Alþýðublaðið - 01.05.1987, Qupperneq 8
8
Föstudagur 1. mal 1987
áttu þeirra gegn hvers konar
harðstjórn, hverjar hugsjónir
sem sú harðstjórn hefur á oddin-
um.
Heimurinn er að breytast. Aukin
þátttaka kvenna á vinnumarkaði,
framfarir til jafnréttis og tækifæri
fyrir vinnandi konur og full þátt-
taka þeirra í verkalýðshreyfingunni,
vandamál sem upp hafa komið
vegna aukinna hlutastarfa, mikill
fjöldi ungs fólks í leit að atvinnu,
tilkoma nýrrar tækni, allt eru þetta
verkefni sem verkalýðshreyfingin
verður nú að taka á.
Alþjóðleg verkalýðshreyfing er
einörð í að leggja sitt af mörkum til
að móta þetta þjóðfélag og stuðla
að nýjum formum samstöðu.
Á næsta þingi Alþjóðasambands
frjálsra verkalýðsfélaga sem haldið
verður 14r-18. mars 1988 í Mel-
bourn í Ástralíu munu fulltrúar að-
ildarfélaganna ákveða hvernig best
verður brugðist við þeim nýju
breytingum sem nú fara í hönd hjá
vinnandi fólki í heiminum.
Alþjóðleg verkalýðshreyfing og
meölimir hennar, Alþjóðsamband
frjálsra verkalýðsfélaga, Alþjóð-
legu sérsamböndin og aðildarsam-
bönd eru i dag 1. maí, sameinuð og
tilbúin til að:
Mœta kröfum nútímans
og stuðla að betri framtíð!
Lifi alþjóðleg samstaða
verkalýðshreyfingarinnar!
Lifi baráttudagur verka-
fólks!
1. maí ávarp Fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík, Bandalags
starfsmanna ríkis og
bæja og Iðnnemasam-
bands Islands.
Hver er sú tilfinning, sem bærist
með íslensku launafólki á baráttu-
degi verkafólks I. maí? Hvernig
skynjum við þennan dag, karlar,
konur og börn? 1. maí er og verður
dagur hvatningar og dagur vonar
fyrir íslenskt launafólk.
Miklar hræringar hafa orðið í
kjaramálum á síðustu vikum. Þær
launahækkanir sem átt hafa sér
stað að undanförnu hljóta á næstu
vikum einnig að koma til þeirra,
sem höllum fæti standa í launabar-
áttunni. Atvinnurekendur verða að
skilja, að þeir sem minnst bera úr
býtum, mega ekki dragast aftur úr í
kjörum. Að öðrum kosti vefður
verkafólk að brýna kutana til
átaka.
Atvinnurekendur geta hækkað
laun svo um munar, ef þeir láta af
ómarkvissu fjárfestingarbruðli og
hyggja að bættum rekstri og skipu-
lagi innan fyrirtækjanna. Á þann
hátt er m.a. hægt að hækka laun án
nýrrar verðbólguholskeflu.
Skattsvikin eru þjóðarböl. Þeim
verður að útrýma. Það nær engri
átt að almennt launafólk beri þung-
ann af sköttunum meðan fjöldi fyr-
irtækja og einstaklinga kemst hjá
því að greiða í hinn sameiginlega
sjóð.
Misréttið hefur margar hliðar.
Ein þeirra snýr að launum karla og
kvenna. þar er mikið verk að vinna.
Samtök launafólks verða að gera
bandalag um að afmá launamisrétt-
ið og linna ekki látum fyrr en fullt
jafnrétti hefur náðst.
Önnur hlið snýr að börnum okk-
ar. Langur vinnudagur og lágt kaup
— ekki síst kvenna — á drýgstan
þátt í því útigangsþjóðfélagi, sem
við höfum búið börnum okkar.
Einu áhrif yngstu kynslóðarinnar
eru lyklavöld að mannlausum íbúð-
um og aðgangur að skólakerfi, sem
yfirvöld hafa ekki sniðið að að-
stöðu og þörfum barna. Er þetta
það sem við viljum? Er þetta það
samfélag, sem við viljum búa börn-
um okkar og okkur sjálfum í fram-
tíðinni?
Fyrir frumkvæði verkalýðshreyf-
ingarinnar hefur tekist að gerbreyta
stöðunni i húsnæðimálum á
skömmum tíma. En betur má ef
duga skal. Ríkisvaldið verður að
leggja fram meira fé til að stytta
biðtímann eftir húsnæðislánum.
Ellegar er hið mikla starf hreyfing-
arinnar í húsnæðismálum í hættu.
