur tjáning- arfrelsi er hún ómissandi félags- legur þáttur og framlag hennar til efnahagslegra og félagslegra framfara er milljónum verka- manna lífsnauðsyn. — Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga telur nauðsyn- legt að styðja og efla starf verka- Iýðshreyfingarinnar í þágu frið- ar, öryggis og afvopnunar í heiminum. Alþjóðleg verkalýðs- hreyfing telur að við verðum að einbeita okkur að almennri sam- ræmdri afvopnun undir öflugu alþjóðlegu eftirliti, sem tekur bæði til hefðbundinna vopna og kjarnorkuvopna. Sambandið er fullvisst um mikilvægi þess að efla aðgerðir til þess að styrkja gagnkvæmt traust. Gagnkvæm viðurkenning á ráðstöfunum til eftirlits á viðkomandi stöðum er nauðsynlegur þáttur ef sam- komulag á að nást, og verður að stuðla að því. — Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga lýsir yfir fullum og ótvíræðum stuðningi við alla verkamenn og öll frjáls og lýð- ræðisleg samtök verkafólks í baráttu þeirra við að verja rétt og frelsi vinnandi fólks og bar- sýnir verkalýðshreyfingin samtakamátt sinn og sigurvilja með því að fylkja einhuga liði í kröfugöngum og á fundum verkalýðsfélaganna. Höfnum sundrungu, treystum raðirnar og búumst til baráttu fyrir mannsæmandi lífskjörum. Berum kröfur samtaka okkar fram til sigurs.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.