Jafnframt þarf að tryggja aðra
kosti til húsnæðisöflunar; félags-
lega íbúðarkerfið og opna nýjar
leiðir s.s. kaupleiguíbúðir fyrir þá
sem þess óska.
Af hverju ekki að kaupa þetta hjá
okkur?
Við bjóðum einfaldlega allt efni til
klcedningar
Timbur, steinull, hinar afar vinsælu
steindu plötur
og annað sem til þarf
Ef þú þarft að klæða þá er stíll yfir steindu plötunum
Heildsala: Holtagöröum.
Smásala:Krókhálsi.
Það er mannréttindi að búa í ör-
uggu húsnæði. Það eru líka mann-
réttindi að þurfa ekki að fórna
heilsu og fjölskyldulífi til að eignast
þak yfir höfuðið.
Ný sýn á menntun og fræðslu-
starf blasir við launafólki og sam-
tökum þess. Námskeið fyrir fisk-
verkafólk og aðrar nýjungar í
fræðslustarfi sýna okkur hvað
hægt er að gera. En þetta er upphaf-
ið að öðrum stórum verkefnum á
þessu sviði. Launþegahreyfingin í
landinu gerir kröfu um símenntun,
enda er menntunin lífakkeri allra
Iaunþega þegar til lengri tíma er lit-
ið. Jafnframt er hún undirstaða
iðn- og tækniþróunar og ræður
þannig lífsafkomu okkar sem þjóð-
ar.
1. maí minnumst við bræðra okk-
ar og systra í þriðja heiminum,
þeirra sem kúgaðir eru og hæddir
sökum kynferðis, Iitarháttar eða
trúarbragða. Við fordæmum ógn-
arstjórnir heims. Suður-Afríka er
þar efst á blaði. Við höfnum einnig
afskiptum stórveldanna af innan-
landsmálum ríkja, hvort sem er í EI
Salvador, Nicaragúa eða Afghan-
istan. Vopn varða aldrei veginn til
friðar.
Við höfnum einnig kjarnorku-
vopnum. Gereyðingarvopn marka
leið beint til heljar. Við höfnum
þeirri lífssýn, að börnin okkar alist
upp í víghreiðri kjarnorkunnar. Við
berum virðingu fyrir lífinu. Þess
vegna styðjum við kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd, kjarnorku-
vopnalaust svæði í Mið-Evrópu og
heim. án atómvopna. Þess vegna
styðjum við einnig friðlýsingu haf-
svæðisins umhverfis ísland og
hvetjum til harðvítugrar andstöðu
við endurvinnslustöð fyrir kjarn-
orkuúrgang í Dourea í Skotlandi.
Slys frá slíkri stöð myndi ógna lífs-
aficomu íslensku þjóðarinnar.
Við íslendingar eigum að marka
okkur spor í sögu þjóðanna sem
friðelskandi fólk.
Á næstu vikum og mánuðum
reynir enn á ný á samtakamátt og
siðferðisþrek launamanna. Okkur
er öllum ljóst, að það verður að
bæta laun þeirra sem verst eru sett-
ir. Þetta verður að takast. Minn-
umst þess hvernig samtakamáttur í
stað sérhyggju hefur ætíð reynst
öflugur bakhjarl til að byggja upp
réttlátt þjóðfélag í anda frelsis,
jafnréttis og bræðralags. í anda
þeirra hugsjóna, sem verkalýðs-
hreyfingin hefur haft að leiðar-Ijósi
frá öndverðu.
Getraunir
„ 11
Lelklr 2. mai 1987 1
1 X 2
1 Arsenal - Aston Vllla 2 Chartton - Luton 3 Chelsea - Lelcester T
I
4 Coventry - Llverpool 5 Man. United - Wimbledon 6 Nott’m Forest - Tottenham *
7 Oxford - Norwlch 8 Sheffield Wed. - Q.P.R. 9 Watford - Southampton
r
17
10 West Ham - Newcastle 11 Derby-Leeds 12 Oldham - Plymouth 7
i
1
Alþýðublaðið heldur áfram að
rúlla yfir Helgarpóstinn í getrauna-
keppni blaðanna. Alþýðublaðið
hefur fjögurra stiga forystu eftir
leiki helgarinnar.
í síðustu leikviku komu fram
tvær raðir með tólf réttum. Vinn-
ingur fyrir hvora röð er tæpar 200
þúsund krónur. Nú eru aðeins tvær
leikvikur eftir á þessu tímabili og
mál til komið að krækja sér í tólfur.
Fagurs útsýnis get-
ur ökumaður ekki
notið öðruvísi en
að stöðva bílinn
þar sem hann
stofnarekki öðrum
vegfarendum i
hættu (eða tefur
aðra umferð).